Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.2011, Qupperneq 27

Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.2011, Qupperneq 27
Viðtal | 28Helgarblað 11.–13. nóvember sagði að það væri ekki í boði lengur.“ Og þegar faðir hennar lést sögðu henni þrír prestar að þeim hefði verið tjáð að hún væri lokuð inni á geðdeild. „Einn sagði reyndar að það væri svo sem ekkert skrýtið ef svo væri miðað við allt sem á undan væri gengið. Mestu sorgina og söknuðinn upplifði ég hins vegar haust- ið eftir að hann dó. Það sögðu svo margir að þegar hann færi gæti ástandið breyst. Það var svo sárt þegar það gerðist ekki. Á þessum tíma gat ég ekki talað um mömmu án þess að fara að gráta. Þess vegna reyndu prest- ar að sætta málin en það gekk ekki.“ Þráir móðurást Með bókinni vonaðist Guðrún Ebba til þess að opna á mögu- lega sátt en það gekk ekki eft- ir. „Kannski losna ég aldrei við þessa þrá um að verða með- tekin og þessa þrá um að eiga móður, jafnvel þótt hún sé óraunhæf. Mig langar bara að eiga mömmu. Og geta sagt henni frá breytingunum sem hafa orðið á lífi mínu. Mig lang- ar líka að segja henni að ég sé að hjálpa öðrum konum og að hún verði stolt af mér. Ég hjálpa til dæmis mikið af eldri konum og hugsa það þannig að ég geti hjálpað þeim þótt ég geti ekki hjálpað henni. En ég mun aldrei geta snú- ið til baka og látið eins og ekk- ert hafi í skorist. Þá þyrfti ég að fara aftur að drekka og kasta upp. Í raun held ég að ég myndi deyja.“ Guðrún Ebba lætur það samt ekki slá sig út af lag- inu. „Ég var rosalega reið út í mömmu þegar ég var lítil. Ég man til dæmis eftir mér þar sem ég var að þurrka upp eftir svona bíltúr. Mér fannst hend- urnar á mér ógeðslegar og hugsaði með mér að hún vissi ekki hvað ég hefði verið að gera með þeim. Og ég man að ég tók mér hníf í hönd og var rosa reið út í hana, ekki pabba. Kannski af því að innst inni fannst mér hún bregðast mér.“ Hélt hún ætti sér ekki framtíð vegna bókarinnar Guðrún Ebba skenkir sér te á meðan hún talar. „Af því að ég er að rifja upp gamlar minn- ingar óttaðist ég að segja eitt- hvað sem myndi ekki standast, eins og vitlaust ártal eða um- hverfi eða eitthvað þess háttar. Þess vegna fór ég aftur og aftur í gegnum ártölin en fékk allt- af að heyra að þetta þyrfti ekki að vera svona nákvæmt. Enda kom á daginn að það er ekki hægt að hrekja neitt í bókinni, nema kannski það að salern- ið sem pabbi notaði var ekki kallað einkaklósett heldur ges- taklósett. Klósettið var þarna og ég kallaði það alltaf klósett- ið hans pabba því það var þar sem sem hann þreif sig og sagði við mig að hann væri orðinn hreinn og allt það. Pabbi vand- ist því nefnilega úti í Bandaríkj- unum að hafa sér salerni og ég man ekki til þess að hann hafi einhvern tímann notað sama salerni og við en það getur auð- vitað verið þó að ég muni ekki eftir því. Versta ofbeldið fór fram inni á þessu klósetti. En ég sagði aftur og aftur við bæði Jóhann Pál og Elínu að þau yrðu að búa sig undir það að þetta gæti orðið hræði- legt. Mér fannst þau hafa allt of miklar væntingar varðandi bókina. Ég óttaðist að fjölskyld- an færi fram á lögbann, en það var ekki það sem ég óttaðist mest, ég óttaðist um mig. Og þegar ég sá loks fyrir endann á þessu og bókin var að koma út fannst mér eins og það væri engin von lengur, ég ætti mér enga framtíð.“ Allt betra en að vera í lygi „Fjölskyldan stendur ekki með mér, hvernig get ég ætlast til þess að aðrir geri það?“ spyr hún hugsi. Það kom henni því verulega á óvart hversu mik- ill léttir fylgdi því að segja sögu sína opinberlega. „Allt í einu varð bjart yfir öllu. Ég hef heyrt fólk segja frá þessari reynslu en ég trúði því ekki. Enda var ég ekki að gera þetta fyrir sjálfa mig, mér fannst ég bara þurfa að leiðrétta mis- gjörðir mínar gagnvart þeim konum sem stigu fram árið 1996. Mér fannst leiðinlegt að hafa tekið þátt í því að gera þær ótrúverðugar. Mig langaði líka að fólk vissi að það kaus mann sem biskup sem var kynferðisafbrotamaður og barnaníðingur. Þess vegna skrifaði ég það í bréfið til bisk- upsins, svo það færi örugglega ekki á milli mála hvað ég væri að segja. Það er allt betra en að vera í lyginni og afneituninni. Meira að segja síðasti vetur var skárri en það að vera alltaf að passa upp á að muna ekki neitt. Bókin er aðeins skrifuð í þeim tilgangi að deila minni reynslu með öðrum svo hægt sé að læra af henni. Og ég er svo ótrúlega stolt af þessari bók. Mér þykir svo vænt um hana. Og ég táraðist þegar ég sá fyrsta uppkast af kápunni. Þetta er mynd sem kom alltaf upp í huga minn þegar pabbi sagði: „Þegar ég dey, þá bíð ég eftir þér. Við verðum alltaf saman.“ Svo þegar hann dó árið 2008 helltist yfir mig ótti og ég þurfti að segja við sjálfa mig að ég væri ekki lítil stelpa og myndi ekki taka í hönd hans þegar ég fer til himna. Ég er líka ánægð að fókusinn er á litlu stelpuna en ekki á pabba.“ Leitaði í gifta menn Þó að bókin sé ekki skrifuð í þeim tilgangi að vinna eitthvert stríð, eins og hún orðar það, sannfæra fólk um að hún hafi rétt fyrir sér eða biðja fólk um að trúa sér, langar hana þó að biðja þá sem efast um að velta fyrir sér nokkrum atriðum. „Ef þetta eru falskar minningar, hvað eru þá falskar minningar? Á það bara við um ofbeldið eða á það við um allt hitt líka? Hvar liggur línan? Eru það falskar minning- ar að ég hafði þessa þörf til að meiða mig? Það er ekkert eðli- legt við það að barn sem er að sauma stingi nálinni ítrekað í ennið á sér eins og ég gerði eða sé alltaf að rífa í hárið á sér. Pabbi varð svo reiður þegar ég fór í meðferð. Hann tromp- aðist líka þegar ég flutti að heiman 22 ára og sagði að ég væri bara að fara að sofa hjá. Eru það falskar minningar? Eða eru það falskar minn- ingar að ég leitaði í menn sem voru giftir eða höfðu vald yfir mér og ég var háð með einum eða öðrum hætti. Stundum fannst mér ég ekki vera búin að gera skyldu mína fyrr en ég var búin að sofa hjá þeim og hélt ítrekað fram hjá manninum mínum. Grét vegna mömmu„Ég man að ég tók mér hníf í hönd og var rosa reið út í hana, ekki pabba. Kannski af því að innst inni fannst mér hún bregðast mér. „Mestu sorgina og söknuð- inn upplifði ég hins vegar haustið eft- ir að pabbi dó. Það sögðu svo margir að þegar hann færi gæti ástandið breyst. Það var svo sárt þegar það gerðist ekki. Stendur með sér Guðrún Ebba er búin að vinna það vel úr reynslu sinni að hún hefur styrk til að þola opinbera umræðu um það hvort minningar hennar séu falskar, hún sé veik á geði eða lygin. En auðvitað getur það tekið á og mikið var það sárt að sjá litla bróður sinn í Kastljósinu. mynd Sigtryggur Ari
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.