Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 13.01.2012, Qupperneq 23

Dagblaðið Vísir - DV - 13.01.2012, Qupperneq 23
eða Gámaþjónustuna sem plantar einu tré fyrir hvert hirt jólatré. Óskar Páll Elfarsson: Væri ekki ráð að gera Hverfisgötuna auðkeyrðari og loka fyrir alla bílaumferð um Laugaveg, frá Hlemmi? Passa bara að finna lausn á umferð af Skólavörðustíg, svo það sé ekki allt í einu umferð á göngugötunni.  Jón Gnarr: Ég vil draga úr umferð í miðbænum og loka götum. Ég tel mikilvægt að draga úr umferð við Hverfisgötu til að gera hana mann- eskjulegri og íbúavænni. Bílar eru hættulegir. Ef það er gert í sátt við eigendur. Kristensa Valdís Gunnars- dóttir: Allt of lág laun sem við leikskólaliðar erum að fá, stendur ekki til að veita okkur kauphækkun?  Jón Gnarr: Við verðum að virða kjarasamninga. Mig langar til að finna leiðir til að bæta starfsum- hverfi á leikskólum borgarinnar. Þráinn Bertelsson: Hvort kemur þú þjóðinni að meira gagni sem heittelskaður leikari og skemmtikraftur eða sem umdeildur stjórnmálamaður með einkabílstjóra?  Jón Gnarr: Ég er ekki með einkabíl- stjóra, Þráinn. Hvort kemur þú þjóðinni meira að gagni sem heitt- elskaður leikstjóri eða vægast sagt umdeildur pólitíkus? Ásgeir Einarsson: ESB JÁ? NEI?  Jón Gnarr: Ekki meðan það er kóngafólk í Evrópu. Mér finnst það ekki eftirsóknarvert. Eyjólfur Guðmundsson: Er skemmtilegt að vera borgarstjóri?  Jón Gnarr: Já, oftast nær en stundum er það erfitt. Stundum verð ég pirraður og á það til að detta i smá sjálfsvorkunn. Þá er ekki gaman. Steinar Jónsson: Ég heyrði það einhverstaðar að Benedikt Erlingsson ætlaði sér í framboð, veistu eitthvað um þetta? Hvernig forseti heldur að Benedikt yrði?  Jón Gnarr: Það held ég að yrði slæmur forseti. Ég vona að þetta sé kjaftasaga. Elín Hermannsdóttir: Stefnirðu á það að vera lengi í þessu starfi eða langar þig að fara aftur í grínið?  Jón Gnarr: Ég er náttúrlega ekki farinn úr gríninu. Ég grínast eitthvað á hverjum degi en grínið lokkar og laðar. Kolbeinn Guðjónsson: Nú geta liðið allt að 12 dagar á milli þess er losað er í sorphirðu borgarinnar og borgin sóðaleg í hverfunum eftir því, er þessi tilraun ekki orðin ágætt djók og má ekki heimila losun oftar hjá sorphirðunni?  Jón Gnarr: Moka frá tunnunum, flokka sorpið og sýna ábyrgð í ruslamálum. Ég geri það sjálfur. Þetta er ekkert djók heldur það sem tíðkast í nágrannalöndum okkar. Daði Ingólfsson: Hvernig líst þér á nýju stjórnarskrána?  Jón Gnarr: Mér líst vel á hana en vil að við fáum að kjósa um hana. Snorri Arinbjarnar: Hvert er þitt álit á því að NASA yrði lokað? Verður eitthvað barist á móti af hálfu borgarinnar?  Jón Gnarr: Mér finnst það leiðinlegt. Þetta húsnæði er ekki í eigu borgarinnar en það er hlut- verk okkar að miðla málum á sem bestan hátt. Örn Arnarson: 1.000 kall fyrir par, það er rosalegur peningur til að fara í sund. Hugsuðuð þið þessa breytingu til enda, eins og að stytta frekar opnunartíma í minna sóttum sundlaugum frekar en að hækka gjaldið?  Jón Gnarr: Enn og aftur er stakt gjald hátt. Það borgar sig að kaupa kort. Þetta er útpælt og til þess gert að ferðamenn borgi meira fyrir þjónustuna. Rafn Steingrímsson: Jón, þegar þú stofnaðir Besta, þá talaðir þú um að fara inn á þing. Munt þú bjóða þig fram í næstu alþingiskosningum?  Jón Gnarr: Ég hélt ég væri að fara á Alþingi þegar ég stofnaði flokkinn. Það var algjör misskilningur. Ég held ég ætli ekki á þing. Guðmundur Franklín Jónsson: Hvernig viltu hafa poppið þitt – vel saltað – millisaltað eða ósaltað?  Jón Gnarr: Vel saltað! Ingólfur Guðmundsson: Finnst þér að það þurfi að fjölga borgarfulltrúum og varafulltrúum? Eru verkefni borgarinnar búin að aukast miðað við það sem var? Hver væri áætlaður kostnaður á mánuði vegna aukins stjórnunarkostnaðar?  Jón Gnarr: Já, verkefnin hafa aukist og borgin stækkað. Fjölgun er fyrirhuguð í nýju sveitarstjórnar- lögunum. Ég hef ekki reiknað út kostnaðinn. Brynjar Sigurðsson: Er það stefna borgarinnar að skipta ekki um perur í biluðum ljósastaurum?  Jón Gnarr: Nei. Alls ekki. Sigurður Traustason: Hvað finnst þér að eigi að gera við krár á Laugavegi sem verslunareigendur eru ósáttir við?  Jón Gnarr: Þetta er vandasamt. Við höfum reynt að byggja upp gott samband við kráareigendur og verslunarmenn. Ég er sjálfur mjög mótfallinn stöðum sem hafa spilakassa. Mér finnst að það ætti að banna þá. Menn geta spilað á netinu. Eysteinn Helgason: Var ekki uppi hugmynd um að stofna nýjan banka og er hún enn á „to do“ listanum? (bónus spurning, hvað er „to do“ listinn þinn langur?)  Jón Gnarr: Hann er langur. Staðreyndin er sú að reglur um fjár- málafyrirtæki hafa verið hertar til muna og það er alls ekki einfalt eða ódýrt fyrir sveitarfélag að verða fjármálafyrirtæki. Hildur Lilliendahl: Af hverju eru þetta svona leiðinlegar spurningar?  Jón Gnarr: Hvað meinarðu, Hildur? Egill Angantýsson: Hver er þinn stærsti sigur í stól borgarstjóra er varðar borgarmálin?  Jón Gnarr: Ætli það sé ekki að hafa tekið á málum Orkuveitunnar? Ég reyni bara að gera mitt besta og ég legg ekki mat á það hvað er gott og hvað er slæmt. Ég reyni bara að gera vel. Kristján Haraldsson: Það er einn skakkur ljósastaur fyrir utan Laugaveg 41, fyrir utan SOHO hárgreiðslustofuna. Er búinn að vera þannig í marga mánuði. Er það ekki top-priority að laga hann sem fyrst?  Jón Gnarr: Algjört Top! Steinar Jónsson: Trúir þú á stjörnuspeki?  Jón Gnarr: Já og líka álfa. Og til- viljanir. Atli Agnarsson: Strætó er hættur að ganga í mínu nánasta hverfi, gatan illa skafin, gangstígar horfnir undir snjó og bíllinn er fastur. Aldrei verið verra. Má ekki bæta aðeins í sandinn? Ekki kemst ég út með hundinn! #112  Jón Gnarr: Við erum að ryðja á fullu. Ekki gefast upp, Atli. Ari Kárason: Er þetta leiðinlegra starf en þú bjóst við? Öðruvísi? Hefur þú einhver völd?  Jón Gnarr: Þetta er erfiðara en ég hélt. Margt hefur komið mér á óvart. Ég hef völd en reyni að fara varlega með þau. Reykjavík er fjölskipað stjórnvald, ólíkt ríkinu. Stefán Drengsson: Einelti í skólum Reykjavíkur er orðið frekar áberandi vandamál og svo virðist að skólarnir sjálfir vilji ekki taka á þessu. Veit af eigin reynslu að það hafa þeir ekki gert. Mun borgin taka á þessu?  Jón Gnarr: Einelti er ofbeldi og við munum berjast gegn því eins og öllu öðru ofbeldi. Ofbeldi leysir ekki vandamál heldur býr þau til eins og hefur margsannast. Brynja Dögg: Eru einhver plön um að gera eitthvað á húsaleigumarkaðinum? Allt of lítið af húsnæði í boði og allt á uppsprengdu verði. Maður getur hvorki keypt né leigt.  Jón Gnarr: Húsnæðisstefna Reykjavíkur er í mótun og þar er sérstaklega fjallað um að efla leigumarkað og húsnæðisúrræði fyrir ungt fólk. Alda Rögnvaldsdóttir: Var fjármunum borgarinnar varið ósiðlega áður en þú tókst við?  Jón Gnarr: Í einhverjum tilfellum en ekki almennt. Fundarstjóri: Hvaða tilfellum?  Jón Gnarr: Við erum núna að láta fara fram ítarlega úttekt á stjórnsýslu Reykjavíkur. Það verður athyglisvert að sjá hvað kemur út úr henni, niðurstaðan á að liggja fyrir um næstu áramót. Atli Már: Munt þú reyna að byggja eitthvað alheimsundur í Reykjavík eins og Kínamúrinn eða Perluna?  Jón Gnarr: Ég vil byggja Hlátur- múrinn. Er það ekki stórkostleg hugmynd? Bergur Benjamínsson: Á að gera sérstakt átak fyrir þá sem þurfa að nota hjálpartæki (hjólastóla t.d) og eiga erfitt oft á tíðum að komast um borgina ?  Jón Gnarr: Ferlimál eru okkur mjög hugleikin og við erum sífellt að vinna að þeim, t.d. með því að fjarlægja tré sem eru að eyðileggja gangstéttir og hefta umferð. Hrefna Björt: Stendurðu ennþá með því að Ísland sé leiðandi afl frá andlegu sjónarmiði, sérðu þig og tengirðu þig (ennþá) sem part af þeirri köllun (við berum öll ábyrgð á)? Ertu búinn að gleyma byltingunni í pólitík?  Jón Gnarr: Nei, alls ekki. Byltingin er blíð og fer ekki fram á strætum heldur í hugum fólks. Sigtryggur Jóhannsson: Hver er þín skoðun á sífjölgandi hótelum við Ingólfstorg? Ætti borgin að beita sér fyrir því að dreifa þessum hótelum meira?  Jón Gnarr: Ég veit það ekki. Það er engin regla til um svoleiðis. Eru ekki hótel í öllum miðborgum um allan heim? Eru hótel vond? Garðar Jónsson: Er bygging gosbrunna í Reykjavík á dagskrá á þínu kjörtímabili?  Jón Gnarr: Mér þætti gaman að sjá gosbrunna víðar. Til dæmis á Lækjartorgi og á Ingólfstorgi. Jón Vilhjálmsson: Ef þú gætir breytt hverju sem er í Reykjavík, Hvað væri það? Og af hverju?  Jón Gnarr: Þetta er stór spurning. Mitt helsta baráttumál er að fá Héraðsdóm burt af Lækjartorgi. En ætli ég myndi ekki velja að geta boðið öllum húsnæði á viðráðan- legu verði. Þóra Guðmundsdóttir: Eru fyrstu varaborgarfulltrúar enn á launum? ef svo, fylgir því einhver vinnuskylda?  Jón Gnarr: Já, og þeir vinna frekar mikið. Starf borgarfulltrúa er gríðarlega krefjandi. Steinþór Grímsson: Hver var það sem ákvað lokun Rauðalækjar?  Jón Gnarr: Sú ákvörðun hlýtur að hafa verið tekin af umhverfis- og samgöngusviði eða skipulagssviði. Ég veit það bara ekki. Hulda Atladóttir: Af hverju viltu Héraðsdóm burt af Lækjartorgi?  Jón Gnarr: Mér finnst þetta allt of sorgleg starfsemi fyrir hjarta Reykjavíkur. Þarna ætti að vera hús gleðinnar. Mér finnst ömurlegt að sjá myndir af Lækjartorgi þegar verið er að kveða upp dóma í hroðalegum málum, jafnvel ekki einu sinni í Reykjavík eins og dæmin sanna. Hlynur Kristjánsson: Í heimabænum mínu, Akureyri, hefur nú verið í alllangt skeið frítt í bílastæði og í strætó og hefur reynst vel að ég best veit. Hafið þið skoðað af alvöru að fylgja fordæmi höfuðborgar norðursins?  Jón Gnarr: Nei, ekki í bílastæði að minnsta kosti. En almenningssam- göngur eru í endalausri endur- skoðun en eru háð samþykki fleiri en bara Reykjavíkur. Jack Daníelsson: Í ljósi fréttar hér á DV í gær um að þroskahamlaðir skuli greiða fyrir mat sinn 210 krónum meira en borgarfulltrúar fyrir sinn mat, hver verða þín viðbrögð?  Jón Gnarr: Við höfum ákveðið að draga ákvörðunina til baka. Hún var byggð á misskilningi sem er bara mannlegt. Nú endurskoðum við málið í samvinnu og samráði við hagsmunaaðila og notendur. Alma Guðmundsdóttir: Að flokka rusl er eitthvað sem allir eiga að gera – en er ekki öllum úrgangi blandað saman hjá Sorpu? Er til einhvers að flokka sorp?  Jón Gnarr: Nei. Það er ekki öllu blandað saman. Þetta er mis- skilningur. Sorpa hirðir málma, pappír og plast og endurvinnur. Lífrænn úrgangur fer í að búa til moltu og metan. Samúel Ólason: Það er eitthvað hljóð í ofninum mínum, sláttur eða eitthvað slíkt. Hver á að laga það? Er það ég? Á ég að laga það?  Jón Gnarr: Hahahaha! Talaðu við lögregluna. Þórður Páll: Eru einhver áform í gangi um aukna aðstoð fyrir börn með t.d. ADHD í skólakerfinu?  Jón Gnarr: Já. Við erum að vinna að því. Þetta er mér mikið hjartans mál. Bjarni Fritzson: Sæll, Jón, sameining leikskóla borgarinnar var gríðarlega umdeild og að mínu viti ófagmannlega unnin. Ertu þú ánægður með störf starfshóps Oddnýjar Sturlu og afraksturinn af sameiningunum?  Jón Gnarr: Þetta var gríðarlega erfitt. Að breyta skólakerfi er svolítið eins og að færa kirkjugarð. Þú færð enga hjálp innan frá. Ég held að allir hafi gert sitt besta og ég fer ekki fram á meira. Auðvitað má alltaf gera betur. Ebenezer Ásgeirsson: Átt þú þitt eigið húsnæði eða leigir þú? Og ertu sáttur við það sem þú borgar í leigu?  Jón Gnarr: Ég bý í eigin húsnæði. Björn Halldórsson: Viltu hafa flugvöllinn áfram í Vatns- mýrinni eða viltu hann burt?  Jón Gnarr: Ég vil flytja allt flug til Keflavíkur og losna við flugvöllinn. Ása Jóhanns: Hvernig hyggstu sjá til þess að miðborgin verði hreinsuð næsta sumar? Miðborgin lítur út eins og gettó og þá sérstaklega ein aðalgatan, Hverfisgata. Hreinsun hefur verið til háborinnar skammar.  Jón Gnarr: Sóðaskapurinn kemur til vegna umgengni og hún hefur verið til algjörrar skammar. Við getum ekki lagt enda- lausan pening til hreinsunar ef fólk gengur ekki fallega um. Það er mikil óheillaþróun. Magnús Sigurðsson: Til hamingju með 44 ára afmælið Jón, hvernig líður þér að eldast svona?  Jón Gnarr: Takk. Mér líður vel og ég hlakka til að verða fimmtugur. Daníel Jónasson: Hvað finnst þér um rafbókavæðingu Vogaskóla og telur þú að slíkt geti orðið að veruleika í grunnskólum borgarinnar? Þetta er jú ansi umhverfisvænt til lengri tíma litið.  Jón Gnarr: Ég fagna þessu skemmtilega verkefni og vona að það breiðist út sem hraðast. Brynja Garðarsdóttir: Fyllist ruslatunnan þín ekki í hvert einasta sinn og gott betur áður en hún er tæmd, með þessari 10 daga tæmingaráætlun?  Jón Gnarr: Nei. Ég endurgeri allan lífrænan úrgang og flokka dósir og flöskur frá og pappír. Böðvar Jónsson: Hvernig gerum við fýlupúka borgarinnar aðeins hamingjusamari ?  Jón Gnarr: Með því að umvefja þá elskulegheitum.  Jón Gnarr: Ég þakka kærlega fyrir mig og óska lesendum DV árs og friðar. Umræða 23Helgarblað 13.–15. janúar 2012 Stoltur af að vera enn í st rfi

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.