Dagblaðið Vísir - DV - 18.01.2013, Blaðsíða 21
Erlent 21Helgarblað 18.–20. janúar 2013
Bílaverkstæði
Varahlutaverslun
Smurstöð
Dekkjaverkstæði
Bremsur,
spindilkúlur,
stýrisendar,
o.fl., o.fl.
Allar gerðir
bætiefna fyrir
vél, drif
og gírkassa
www.bilaattan.is
Allt á einum stað
S
tarfsfólk Facebook situr
ekki auðum höndum frekar
höfuðandstæðingarnir hjá
Google. Í vikunni kynnti
Mark Zuckerberg, aðaleig-
andi Facebook, til sögunnar nýjan
leitarmöguleika sem á að gera fólki
kleift að skanna mun ítarlegri upp-
lýsingar hjá vinum og ættingjum en
hægt hefur verið hingað til.
Ítarleit til höfuðs Google
Þeir kalla þetta „graph search“ á
engil saxneskunni, sem gæti út-
lagst sem ítarleit, og með slíku get-
ur hver og einn náð í mun meiri og
ítarlegri upplýsingar um vini sína og
vini þeirra en hingað til. Þannig er nú
hægt til dæmis að leita sérstaklega
að öllum ljósmyndum sem teknar
hafa verið í París af hálfu vinar eða
finna hvaða sjónvarpsþættir eru í
mestu uppáhaldi vina vina þinna.
Sömuleiðis geta Facebook- notendur
nú leitað sérstaklega að fólki sem býr
á ákveðnum stöðum en slíkt hefur
ekki verið raunhæfur möguleiki
hingað til.
Síðast en ekki síst gefur þessi nýj-
ung færi á að finna fólk sem ekki er
í vinahópnum en hefur á einhverju
tímabili tengst eða tekið þátt í ein-
hverju með vinum. Þannig er hægt
að leita með þessum hætti: „fólk sem
heitir Páll sem er vinir Axels og var í
Menntaskólanum á Akureyri.“
Þó er þessi leitarmöguleiki ein-
skorðaður við efni sem flokkað hefur
verið sem opinbert af hálfu vina og
ítarleit á ekki að skila efni sem not-
endur kjósa að hafa út af fyrir sig.
Fyrirtækið hyggst opna fyrir þennan
möguleika smám saman á næstu
dögum og slíkt verður ekki í boði í
farsímum fyrst um sinn.
Útspili sem þessu er að sjálfsögðu
beint gegn leitarrisanum Google en
áður hefði fólk aðeins náð að finna
slíkar upplýsingar gegnum þann
leitar vef og þá í mun takmarkaðri
mæli en nú er hægt þar sem Google
getur ekki leitað innan Facebook.
Gjaldtaka fyrir skilaboð
Þetta er ekki það eina sem forráða-
menn Facebook hafa verið að fikta
við undanfarin misseri. Þar á bæ hafa
menn verið að prófa sig áfram með
gjaldtöku fyrir skilaboðasendingar
og telja spekingar tæknitímarita
meiri líkur en minni á að slíkt gjald
verði raunin þegar fram líða stundir.
Gjaldið á að taka mið af vin-
sældum viðkomandi á Facebook
og þannig á að slá tvær flugur í
einu höggi; annars vegar afla auk-
inna tekna fyrir fyrirtækið og hins
vegar minnka magn ruslpósts sem
mörgum notendum Facebook berst
í síauknum mæli.
Gjald þarf þó aðeins að greiða
sé hugmyndin að senda skeyti á
ókunnugan aðila en vinahópurinn
mun áfram geta sent skeyti að vild.
Hugmyndin þykir góð að flestra
mati en ekki liggur nákvæmlega
fyrir hversu hátt gjald verður tekið
ef hugmyndin verður að veruleika.
Vestanhafs hefur einn dollar verið
talinn líkleg upphæð en við próf-
anir Facebook hefur til dæmis verið
hægt að senda skeyti á eigandann,
Mark Zuckerberg, fyrir rúmar tólf
þúsund krónur.
Ekki liggur enn fyrir hvort eða
hvenær þetta verður að veruleika
en prófanir á slíkri gjaldtöku eiga að
standa yfir fram á árið. n
n Kynna nýjan leitarmöguleika n Boða gjaldtöku fyrir skilaboð
Albert Örn Eyþórsson
blaðamaður skrifar ritsjorn@dv.is
Facebook færir
sig upp á skaftið
Nýjungarnar kynntar Mark
Zuckerberg kynnti breytingarn-
ar á fundi með fjölmiðlamönn-
um í Menlo Park í Kaliforníu á
miðvikudag. MyNd ReuteRs
Fann risa-
stóran
gullmola
Ástralskur áhugamaður um
gullgröft datt heldur betur í
lukkupottinn þegar hann fann
stóran gullmola í nágrenni bæj-
arins Ballarat. Verðmæti mol-
ans er metið á um það bil 38
milljónir króna, samkvæmt frétt
BBC. Maðurinn, sem ekki hefur
komið fram undir nafni, segir að
hann hafi fundið molann, sem
sést á myndinni, á um 60 sentí-
metra dýpi.
Haft er eftir gullkaupmann-
inum Cardell Kent að um sé að
ræða fyrsta stóra gullmolann
sem finnst á svæðinu, þrátt fyrir
að þar hafi verið leitað að gulli
í áratugi. Talið er að fundurinn
muni hrinda af stað gullæði á
meðal íbúa á svæðinu. „Það
jafnast ekkert á við að grafa upp
verðmæti. Það er mjög gaman,“
hefur staðarblað eftir gullgrafar-
anum heppna.
Dreamliner-
vélar kyrrsettar
Flugmálayfirvöld víða um heim
hafa fyrirskipað að Boeing
787-farþegaþotur, svokallaðar
Deamliner-þotur, verði kyrrsett-
ar. Margvíslegir gallar og bilanir
hafa komið fram í vélunum sem
ógna öryggi flugfarþega. Í Japan
kom til að mynda upp alvarleg
bilun í rafbúnaði Dreamliner-
vélar.
Samkvæmt BBC hafa 40
vélar af 50 verið kyrrsettar en
forsvarsmenn Boeing fullyrða
að vélarnar séu fullkomlega
öruggar.
Japanska flugfélagið All
Nippon Airways á flestar
Dreamliner-vélar, eða sautján
talsins, Japan Airlines sjö,
United Airlines og Air India sex
hvort flugfélag. Ethiopian Air-
lines á fjórar vélar, LAN Airlines
í Chile þrjár og Lot Polish Air-
lines í Póllandi á tvær Dream-
liner-vélar.