Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.2012, Qupperneq 16
EigEndurnir á flótta
F
lutningaskipið Saga, sem áður
hét Axel, hefur nú hring sólað
við strendur Noregs meira eða
minna í mánuð. Á því tímabili
hefur skipið tvisvar sinnum
skipt um nafn. Flutningaskipið var í
gær, fimmtudag, við strendur Tromsø
í Norður Noregi, samkvæmt upplýs-
ingum á vefsíðunni marinetraffic.
com. Þá lá skipið við strendur norsku
eyjarinnar Humla í þrjár vikur án
þess að leggja festar við bryggju.
Heimildir DV herma að í Tromsø
leiti skipverjar nú að nýjum verk-
efnum. Skiptastjóri félaganna sem
héldu utan um rekstur skipsins seg-
ir málið óvenjulegt, en hann mun
funda með kröfuhöfum í næstu viku,
þeirra á meðal eru Lýsing og Íslands-
banki. Eigendur félaganna reyna að
láta lítið fyrir sér fara og skella ítrek-
að á þegar blaðamaður nær til þeirra.
Dularfullt mál
Málið þykir hið dularfyllsta en það
hefur reynst DV erfitt að hafa uppi
á þeim sem hefur verið skráður fyr-
ir skipinu lengst af, Ara Axel Jóns-
syni. „Heyrðu, hann bara finnst ekki
hér á staðnum,“ sagði eiginkona
hans í samtali við DV þegar reynt var
að hafa upp á honum í ágúst. Þegar
blaðamaður hringdi svo aftur í sama
heimasíma sem skráður er á Ara Axel
í gær, fimmtudag, svaraði eldri karl-
maður sem vildi ekkert kannast við
nafn Ara Axels. „Nei, það er einhver
vitleysa,“ sagði maðurinn og lagði á
þegar honum var bent á að Ari Axel
Jónsson væri skráður fyrir símanúm-
erinu. Blaðamaður hingdi aftur og
ítr ekað í sama númer en án árangurs,
enginn svaraði.
Rússneskur skipstjóri flutninga-
skipsins sem þá hét Axel, flúði með
það úr Akureyrarhöfn að kvöldi dags
þann 28. júlí síðastliðinn. Líklegt þyk-
ir að hann hafi verið undir þrýstingi
frá eiganda skipsins, Ara Axel. Skip-
ið hafði verið kyrrsett í höfninni af
sýslumannsembættinu á Akureyri,
en kyrrsetningin var gerð að beiðni
skiptastjóra félaganna Dregg ehf. og
Dregg Shipping ehf. Félögin, sem nú
eru gjaldþrota, voru í eigu Ara Axels
Jónssonar, athafnamanns á Akureyri.
Þau héldu utan um rekstur flutn-
ingaskipsins áður en hann var færð-
ur yfir á annað félag í Færeyjum.
Þögn eigenda
Jónas Sigmarsson, er eigandi SPF
Saga Shipping, en það fyrirtæki er
skráð í Færeyjum og er núverandi
eigandi flutningaskipsins Axel. Sam-
kvæmt heimildum DV munu kaup
Jónasar á flutningaskipinu árið 2009
vera á meðal þess sem er til skoðun-
ar hjá efnahagsbrotadeild ríkislög-
reglustjóra. Þar liggur meðal annars
grunur á að söluverð hafi ekki verið
eðlilegt þar sem um tengda aðila hafi
verið að ræða. Þegar blaðamaður
náði loks tali af Jónasi í gær, fimmtu-
dag, var fátt um svör: „Ég vill ekkert
tjá mig um þetta mál,“ sagði Jónas og
skellti á blaðamann. Þannig virðist
nær í ómögulegt að ná tali af eigend-
um þeirra félaga sem tengjast dular-
fulla skipinu.
Heimildarmaður DV segir flóttann
frá Akureyri benda til þess að verið
sé að reyna að koma eignum undan.
Málið hefur verið kært til efnahags-
brotadeildar ríkislögreglustjóra sem
fer með rannsókn málsins. „Það verð-
ur skiptafundur á mánudaginn eftir
viku þar sem fjallað verður um þessi
mál, og ráðstöfun á skipinu,“ segir Sig-
mundur Guðmundsson, skiptastjóri
Dregg ehf. og Dregg Shipping ehf.
í samtali við DV. Hann segir að þar
verði farið yfir frekari ráðstafnir sem
ef til vill þurfi að grípa til. Aðspurð-
ur um málið sem slíkt, segir hann
það óvenjulegt: „Maður lendir ekki í
þessu á hverjum degi.“
Tengdasonur í hafnarstjórn
Bjarni Sigurðsson, fyrrum fram-
kvæmdastjóri Dregg Shipping ehf.
og viðskiptafélagi, Ara Axels situr í
stjórn Hafnarsamlags Norðurlands,
sem heldur meðal annars utan um
rekstur Akureyrarhafnar. Bjarni sem
er tengdasonur Ara Axels kemur ekki
nálægt daglegum störfum hafnar-
innar þrátt fyrir stjórnarsetu sína,
að sögn hafnarstjóra Akureyrarhafn-
ar. Þá fengust þau svör frá Akur-
eyrarhöfn að tengsl stjórnarmanns-
ins Bjarna við flutningaskipið væru
ekki talin skipta máli. Öllum vinnu-
reglum hefði verið fylgt. Ekki náðist
í Bjarna við vinnslu þessarar fréttar
þrátt fyrr ítrekaðar tilraunir.
Erfitt getur verið fyrir þrotabú að
nálgast eigur sem skráðar eru er-
lendis. Einn viðmælandi blaðsins
líkti nafnabreytingunum og eigenda-
skiptunum á skipinu við kennitölu-
flakk og aðrar aðferðir sem helst
mætti sjá þegar fjallað væri um
svokölluðuð skattaskjól. Eftir því sem
eigendakeðjan lengdist væri verið að
gera kröfuhöfum erfiðara fyrir. n
16 Fréttir 7.–9. september 2012 Helgarblað
Viðskiptafélagar Ari Axel Jónsson og tengdasonur hans Bjarni Sigurðsson eru viðskipta-
félagar en Bjarni situr einnig í stjórn Hafnarsamlags Norðurlands.
n Enginn vill kannast við flutningaskip sem hefur hringsólað við strendur Noregs„Maður lendir
ekki í þessu
á hverjum degi
Jón Bjarki Magnússon
blaðamaður skrifar jonbjarki@dv.is
Einnig úrval af hvíldarstólum,
bókahillum, sófaborðum.
Full búð af glæsilegum Ít
ölskum sófasettum
Heimilisprýði ehf
Sími 553-8177
heimilisprydi@simnet.is
Skoðið heimasíðu okkar H
eimilisprydi.is
Sendum frítt út á land!
Ei nig úrval af hvíldarstólum,
bókahillum, sófaborðum.
Fu l búð af gl silegu Ít
ölsku sófasettu
Heimilisprýði ehf
Sími 53-81 7
heimilisprydi@simnet.is
Skoðið heimasíðu o kar H
eimilisprydi.is
Sendum frí t út á land!Einnig úrval af hvíldarstólum,
bókahillum, sófaborðum.
Full búð af glæsilegum Ítölskum sófasettum
Heimilisprýði ehf
Sími 553-8177
heimilisprydi@simnet.is
Skoðið heima íðu okkar Heimilisprydi.is
Sendum frítt út á land!
Einnig úrval af hvíldarstólum,
bókahillum, sófaborðum.
Full búð af glæsilegum Ítölskum sófasettum
Heimilisprýði ehf
Sími 553-8177
heimilisprydi@simnet.is
Skoðið heimasíðu okkar Heimilisprydi.is
Sendum frítt út á land!Einnig úrval af hvíldarstólum,
bókahillum, sófa orðum.
Full búð af glæsilegum Ítölskum sófasettum
Heimilis rýð ehf
Sími 553-8177
heimilisprydi@simnet.is
Skoðið heimasí u okkar Heimilisprydi.is
Sendum frítt út á land!
Full búð af glæsilegu ítöls sófasettum
Skoði i í u ok a eimilisprydi.is