Dagblaðið Vísir - DV - 13.01.2012, Side 41

Dagblaðið Vísir - DV - 13.01.2012, Side 41
Tækni 41Helgarblað 13.–15. janúar 2012 Heitustu tækin 2012 n Hladdu símann þráðlaust n Stjórnaðu tölvunni með augunum Á hverju einasta ári er ráðstefnan CES haldin í Bandaríkjunum. Á ráðstefnunni nýta mörg stórfyrirtæki í tæknigeiranum tækifærið og kynna helstu nýjungar. Ráð- stefnan, sem haldin er í janúar ár hvert, gefur yfirleitt til kynna á hverju neytendur geta átt von á árinu. DV hefur tekið saman nokkrar áhugaverðar nýjungar sem voru kynntar á CES 2012 sem fram fór núna í vikunni. Ubuntu TV Canonical hefur hellt sér í sjónvarpskapphlaupið með Apple og Google. Fyrirtækið kynnti nýja útgáfu af Ubuntu-stýrikerfinu, sem byggt er á Linux, fyrir sjónvörp. Kerfið hefur fengið hið augljósa nafn Ubuntu TV. Framleiðendur þurfa ekki að borga krónu til að mega setja upp kerfið á sjónvarpstækjum sínum. Samkvæmt upplýsingum frá Canonical má búast við fyrstu sjónvarpstækjunum sem eru búin Ubuntu TV seint á þessu ári. Gera má ráð fyrir að snjallsjónvarpstækjamarkaðurinn eigi eftir að fara harðnandi en Android 4.0 verður keyrt á nokkrum sjónvörpum í ár og þróun á Apple TV verður haldið áfram. Ultrabook- fartölvur Nokkrir tölvuframleiðendur tilkynntu um markaðssetningu á Ultrabook-fartölvum. Meðal þeirra voru Lenovo, Toshiba og Acer. Ultrabook-fartölvur eru léttar, hraðvirkar og ódýrar fartölvur. Tölvurnar eru einhvers konar svar hefðbundinna tölvuframleiðenda við spjaldtölvum á borð við iPad frá Apple en nafnið Ultrabook er skrásett vörumerki hjá örgjörvaframleiðandanum Intel. Nokkrar Ultrabook-fartölvur komu á markað á síðasta ári en Intel spáir því sjálft að um 40 prósent af öllum fartölvum sem seldar verða á árinu 2012 geti flokkast sem Ultrabook-tölvur. Láttu augun ráða Tobii og Freescale kynntu bæði til sögunnar tölvulausnir sem nota má til að stjórna nær hverju sem er með augunum. Blaðamaður The Verge hitti forsvarsmenn Tobii og fékk að prófa kerfið sem brást við því sem blaðamaðurinn gerði með augunum – í flestum tilfellum. Í umsögn sinni um tæknina sagði blaðamaðurinn að hún lofaði góðu en væri langt í frá tilbúin til að fara á markað. Bæði fyrirtækin telja að þetta sé framtíðin og samkvæmt upplýsingum frá þeim vonast þau til að tæknina verði hægt að nota á venjulegum tölvum innan tíðar. Aðalsteinn Kjartansson blaðamaður skrifar adalsteinn@dv.is Þráðlaus rafmagnshleðsla Nokkur fyrirtæki kynntu aðferðir sínar til að gera fólki kleift að hlaða raftæki í gegnum loftið. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem þráðlaus hleðsla er kynnt til sögunnar en þetta er í fyrsta skipti sem hægt er að hlaða tæki án þess að þau snerti flötinn þaðan sem hleðslan er send. Enn þarf þó tækið sem hlaða á að vera í námunda við hleðsluflötinn. Það er meira að segja hægt að hafa síma ofan í tösku en samt hlaðið hann þráðlaust. Fulton Innovation kynnti einnig tækni sem fyrirtækið segir að geti hlaðið stærri raftæki eins og Tesla-raf- magnsbíl. Það eina sem þarf að gera er að aka bílnum yfir þar til gerðan reit og hann hleðst af rafmagni.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.