Dagblaðið Vísir - DV - 13.01.2012, Qupperneq 24
Sandkorn
B
orgaryfirvöld og stjórnvöld
hafa í gegnum tíðina stund
um unnið gegn betri heilsu
fólks en ekki með henni.
Í stað þess að fyrirbyggja
heilsubrest er jafnvel ýtt undir or
sakir hans.
Það er vitað að hreyfingarleysi og
slæmt mataræði er stærsta orsökin
fyrir flestum alvarlegustu sjúkdóm
um Íslendinga.
Besta leiðin til að fá fólk til að
hreyfa sig á sjálfbæran hátt er ekki
að byggja upp líkamsræktarstöðvar
með stór bílastæði úti um allt, held
ur blanda hreyfingu inn í hversdags
lífið. Einfaldasta leiðin til þess er
að gera fólki mögulegt að hreyfa sig
á leið til og frá vinnu. Skipulagið á
borginni síðustu áratugi hefur unnið
gegn þessu. Borgin hefur verið þanin
út í bílahverfi og er ein sú dreifbýl
asta í heimi. Almenningssamgöng
urnar hafa verið við mörk þess
boðlega og því hafa fáir átt raunveru
legan kost á bíllausum lífsstíl.
Sem betur fer er þetta að breytast.
Borgarfulltrúarnir Hjálmar Sveins
son og Gísli Marteinn Baldursson
hafa verið leiðandi í því að upp
ræta bílahugsunarháttinn. Hjálmar
Sveinsson svaraði á dögunum grein
læknis, sem gagnrýndi að gert væri
ráð fyrir því að hluti starfsmanna
Landspítalans færi í vinnuna án
þess að nota einkabíl. Lækninum
þótti gagnrýnivert að gera ráð fyrir
að fleiri tileinkuðu sér bíllausan lífs
stíl við skipulagningu á nýja Land
spítalanum. „Æ fleiri sérfræðingar á
sviði lýðheilsu vekja athygli á því að
vel skipulagt borgarumhverfi, aukin
hreyfing og vistvænn ferðamáti bæta
lýðheilsu,“ svaraði Hjálmar. En það
er þekkt að áherslan í heilbrigðis
geiranum er óskynsamlega mikil á
viðbrögð við sjúkdómum frekar en
forvarnir.
Umfangsmesta næringarfræði
rannsókn í heimi, The China
Study, bendir til beinna tengsla á
milli mikillar neyslu dýraafurða og
krabbameins og hjartasjúkdóma.
Þeir sem borða meira grænmeti fá
síður krabbamein og blóðrásar
sjúkdóma. Þetta er lífsnauðsynlegt
að vita, því 28,1% Íslendinga deyr úr
krabbameini og 36,4% úr blóðrásar
sjúkdómum. Nýleg rannsókn nær
ingarfræðingsins Jóhönnu Eyrún
ar Torfadóttur leiddi auk þess í ljós
tengsl milli krabbameins og mikillar
neyslu á mjólk, sem hingað til hefur
verið talin ímynd hollustunnar.
Það liggur því í augum uppi að
stjórnvöld ættu að leggja meira í
að ýta undir grænmetisræktun en
aðra matvælaframleiðslu. En þau
gera það ekki. Mjólk og lambakjöt
eru niðurgreidd tuttugu sinnum
meira en grænmetið sem vísinda
legar rannsóknir benda til að sé best
fyrir heilsu okkar. 5,6 milljarðar fara í
niðurgreiðslu á mjólk, 4,2 milljarðar
í lambakjöt og aðeins tæpur hálfur
milljarður í grænmetið.
Landsvirkjun hefur verið knúin til
þess af fyrri stjórnvöldum að niður
greiða verulega orkuverð til álvera.
Bændur sem rækta grænmeti og
þurfa til þess rafmagn þurftu að
borga miklu hærra verð.
Læknar eiga að laga sjúkdóma. En
sumir læknar virðast aðallega vera
atvinnumenn í því að gefa út lyf
seðla. Fljótlegasta leiðin fyrir lækni
til að gera sjúkling sáttan er að gefa
honum lyf. Við ávísum þunglyndis
lyfjum, þótt stóraukin notkun þeirra
virðist ekki bæta almenna geðheilsu
til lengri tíma. Það er líka vitað að
langvarandi svefnlyfjanotkun er
skaðleg. Samt eigum við Norður
landametið í svefnlyfjanotkun. Ís
lendingar nota tvöfalt meira af svefn
lyfjum en Danir. Þau eru tímabundin
lausn við svefnleysi, sem hefur tak
markaðan eða engan langtímaárang
ur, og þvert á móti ýmsar aukaverk
anir. Þau draga úr vitrænni getu og
einbeitingu, valda því að gamalt fólk
dettur og brýtur bein og eru auk þess
ávanabindandi. Meðal fjölda ann
arra hliðarverkana af langtímanotk
un á svefnlyfjum er kvíði. Íslendingar
nota líka tvöfalt meira af kvíðastill
andi lyfjum en Danir. Kostnaðurinn
af faraldri beinbrota hjá gömlu fólki
á svefnlyfjum varð til þess að farið
var að huga að ofnotkuninni. Annars
staðar en hér.
Líkaminn er flókið fyrirbæri. Áhrif
og víxláhrif lyfja, næringar og hreyf
ingar verða seint rannsökuð til fulls.
En við vitum nógu mikið nú þegar.
Hagsmunaöflin virka hins vegar ekki
í rétta átt. Hversdagsleg hreyfing og
bíllaus lífsstíll, ásamt náttúrulegu
mataræði, er bara ekki eins gróða
vænlegt og lyf, fjarheilun, ofuræf
ingaprógrömm, fæðubótarefni, pró
teindrykkir og fíknivaldandi matur.
Strigakjaftar
n Þingmaðurinn Björn Valur
Gíslason er á meðal þeirra
orðhvassari. Frægt var þegar
hann talaði
niður sjálfan
forseta Ís
lands og
kallaði for
setadruslu.
Síðan hafa
magnaðir
frasar hrokkið af vörum þing
mannsins og skipstjórans sem
virðist ekkert óttast. Nýjasta
fórnarlamb Björns Vals er
annar striga kjaftur, Vilhjálmur
Bjarnason fjárfestir, sem mun
taka út nokkrar sálarraunir
vegna meðferðar samfélagsins
á sparifjáreigendum. Talaði
hann um galdrabrennur sem
varð til þess að Björn Valur
ýjaði að brjálsemi Vilhjálms
sem hefur slegið til baka.
Hundfúll Gunnar
n Gunnar Bragi Sveinsson,
þingflokksformaður Fram
sóknarflokksins, er grautfúll
út í Ríkisút
varpið fyrir að
vera stöðugt
að tala við
frambjóð
endur og
stjórnmála
menn, aðra
en hann sjálfan. Telur Gunnar
sjálfan sig vera algjörlega
sniðgenginn í þáttum RÚV á
meðan talsmenn nýrra fram
boða fá fljúgandi meðbyr
inn í fjölda þátta. „RÚV hefur
aldrei boðið mér í einn ein
asta þátt í sjónvarpi frá því ég
var kjörinn á þing,“ segir hann
í Mogganum. Þetta er sama
barátta og Ástþór Magnússon
frambjóðandi hefur staðið í
vegna afskiptaleysis RÚV.
Klúður ráðherrans
n Stuðningsmenn Árna Páls
Árnasonar, fyrrverandi ráð
herra, hafa keppst um að tala
upp árangurinn af illa skipu
lagðri uppreisn sinni á flokks
stjórnarfundi Samfylkingar.
Vandi Árna er hins vegar sá
að hann var á berangri í þing
flokknum þar sem einungis
tveir þingmenn, Kristján Möller
og Sigmundur Ernir Rúnarsson
studdu hann. Þá nefna and
stæðingar hans að stefnuleysi
í atvinnu og efnahagsmálum
skrifist á hann sem ráðherra
efnahagsmála. Loks er það
klúður að Icesave er á leið í
dóm skrifað á Árna. Sumir
telja því maklegt að hann var
látinn víkja.
Læknir skammaður
n Íbúar í Fjarðabyggð hafa
sumir hverjir fallið í forundr
an vegna þeirrar meðferðar
sem Hannes
Sigmarsson
læknir fær
hjá þeim sem
ráða ferðinni
hjá Heilbrigð
isstofnun
Austurlands.
Hannesi var vikið tímabundið
frá störfum árið 2009 og hefur
síðan orðið að stunda vinnu
sína annars staðar á landinu.
Á sama tíma vantar lækna í
heimahéraði hans. Hannes
hefur sótt um störf en fékk á
móti skammarbréf þar sem
honum var bannað að sækja
um stöður stofnunarinnar.
Blekkingin um heilsuna„Læknar
eiga að
laga sjúkdóma
L
agakennsla sums staðar í Evrópu
hvílir á þrem meginstoðum. Ein
stoðin er lögin sjálf. Önnur stoð
er mannréttindi, einkum réttur
manna gagnvart yfirvöldum. Þriðja
stoðin er réttmæti laganna í augum
fólksins, sem í lýðræðisríki er upp
spretta alls valds, laga og réttar. Stoð
irnar styðja hver aðra. Á þeim hvíla
félagsleg réttarríki nútímans með réttlát
og skýr lög, sem fólkið kýs að fylgja til að
efla eigin hag.
Lagakennsla á Íslandi hvíldi löngum
á fyrstu stoðinni einni saman. Lög
in sjálf í þröngri merkingu voru ær og
kýr lögfræðinga, mannréttindi voru í
engum hávegum höfð og ekki heldur
hugmyndin um fólkið, þjóðina, sem
uppsprettu og réttlætingu laganna.
Orðaforði málsins segir sína sögu.
Ráðuneyti, sem í Evrópu eru kennd við
réttlæti, kölluðu Íslendingar þar til ný
lega dómsmálaráðuneyti.
Önnur stoðin: Mannréttindi
Það gerðist ekki fyrr en 1995, að ný
mannréttindaákvæði voru leidd inn
í stjórnarskrána frá 1944 til samræm
is við Mannréttindasáttmála Evrópu.
Lögin um stjórn fiskveiða brjóta enn
gegn mannréttindum, bæði skv. dómi
Hæstaréttar 1998 og skv. bindandi áliti
mannréttindanefndar Sameinuðu
þjóðanna 2007, áliti, sem stjórnvöld
hafa ekki enn til fulls brugðizt við. Eng
inn lagaprófessor fékkst til að skrifa
undir yfirlýsingu 105 prófessora til
varnar Hæstarétti, yfirlýsingu, þar sem
Alþingi var hvatt í ljósi dóms Hæsta
réttar til að haga lögum í samræmi við
stjórnarskrána. Hæstiréttur sneri dómi
sínum frá 1998 við hálfu öðru ári síðar
undir þrýstingi frá ráðherrum.
Frumvarp stjórnlagaráðs til nýrrar
stjórnarskrár gerir mannréttindum
hærra undir höfði með nýjum ákvæð
um og áherzlum í samræmi við kall
og kröfur tímans, m.a. með því að fella
ákvæði um náttúruauðlindir og um
hverfisvernd inn í kaflann um mann
réttindi til að undirstrika mikilvægi
og innbyrðis samhengi auðlinda, um
hverfis og mannréttinda.
Lagakennslu um mannréttindi og
skyld mál hefur farið fram síðustu ár
með aukinni vitund almennings um
slík réttindi. Mannréttindi og um
hverfisréttur t.d. eru nú kennslugreinar
og rannsóknarefni í lagadeildum há
skólanna, en svo var ekki fyrir fáeinum
árum. Margir lögfræðingar virðast þó
enn heldur áhugalitlir um ýmis mann
réttindabrot, hvort sem þau felast í mis
munun við úthlutun t.d. aflakvóta eða
í misvægi atkvæðisréttar eftir búsetu,
sem erlendir kosningaeftirlitsmenn
hafa mörg undangengin ár fundið að.
Frumvarp stjórnlagaráðs til nýrrar
stjórnarskrár kveður á um jafnt vægi at
kvæða alls staðar á landinu, svo að allir
séu jafnir í kosningum til Alþingis.
Frumvarp stjórnlagaráðs kveður
sem sagt á um tvenn grundvallarrétt
indi auk annars, auðlindir í þjóðareigu
í samræmi við stefnu allra flokka á Al
þingi og jafnt vægi atkvæða alls staðar.
Fáir lögfræðingar hafa þó enn sem
komið er stigið fram til að taka undir
þessi mannréttindaákvæði frumvarps
ins. Hinir virðast fleiri, lögfræðingarnir,
sem setja fyrir sig einstök lagatæknileg
atriði í anda gamla skólans, þar sem
þröng sýn á lögin ræður för og réttlætið
situr á hakanum og einnig réttur þjóð
arinnar til að setja sér stjórnarskrá eftir
settum reglum.
Þriðja stoðin: Uppspretta laga og
réttar
Margir lögfræðingar hafa frá öndverðu
verið andvígir endurskoðun bráða
birgðastjórnarskrárinnar frá 1944.
Það er af sem áður var, þegar helztu
lögfræðingar landsins (t.d. Bjarni
Benediktsson, Ólafur Jóhannesson og
Gunnar Thoroddsen) líkt og leiðtogar
stærstu stjórnmálaflokkanna voru á
einu máli um nauðsyn slíkrar endur
skoðunar. Margir lögfræðingar voru
andvígir kosningunni til stjórnlaga
þings, þar eð þeir virtust ekki fella sig
við þriðju stoðina undir lögum og rétti,
hugmyndina um fólkið, þjóðina, sem
yfirboðara Alþingis og uppsprettu laga
og réttar.
Í þessu ljósi þarf að skoða ógildingu
Hæstaréttar á úrslitum kosningarinnar
til stjórnlagaþings 2010. Það hefur ekki
áður gerzt í fullburða lýðræðisríki, að
þjóðkjör hafi í heilu lagi verið ógilt eftir
á – og það á svo veikum grunni, að þar
stendur ekki steinn yfir steini eins og
Reynir Axelsson stærðfræðingur lýsir
vel í ritgerð sinni um ákvörðun Hæsta
réttar. Ritgerð Reynis er aðgengileg á
vef Stjórnarskrárfélagsins, stjornar
skrarfelagid.is.
Lög og lögfræðingar
„Það hefur ekki áður gerzt í full-
burða lýðræðisríki, að þjóðkjör
hafi í heilu lagi verið ógilt eftir á.
Leiðari
Jón Trausti Reynisson
jontrausti@dv.is
Útgáfufélag: DV ehf. Stjórnarformaður: Lilja Skaftadóttir Ritstjórar: Jón Trausti Reynisson (jontrausti@dv.is) og Reynir Traustason (rt@dv.is) Fréttastjóri: Ingi Freyr Vilhjálmsson (ingi@dv.is)
Umsjón helgarblaðs: Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir (ingibjorg@dv.is) Umsjón innblaðs: Kristjana Guðbrandsdóttir (kristjana@dv.is) Framkvæmdastjóri: Stefán T. Sigurðsson (sts@dv.is)
Sölu- og markaðsstjóri: Heiða B. Heiðarsdóttir (heida@dv.is) Hönnunarstjóri: Jón Ingi Stefánsson (joningi@dv.is) Umbrot: DV Prentun: Landsprent Dreifing: Árvakur DV á netinu: DV.is
F R J Á L S T, Ó H Á Ð D A G B L A Ð
Heimilisfang
Tryggvagötu 11
Hafnarhvoli, 2. hæð
101 Reykjavík
FRéTTASkoT
512 70 70 DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.
512 7000
512 7010
512 7080
512 7050
AÐALnúmeR
RiTSTJÓRn
ÁSkRiFTARSími
AuGLýSinGAR
24 13.–15. janúar 2012 Helgarblað
Alveg rosalega
gaman að vera til
Ekki einfalt að kom-
ast upp úr riðlinum
Sunddrottningin Ragnheiður Ragnarsdóttir hefur fundið ástina. – DV Guðmundur Guðmundsson landsliðsþjálfari varar við of mikilli bjartsýni. – DV
Kjallari
Þorvaldur
Gylfason
Brotið á sjómönnum Lögin um stjórn fiskveiða brjóta enn gegn mannréttindum.