Dagblaðið Vísir - DV - 18.01.2013, Page 4
„Rétt er að aðrir
svari spurningum
sem tengjast því félagi
4 Fréttir 18.–20. janúar 2013 Helgarblað
Vildi greiða minni bætur
n Hæstiréttur staðfestir niðurstöðu Héraðsdóms Reykjavíkur
H
æstiréttur staðfesti á fimmtu
dag dóm héraðsdóms í máli
Hlífars Vatnars Stefánssonar
sem í júlí í fyrra var dæmdur í 16
ára fangelsi fyrir að myrða Þóru Eyja
lín Gísladóttur með hrottafengnum
hætti þann 2. febrúar 2012.
Eins og áður hefur komið fram ját
aði Hlífar sök í málinu og var dæmdur
í sextán ára fangelsi, en ákæruvaldið
hafði farið fram á hegningarauka.
Sem varakröfu vildi ákæruvaldið að
Hlífar yrði vistaður á viðeigandi stofn
un, en ekki í fangelsi. Það var þó ekki
saksóknari sem áfrýjaði heldur Hlífar
sjálfur, sem vildi vægari refsingu auk
þess sem hann krafðist þess að skaða
bætur yrðu lækkaðar.
Hlífar gerði því vel skil fyrir héraðs
dómi að hann væri mótfallinn því að
greiða skaðabætur og sagði orðrétt:
„Fokkaðu þér. Djöfull er það ógeðslega
ómerkilegt að óska eftir skaðabótum“,
þegar greint var frá bótakröfunni. Hlíf
ari var gert að greiða aðstandendum
Þóru samtals tæpar fimm milljónir í
skaðabætur og sú upphæð stendur
auk þess sem hann greiði málskostn
að allra aðila fyrir Hæstarétti.
Hlífar Vatnar var ákærður fyrir
manndráp með því að hafa veist að
Þóru Eyjalín Gísladóttur með hnífi og
stungið hana ítrekað í andlit og lík
ama. Þá skar hann hana á háls með
þeim afleiðingum að hún lést. Morðið
þykir óvenju hrottafengið en Hlífar
játar að hafa stungið Þóru sem var 35
ára þegar atvikið átti sér stað. Hlífar fór
í annarlegu ástandi á lögreglustöðina
við Flatahraun í Hafnarfirði að morgni
6. febrúar og greindi óljóst frá atvik
inu. n
FASTEIGNIR ÞORSTEINS
Í EIGNARHALDSFÉLAG
n Burstir fasteignafélag í eigu huldufélags í Lúxemborg
B
urstir fasteignafélag ehf.
eignaðist á síðasta ári ein
býlishús og fjórar íbúðir sem
höfðu verið í eigu félagsins
Sólstafa ehf. en eigandi þess
er fjárfestirinn Þorsteinn M. Jóns
son, fyrrverandi eigandi Vífilfells. Þá
keypti félagið Burstir einnig glæsilegt
einbýlishús við Sunnuflöt 28 í Garða
bæ í fyrra. Þar er Ingibjörg Egils dóttir,
unnusta Þorsteins, skráð til heimilis
en hann flutti sjálfur lögheimili sitt
til Lúxemborgar eftir bankahrunið.
Eigandi Bursta fasteignafélags heitir
síðan Lucilin Conseil og er skráð
með aðsetur í Lúxemborg, líkt og
Þorsteinn. Eignir Bursta eru metnar
á 130 milljónir króna, samkvæmt
ársreikningi félagsins fyrir árið 2011
og voru þær nær alfarið fjármagnað
ar með láni frá hluthöfum.
Sólstafir hélt meðal annars utan
um eignarhlut Þorsteins í Vífilfelli.
Eins og kunnugt er missti hann yfir
ráð yfir Vífilfelli þegar það var selt til
spænska drykkjarvöruframleiðand
ans Cobega í upphafi árs 2011. Sól
stafir átti einnig hlutabréf í Kaup
þingi, BYR sparisjóði, Bakkavör og
Exista en í lok árs 2007 voru umrædd
hlutabréf metin á 4,5 milljarða króna.
Umræddar fimm fasteignir hafði
Þorsteinn fært af sér persónulega yfir
í félagið Sólstafi í apríl 2008. Er talið
að það hafi verið gert vegna kröfu
Kaupþings um auknar tryggingar
vegna lækkunar á hlutabréfum í eigu
Sólstafa á þeim tíma. Ein þeirra eigna
var einbýlishús Þorsteins við Laufás
veg 73 auk tveggja íbúða í Hlíðunum,
íbúðar í Mosfellsbæ og einnar íbúðar
í Garðabæ.
Vill ekki svara
Þegar DV hafði samband við Þor
stein baðst hann undan því að svara
spurningum blaðamanns um mál
efni Bursta fasteignafélags. Þannig
fengust ekki svör við því hvers vegna
umræddar fasteignir voru færðar
frá félaginu Sólstöfum árið 2011 til
Bursta fasteignafélags.
Umræddar fasteignir fóru um
tíma á árinu 2011 yfir til félagsins
EAB 1 ehf. en Arion banki fer með 30
prósenta hlut í því félagi en Lucilin
Conseil á 70 prósent í því. Þar sem
Þorsteinn vildi ekki ræða við DV hafa
ekki fengist upplýsingar um það hver
er eigandi félagsins Lucilin Conseil
í Lúxemborg sem nú á fimm af fyrr
verandi fasteignum hans. DV hefur
einnig heimildir fyrir því að Þor
steinn eigi enn íbúð í London en þar
sem hann vildi ekki ræða við DV hef
ur það ekki fengist staðfest.
Skráð hjá lögmanninum
Burstir fasteignafélag er skráð til
heimilis að Suðurlandsbraut 18 hjá
lögmannsstofunni Nordik. Bernhard
Bogason lögmaður er skráður fram
kvæmdastjóri og stjórnarmaður í
Burstum fasteignafélagi en hann stýr
ir skrifstofu Nordik í London. Hann sá
um fjárhagslega endurskipulagningu
fyrir hönd Þorsteins gagnvart Arion
banka sem og öðrum lánastofnun
um. Bernhard starfaði sem forstöðu
maður skatta og lögfræðisviðs FL
Group á árunum 2006 til 2009 og sat í
varastjórn Glitnis. Þorsteinn var sem
kunnugt er stjórnar maður í FL Group
auk þess að vera stjórnarformaður
Glitnis um tíma.
DV reyndi ítrekað að ná tali af Bern
hard til að spyrja hann um málefni
Bursta fasteignafélags án árangurs.
Vafi um eignarhaldið
Félagið EAB 1 sem hélt um tíma utan
um þær fimm fasteignir sem síð
ar fóru til Bursta fasteignafélags var
notað utan um söluna á Vífilfelli fyrir
hönd Arion banka. Inn í EAB 1 er enn
5 prósenta hlutur í hollenska drykkj
arvöruframleiðandanum Refresco.
Félagið Exalba S.L. er dótturfélag
spænska félagsins Cobega sem
keypti Vífilfell af Þorsteini. Í uppgjöri
við Arion banka greiddi Exalba hluta
af kaupverðinu með 5 prósenta hlut í
Refresco. Sá hlutur var metinn á 3,3
milljarða króna í upphafi árs 2011
við uppgjörið. Samkvæmt ársreikn
ingi EAB þurfti félagið hins vegar að
niðurfæra hlutinn um 773 milljónir
króna árið 2011. Í ársreikningi EAB 1
fyrir árið 2011 kemur fram að Lucilin
Conseil, eigandi Bursta fasteignafé
lags, fari með 70 prósenta hlut í EAB.
Eignahaldið á Lucilin Conseil er hins
vegar á huldu.
Í svari frá Haraldi Guðna Eiðssyni,
upplýsingafulltrúa Arion banka, seg
ir að bankinn eigi ekki hlut í Burst
um fasteignafélagi. Arion banki hafi
selt umræddar fasteignir en ekki er
upplýst hver hafi verið kaupandinn.
Þá segir í svarinu að Arion banki eigi
ekki hlut í Lucilin Conseil og hafi
ekki komið að stofnun þess. „Rétt er
að aðrir svari spurningum sem tengj
ast því félagi,“ segir í svari bankans. n
Annas Sigmundsson
blaðamaður skrifar as@dv.is
Býr enn vel Þorsteinn býr við
Sunnuflöt 28 þrátt fyrir að hann sé
skráður með lögheimili í Lúxemborg.
Eigandi hússins er fasteignafélag í
eigu huldufélags í Lúxemborg.
Júlli áfram í
Draumnum
„Ég fer bara ekki neitt,“ segir kaup
maðurinn Júlíus Þorbergsson,
þekktur sem Júlli í Draumnum, en
samkvæmt dómsúrskurði í Hér
aðsdómi Reykjavíkur verður hann
borinn út úr verslunarhúsnæði
Draumsins við Rauðarárstíg og
íbúð sem er í sama húsi. Frétta
blaðið greinir frá þessu.
Eignirnar voru settar að veði
fyrir láni sem sonur Júlla tók en
eftir vanskil og langt og árangurs
laust innheimtuferli voru eignirn
ar seldar á nauðungaruppboði.
Í Fréttablaðinu kveðst Júlli hafa
verið svikinn og að þeir feðgar
íhugi að fara í hart við lánveitand
ann. Ástæðan sé meðal annars að
þeir peningar sem sonur hans hafi
fengið lánaða gegn veði í eign
unum hafi aldrei skilað sér. Júlí
us segist ekkert skulda en hann
bíður þess að hefja afplánun tólf
mánaða fangelsisdóms fyrir að
selja lyfseðilsskyld lyf í Draumn
um.
Talskona
Stígamóta
kemur á
Beina línu
Guðrún Jónsdóttir, talskona Stíga
móta, verður á Beinni línu DV.is í
dag, föstudag, klukkan 13. Stíga
mót er ráðgjafar og stuðnings
miðstöð fyrir konur og karla sem
hafa verið beitt hvers kyns kyn
ferðisofbeldi. Guðrún hefur lengi
staðið í eldlínunni í baráttunni
gegn kynferðisofbeldi og mun
hún svara þeim spurningum sem
brenna á lesendum. Það eina sem
lesendur DV.is þurfa að gera til að
spyrja spurninga er að vera skráð
ir inn á Facebook og fara svo inn á
dv.is/beinlina klukkan 13.
Hrottafengið morð Hlífar Vatnar játaði
að hafa veist að að Þóru Eyjalín Gísladóttur
með hnífi og stungið hana ítrekað í andlit
og líkama.