Dagblaðið Vísir - DV - 13.01.2012, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 13.01.2012, Blaðsíða 8
8 Fréttir 13.–15. janúar 2012 Helgarblað R eykjavíkurborg hefur fall- ið frá umdeildri ákvörð- un sinni um að leggja 610 króna gjald á hverja máltíð sem fatlaðir snæða á vinnu- stöðunum Lækjarási og Bjarkarási. Nýja gjaldið hafði í för með sér að lágmarki tólf þúsund króna kostn- að fyrir þroskahamlaða starfsmenn á vinnustofunum, eða að meðal- tali 7–8% af örorkubótum þeirra. Þeir starfsmenn sem hafa takmark- aða vinnugetu og fá oftast und- ir 10 þúsund krónur í laun á mán- uði ofan á örorkubætur, hefðu því verið í þeirri stöðu að laun þeirra hefðu ekki dugað fyrir hádegismat í vinnunni. „Finnst þetta bara mjög leiðinlegt“ Ákvörðunin um að draga þetta um- deilda gjald til baka var tekin á mið- vikudagsmorgun. „Ákvörðun um þetta gjald kemur til vegna ákveðins misskilnings. Það hefur verið unnið gríðarlegt starf á Velferðarsviði í yfir- færslu á málefnum fatlaðra frá ríki til sveitarfélaga og þarna varð misskiln- ingur sem við hyggjumst leiðrétta,“ segir Jón Gnarr borgarstjóri í samtali við DV. Borgarstjórinn fékk harða útreið frá Úlfari Bjarka Hjaltasyni, þroska- hömluðum starfsmanni á Bjarkarási, sem var miður sín yfir ákvörðuninni. Í samtali við DV á mánudaginn sagði Úlfar Bjarki meðal annars: „Ég vil segja að þetta er ömurlegt mál. Jón Gnarr má skammast sín. Hann er búinn að eyðileggja fyrir okkur mat- inn í vinnunni. Þá er hann búinn að setja okkur alveg niður. Þetta er hans mál!“ Spurður hvað hann vilji segja um þessa hörðu skammarræðu Úlfars Bjarka í hans garð, segir Jón: „Mér finnst þetta bara mjög leiðin- legt og vona að svona endurtaki sig ekki og það þurfi enginn þroska- hamlaður né annar að skammast í mér í blöðunum. Ég útiloka það samt ekki!“ U-beygja borgarstjórnar Algjör viðsnúningur hefur orðið á af- stöðu meirihluta borgarstjórnar til málsins síðan DV fjallaði um það á mánudaginn. Björk Vilhelmsdótt- ir, formaður velferðarráðs, varði þá gjaldtökuna á þeim forsendum að Reykjavíkurborg væri að vinna sam- kvæmt samningi Sameinuðu þjóð- anna um réttindi fatlaðra og að all- ir væru meðhöndlaðir eins. „Mér finnst það bara sjálfsagt að leggja þetta gjald á. Þetta snéri ekki að fjár- málum borgarinnar. Þetta er liður í því að fatlaðir eins og aðrir borgi fæðisgjald. Þetta er bara hugmynda- fræði,“ sagði Björk. Ókeypis matur er ígildi launa Friðrik Sigurðsson, framkvæmda- stjóri Þroskahjálpar, segir skyn- samlegt af borginni að bakka með gjaldið. Hann hafði óskað eftir við- tali við Björk Vilhelmsdóttur til að koma athugasemdum samtakanna á framfæri, áður en borgin ákvað að bakka með gjaldið. Hann segir að það kunni að vera réttlætanlegt að skoða gjaldtöku á fæði, en það þurfi að skoða í stærra samhengi. „Það sem ber að líta til er að þetta er hluti af starfskjörum fólks, að fá ókeypis fæði. Launakjör eru lág og það má líta á það sem ígildi launa að fá ókeypis fæði. Því verður ekki breytt nema skoða heildarmynd- ina, þó að fólki finnist þetta ekki háar upphæðir þá verður að skoða þetta í því samhengi hvað fólkið hefur á milli handanna. Um 13.000 krónur á mánuði eru á milli 7–8% af tekjum fólks, þar með talið örorku- bótum. Menn mega ekki hlaupa til og skerða kjör fólks um fleiri pró- sent án þess að velta fyrir sér hvaða afleiðingar það hefur.“ Friðrik bendir einnig á að með því að Reykjavíkurborg notist við gjaldskrá í félagsmiðstöðvum aldr- aðra sé raunverulega ekki verið að viðurkenna staðina sem vinnu- staði. Auk þess bendir hann á að fatlaðir séu oft ekki í þeirri stöðu að geta smurt sér nesti og komið með í vinnuna. Þarna séu einstaklingar sem hafa ekki sömu möguleika til að gera aðrar ráðstafanir. Borgin fékk peninga fyrir matnum Þegar málefni fatlaðra færðust frá ríkinu til sveitarfélaganna um síð- ustu áramót fékk Reykjavíkurborg alla þá peninga sem ríkið hafði not- að í þennan málaflokk, þar með tal- ið þann pening sem ríkið hafið notað svo að fólk þyrfti ekki að borga fyrir matinn. Með álagningu gjaldsins var borgin því raunverulega að taka pen- ingana sem hún fékk til að sinna fötl- uðum og nota þá í eitthvað annað. Friðrik segir brýnt að ef borgin ætlar að búa til sértekjur með gjald- töku á fatlaða verði að tryggja að tekjurnar af þeim komi málefnum fatlaðra til góða. Gjald á fatlaða „misskilningur“ n Borgin dregur hátt gjald á fatlaða til baka n Misskilningur, segir borgarstjóri n Formaður Þroskahjálpar segir ákvörðunina rétta Valgeir Örn Ragnarsson blaðamaður skrifar valgeir@dv.is „Ég er mjög ánægður“ n Úlfar Bjarki Hjaltason, sem mótmælti ákvörðun borgarstjórnar í DV á mánudaginn, er að vonum ánægður með að ákveðið hafi verið að draga hana til baka. „Já, þetta er flott. Ég er mjög ánægður,“ segir Úlfar. n Friðrik hjá Þroskahjálp hrósar einnig Úlfari Bjarka sem reis upp og mótmælti ákvörðun borgarinnar. „Hann á heiður skilinn fyrir að hafa tekið þetta upp og látið þetta ekki yfir sig ganga. Það er til fyrir- myndar að hann geri eitthvað í málinu og taki það í sínar hendur.“„Menn mega ekki hlaupa til og skerða kjör fólks um fleiri prósent án þess að velta fyrir sér hvaða afleiðingar það hefur. Umfjöllun DV Mánudaginn 9. janúar síðastliðinn. Jón Gnarr „Mér finnst þetta bara mjög leiðinlegt og vona að svona endurtaki sig ekki og það þurfi enginn þroskahamlaður né annar að skammast í mér í blöðunum. Ég úti- loka það samt ekki!“ MynD SiGtryGGUr Ari JÓHAnnSSon Braut tennur í konu: Á skilorð fyrir heimilisofbeldi Karlmaður á fertugsaldri var dæmdur í sex mánaða skilorðs- bundið fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir að beita þáverandi sambýliskonu sína og barnsmóður ofbeldi á heimili þeirra. Árásin átti sér stað í desember 2010 en maðurinn var sakfelldur samkvæmt ákæru fyrir að hafa kast- að skó í andlit konunnar með þeim afleiðingum að hún missti báðar miðframtennur í efri góm og önnur tönn losnaði. Þá hlaut konan bólg- ur, mar og aðra áverka í andliti. Maðurinn neitaði sök og skýrði áverka konunnar með því að hurð hefði skollið framan í hana. Dómara málsins þótti framburður mannsins reikull og ótrúverðugur og hafnaði þessum skýringum hans. Konan var hins vegar stöðug í frásögn sinni um að maðurinn hefði kastað skónum í munninn á henni. Í niðurstöðu dómsins segir að maðurinn hafi ekki áður gerst sekur um refsilagabrot en hins vegar hafi árás hans verið „fruntaleg“ og gerð í viðurvist tveggja ungra barna. Sex mánaða fangelsisdómur mannsins er skilorðsbundinn til þriggja ára en honum var einnig gert að greiða konunni rétt tæplega 1,6 milljónir króna í skaðabætur með vöxtum. Mörður Árnason: Steinþór segi upp „Margir væru til í að skipta á áhyggju málum við Steinþór Páls- son,“ skrifar Mörður Árnason, þing- maður Samfylkingarinnar, á blogg- síðu sína á fimmtudag. Þar fjallar hann um launamál bankastjóra Landsbankans en Steinþór Páls- son lýsti því yfir í síðasta mánuði að rúmlega ein milljón á mánuði væri of lítið fyrir mann í hans stöðu. Bankastjórar Arion banka og Landsbankans væru með miklu hærri laun og þá benti hann á að margir undirmanna hans í Lands- bankanum væru með hærri laun en hann. „En við verðum auðvitað að skilja hvað þetta hlýtur að vera erfitt fyrir menn einsog hann: Að vera alltaf litli kallinn þegar bankastjór- arnir hittast, að tala við erlenda kollega með tíu sinnum hærri laun, að geta bara keyrt slyddujeppa þegar hinir strákarnir í klúbbnum mæta í tennistíma á almennilegum fjallatrukkum,“ skrifar Mörður beitt- ur í bloggfærslu sinni. Hann á þó ráð fyrir Landsbanka- stjórann undirlaunaða. „Að segja upp hjá Landsbankanum og ráða sig á almennilegum launum hjá einkabransanum – til dæmis ein- hverjum af fjölmörgum gæðafyrir- tækjum í eigu bankakerfisins.“ Mörður segir að hann sé viss um að Landsbankinn muni ekki vera í eigu ríkisins til eilífðar. En hins vegar er það hans skoðun að á meðan ríkið á bankann eigi að reka hann á öðrum forsendum en venju- legan einkabanka. „Meðal þeirra forsendna er sú að launamálum sé hagað með siðrænum hætti og í samræmi við launastefnu innan opinbera geirans.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.