Dagblaðið Vísir - DV - 13.01.2012, Síða 45

Dagblaðið Vísir - DV - 13.01.2012, Síða 45
Lífsstíll 45Helgarblað 13.–15. janúar 2012 Velsæld í fimm skrefum n Verkefnabók fyrir þá sem vilja breyta lífi sínu G uðni Gunnarsson hefur gef­ ið út bókina Mátt athyglinnar. Í henni beinir hann sjónum sínum að því hversu einfalt er að gera breytingar á lífi sínu og til­ vist. Bókin er notuð sem verkefna­ bók. Framarlega í bókinni setur fram stystu leið að velsæld og segir hana felast í fimm einföldum skrefum: 1. Athygli Að vera í vitund, vera kærleiksríkt vitni í eigin lífi og skilja að maður er ekki hugsanir sínar. Til að viðhalda þessari vitund þarf maður að iðka eða æfa hana. 2. Öndun Öndun er öflugasta leiðin til að iðka vitund; umfang öndunar er umfang lífsins. Við virkjum getu okkar til að vinna úr súrefni og súrefnishæfni líkamans opinberar þá heimild sem við höfum veitt okkur til ástar á eigin lífi. 3. Tyggja Að tyggja inn í velsæld krefst vitundar: við nærum okkar vitund og skiljum að við getum fimmfaldað nýtungu á þeirri orku sem við innbyrðum. Slík nálgun á næringu er í eðli sínu öflug ástarjátning sem hefur samstundis mikil áhrif. 4. Að drekka vatn Vatn er ekkert annað en ást. það tærasta sem til er, forsenda alls lífs og velsældar. Við vökvum blómið okkar í vitund til að við getum blómstrað og borið ávöxt. Við böðum okkur í í vökva ljóssins og drekkum 6–8 glös af hreinu vatni daglega. 5. Að taka ábyrgð Við tökum ábyrgð á þeirri orku sem við höfum unnið út úr eigin orkuveri. Þegar við vökvum blómið okkar, nærum okkur í vitund, öndum og tyggjum verðum við að kjarnorkuveri. Munurinn á orkuveri og kjarnorkuveri er vitundin. Stysta leiðin Í nýrri bók sinni, Mætti athyglinnar, telur Guðni upp fimm atriði sem stytta leiðina að velsæld. Að prófa eitthvað nýtt „Vikuleg stefnumót á upp­ áhaldsstaðnum munu ekki auka ástríðuna,“ segir Arthur Aron, sálfræðingur við Stony Brook­há­ skólann. Samkvæmt rannsóknum Arons skipta nýjungar mestu máli. „Þið þurfið ekki að gefa staðinn ykk­ ar upp á bátinn en leggið aðeins á ykkur til að auka á spennuna. Ger­ ið eitthvað sem þið hafið aldrei gert áður. Bjóddu honum í rússíbanaferð. Upplifun sem veldur flæði dópamíns sem bætir skapið og ef makinn er ná­ lægt tengir hann þessa góðu tilfinn­ ingu við þig.“ Hlæja saman Unglingarnir ykkar rang­ hvolfa eflaust augum þeg­ ar þið rifjið upp gamla tíma en fyrir ykkur eru slíkar minningar gull fyrir sambandið. Í rannsókn Appalachian State­háskólans kom í ljós að þeir sem hlæja reglulega með maka sínum er yfirleitt ham­ ingjusamari en aðrir. „Hlátur styrk­ ir böndin. Sér í lagi ef hlegið að ein­ hverju sem aðrir skilja ekki,“ segir Doris Bazzini, höfundur rannsókn­ arinnar. Mikilvægasta spurningin „Hvernig var dagurinn þinn?“ hljómar eins og klisja en samkvæmt geðlækninum Angelu Hicks við háskólann í Westminster eru þau hjón sem spyrja þessarar spurningar daglega hamingjusam­ ari en önnur hjón. Það er í lagi að rífast Ekki hafa áhyggjur af ein­ staka rifrildi. Samkvæmt dr. Kiru Birditt við háskólann í Michigan er pirringur oftast merki um heilbrigt samband. „Það sýnir að þú getur tjáð þig í sambandinu. Náin sam­ bönd geta líka tekið heilmikið á.“ Hins vegar séu uppnefni, öskur og læti merki um alvarleg vandamál. Rífast heiðarlega Að takast á án þess að skemma sambandið getur verið spurning um orðalag. Vísinda­ menn sem rannsökuðu rifrildi 154 hjóna komust að því að þau hjón sem notuðu fleirtölu, eins og „við“ og „okkur“ meðan á rifrildi stóð voru líklegri til að upplifa lítið and­ legt álag eftir átökin. Svitna saman Þú slærð tvær flugur í einu höggi ef þú æfir með makan­ um. Þú kemst í betra form sem hefur svo jákvæð áhrif á kynlífið. Í rannsókn kom fram að 94% para héldu áfram í ræktinni ef það mætti í hana saman. Fagna sigrum Samkvæmt sálfræðingi við UCLA eru viðbrögð þín við jákvæðum fréttum makans mikil­ vægari fyrir hann en fréttin sjálf. Mundu að brosa breitt þegar hann segir þér frá stöðuhækkun eða mont­ ar sig af því hvað hann er orðinn góð­ ur í golfi. Hlustaðu, ekki bara bíða eftir að tala Vísindamenn við Harvard­ háskóla segja pör sem hlusta á hvort annað líklegri til að haldast sam­ an. Hjónaráðgjafinn Harville Hend­ rix mælir með að fólk noti spegil­ aðferðina. „Sannaðu að þú sért að hlusta með því að endurtaka það sem makinn sagði,“ segir Hendrix sem mælir ekki með framígripi. „Tal­ aðu rólega og sýndu skilning.“ Kynnstu vinunum Líklega ertu náin vinahjón­ um ykkar en makinn á örugg­ lega vini sem þú þekkir afar lítið. Í rannsókn sem gerð var á 347 hjónum kom í ljós að því meira sem vinir og fjölskylda hjóna blandast því ham­ ingjusamara er fólk. „Það er næstum jafn mikilvægt að kynna makann fyr­ ir samstarfsfólkinu og að kynna hann fyrir fjölskyldunni,“ segir Kenneth Leonard, bandarískur geðlæknir. Hlúðu að kynlífinu Ekki má vanmeta vægi nánd­ ar, rómantíkur og kynlífs þeg­ ar kemur að því að byggja upp gott hjónaband. Er hjóna- bandið skothelt? n Tíu lítil atriði sem gera gæfumuninn Reynir Traustason skrifar Baráttan við holdið H ás og skerandi hóstinn glumdi í herberginu og rauf nætur­ kyrrðina. Öndunarvegurinn var hálfstíflaður og það tók nokkrar mínútur að róta til tjöru og slími svo súrefnið kæmist sína leið ofan í lungun og tryggði að líkam­ inn næði að viðhalda sér. Eftir að ég lagðist til rekkju þurfti ég nokkrar mínútur til að þess að ná tökum á önduninni. Ég hóstaði og greip andköf þar til viðun­ andi árangri var náð. Svo náði svefninn yfirhöndinni næstu klukku­ stundirnar þar til kom að því að vakna, hósta aft­ ur og tryggja lífs­ andanum farveg. Þá gat verið gott að lama bifhárin alveg með einni sígarettu. A uðvitað vissi ég að reykingar í 40 ár höfðu þessi áhrif. Eitt sinn hafði mér tekist að hætta að reykja í fimm ár. Því lauk með falli. Það gerðist að vísu smám saman. Fyrst byrjaði ég að taka í nefið eins konar mentóltóbak. Þegar það var á góðri leið með að brenna í sundur miðnesið ákvað ég að létta álaginu af nefinu með stöku vindli. Eftir næturlangan glaum og algleymi vaknaði ég með hálfan pakka af Marlboro í vasanum. „Ég er fallinn,“ hugsaði ég mér í örvænt­ ingu. Áfram var reykt. Nóttina sem bankinn Glitnir féll hætti ég að vísu í sígarettunum og snéri mér alfarið að pípunni í sparnaðarskyni. Af þessu var mikill peningasparnaður en öndunarerfiðleikarnir jukust. Það var með herkjum að mér tókst, á milli hóstakviðanna, að svæla í mig fyrstu tvær pípur dagsins. Ég var á valdi fíknarinnar. H jartalæknirinn taldi sig vita að ég væri með þrengingar í ósæð en gerði ekki athuga­ semdir við reykingarnar að neinu marki. Svo rann upp stundin. Hann hringdi og boðaði mig í tékk. Hjartalæknirinn hafði ýmsar athuga­ semdir við ríkisstjórnina og ræddi þau mál einhliða. Eftir hálftíma einræðu tók hann upp penna, skrifaði lyfseðil og rétti mér. „Þú gerir það sem þú vilt,“ sagði hann og þakkaði mér fyrir komuna. Á lyfseðlinum stóð Champix. Ég gúgglaði það og komst að því að þetta væri lyf til að hætta að reykja. Mér krossbrá eitt andartak. Átti nú að svipta mig þeirri gleði sem fólst í reyknum og þeirri áskorun að lifa tjöruna af? Þetta var óvænt útspil hjá doksa. Eftir nokkurra daga umhugsun innleysti ég lyfið og byrjaði á kúrnum. Mér til undr­ unar slokknaði þörfin fyrir nikó­ tínið nánast strax. Við hátíðlega athöfn jarðaði ég pípurnar mínar, Zippó­kveikjarann og allan annan útbúnað í garðinum heima. Ég var hættur. S ex vikum síðar var kúrnum lokið. Ég tók út tveggja daga fráhvörf með tilheyrandi geðvonsku og svartnætti. Svo varð allt gott. Hálft annað ár er lið­ ið frá því kúrnum lauk. Ég er hætt­ ur að hósta og þarf ekki lengur að vakna á nóttunni til að reykja. Bifhárin eru í fullu fjöri í galopn­ um öndunarveginum. Og það sem meira var. Þetta var lykillinn að því að geta klifið fjöll. Þegar ég féll 1 3 5 4 6 7 8 9 102

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.