Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.2011, Síða 23
Umræða | 23Helgarblað 11.–13. nóvember
Dómstóll götunnar
Við erum rosalega
spenntar fyrir þessu
„Eitt af eftirminni-
legri augnablikunum
Alma Goodman um kynningarherferð fyrir „mix-teip“ Charlies. – FréttablaðiðGuðjón Þórðarson í nýlegu viðtali um Framrúðubikarinn fræga. – fotbolti.netPatrekur Jóhannesson, þjálfari austurríska landsliðsins, er hvergi banginn. – DV
Kristilegur klaufagangur
„Öll samkeppni er af hinu góða
og það er aldrei að vita nema ég
fljúgi með þeim.“
Ragnheiður Júlíusdóttir
71 árs lífeyrisþegi
„Þetta er mjög gott. Ég mun
örugglega notfæra mér þetta, ef
tímasetningar standast.“
Nina Erikson
22 ára nemi
„Þetta er mjög fínt og ég mun
örugglega fljúga með þeim.“
Viðar Magnússon
20 ára atvinnulaus
„Ég hef enga skoðun á þessu en
hver veit hvort maður fljúgi með
þeim.“
Skúli Þórðarson
30 ára pylsusali
„Þetta er gott mál og verðið
hjálpar alltaf til.“
Geir Geirsson
57 ára leikmyndateiknari
Hvernig líst þér á
að EasyJet fljúgi
til landsins?
Falskar minningar
F
araldur falskra minninga gengur
yfir þjóðina.
Fólk trúir því virkilega að
yfirvöld hafi brugðist því. Fólk
heldur jafnvel að Sjálfstæðisflokkurinn
hafi borið ábyrgð á einhverju þegar
efnahagshrunið varð. En Sjálfstæðis-
flokkurinn ber ekki ábyrgð. Annað eru
falskar minningar. Það var ekki fyrr en
eftir efnahagshrunið sem ríkisstjórnir
fóru að bera ábyrgð á efnahagsmálum.
Auk þess var það ekki Geir Haarde sem
brást fyrir hrun, heldur eigendur bank-
anna. Eins og Jón Ásgeir Jóhannesson.
En einstaka útrásarvíkingar bera
ekki ábyrgð á efnahagslífi heilla landa.
Það gæti aðeins gerst í landi þar sem
er engin röð og regla. Það er á ábyrgð
eftirlitsins og löggæslu að tryggja að
farið sé eftir lögum og reglum. Ekki at-
hafnamanna.
En eftirlitið og löggæslan geta ekk-
ert gert í því að bankarnir verði of stór-
ir til að þeir geti fylgst með þeim. Það
er í höndum pólitískra stjórnvalda að
passa upp á slíkt.
En stjórnvöld báru ekki ábyrgð á
því hvað gerðist á frálsum markaði.
Ef bankar stækka er því fagnað. Þegar
fjármagn bíður í biðröð eftir því að
koma inn til landsins er ekkert við því
að gera. Svo kom bara efnahagslegur
fellibylur sem felldi bankana. Alheims-
vandi. Það er ekki mannanna verk,
heldur í mesta lagi Guðs verk.
En Guð ber ekki ábyrgð á því hvað
fólk kallar yfir sig. Hann gaf fólki
frjálsan vilja. Það er á ábyrgð fólksins
sjálfs að nýta sér þann vilja. Stundum
kallar það yfir sig sólskin, og stundum
syndaflóð.
Því er ljóst að hugmyndir fólks
um að einhver hafi brugðist því eru
byggðar á fölskum minningum. Það
var fólkið sjálft sem kallaði þetta yfir
sig með syndum sínum: Græðgi,
skammsýni og gagnrýnisleysi. Það
vorum við, ég og þú.
En við bárum ekkert ábyrgð á
þessu. Við vorum blekkt. Okkur var
sagt að þetta væri í lagi. Við áttum að
kjósa Flokkinn, taka lánin og kaupa allt
sem við vildum og meira en við áttum
fyrir. Eitthvert óskilgreint afl, sem ber
enga ábyrgð sjálft, náði stjórn á okkur
og sannfærði okkur um þetta!
Andskotans djöfullinn var það!
Svarthöfði
Æ
– nú er blessuð þjóðkirkju-
druslan okkar að verða fyrir
barðinu á sjálfri sér, enn og
aftur. Blessuð prestagreyin
eiga ekki sjö dagana sæla. Biskupinn
og hirð hans neita að horfast í augu
við staðreyndir. Enda er það þann-
ig þar á bæ, að þróunarkenningin
og öll darwinísk pæling þarf að víkja
fyrir biblíubulli. En um biblíuna má
svosem segja það að hún er ábyggi-
lega eitt vafasamasta heimildarit sem
sögur fara af, jafnvel þótt menn um
allar jarðir hafi verið þvingaðir til að
trúa ýmsu því ekkisins rugli sem þar
er að finna.
Núna tala prestar um að húmanist-
ar, trúleysingjar og fleiri séu að reyna
að bregða fæti fyrir hina rótgrónu
menningarstofnun sem kirkjan er.
Áróðri hræsninnar eru semsagt engin
takmörk sett. Í stað þess að biskup játi
mistök sín, í stað þess að pótintátar
hans (sem stungu alvarlegum klögu-
málum undir stól) játi mistök sín og í
stað þess að kirkjunnar hyski horfist í
augu við opinberun sannleikans, þá
er það leið lyginnar og hinnar fölsku
myndar guðdómsins sem farin skal.
Ef einhvern tíma var ástæða til að
bera ljúgvitni og ef einhvern tíma var
ástæða til að stunda sölu aflátsbréfa,
þá er sá tími akkúrat dagurinn í dag.
Auðvitað hlakka ég yfir óförum
þeirra illu afla sem þykjast vera yfir
annað fólk hafin í krafti þess að menn
segjast trúa einhverju sem aldrei
verður hægt að sanna. Þó er mér
ekki illa við trú – ég hef aftur á móti
óbeit á bákni hræsninnar. Ég gleðst í
hjarta mínu ef fólkinu fækkar í okkar
alræmdu þjóðkirkju, ekki vegna ill-
kvittni eða kvalalosta. Nei, ég vil
meina að félagsskapur einsog þjóð-
kirkjan hafi ekkert með trú eða mann-
gæsku að gera. Þar á bæ snýst allt um
peninga og völd. Að tryggja prestum
laun og að geta haldið áfram að fylla
saklaus hjörtu af hégómlegustu lygi
allra tíma. En lygin sú arna, er skrum-
skæld mynd trúarinnar og felst í þeirri
guðdómlegu hræsni, að okkur er sagt
að við getum verið laus við allar synd-
ir, vegna þess að einhver Gyðingur tók
á sig allt heimsins böl hér í eina tíð.
Við þurfum ekkert að hafa áhyggjur af
framferði okkar í þessu lífi. Það eina
sem við þurfum að muna, er að segja:
– Fyrirgefðu.
Þjóðkirkjan lítur framhjá öllu sið-
viti og öllum dyggðum, í krafti þess,
að kristnir menn eru yfir aðra menn
hafnir og þurfa einungis að muna
eftir faðirvorinu og fyrirgefningunni.
Kristnir menn eru hafnir yfir farsæld
og þau fögru gildi sem eflaust er æski-
legast að prýði mannleg samskipti. Og
þetta sannast í því, að leiðtogarnir eru
menn sem aka um á flottum bílum,
eiga rándýr hús, fá fín laun og gefa
ekkert af sér nema boðskap sem er svo
rýr í roðinu að allir, sem nenna eitt-
hvað að hugsa, flokka hann umsvifa-
laust sem gúanó.
Hin fagra hugsun kristinnar trúar
er smátt og smátt að verða að hinu
versta böli.
Í Herrans ánauð höfum við
hafnað dyggðum flestum,
en lævísi og ljótan sið
lært af okkar prestum.
„Þjóðkirkjan
lítur framhjá
öllu siðviti og öll-
um dyggðum
Handagangur í öskjunni Það var óvenjumikið að gera í verslunum 10-11 á fimmtudaginn. Þá fögnuðu eigendur verslunarkeðjunnar 20 ára afmæli fyrirtækisins með því að
bjóða vörur á sama verði og fyrir 20 árum. Á stundum var fullt út úr dyrum og mörg dæmi þess að fólk hamstraði neysluvörur. Mynd Eyþór ÁrnasonMyndin
Mest lesið á DV.is
1 Skokkari lést í HafnarfirðiTalið að hann hafi orðið bráðkvaddur.
2 Þau sleppa við 1.900 milljóna kúlulánið
Kristján Arason mun að öllum líkindum
ekki verða dæmdur til að greiða þrotabúi
Kaupþings skuld sem hann stofnaði til
vegna hlutabréfakaupa á árunum fyrir
hrunið.
3 Harmur í Hafnarfirði: Sam-verustund í kvöld
Bæjarbúar slegnir yfir sviplegu fráfalli.
4 Sögð hafa spunnið upp veikindi dótturinnar
Móðir flogaveikrar stúlku sökuð um
að gera hana veika – stúlkan enn einn
eineltisþolandinn í Gerðaskóla.
5 „Smáralind færi á kaf“Ógnvænleg skýrsla frá loftslagsráði
Sameinuðu þjóðanna.
6 Risafótleggur heldur áfram að stækka
Dularfullur sjúkdómur hrjáir breska konu
– annar fótleggurinn var fjarlægður en
stubburinn heldur áfram að vaxa.
7 Þakkar Sveini Andra innsýn í undirheima
Stefán Máni fékk upplýsingar á manna-
máli.
Skáldið skrifar
Kristján Hreinsson
Ég er algjör-
lega óhræddur