Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.2011, Síða 32
32 Bækur 11.–13. nóvember 2011 Helgarblað
SKRUDDA
Úrval úr hinu heillandi sagnasafni.
Dæmisögur Esóps
hafa verið ófáanlegar í 30 ár.
Klassískt meistaraverk fyrir börn
á öllum aldri.
Þjóðfræði og saga
Dæmisögur Esóps
í mynDskrEyttri útgáfu
tröllaspor
Heildarsafn íslenskra tröllasagna
í tveimur bindum.
Margar sagnanna hafa aldrei
áður birst á prenti.
Tröll, hafmenn, fjörulallar,
Grýla, jólasveinarnir og aðrar
íslenskar forynjur.
Nauðsynlegt verk handa öllu áhugafólki
um þjóðfræði og þjóðsögur.
svipast um á
söguslóðum
Nýjasta bók Þórðar í Skógum.
Glæsilegt verk um þjóðlíf og
þjóðhætti í Vestur-Skaftafellssýslu.
vinDur í sEglum
Saga verkalýðshreyfingarinnar
á Vestfjörðum 1890-1930.
Saga hatrammrar baráttu,
sigra og ósigra.
Stórbrotin átakasaga.
S
teinunn Sigurðardóttir kann
íslenskra rithöfunda einna
best að segja sögur af ást
og ástföngnu fólki. Kannski
kunnara en frá þurfi að segja,
en seisei og jújú, ég segi það samt.
Í hennar nýjustu skáldsögu, Jójó, er
þó ekki í forgrunni útjaskaðasta form
ástar þegar hafðar eru í huga þær
milljónir ástarsagna sem komið hafa
út í áranna rás, það er á milli manns
og konu. Hér er það frekar ást á milli
vina. Og ást á starfi sínu. Ást í mein
um er þekkt minni; hér er það frekar
ást á því að útrýma meinum.
Martin Montag, þýskur læknir á
fertugsaldri, vaknar fyrir allar aldir
til að vera sem best undirbúinn fyrir
átök sín við æxli og meinvörp sjúk
linga sinna, með þjálfaðan skrokk,
flekklausan feril og geisla að vopni,
með óbeit á skurðlæknum sem hann
segir sadista upp til hópa. Hann
hleypur um stræti og stíga Berlínar
nánast alla morgna, táknrænt fyrir
hegðun hans gagnvart fortíð sinni.
En með heimsókn sjúklings nokkurs
í bókarbyrjun neyðist Martin til að
staldra við í lífinu. Lífi sem virðist af
skaplega gott, enda ekkert meinlæta
líf svo sem; eins og iðulega í sögum
Steinunnar hafa persónurnar smekk
fyrir góðum vínum og menningu
sem í hinni umdeildu tvískiptingu
kúltúrheimsins myndi flokkast sem
há. Jafnvel háhá ef slíkt byðist.
Sjúklingurinn kveikir minningu
í huga Martins. Hann á að kann
ast við manninn, hann er alveg viss
um það, og handviss þegar hann
rýnir í röntgenmyndir af æxlinu sem
Martin finnur í vélinda sjúklings
ins; það lítur út eins og eldrautt jójó
sem minnir hann á slæma lífsreynslu
fyrir allmörgum árum. Hann býr yfir
leyndar máli sem enginn veit, ekki
einu sinni eiginkonan Petra, heiðar
legi og skilningsríki hjúkrunar
fræðingurinn sem hann elskar svo
innilega, og ekki vinur hans og sálu
félagi, hinn franski Martin Martinetti,
sem hann segir þó flest allt annað.
Lesandi fylgist með Martin Montag
reyna að komast til botns í minning
arfargi sínu og afleiðingum þeirrar
leitar. Við þá frásögn fléttar Stein
unn sögunni af vináttu þeirra nafna
– sem óneitanlega eru hvor á sínum
ás samfélagsins, Martin Martinetti
verandi róni – og samlífi Martin
Montags og Petru í þeirra barnlausa
hjónabandi. Og nú er varla hægt að
segja meira án þess að segja of mikið
um framvindu sögunnar.
Persónurnar eru vel skapaðar,
áhugaverðar, líkt og spurningarnar
sem höfundurinn veltir upp með sögu
sinni. Hún höfðar til hjarta og vits
muna; spilar á strengi drama, spennu
og húmors; gefur í skyn en skilur eftir
eyður; jójóar með tvenndir. Mjög flott
– reyndar mjög, mjög flott. Og eins
og lesendur Steinunnar kannast við
úr fyrri prósaverkum hennar er bein
hörð framvinda brotin upp á stöku
stað með ljóðrænum línum, stundum
heilum efnisgreinum eða blaðsíðum,
og svo haldið áfram. Fumlaust, eins
og ekkert hafi í skorist, nema það sem
frá fagurfræðilegu sjónarhorni átti
sannarlega að skerast þar í leikinn.
Að íslenskur rithöfundur skuli
skrifa skáldsögu um útlendinga, sem
alla bókina eru í útlöndum, minn
ast ekki á Ísland eða það sem ís
lenskt getur talist ef frá er talinn ör
lítil vísun í Sigurð Fáfnisbana, hafa
engin tengsl hingað norður frekar
en söguþráðurinn, söguheimurinn
eða nokkuð annað í bókinni, og að
það trufli ekki hætishót upplifun ís
lensks lesanda sem fékk væna slettu
af þjóðarstolti og veglega slummu af
smáþjóðarkomplexum í vöggugjöf
eins og sennilega við flest – segir það
ekki meira en margt um þau tök sem
höfundurinn hefur á viðfangsefninu?
Á lesandanum? Á list sinni? Mitt svar
er ekki jújú. Það er jú.
Minningarmein
skerst í leikinn
Kristján Hrafn
Guðmundsson
Dómur
Jójó
Höfundur: Steinunn
Sigurðardóttir.
Útgefandi: Bjartur.
L
augardaginn 12. nóvember efna
Gallerí Fold og Bókin Klappar
stíg til bókauppboðs á vefnum
uppboð.is. Á uppboðinu verða
sjaldgæfar og sögulega merkilegar
bækur og má þar nefna frumútgáfu
af God rest you merry Gentlemen
eftir Hemingway sem gefin var út í
New York 1933. Upplagið var aðeins
300 eintök og er þetta eintak tölusett
nr. 175. Ari Gísli Bragason bóksali
segist einhvern tímann hafa rekist
á eintak af þessari bók. „Það eintak
var tölusett nr. 200 og á þeim tíma
var það verðlagt á 5.000 dollara, eða
nærri 600 þúsund íslenskar krónur.
„Það má vissulega færa fyrir því rök
að bókin sem komst í okkar eigu sé
verðmætari bók.“
Smásaga Hemingways er vissu
lega áhugaverð en Ari Gísli er hrifn
ari af annarri bók, nefnilega Sögu
Ara fróða sem prentuð var í Skálholti
1688 og bundin inn af Unni Stefáns
dóttur. „Þetta er fágæti og það er
verulega gaman að vera með verk
unnið af henni.“ Sagan er ekki verð
lögð jafnhátt og saga Hemingways,
verðmetin á 350 þúsund krónur. „En
svo kemur í ljós hvernig eftirspurnin
er, þessi uppboð hafa gengið ágæt
lega hingað til.
Til viðbótar verða boðnar upp
bækurnar Lesrím sem prentuð var
á Beitistöðum 1817, fyrsta útgáfa af
Njálu prentaðri í Kaupmannahöfn
1772, listaverkabækur og gott úrval af
fagurbókmenntum auk ljóðabóka og
bóka um íslensk og norræn fræði.
Jóhann Ágúst Hansen, listmuna
sali og framkvæmdastjóri Foldar,
segir viðburðinn merkilegan á ís
lenskum bókamarkaði. „Þetta er
fjórða uppboðið sem við höldum
í sameiningu. Þetta hafa verið lítil
uppboð sem hafa fengið ágæt við
brögð þannig að nú á að keyra á
svolítið stórt uppboð. Það verða yfir
200 bækur sem verða boðnar upp og
margar einstaklega fágætar.“
Uppboðinu lýkur þann 3. des
ember.
n Sjaldgæfar og sögulegar bækur á uppboði hjá uppboð.is
Frumeintak á uppboði
Frumeintak af Hemingway Ef einhver
leitar að sérstæðri viðhafnargjöf er ekki
ónýtt að gefa frumeintak af smásögu
Hemingways.