Dagblaðið Vísir - DV - 13.01.2012, Page 56
PEUGEOT 5008
Sjö manna
sjálfskiptur, dísil.
Peugeot 5008
Bernhard ehf • Vatnagörðum 24 - 26 • Sími 520 1100 • www.bernhard.is
Umboðsaðilar: Reykjanesbæ, Bernhard, sími 421 7800 • Akranesi, Bílver, sími 431 1985 Akureyri, Höldur, sími 461 6020 • Vestmannaeyjum, Bragginn, sími 481 1535
Sjáðu heiminn í nýju ljósi á nýjum sjö manna Peugeot 5008. Verðlaunaðri, fimm stjörnu fjölskyldubifreið þar sem allir í fjölskyldunni
eiga sitt uppáhaldssæti. Hver og einn með nægjanlegt rými til að njóta akstursins, hvort sem er í lengri eða styttri ferðum.
Með nýrri micro-Hybrid tækni tryggir Peugeot síðan lægri eldsneytiseyðslu sem dregur enn frekar úr lágum rekstrarkostnaði 5008.
Peugeot 5008, þar sem allir eru í sjöunda himni, í öllum sjö sætunum.
www.peugeot.is
Peugeot 5008 sjálfskiptur, dísil kr.
4.495.000
Peugeot 5008, micro-Hybrid, sjálfskiptur, dísil.
Innanbæjar akstur 5,4L/100km - 1.110km á einum eldsneytistanki
Utanbæjar akstur 4,8L/100km - 1.302km á einum eldsneytistanki
Blandaður akstur 4,9L/100km - 1.224km á einum eldsneytistanki
CO2 útblástur 127g/km.
Opið laugardaga milli kl. 12:00 og 16:00
Au
ka
bú
na
ðu
r á
m
yn
d:
G
le
rþ
ak
, þ
ak
bo
ga
r o
g
ál
fe
lg
ur
.
beinskiptur, dísil kr. 4.290.000
Skál fyrir
Ríkinu!
Kann ekki að meta
Contraband
n Nýjasta kvikmynd leikstjórans
Baltasars Kormáks, Contraband,
verður frumsýnd í Bandaríkjunum í
dag, föstudag. Myndin er endurgerð
af íslensku kvikmyndinni Reykja-
vík–Rotterdam frá árinu 2009, en
Baltasar lék einmitt eitt af aðalhlut-
verkunum í þeirri mynd. Myndina
prýða stórstjörnurnar Kate Beckin-
sale og Mark Wahlberg. Einhverjir
kvikmyndagagnrýnendur fengu að
sjá myndina fyrir frumsýningu, og
gefur Rober Ebert,
einn virtasti
kvikmynda-
gagnrýn-
andi Banda-
ríkjanna,
Contraband,
þó ekki mjög
góða dóma.
Myndin fær að-
eins tvær stjörnur
hjá honum.
Mugison vill
á Hróarskeldu
n Svo gæti farið að tónlistarmað-
urinn Örn Elías Guðmundsson,
betur þekktur sem Mugison, verði
á meðal tónlistarmanna á Hróars-
kelduhátíðinni í Danmörku næsta
sumar. Mugison greinir frá þessu
á aðdáendasíðu sinni á Facebook
þar sem hann svarar dönskum
aðdáanda sem vill ólmur sjá hann á
sviðinu. Hann segist vona að hann
sjái sér fært að mæta á hátíðina sem
fram fer dagana 5.–8. júlí í sumar.
Mugison spilaði á
hátíðinni sumar-
ið 2008 en síðan
þá hefur mikið
vatn runnið til
sjávar. Óhætt er
að segja að hann
hafi aldrei ver-
ið vinsælli
enda hef-
ur platan
Haglél
selst í 28
þúsund
eintök-
um.
Útlagi á útsölu
n Brottflutti bifhjólamaðurinn Jón
Trausti Lúthersson var á dögunum
í jólafríi á Íslandi. Jón Trausti var
fyrsti Íslendingurinn til að vera
kenndur opinberlega við Vítis-
engla, eða Hells Angels. Hann vakti
meðal annars athygli þegar hann
var handtekinn í Leifsstöð árið
2003. Síðar flutti hann til Noregs og
gerðist meðlimur hjá erkifjendun-
um í bifhjólasamtökunum Outlaws.
Hann hefur ekki átt í sömu vand-
ræðum og forsprakkar Hells Angels
á Norðurlöndunum með að komast
inn til landsins. Í fríinu sást til Jóns
Trausta á útsölu-
dögum í Smára-
lind í fullum
skrúða bifhjóla-
samtakanna.
Forsprakki undir-
félags Outlaws
á Íslandi, Black
Pistons, Ríkharð
Ríkharðsson,
dvelur hins
vegar í
fangelsi.
Á
fengis- og tóbaksverslun ríkis-
ins (ÁTVR) neitar að taka í
sölu nýja tegund af bjór, Black
Death, vegna áletrunar á um-
búðunum. „Gerð er athugasemd
við eftirfarandi áletrun á frammiða:
„Drink in Peace“ [drekkið í friði, inn-
skot blaðamanns] segir í bréfi sem
framkvæmdastjóri Black Death, Val-
geir Tómas Sigurðsson, fékk sent frá
ÁTVR á dögunum. Valgeir furðar sig á
þessari ákvörðun enda hefur bjórinn,
sem framleiddur er af Víking, verið
í sölu í Leifsstöð síðastliðna mánuði
án þess að athugasemdir hafi ver-
ið gerðar. „Á að banna
þetta fyrir að segja að
þetta sé drykkjarhæft?“
spyr Valgeir og bæt-
ir við: „Frá árinu 1978
hef ég unnið að því að
markaðssetja Black
Death um allan heim.
Eini staðurinn í heim-
inum þar sem maður
er löðrungaður er af
íslenska Ríkinu,“ segir
Valgeir sem vinnur nú
að því að markaðssetja Black Death í
fleiri löndum, til dæmis Kína þar sem
hann hefur fengið já-
kvæð viðbrögð.
Í rökstuðningi ÁTVR
er vísað í reglugerðir um
umbúðir og áletranir á
áfengi. Þar segir að um-
búðir og innihald megi
einungis innihalda skila-
boð er tengjast vörunni,
gerð hennar eða eiginleik-
um. Í bréfinu kemur einn-
ig fram að ákvörðunin sé
kæranleg til fjármálaráðu-
neytisins og segist Valgeir
ætla að fara alla leið með málið.
Aðspurður hvort hann hafi hugs-
að sér að taka áletrunina af umbúð-
unum segist Valgeir ekki getað svar-
að því á þessari stundu. „Ef þeir taka
þetta út til að stöðva framleiðslu og
sölu þá finnst mér mikið að.“
Bannað að „drekka í friði“
n ÁTVR vill ekki selja Black Death-bjór vegna áletrunar á umbúðum
Fréttaskot 512 70 70Áskrift 512 70 80HELGARBLAÐ 13.–15. JanúaR 2012 5. tbl. 102. árg. leiðb. verð 659 kr.
Bannað Áletrunin Drink in Peace er ekki vel
séð hjá forsvarsmönnum ÁTVR. MynDiR EyþóR ÁRnason