Dagblaðið Vísir - DV - 13.01.2012, Page 38
Hvað er að
gerast?
Laugardagur
Föstudagur
Sunnudagur
14
jan
13
jan
15
jan
Judy Garland í
Þjóðleikhúskjallaranum
Lára Sveins-
dóttir leik- og
söngkona
mun ásamt
Djasshljóm-
sveit Úlfs
Eldjárn flytja
ýmis vinsæl
lög Judy
Garland og
leiða áhorfendur inn í stormasamt
líf hennar.
Nemendaleikshúsið sýnir
verk eftir Mike Bartlett
Nemendaleikhús Listaháskóla
Íslands sýnir Jarðskjálfta í London
eftir Mike Bartlett í leikstjórn Hall-
dórs E. Laxness. Verkið var frum-
sýnt í National Theatre í London
árið 2010 við frábærar undirtektir
og var Bartlett í kjölfarið hampað
sem ferskri rödd í bresku leikhús-
lífi. Sýningin er hressileg umfjöllun
um það sem framtíðin ber í skauti
sér og þær miklu hamfarir sem
ganga yfir samfélög okkar í
dag. Sögð er saga af snörpum
hræringum í lífi þriggja systra sem
reyna af öllum mætti að bjarga sér
og sínum úr hamförum og fram-
förum nútímans á meðan faðir
þeirra, heimsfrægur vísindamaður,
boðar heimsendi. Burlesque-
fatafellur, martraðir, pólitísk
spilling, mannfjöldasprengingar
og allsherjar paranoja! Sýningar á
föstudag og laugardag í Nemenda-
leikshúsinu við Sölvhólsgötu.
Svanur og Hundur
í óskilum í Hofi
Á nýárstónleikum Lúðrasveitar-
innar Svans og hljómsveitarinnar
Hundur í óskilum verður boðið upp
á nýstárlegar útsetningar á dægur-
flugum að hætti Hundsfélaga
og þrumandi lúðrasveitarverk.
Tónleikarnir fara fram í Hofi,
laugardagskvöldið 14. janúar kl. 20.
Lífsdagbók ástarskálds-
ins Páls Ólafssonar
Þórarinn Hjartarson segir og
syngur Lífsdagbók Páls í þessar
hugljúfu sýningu. Skáldið Páll
Ólafsson hefur fyrir löngu unnið
hug og hjörtu ljóðelskra Íslendinga
með sínum einstaklega vel ortu
ljóðum um ástina, fuglana og það
sem fallegast er og best í íslenskri
náttúru. Þórarinn Hjartarsson
hefur tekið þessi ljóð og raðað
þeim saman þannig að þau segja
einstaka sögu Páls og þrár hans
eftir stúlkunni sem hann elskar.
Vínardansleikur í Salnum
Í tilefni af áramótunum 2011–2012
verður settur upp Vínardansleikur
og spilaður vínarvals í Salnum.
Boðið verður upp á danskennslu
á tónleikunum þar sem helstu
dansspor eru kennd, en einnig mun
konungur valsanna, Jóhannes
Strauss frá Vín, mæta á svæðið.
Hljómsveit hússins mun spila
talsvert í þrískiptum takti ásamt
öðrum takttegundum og dansarar
frá Listdansskóla Íslands sýna
gestum hvernig á að dansa fallega.
Frá klukkan 12:30 verður fordrykkur
á torginu, sprell og flugeldar. Ungir
sem aldnir eru hvattir til að að
klæða sig í sín bestu föt, galakjóla
og smóking.
38 13.–15. janúar 2012 Helgarblað
„Áhorfandinn fær
enga gátu til að leysa.“
„Fincher grípur áhorfand-
ann heljartökum.“Menning
m e n n i n g @ d v . i s | d v . i s / m e n n i n g
Sherlock Holmes
A Game of Shadows
The Girl with
the Dragon Tattoo
M
arianne Faithfull var
lengi vel viðloðandi
hljómsveitina The
Rolling Stones og var
um tíma í sambandi
með Mick Jagger, söngvara
hljómsveitarinnar. Marianne
afrekaði að verða músa tveggja
tónlistarmanna, í fyrra skiptið
skömmu eftir að hún lauk námi
í klausturskóla.
Þannig var mál með vexti að
Marianne, þá sautján ára, var
í teiti í West End í Lundúnum.
Þar tókust kynni með henni
og Andrew Oldham, umboðs-
manni The Rolling Stones,
og hafði hún svo mikil áhrif á
hann að hann taldi Mick Jag-
ger á að semja um hana lag; As
Tears Go By. Hvort Marianne
hafi verið músa Micks í því til-
viki verður hver og einn að eiga
við sig. Lagið sló í gegn og sum-
arið 1964 var Marianne send í
kynningarleiðangur með fjölda
hljómsveita, þar á meðal The
Hollies, frá Manchester.
Í túrnum tókst vinskapur
með Marianne og Graham
Nash, söngvara og gítarleikara
The Hollies sem síðar gerð-
ist liðsmaður Crosby, Stills og
Nash (stundum Crosby, Stills,
Nash & Young), en var í stuttu
ástarsambandi með aðalsöngv-
aranum, Allan Clarke.
Í maí 1967 sendi The Hollies
frá sér lagið Carrie Anne sem
varð eitt af þeirra vinsælustu
ástarlögum. Það varð þó ekki
fyrr en 1995 sem Graham Nash
upplýsti að hann hefði skrifað
lagið með Marianne í huga,
en hefði verið of feiminn til að
nota nafn hennar.
Senuþjófur í Ipanema
Oft veltir lítil þúfa þungu hlassi
er stundum sagt. Sennilega
hafði brasilíska stúlkan Heloísa
Eneida Menezes Paes Pinto
ekki hugmynd um hver áhrif
dagleg gönguferð hennar niður
á strönd yrðu. Höfundar lagsins
The Girl from Ipanema, Vini-
cius de Moraes og Antônio Car-
los, mæltu sér yfirleitt mót á Ve-
loso, kaffihúsi í Ipanema í Rió
de Janeiro, en Heloísa gekk þar
fram hjá daglega og átti jafnvel
til að staldra þar við til að kaupa
sígarettur fyrir móður sína. Eitt
slíkt tilvik átti sér stað veturinn
1962 og Vinicius de Moraes
og Antônio Carlos fundu sig
knúna til að lýsa hvernig þessi
fimmtán ára stúlka stal athygl-
inni í hvert sinn sem hún lét
sjá sig og sömdu lagið, sem hét
upphaflega Menina que Passa,
stúlkan sem gengur hjá.
Girl from Ipanema nýtur
mikilla vinsælda enn þann
dag í dag en vinsældir lagsins
urðu til þess að Heloíse varð
nokkuð fræg. Eilítinn skugga
bar á þessa fallegu mynd þegar
Heloíse opnaði fataverslun,
Garota de Ipanema, sem er
portúgalskur titill lagsins. Börn
höfunda lagsins höfðuðu mál
á hendur Heloíse, nú Heloíse
Pinheiro, á þeim forsendum að
hún reyndi að hagnast á laga-
smíð feðra þeirra. Börnin fóru
bónleið til búðar því dómur féll
Heloíse í hag.
Módel verður músa
Jenny Boyd heitir kona nokkur
sem bjó að ágætis tengslum inn
í tónlistarheiminn á árum fyrri.
Hún afrekaði meðal annars að
giftast tveimur rokktrymblum,
reyndar ekki samtímis, en það
varð aftur á móti skoski tónlist-
armaðurinn Donovan sem varð
fyrir slíkum áhrifum af henni
að hann samdi til hennar óð.
Jenny er systir Pattie Boyd
og komst í innsta hring The
Beatles þegar Pattie gekk í
hjónaband með George Harr-
ison.
Jenny hafði fetað í fótspor
eldri systur sinnar og gerst fyr-
irsæta og haustið 1967 sat hún
fyrir ásamt Donovan á umslagi
plötu hans A Gift from a Flower
to a Garden.
Donovan samdi lagið Jenni-
fer Juniper með Jenny í huga:
„Ég var skotinn í henni svo hún
fékk lag.“ Donovan neitaði þó
ávallt að þau hefðu átt í ástar-
sambandi en á þeim tíma var
hún gift trymbli Fleetwood
Mac, Mick Fleetwood, en síðar
giftist hún Ian Wallace, trymbli
King Crimson, eða frá 1984 þar
til Ian Wallace lést árið 2007.
Til björgunar Prudence
Bítlarnir skelltu sér til Ind-
lands í febrúar 1968 með það
fyrir augum að nema innhverfa
íhugun. Á meðal annarra sem
hugðu á slíkt hið sama var Pru-
dence Farrow, yngri systir leik-
konunnar Miu Farrow.
Þvert á leiðbeiningar Mah-
arishi Mahesh Yogi um að
nemendur gengju ekki of langt
í viðleitni sinni til að nema
fræðin var Prudence tímun-
um saman ein í kofa sínum
við íhugun og leist fólki ekk-
ert á blikuna. „Við höfðum öll
áhyggjur af því að hún væri að
verða vitstola í tilraun til að ná
til Guðs á undan öllum öðrum
[…] svo við sungum til hennar,“
sagði John Lennon síðar.
Á meðal þess sem Bítlarnir
reyndu var að höfða til barns-
ins í Prudence og að sögn Paul
McCartney söng John til Pru-
dence fyrir utan kofa hennar:
„Won’t you come out to play?“
Sálarheill Prudence virðist
ekki hafa beðið skaða og hún
hóf störf innan kvikmynda-
geirans.
Hugfangin af hvíta tjaldinu
Tónlistarmaðurinn David
Bowie rakst á „stúlkuna með
músarlega hárið“ á vinnustofu
látbragðsleikara 1968. Stúlkan,
Hermione Farthingale, ku hafa
verið dæmigerð „ensk rós“ og
þess varð skammt að bíða að
samband tækist með henni og
Bowie.
Árið 1969 gerði David Bowie
framúrstefnulega kvikmynd,
Love You Till Tuesday, sem var
umgjörð utan um níu laga hans,
þeirra á meðal Space Oddity, og
í myndinni birtist Hermione í
hlutverki geimtálkvendis.
Á síðasta tökudegi sló í
brýnu með David og Hermione
sem þegar þar var komið sögu
var búin að binda trúss sitt við
dansara og söngvara að nafni
Stephen Reinhardt. Lyktir rifr-
ildisins voru að Hermione rauk
á dyr og skildi David Bowie eftir
í öngum sínum.
Hermione var „hugfangin af
hvíta tjaldinu“ og átti skammlíf-
an feril í tónlistarkvikmyndum
áður en hún féll í gleymskunnar
gráma.
Tvö lög fyrir Pattie
Pattie Boyd er þess heiðurs að-
njótandi að fyrir hana hafa ver-
ið samin tvö lög. Pattie var gift
George Harrison, eins og áður
hefur komið fram, og til hennar
samdi George eitt þekktasta
lag Bítlanna, Something, árið
1969, en um það leyti hitti Pat-
tie Eric Clapton sem var um
þær stundir í góðu vinfengi við
Harrison.
Eftir að Bítlarnir fóru hver
sína leið einbeitti Harrison sér
að sínum eigin tónlistarferli og
fyrir þær sakir og ýmissa ann-
arra fannst Pattie sem hún væri
vanrækt og fór að hitta Clapton
á laun.
Sumarið 1970 leyfði Clapton
Pattie að heyra lagið Layla sem
hann hafði samið fyrir hana en
byggði öðrum þræði á pers-
neskri bók, Layla og Majnun,
sem fjallar um mann sem verð-
ur ástfanginn af konu sem elsk-
ar hann en er föst í viðjum.
Pattie yfirgaf Harrison
ekki fyrr en 1973, en þá leitaði
hún í faðm Claptons eftir að
hún komst að því að Harrison
hafði ekki verið við eina fjöl-
ina felldur; hafði átt í alvarlegu
ástarsambandi við eiginkonu
Ronnie Wood, Krissy, og síðan
eiginkonu félaga síns og vinar
Ringo Starr, Maureen.
Strokustúlkan
Melanie Coe var kannski ekki
músa Paul McCartney þegar
hann í félagi við John Len-
non samdi lagið She’s Leaving
Home árið 1967. En frásögn af
Melanie varð honum innblást-
ur. Á forsíðu Daily Mirror var
því slegið upp að Melanie Coe,
17 ára fordekruð stúlka, hefði
strokið að heiman. Ástæðan var
að Melanie var barnshafandi og
óttaðist viðbrögð foreldra sinna
við tíðindunum.
Melanie tókst að forðast for-
eldra sína í tíu daga áður en
hún fannst að lokum og var
færð heim og gert að fara í fóst-
ureyðingu.
Texti Bítlalagsins á lítið skylt
við raunverulega atburði; Mel-
anie hafði til dæmis ekki hitt
mann úr bílaiðnaðinum. En
eftir Melanie var haft að hún
n Tónlistarmenn eru gjarna spurðir hvert þeir sæki innblástur n Sú spurning vaknar
hvert tónlistarmaðurinn sótti andagift sína eða hver hafi verið músan (e. muse)
Músur músíkanta
„Hún leit út
eins og Rita
í mínum augum,“
sagði hann aðspurð-
ur um nafnið.
Kolbeinn
Þorsteinssson
kolbeinn@dv.is
Tónlist
Jenny og Pattie Boyd Systurnar urðu þess heiðurs aðnjótandi að til þeirra voru samin lög – reyndar tvö til Pattie.
Bob Dylan með Söru Lownds Sara er talin hafa verið Dylan mikil upp-
spretta andagiftar.
Roy Orbison og Claudette
Lagið Oh Pretty Woman gerði Roy
með eiginkonu sína í huga.