Dagblaðið Vísir - DV - 18.01.2013, Síða 6
Fært til í starFi
aF minna tileFni
6 Fréttir 18.–20. janúar 2013 Helgarblað
Guðgeir í fjórtán ára fangelsi
n Hæstiréttur staðfestir dóm yfir Guðgeiri Guðmundssyni
H
æstiréttur staðfesti á fimmtu
daginn 14 ára dóm héraðs
dóms yfir Guðgeiri Guð
mundssyni fyrir tilraun til
manndráps og sérstaklega hættulega
líkamsárás. Honum er einnig gert að
greiða allan áfrýjunarkostnað máls
ins, tæpa milljón króna.
Í héraði var Guðgeiri gert að
greiða Skúla Eggerts Sigurz, fram
kvæmdastjóra Lagastoðar, þrjár
milljónir í miskabætur fyrir tilraun
til manndráps. Þar að auki þarf hann
að greiða Guðna Bergssyni lögmanni
Lagastoðar 800 þúsund krónur, en
Guðgeir stakk hann tvisvar í lærið.
Árásin átti sér stað í byrjun mars í
fyrra. Guðgeir hafði óskað eftir fundi
með lögmanni á Lagastoð vegna van
greiddra iðgjalda og fékk í kjölfarið
fund með framkvæmdastjóra lög
mannstofunnar, Skúla Eggerts. Undir
lok þess fundar dró Guðgeir upp hníf
og stakk Skúla alls fimm sinnum. Eft
ir árásina var Skúli með stungusár á
hægri öxl, hægra og vinstra megin á
brjóstkassa, aftarlega á hægri síðu og
ofan við vinstri mjaðmarspaða. Auk
þess var hann með minni skurða á
höndum og andliti.
Fjögur sáranna voru lífshættu
leg en alls missti Skúli 50 lítra af blóði
við blóðgjöf á meðan gert var að sár
um hans. Það er um tífalt magn þess
sem fyrirfinnst í mannslíkamanum.
Fjarlægja þurfti hægra nýra hans og
gallblöðru, auk þess að bæði lungu
hans sködduðust. Guðgeir var einnig
dæmdur fyrir hættulega líkamsárás
gegn Guðna, en Guðni kom Skúla til
bjargar og náði að yfirbuga Guðgeir. n
simon@dv.is
Fáðu greinar í heild sinni
á DV.is og vefáskrift
af prentútgáfu DV
* Verðið er 790 kr. fyrstu
3 mánuðina, en 1.790 kr. eftir það.
fyrir 790 kr.
á mánuði *
Sjáðu
meira
Úlpurnar
fundnar
Úlpurnar sem stolið var úr fata
hengi í anddyri Fjölbrautaskóla
Suðurlands síðastliðinn föstu
dagsmorgun eru komnar í leit
irnar. Lögreglan fékk ábendingar
frá borgurum eftir að mynd af
ungri konu, sem tók úlpurnar
birtist, í netmiðlunum dfs.is og
sunnlenska.is. Lögreglumenn á
vakt könnuðu þær vísbendingar
sem bárust og unnu úr þeim.
Ítarleg rannsókn þeirra
leiddi svo til þess að grunur féll
á tvítuga konu með lögheim
ili á höfuðborgarsvæðinu, sem
ekki tengist skólanum á neinn
hátt. Hjá konunni fundust tvær
úlpur og sú þriðja var komin í
sölu en náðist til baka. Verðmæti
úlpnanna þriggja úr verslun er
samtals um 130 þúsund krón
ur. Lögregla vill koma á framfæri
þakklæti til forráðamanna FSU,
sem gerðu allt sem gera þurfti, og
þeim einstaklingum sem komu
með upplýsingar eftir að leitað
var eftir þeim á netmiðlum.
Átta af tíu á
réttum tíma
Brottfarartímar í millilandaflugi
voru oftar samkvæmt áætlun
en komutímar á fyrstu tveimur
vikum ársins. Í heildina voru
ferðirnar til og frá Keflavíkurflug
velli rúmlega fimm hundruð og
var meðaltöfin fimm mínútur,
samkvæmt útreikningum á vef
síðunni turisti.is
Rúmlega átta af hverjum tíu
farþegaþotum fóru í loftið á rétt
um tíma á fyrri hluta mánaðar
ins. Þær skiluðu sér hins vegar
ekki eins oft heim á auglýstum
tíma eins og sjá má á töflunni hér
fyrir neðan.
n Lögreglumaður með barnaníðskærur á bakinu hlaut dóm fyrir brot í starfi
S
amkvæmt heimildum
DV innan lögreglunnar
hafa lögreglumenn verið
færðir til í starfi eða vikið
tímabundið frá störfum fyr
ir mun minni sakir en þær að sæta
rannsókn eftir að hafa verið kærður
fyrir barnaníð.
DV greindi á miðvikudaginn frá
máli lögregluvarðstjóra á höfuð
borgarsvæðinu sem hefur fengið að
starfa áfram þrátt fyrir að hafa í þrí
gang verið kærður fyrir barnaníð.
Móðir einnar stúlkunnar sem seg
ir hann hafa brotið gegn sér þegar
hún var gestkomandi í sumar
bústað, 9 ára gömul, telur rannsókn
málsins hafa verið mjög ábótavant
og finnst það óásættanlegt með öllu
að maðurinn hafi fengið að starfa
áfram. Tvær kærur á hendur mann
inum voru felldar niður í október á
síðasta ári en sú þriðja síðastliðinn
fimmtudag.
Segir góð tengsl hafa áhrif
Að sögn heimildarmanns er bak
grunnur þeirra manna sem færð
ir eru til í starfi eða settir af
tímabundið yfirleitt sá að þeir séu
ekki nógu „hlýðnir“ eins og hann
orðar það. „Það má ekki anda á
toppana í löggunni þá eru menn
settir til hliðar.“ Hann vill meina að
góð tengsl lögreglumanna við yf
irmenn sína geti haft áhrif á með
höndlun mála þegar eitthvað kem
ur upp á.
Þess ber að geta að með í áður
nefndri bústaðarferð var félagi
hans, sem er hátt settur embættis
maður. Má draga af því þá ályktun
að lögreglumaðurinn sé vel tengd
ur. Embættismaðurinn var jafn
framt eitt aðalvitna í kærumálinu
gegn honum.
Dæmdur fyrir brot í starfi
Umræddur lögreglumaður, sem
sinnir einnig trúnaðarstörfum inn
an lögreglunnar, var á síðasta ára
tug dæmdur í Hæstarétti fyrir brot
í opinberu starfi og umferðarlaga
brot. Honum var gefið að sök að
hafa ekki gætt lögmætra aðferða
í aðgerð lögreglu til að stöðva
ætlaðan hraðakstur ökumanns
bifhjóls. Heimildir DV herma að
skömmu eftir dómurinn féll hafi
lögreglumaðurinn verið gerður að
varðstjóra.
Athygli vekur í máli umræddrar
stúlku að lögreglumaðurinn fékk
ekki bara að starfa áfram meðan
á rannsókn málsins stóð, heldur
sinnti hann, og sinnir enn, útkalls
skyldu í hverfinu þar sem hún býr.
Móðir hennar krafðist þess að
manninum yrði vikið frá störf
um en ríkislögreglustjóri og
lögreglustjórinn á höfuðborgar
svæðinu vísuðu hvor á annan í
málinu.
Lögreglustjórar vísuðu hvor á
annan
Í svarbréfi Stefáns Eiríkssonar, lög
reglustjóra á höfuðborgarsvæðinu,
til móður stúlkunnar kom fram að
sú ákvörðun að vísa lögreglumanni
frá störfum væri í höndum ríkislög
reglustjóra.
Í bréfi ríkislögreglustjóra kom
hins vegar fram að þar sem emb
ættið fengi ekki aðgang að rann
sóknargögnum málsins frá ríkis
saksóknara hefði embættið ekki
næg gögn í höndunum til að taka
ákvörðun um það hvort víkja
bæri umræddum lögreglumanni
tímabundið frá störfum.
DV hafði samband við embætti
ríkislögreglustjóra sem ítrekaði
fyrri svör sín til móðurinnar og rétt
argæslumanns stúlkunnar. Í svari
til DV segir meðal annars: „Vegna
alvarleika málsins beindi embætti
ríkislögreglustjóra því hins vegar til
lögreglustjóra höfuðborgarsvæðis
ins að meta hvort hann leysti lög
reglumanninn undan vinnuskyldu,
en það er einnig á forræði viðkom
andi lögreglustjóra að ákveða um
tilfærslu í starfi og við hvaða verk
efni lögreglumaður starfar. Sam
kvæmt lögum um réttindi og
skyldur starfsmanna ríkisins er
greinarmunur á þessum úrræðum
og því að leysa embættismann frá
embætti um stundarsakir.“
Lét fjarlægja skráningu af já.is
Mynd af lögreglumanninum hefur
gengið á netinu síðustu daga og
verið deilt oftar en 1.500 sinnum á
Facebook. Undir myndinni er hann
nafngreindur og sakaður um kyn
ferðisbrot gegn þremur stúlkum.
Það skal þó tekið fram að hvorki
móðirin sem DV ræddi við né dótt
ir hennar standa að baki mynd
birtingunni.
Í kjölfar myndbirtingarinnar og
umfjöllun fjölmiðla um mál manns
ins virðist hann hafa látið fjarlægja
nafn sitt og heimilisfang af já.is, en
fyrst þegar DV reyndi að hafa uppi á
honum var hann skráður þar. Ekki
hefur náðst í lögreglumanninn þrátt
fyrir ítrekaðar tilraunir. n
„Það má
ekki anda
á toppana í lög-
gunni þá eru menn
settir til hliðar.
Sólrún Lilja Ragnarsdóttir
blaðamaður skrifar solrun@dv.is
Dæmdur Guðgeir Guðmundsson sagði í
aðalmeðferð málsins að hann hafi á fund-
inum með Skúla séð „vott af brosi“ á svip
hans – eins og hann hafi verið að hugsa „Ég
náði þér.“ Þá kvaðst hann hafa snöggreiðst
og ráðist á Skúla.
Ekki færður til Samkvæmt heimild-
um DV hafa lögreglumenn verið færðir
til í starfi eða vikið tímabundið frá
störfum fyrir léttvægar sakir.