Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.2011, Page 12
12 Fréttir 18.–20. nóvember 2011 Helgarblað
Þ
etta snýst ekki um að vita öll
svörin heldur það að geta
rætt málin,“ segir Jason Slade
í samtali við DV. Hann hefur
ásamt hópi fólks tekið þátt í
Occupy Reykjavík-hreyfingunni sem
sett hefur upp tjaldbúðir á Austur-
velli. Occupy-hreyfingin spratt fyrst
upp í New York 17. september síðast-
liðinn þegar hópur fólks tók yfir Zu-
cotti-garðinn. Síðan hafa myndast
fjölmargir Occupy-hópar út um allan
heim sem eiga það allir sameiginlegt
að krefjast breytinga fyrir hönd þeirra
99 prósenta sem sögð eru vera undir
hæl fámenns hóps eignafólks. Blaða-
maður og ljósmyndari DV heimsóttu
tjaldbúðir mótmælenda á þriðju viku
mótmælanna.
Ragnheiður heimsótti búðirnar
Þegar blaðamann og ljósmyndara bar
að garði um klukkan hálf sex á þriðju-
dag sátu nokkrir úr hópnum fyrir
utan stórt hvítt tjald, sem reist hefur
verið fyrir framan Alþingishúsið, og
bökuðu pönnukökur. Nokkru síðar
átti fundur að hefjast en allt frá upp-
hafi Occupy-mótmælanna á Austur-
velli hafa daglega farið fram fundir
þar sem fólk ræðir saman um nýjar
leiðir til þess að takast á við ýmis sam-
félagsvandamál.
„Ömurleg ásýnd Austurvallar sem
sýnir ótrúlega lítilsvirðingu Reykja-
víkurborgar gagnvart Alþingi Íslend-
inga,“ sagði Ragnheiður Ríkharðsdótt-
ir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins
og einn af varaforsetum Alþingis á
Face book-síðu sinni, mánudaginn
14. nóvember. Var hún með þessu að
gagnrýna þá ákvörðun Reykjavíkur-
borgar að heimila mótmælendum að
halda til í tjöldum á Austurvelli. Einn
þeirra sem mættur var til að funda á
þriðjudagskvöld sagði DV frá því að
Ragnheiður hefði heimsótt búðirnar
fyrr um daginn. „Hún kom bara hing-
að til okkar, fékk sér sæti og spjallaði,
þannig á það að vera.“
Fá kaffi og bakkelsi
Bandaríkjamaðurinn Jason Slade er
einn þeirra sem hefur verið virkur í
starfi Occupy Reykjavík-hreyfingar-
innar. Hann segir hópinn alls ekki ein-
sleitan, og að á fundina hafi komið
fólk úr öllum áttum. „Það er enginn
sem stjórnar þessu. Við viljum bara
koma upp svæði þar sem fólk getur
hist og rætt þær hugmyndir sem það
hefur að lausnum. Rétt eins og Occupy
Wall Street erum við að gera tilraunir
með beint lýðræði og gerum eins vel
og við getum í að vera opin öllum.“
Hann segir Austurvöll fullkom-
inn stað til þess að koma á fót slíkri
hreyfingu. „Þetta er miðsvæðis og
fjöldi fólks gengur hér í gegn hvern
einasta dag, sumir staldra við og taka
þátt í samræðunni, og það er einmitt
það sem þetta snýst um,“ segir Jason.
Hann segir afar mismunandi hversu
margir sæki fundina. Að sögn Jason
hafa veitinga- og kaffihús á svæðinu
verið þeim afar vinveitt. „Okkur hef-
ur til dæmis verið fært kaffi og annað
bakkelsi og þá hefur okkur verið vel-
komið að nota salernis- og hreinlæt-
isaðstöðu allt í kring.“
Deilt um tjald
Jason er sjálfur á leið til New York á
næstu dögum en hann segist vona
að mótmælin lifi áfram. „Fólk á ekki
að vera feimið við að koma niður á
Austurvöll og taka þátt í starfinu,
enda er þetta opið fyrir alla,“ segir
hann. Þrátt fyrir að mótmælendur
hafi fengið tímabundið leyfi til
þess að tjalda á Austurvelli eru þeir
ennþá í baráttu. Jason segir frá því
að stóra samkomutjaldið sem sett
hefur verið upp fyrir framan þing-
húsið sé þyrnir í augum yfirvalda.
„Þeir hafa sagt okkur að taka stóra
tjaldið niður en við þurfum á því að
halda til þess að taka á móti stærri
hópum fólks. Ég vona að Besti flokk-
urinn komi til móts við okkur og
styðji okkur í þeirri kröfu að fá að
halda stóra tjaldinu,“ segir Jason.
Þór Saari, þingmaður Hreyfingar-
innar, hefur hvatt yfirstjórn Alþingis
til þess að taka vel á móti mótmæl-
endum, meðal annars með því að
bjóða fólki að nota hreinlætisað-
stöðuna þar innandyra. Í samtali við
DV segist hann vera þeirrar skoð-
unar að þeir sem finni sig knúna til
þess að mótmæla daglega fyrir utan
Alþingishúsið séu jafn miklir þátt-
takendur í lýðræðinu og hinir sem
inni sitja. Á meðal þeirra hugmynda
sem hann hefur lagt til er að mót-
mælendum verði daglega boðið upp
á súpu frá mötuneyti Alþingis. Hug-
myndin hefur fengið dræmar undir-
tektir.
n Þriðja vika Occupy-mótmæla á Austurvelli n Deila við yfirvöld um hvort þau fái
að halda stóra tjaldinu n Ragnheiður gagnrýndi tjaldbúðir en heimsótti svo tjaldbúa
Tjaldbúar
fá blendin
viðbrögð
„Ég vona að Besti
flokkurinn komi til
móts við okkur og styðji
okkur í þeirri kröfu að fá
að halda stóra tjaldinu.
Jón Bjarki Magnússon
blaðamaður skrifar jonbjarki@dv.is
Pönnukökur Þegar blaðamann DV bar að garði sátu nokkrir úr hópi mótmælenda og gerðu pönnukökur klárar fyrir fund kvöldsins.
99 prósent Occupy Reykjavík-hreyfingin er undir áhrifum frá
Occupy-hreyfingum víðs vegar um lönd.
Allar græjur Tjaldbúar eru búnir ýmsum tækjum, þar á meðal gashellu og DJ-græjum.
Stóra tjaldið Yfirvöld vilja stóra tjaldið í burtu en Jason Slade
segir mikilvægt að þau fái að halda því. Hann biðlar til Besta
flokksins um stuðning.
Virkur frá upphafi
Bandaríkjamaðurinn
Jason Slade hefur
verið virkur í hreyfingunni
Occupy Reykjavík frá
upphafi. MynDiR: SigtRygguR ARi