Dagblaðið Vísir - DV - 07.09.2012, Page 56
Sölvi kvíðir
helgunum
n Gengi knattspyrnuklúbbsins
Liverpool hefur ekki verið upp á
marga fiska undanfarið, stuðn
ingsmönnum liðsins til mikill
ar armæðu. Sjónvarpsmaðurinn
Sölvi Tryggvason er einn þeirra sem
ekki er ánægður með sína menn.
„Sjaldan hefur mér liðið jafnmik
ið eins og barni alkóhólista sem
stuðningsmanni Liverpool,“ seg
ir hann og bætir við
ástæðunni: „Ég
kvíði helgun
um meir og
meir!“ Hann
ætti þó ekki að
kvíða komandi
helgi þar sem
engir leikir fara
fram í ensku úr
valsdeildinni
vegna
lands
leikja.
Passaði sig
á lampanum
n Lampar og kaffihús eru Teiti Atla-
syni bloggara ofarlega í huga í kjöl
far málflutnings í meiðyrðamáli
Gunnlaugs Sigmundssonar og eigin
konu hans gegn sér. Á fimmtu
dag, daginn eftir málflutninginn,
bloggaði Teitur á vefsvæði sitt um
að hafa átt í vandræðum með að
forðast að reka höfuðið í lampa
sem er fyrir ofan borðið sem hann
þurfti að sitja við
á meðan á flutn
ingi málsins stóð.
Hann kvartaði
einnig undan því
að engin kaffi
hús í miðbæn
um opnuðu fyrr
en klukkan níu.
Í glæsihýsi
á Arnarnesi
n Fjárfestirinn og athafnamað
urinn Karl Emil Wernersson hefur
fest kaup á rúmlega 400 fermetra
einbýlishúsi á Arnarnesi í gegn
um einkahlutafélag sitt. Húsið var
keypt af félaginu Faxar sem sam
kvæmt Smartlandi mbl.is, sem
greinir frá kaupunum, er í eigu
Karls. Húsið var um tíma í eigu
Hannesar Smárasonar og fyrrver
andi eiginkonu hans, Steinunnar
Jónsdóttur, samkvæmt Fasteigna
skrá Íslands. Smartland segir að
verið sé að innrétta
húsið uppá nýtt
áður en Karl
og fjölskylda
flytja inn í
það.
You’ll
never
walk
alone!
M
iklar umræður hafa skap
ast um forsíðumyndina af
Bjarna Benediktssyni, for
manni Sjálfstæðisflokksins,
á tímaritinu Nýju Lífi. Á myndinni
hallar Bjarni sér aftur, brosir og horf
ir frá myndavélinni.
Meðal þeirra sem tekið hafa þátt
í umræðunni er þingkonan Margrét
Tryggvadóttir, þingkona Hreyfingar
innar, sem bendir á í athugasemdum
við stöðuuppfærslu varaþingkon
unnar Önnu Pálu Sverrisdóttur, fyr
ir Samfylkinguna, að myndin sé sett
upp eins og um barnamyndatöku
væri að ræða.
Í stöðuuppfærslunni segist Anna
Pála líklega hafa fallið á „kynjapróf
inu“ og biðst hún afsökunar á að hafa
deilt mynd þar sem búið var að setja
saman forsíðumyndina af Bjarna og
auglýsingu fyrir kvikmyndina The 40
Year Old Virgin. Vísar hún til færslu á
vefnum Knúz þar sem því er velt upp
hvort sama umræða hefði skapast
um forsíðuna ef um konu hefði ver
ið að ræða.
Margrét er hins vegar ekki sam
mála um að umræðan um forsíðuna
hafi nokkuð með kyn að gera. „Hér
var Bjarni í barnamyndatöku en ekki
myndaður sem kona. Ef þú skoðar
ljósmyndakennslusíðurnar sem vís
að er í, er þessi stelling alls ekki tek
in sem dæmi um hentuga pósu fyr
ir konu, þetta er hins vegar mjög
svo dæmigerð barnamyndataka þar
sem krakkinn er útitekinn, brosandi,
horfir upp og er látinn sitja á ein
hverju háu svo hann nær ekki niður,“
skrifar hún.
Bjarni eins og í barnamyndatöku
n Telur umræðuna hafa ekkert með kyn að gera
Fréttaskot 512 70 70Áskrift 512 70 80HELGARBLAÐ 7.–9. SEpTEmbEr 2012 103. tbl. 102. árg. leiðb. verð 659 kr.
Vísar í fræðin Margrét bendir Önnu Pálu
á að skoða ljósmyndakennslusíður og sjá að
stellingin er alls ekki talin hentug fyrir konur.
Hver voru örlög Rögnu Estherar?
Hrollvekjandi
frásögn
„Einhver áhrifa-
ríkasta bók sem
ég hef lesið lengi.
Það þarf hetju
eins og Melissu
Gavin til að
skrifa um
svona mál.“
Hrafn Jökulsson
rithöfundur og gagnrýnandi
Heimildaskáldsaga um örlög
Rögnu Estherar Sigurðardóttur
sem hvarf í áratugi í Banda-
ríkjunum eftir að hafa lent í
klóm ofbeldisfulls eiginmanns.
Dóttir ofbeldismannsins segir
einnig sína eigin sögu.
www.sogurutgafa.is