Dagblaðið Vísir - DV - 13.01.2012, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 13.01.2012, Blaðsíða 16
A uðvitað er erfitt að vera foreldri barns sem leggur fram líkamsárásarkæru, það er hræðilegt. Flest- ir yrðu mjög ósáttir við það. Þannig að þetta mál setur Pál í óþægilega stöðu, sérstaklega af því að það varpar aftur ljósi á þessi nánu tengsl hans og hennar. „Þetta er búið að vera ömur- legt,“ sagði Edda Sif Pálsdóttir sem kærði Hjört Júlíus Hjartarson, starfsfélaga sinn á RÚV, fyrir lík- amsárás. Atvikið átti sér stað þegar val á íþróttamanni ársins fór fram á Grand Hótel síðasta fimmtu- dag. Hjörtur hafði stýrt beinni út- sendingu frá samkomunni fyrr um kvöldið. Kalla Hjört í skýrslutöku Edda Sif leitaði á bráðamóttöku eftir atvikið þar sem hún fékk áverkavottorð. Í kjölfarið lagði hún fram kæru. Árni Vigfússon, að- stoðaryfirlögregluþjónn hjá lög- reglunni á höfuðborgarsvæðinu, staðfesti að Edda Sif hefði gefið skýrslu en vissi ekki hvar hún væri niðurkomin. „Skýrslan er væntan- lega á leiðinni hingað. Þetta fer á milli stöðva þar sem skýrslan var ekki tekin hjá okkur. Það getur tek- ið smá tíma en þar sem þetta á að hafa gerst á okkar svæði ætti hún að enda hér hjá okkur,“ sagði Árni. Næsta skref er að kalla Hjört til skýrslutöku. „Síðan er það áverka- vottorðið þegar það kemur.“ Þegar lögreglan hefur lokið rannsókninni verður málið sent til ákærusviðs lögreglunnar líkt og venja er. Á þessu stigi málsins er nánast ómögulegt að segja til um líkurnar á því að ákært verði í mál- inu. „Svo getur margt gerst í lífinu. Sjáðu til, henni gæti snúist hugur, það gerist oft. Fólk dregur kærur til baka en ég er ekki að segja að það muni gerast í þessu tilfelli,“ sagði Árni. Látinn fara tafarlaust Hirti var sagt upp og hvarf hann tafarlaust frá störfum en til stóð að hann sæi um EM-stofuna. Hann hafði starfað fyrir íþróttafrétta- deildina frá haustinu 2007 og var fljótlega gerður að yfirmanni þar. Málið hefur valdið uppnámi á RÚV þar sem starfsfólkið er slegið yfir þessum fregnum. Hópurinn var samheldinn og Hjörtur vel liðinn. Djúpstæð vinátta hafði ríkt á milli hans og Eddu um nokkurt skeið en fyrsta daginn hennar í starfi bauð Hjörtur Eddu með sér í matsal- inn og spurði hvort það væri ekki örugglega allt í lagi með hana. Þá var hún stjörf af stressi. Hún sagðist aldrei hafa feng- ið að finna fyrir því hjá vinnufé- lögum sínum að hún væri dótt- ir útvarpsstjórans. Þegar hún var ráðin til starfa var það hins vegar ansi umdeilt, einmitt vegna þess- ara vensla. Um 400 sóttu um stöð- una, þar af fjöldi fólks sem hafði meiri menntun og reynslu af fjöl- miðlum. Edda Sif hafði þó starfað lengi á RÚV, meðal annars á safna- deildinni við að raða spólum, í söludeildinni og sem skrifta. Sjálf sagðist hún hafa feng- ið stöðuna vegna eigin verðleika og að störf hennar myndu dæma sig sjálf. Árangur hennar í frétta- mannaprófi sem allir umsækj- endur þurftu að þreyta var einn- ig framúrskarandi. Enda ólst hún nánast upp á Stöð 2 þar sem for- eldrar hennar störfuðu báðir á sín- um tíma eins og fram kom í við- tali sem hún veitti Fréttatímanum í apríl. Nú þykir Páll Magnússon vera kominn í ansi erfiða stöðu en málið hefur valdið uppnámi á RÚV. Einn af þeim starfsmönnum RÚV sem DV ræddi við orðaði þetta svona: „Auðvitað er þetta óþægilegt. Ég get ekki ímyndað mér hvernig það er að vera Páll núna. Þetta er flók- in staða sem hann er í, með dótt- ur sína annars vegar og hins veg- ar mann sem gegndi til margra ára ábyrgðarstöðu innan fyrirtækisins og var látinn fara. Auðvitað er erf- itt að vera foreldri barns sem legg- ur fram líkamsárásarkæru, það er hræðilegt. Flestir yrðu mjög ósáttir við það. Þannig að þetta mál setur Pál í óþægilega stöðu, sérstaklega af því að það varpar aftur ljósi á þessi nánu tengsl hans og hennar.“ Annar sagði að það gerði málið allt mikið viðkvæmara og erfiðara við- fangs hverra manna hún væri. Kannar stöðu sína Þegar RÚV var gert að sjálfstæðu hlutafélagi í 100 prósent eigu rík- isins varaði Bandalag háskóla- manna, sem Félag fréttamanna er aðili að, við því að það gæti þýtt að lög um réttindi og skyldur ríkis- starfsmanna ættu ekki lengur við um starfsmenn RÚV. Samkvæmt þeim lögum hefði Hjörtur Júlíus fyrst átt að fá skriflega áminningu og tækifæri til að bæta ráð sitt áður en honum var sagt upp störfum, þar sem brottrekstur hans tengist ekki niðurskurði. Hins vegar hefur aldrei reynt á það áður hvaða réttindi starfsmenn RÚV hafa í mál- um sem þessum. Fréttamenn á fréttastofu RÚV eru í Félagi fréttamanna. Sam- kvæmt heimildum DV er félagið að kanna réttarstöðu Hjartar Júlíusar. Formaður félagsins, Ægir Þór Ey- steinsson fréttamaður á RÚV, vildi ekki staðfesta það við DV og svar- aði einfaldlega „no komment“ þegar eftir því var leitað. Erna Guðmundsdóttir, lögfræð- ingur Bandalags háskólamanna, vildi heldur ekki tjá sig um mál- efni Hjartar Júlíusar en á almenn- ari nótum sagði hún hins vegar að eftir breytingarnar ríkti óvissa um stöðu starfsmanna RÚV. „Þegar RÚV var gert að sjálfstæðu hluta- félagi í eigu ríkisins á sínum tíma var þetta akkúrat það sem við vör- uðum við, að það væri verið að færa starfsmenn sem féllu undir lög um réttindi og skyldur ríkis- ins, stjórnsýslulög, undan þeim lögum,“ sagði Erna. „Í raun og veru var verið að skerða rétt þeirra og þá vernd sem þeir nutu lögum samkvæmt.“ Hún tók dæmi: „Eins og til dæmis því að fá tækifæri til að bæta sig í starfi á grundvelli áminningar og hafa andmælarétt.“ Erna bendir á að margs kon- ar réttindi hafi verið afnumin hjá starfsmönnum RÚV þegar það var gert að opinberu hlutafélagi. Heyra ekki undir stjórnsýslulög Því er staða starfsmanna RÚV, og þar með Hjartar, enn óljós. Eftir breytingarnar hefur ekki reynt á það hvaða reglum RÚV á að fylgja þegar kemur að uppsögnum. „Það er náttúrulega ljóst að þessi lög um áminningu og tækifæri gilda ekki um starfsmenn RÚV ohf. en hins vegar er það eitthvað sem þyrfti að skoða mjög vel þar sem um er að ræða hlutafélög sem eru algjör- lega í eigu íslenska ríkisins, hvort stjórnsýslulög ættu einnig að gilda um starfsmennina þar. Í raun og veru hefur aldrei verið tilefni til að skoða það sérstaklega. En dóm- ar hafa fallið þar sem talið er að stjórnsýslulögin gildi þótt ekki sé um ríkisstofnun að ræða,“ sagði Erna. Berglind G. Bergþórsdóttir, mannauðsstjóri RÚV, sendi skrif- legt svar við fyrirspurn blaðsins þar sem fram kemur að fyrirtæk- inu sé ekki skylt að fara eftir lög- um um réttindi og skyldur starfs- manna ríkisins: „Framkvæmd uppsagna er í samræmi við gild- andi kjarasamninga viðkomandi stéttarfélags og almennar regl- ur vinnuréttar um slit ráðningar- samninga.“ Standa með honum Páll Magnússon vildi ekki tjá sig um málið þegar eftir því var leitað. Það vildi Kristín Harpa Hálfdánar- dóttir, sem er yfir íþróttadeildinni, ekki heldur gera en samkvæmt heimildum DV var það hún sem tók á málinu með starfsmanna- stjóra RÚV. Einn þeirra starfsmanna RÚV sem DV ræddi við í dag sagði að málið hefði verið mikið rætt á meðal starfsmanna. Þótt flest- ir forðist að taka afstöðu í máli sem þeir þekkja ekki til hlítar eru engu að síður skiptar skoðanir á Uppnám á RÚV Aðalsteinn Kjartansson blaðamaður skrifar adalsteinn@dv.is Hanna Ólafsdóttir blaðamaður skrifar ingibjorg@dv.is Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir blaðamaður skrifar hanna@dv.is „RÚV sem stofnun er mjög annt um friðhelgi einkalífsins. Þar sem þetta er í þokkabót dóttir útvarpsstjórans þykist ég nokkuð viss um að það verði reynt að láta þetta liggja í láginni. 16 Fréttir 13.–15. janúar 2012 Helgarblað n Hjörtur Hjartarson rekinn í skyndi n Edda Sif Pálsdóttir kærði hann fyrir líkamsárás n Skiptar skoðanir á viðbrögðum stjórnenda Fær knús þegar hún kemur aftur Sumir óttast áhrif málsins á feril Eddu Sifjar sem íþróttafréttamanns, þar sem hún er stelpa í strákaklíku. Hún hefur staðið sig vel, segja samstarfs- menn og bjóða henni knús.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.