Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.2011, Qupperneq 17
Fréttir 17Helgarblað 18.–20. nóvember 2011
Dúkadagar
Lín Design Laugavegi 176 Sími 533 2220 www.lindesign.is sendum frítt úr vefverslun á pósthús
20% afsláttur
af öllum dúkum
föstudag & laugardag
Íslensk
ir
jólasve
inadúk
ar
Stekkjastaur Jóla Kaldi
Einkunn: 5,75 Verð: 369 krónur Styrkleiki: 5,4%
Lýsing: Rafgullinn. Meðalfylling, ósætur, fersk
sýra, miðlungs beiskja. Ristað malt, karamella,
létt krydd.
Ölvisholt Brugghús jólabjór
Einkunn: 5,25 Verð: 439 krónur Styrkleiki: 5,8%
Lýsing: Rafgullinn. Þétt meðalfylling, sætuvottur,
fersk sýra, miðlungsbeiskja. Mjúkt malt, baunir,
barkarkrydd, karamella.
Leppalúði
Einkunn: 2,75 Verð: 1.296 krónur (750 ml) Styrk-
leiki: 7,5%
Lýsing: Rafbrúnn, skýjaður. Þétt fylling, hálfsætur,
lítil beiskja. Malt, karamella. Höfugur.
Víking Jóla Bock
Einkunn: 4,5 Verð: 399 krónur Styrkleiki: 6,2%
Lýsing: Rafgullinn. Mjúk meðalfylling, ósætur,
fersk sýra, miðlungsbeiskja. Þétt malt, kakó,
appelsína, sveit.
Víking jólabjór
Einkunn: 5,75 Verð: 299 krónur Styrkleiki: 5%
Lýsing: Gullinn. Meðalfylling, ósætur, fersk sýra,
miðlungsbeiskja. Léttristað korn, karamella,
lifrarpylsa.
Halldór Högurður: Mikið fyrir augað og
ágætisbragð. Meira samt til þambs en
með mat. Má lifa með eftirkeimnum.
Stefán: Brenndur viður og negull. Þurrt
en ferskt. Smá karamella.
Rakel: Flottur á litinn. Glæsilegur út-
litslega. Þokkalegur á bragðið en erfitt
eftirbragð. Kallar ekkert á meira en einn
bjór. Of keimlíkur öðrum.
Henry: Glæsilegur litur. Mikil og fín
froða. Ágæt lykt. Vantar aðeins fyllingu.
Halldór Högurður: Eins og útrunnið
malt. Beiskur og kemur manni úr
hátíðarskapi.
Stefán: Létt. Ferskt. Með negul,
mandarínu og vanillu. Örlítið rammt
eftirbragð.
Rakel: Beiskur en með maltkeim. Sterkt
og stamt eftirbragð. Meðal öl.
Henrý: Fallegur litur. Mátuleg lykt. Ljúft
bragð. Hátíðlegur. Fínn bjór. Fín fylling.
Halldór Högurður: Fínn bjór en ekkert sem hrópar
„jól“. Réttur ef það verða jóla alla daga, líkt og í laginu.
Stefán: Frekar römm lykt. Negull og kanill með smá
mandarínu. Meðallangt eftirbragð.
Rakel: Ljós bjór og mjög líkur hinum hefðbundna
kranabjór á bragðið. Vantar allan hátíðleik í þennan.
Ekkert sérstakt við þennan bjór. Ágætur á bragðið en
engar jólabjöllur.
Henry: Freyðir vel. Of ljós á litinn. Engin lykt.
Venjulegur. Enginn jólabjór. Eins og að fara á sýningu
með Ladda en fá bara Halla.
Halldór Högurður: Þessi
kallar á steikina með
öllu. Flott bragð með
góðum mat.
Stefán: Ferskur og góður
með smá appelsínu.
Ferskur en samt smá
þurr.
Rakel: Fallegur á litinn
og gott gos. Fínt malt-
bragð og góð jólastemn-
ing. Fínn í jólaboðið
en aðeins of þungur
í partíið. 2 til 3 bjórar
hámark. Hátíðlegur fyrir
réttu veisluna.
Henry: Fallegur litur.
Freyðir ágætlega. Fín
malthátíðarlykt. Gott
jólabjórsmaltbragð.
Mjög fínn með mat og til
að njóta. Vel heppnaður.
Góður til að horfa á Bad
Santa.
Einstök
Einkunn: 7,75
Verð: 415 krónur
Styrkleiki: 6,7%
Lýsing: Rafbrúnn. Þétt
fylling, sætuvottur, fersk
sýra, beiskur. Mjúkreykt
malt, kaffi, súkkulaði,
sítrus. Margslunginn.
Tuborg
jólabjór
Einkunn: 7,75
Verð: 339 krónur
Styrkleiki: 5,6%
Lýsing: Rafbrúnn.
Mjúk meðalfylling.
Sætuvottur, fersk
sýra, miðlungs-
beiskja. Mjúkt malt,
karamella, lakkrís,
hunang.
Halldór Högurður:
Frískur, lifandi og
freyðandi. Tæki
þennan einan og sér
án matar.
Stefán: Negull og
appelsína í nefinu.
Stutt en ferskt með
appelsínu, kryddi og
smá kanil.
Rakel: Mjög flottur
á litinn og freyðir
fersklega. Frískandi
jólabjór og ferskur.
Þumlar (humlar) upp!
Henry: Jólalegur
litur. Millivegur í lit.
Hátíðlegur. Meðal-
bragð. Ágæt fylling.
Fínasti bjór.
Halldór Högurður:
Bragðmikill og
bragðgóður. Vill gallon
af þessum með góðri
svínasteik.
Stefán: Smá brennt
rúgbrauð. Karamella
og smá vanilla. Stutt
eftirbragð.
Rakel: Gott og milt
maltbragð. Góður bjór.
Aðeins of dökkur á lit
útlitslega og svolítið
flatur en hátíðlegur. Fínt
eftirbragð sem kemur
strax á öðrum sopa.
Glimrandi.
Henry: Mjög dökkur.
Flottur litur. Miðlungs-
lykt, of væg. Mjög
bragðgóður. Pínu beiskja.
Fínt fyrir flesta. Hvorki of
þungur né of léttur.
Egils Malt
Jólabjór
Einkunn: 7,5
Verð: 339 krónur
Styrkleiki: 5,6%
Lýsing: Brúnn. Meðal-
fylling, hálfþurr, fersk
sýra, lítil beiskja. Mjúkt
malt, lakkrís, súkkulaði.
Egils
Jólagull
Einkunn: 7,5
Verð: 349 krónur
Styrkleiki: 5,2%
Lýsing: Rafbrúnn.
Meðalfylling, ósætur,
fersk sýra, miðlungs-
beiskja. Léttristað
malt, létt krydd.
Halldór Högurður:
Ljúfur. Kallar á kjöt,
laufabrauð og allan
pakkann. Bragðdaufur
frekar en gott bragð.
Stefán: Mjög
léttur. Freyðir mikið.
Kanill, smá appelsína
og hnetur. Ferskt eftir-
bragð.
Rakel: Mildur og góður.
Rennur ljúflega niður.
Gæti átt góðar hátíðar-
stundir með þessum.
Hátíðlegur og ferskur.
Henry: Fínn litur. Ágæt
lykt en aðeins of lítil.
Takmarkað bragð en
fínn til meiri drykkju.
1.–2. 1.–2. 3. 4.
5. 6. 7.
8. 9. 10.
Einkunn: 6,5 Verð: 399 krónur Styrkleiki: 5,7%
Lýsing: Rafbrúnn. Þétt fylling, ósætur, fersk
sýra, miðlungsbeiskja. Ristað malt, karamella,
laufkrydd, lakkrís.
Halldór Högurður: Keimur af malti og appelsíni en eins
og upp úr glasi sem gleymdist að skola eftir uppvask.
Sápubragð.
Stefán: Ilmvötn í nefinu. Mjög sápukennt bragð.
Rakel: Þessi lítur út eins og maður getur ímyndað sér
jólabjór. Bragðkeimur af malti og appelsíni og freyðir
vel. Er gruggugur og með sápukeim. Gæti jafnvel komið
einum litlum niður er en ekki meira en það.
Henry: Eins og malt og appelsín í lit og froðu. Álíka sann-
færandi sem jólabjór og Friðrik Ómar sem Elvis. Eins og
skólp. Minnir á Royal X-mas sem er ógeð.
Halldór Högurður: Meira í ætt við frostlög
en öl.
Stefán: Appelsína í nefinu. Frekar rammt
með appelsínubragði.
Rakel: Sérkennilegt kryddbragð sem hangir
í eftirbragðinu. Þessi er of reynslumikill fyrir
mig. Kæmi ekki heilum bjór niður. Get ekki
útskýrt þetta yfirþyrmandi kryddbragð.
Henry: Dökkur. Ákveðið bragð. Margslung-
inn. Flott fylling. Talsvert malt. Eins og gott
jólalag með Ómari Ragnarssyni.
Halldór Högurður: Of mikið reynt. Eins og að
kjamsa á jólaskreytingu. Of mikil jól og of lítið öl.
Stefán: Mikil kanil- og negullykt. Rammur og of
mikill kanill. Þurrt og vantar ferskleika.
Rakel: Of mikill kryddkeimur. Tekur alveg yfir
bragðið. Of mikill jólarembingur. Einn sopi er
alveg nóg. Rammt bragð og yfirþyrmandi.
Henry: Afar áberandi og sterk lykt. Virkar
ágætlega en kannski reynt of mikið. Hann fær
samt A fyrir viðleitni. Fínn til að njóta eins eða
tveggja, en ekki meir. Góður og á réttri leið.