Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.2011, Blaðsíða 20
20 Fréttir 18.–20. nóvember 2011 Helgarblað
www.omnis.is444-9900
Dell Inspiron veitir þér innblástur.
Opnunartilboð í tilefni af nýrri verslun
í Ármúla 11, aðeins 109.900 kr.
- Við þekkjum tölvur
REYKJAVÍK Ármúli 11
REYKJANESBÆR AKRANES BORGARNES
F
jölmargar fréttir hafa verið
sagðar um afskriftir á skuldum
auðmanna eftir bankahrunið
árið 2008. Í einhverjum tilfell
um halda auðmennirnir verð
mætum eignum þrátt fyrir þessar af
skriftir og eru í hópi þeirra sem geta
keypt upp eignir hér á landi sem fal
boðnar eru af fjármálafyrirtækjum
eftir bankahrunið.
Um 172,6 milljarðar króna hafa
verið afskrifaðir af skuldum heimil
anna í landinu, samkvæmt upplýs
ingum frá Samtökum fjármálafyrir
tækja. Niðurfærsla lána vegna 110%
leiðarinnar svokölluðu nemur ein og
sér 31,6 milljörðum króna. Afskrift
irnar taka líka til niðurfærslu gengis
tryggðra lána sem hafa verið dæmd
ólögmæt. Ef afskriftir fjármálastofn
ana vegna ólögmætra gengistryggðra
lána eru dregnar frá stendur eftir að
um það bil 37 milljarðar hafa verið
afskrifaðir af skuldum heimilanna.
Það þýðir að 5,4 milljarðar hafa ver
ið afskrifaðir hjá heimilunum í land
inu í öðrum aðgerðum en með 110%
leiðinni eða vegna gengislánanna.
Margar umsóknir hafa borist fjár
málastofnunum vegna afskrifta en
um 75 prósent umsókna vegna 110%
leiðarinnar hafa verið samþykkt. Inni
í þessum tölum eru afskriftir Íbúða
lánasjóðs. Mikil vinna hefur farið í
endurútreikning og vinnslu við nið
urfærslu skulda vegna ólögmætra
gengistryggðra lána, hvort sem er
vegna fasteignakaupa eða bílavið
skipta. Fjármálafyrirtæki þurftu sam
tals að taka fyrir um 70 þúsund lán
til endurskoðunar vegna ólögmæt
is lánanna. Talsvert meira svigrúm
virðist hins vegar vera hjá bönkunum
til afskrifta til heimilanna.
Einstaka fyrirtæki hafa til að
mynda fengið hátt í þær afskriftir
sem heimilin hafa fengið að gengis
lánunum undanskildum. Sem dæmi
má nefna eignarhaldsfélagið CDG,
sem var í eigu byggingaverktakanna
Gylfa Héðinssonar múrarameistara
og Gunnars Þorlákssonar bygginga
meistara, sem skuldaði 16 milljarða
þegar félagið fór í þrot. Afskrifa þurfti
skuldirnar þar sem engar eignir voru
inni í félaginu. Afskriftir vegna þess fé
lags eins og sér samsvara um 43 pró
sentum allra afskrifta til heimilanna
að gengislánunum undanskildum.
Jóhanna Sigurðardóttir forsætis
ráðherra hefur skipað nefnd sem
kanna á hversu mikið svigrúm er
innan bankanna til afskrifta til heim
ilanna í landinu. Nefndin var skipuð
eftir að bankarnir skiluðu uppgjöri
fyrir fyrstu mánuði ársins sem sýndi
margra milljarða króna hagnað.
Bankastofnanir hafa verið tregar
til frekari afskrifta á skuldum ein
staklinga en hávær krafa hefur verið
uppi meðal stórs hluta þjóðarinnar
um að heimilin í landinu, einstak
lingarnir, fái afskrifað á við skuld
ug fyrirtæki. Sjálfir hafa bankastjór
ar bankanna þriggja, Arion banka,
Landsbanka og Íslandsbanka, lýst
því yfir að svigrúm til afskrifta á
skuldum almennings sé lítið og fari
minnkandi. DV hefur hins vegar
greint frá því að mun meira svigrúm
sé til afskrifta innan bankanna en
þeir sjálfir halda fram.
Útlán íslensku bankanna lækk
uðu um 60 prósent í september
2008, úr 5.500 milljörðum króna í
2.250 milljarða króna. Skuldir heim
ila lækkuðu úr rúmlega 1.000 millj
örðum króna í 585 milljarða króna,
eða um 43 prósent. Líklega hafa þó
fá heimili fengið slíkar afskriftir. Um
ræddar tölur um útlán íslenskra inn
lánsstofnana eru byggðar á gögn
um sem bönkum er skylt að upplýsa
Seðlabankann um mánaðarlega. Er
um að ræða Arion banka, Íslands
banka, Landsbankann, Byr, MP
banka og alla sparisjóði sem enn eru
starfandi á Íslandi.
DV rekur hér nokkur dæmi um
himinháar afskriftir í bankakerf
inu eftir hrun hjá mönnum sem eiga
verulegar eignir og taka ennþá þátt í
íslensku viðskiptalífi. Í einhverjum
tilfellum halda þessir menn kjölfestu
eignum sínum á meðan fjármála
fyrirtæki hafa leyst til sín eignir eft
ir skuldauppgjör eða gjaldþrot.Tekið
skal fram að listinn yfir þessa menn
og þessar skuldir er alls ekki tæmandi
um allar afskriftir í bankakerfinu.
Ingi Freyr Vilhjálmsson
fréttastjóri skrifar ingi@dv.is
Aðalsteinn Kjartansson
blaðamaður skrifar adalsteinn@dv.is
Halda eignum eftir
milljarðaafskriftir
n Margir stærstu skuldararnir halda eignunum þrátt fyrir afskriftir n Einstaka auðmenn
fá tug- eða hundruð milljarða afskriftir n 173 milljarðar afskrifaðir af skuldum heimila„… halda þessir
menn kjölfestu-
eignum sínum á með-
an fjármálafyrirtæki
hafa leyst til sín eignir
eftir skuldauppgjör eða
gjaldþrot.
Gunnar og Gylfi í Bygg
Stóreignamenn eftir skuldauppgjör
Eigendur verktakafyrirtækisins Byggs,
Gunnar Þorláksson og Gylfi Héðins
son, eiga hluti í eignarhaldsfélögum
sem skilja eftir sig skuldir upp á tugi
milljarða króna. Eignarhaldsfélagið
CDG skilur eftir sig um 16 milljarða
króna skuldir sem ekkert fæst upp í og
eitt af dótturfélögum eignarhaldsfélags
í þeirra eigu Saxbyggs, Saxbygg Invest,
skilur eftir sig 42 milljarða króna skuld
ir sem ekkert fæst upp í. Samtals eru
þetta því skuldir upp á 58 milljarða
króna.
Samanlagðar heildarskuldir eignar
haldsfélaga í eigu Byggs og helsta við
skiptafélaga þess, eignarhaldsfélagsins
Saxhóls, fjárfestingarfélags Nótatúns
fjölskyldunnar, nema um 130 milljörð
um króna. Áætlaðar endurheimtur af
þessum skuldum eru ekki meiri en 30
milljarðar króna hið mesta. Því er um
að ræða afskriftir sem nema um 100
milljörðum króna í heildina.
Þrátt fyrir þetta
halda eigendur Byggs
eftir verðmætum
fasteignum í Borgar
túni 27 og 31, Skógar
hlíð 12 og Vegmúla 2,
svo helstu dæmin séu
tekin. Gunnar og Gylfi
hafa lokið skulda
uppgjöri við Lands
bankann sem gerir
þeim kleift að halda
eftir þessum eignum
á meðan Lands
bankinn leysir til sín
verðminni fasteignir.
Verðmæti þeirra eigna sem eigendur
Byggs halda eftir hleypur á meira en
fjórum milljörðum króna.
Þar að auki eiga Gunnar og Gylfi
verðmætar eignir persónulega sem
þeir halda þrátt fyrir tugmilljarða
króna skuldir í bankakerfinu. Gunn
ar býr til að mynda í 500 fermetra
einbýlishúsi í Hólmaþingi í Kópa
vogi. Húsið er um 500 fermetrar að
stærð og kostaði bygging þess á milli
250 og 300 milljónir króna. Bruna
bótamatið á húsinu er tæplega 140
milljónir króna.
100 milljarðar