Dagblaðið Vísir - DV - 18.01.2013, Síða 14
14 Fréttir 18.–20. janúar 2013 Helgarblað
Þ
að að geta ekki alltaf verið
nærstaddur er verst. Ef
það er einhvern tímann
nauðsynlegt í hjónabandi á
ævinni að sýna umhyggju
þá er það þegar annar makinn er far-
inn að veikjast. Það er meiri þörf á
að vera saman þá, en það er eins og
það sé ekki skilningur á því,“ segir
Páll Bergþórsson, fyrrverandi veður-
stofustjóri.
Saga Páls og Huldu Baldursdóttur
eiginkonu hans vakti athygli í Kast-
ljósi RÚV á miðvikudag en þar sagði
Páll frá raunum þeirra hjóna, en þau
fá ekki að búa saman síðustu æviárin
þar sem Hulda þarf að búa á hjúkr-
unarheimili vegna heilsubrests en
þar má Páll ekki vera vegna þess að
hann er nokkuð heilsuhraustur. Í
Kastljósi var haft eftir Pétri Magnús-
syni, forstjóra Hrafnistu, að Páll geti
ekki búið á Hrafnistu, þar sem eigin-
kona hans býr, miðað við núverandi
lög þar sem færni- og heilsumats-
nefnd fari yfir heilsufar fólks og meti
hvort það eigi rétt á því. Pétur hvatti
stjórnvöld til þess að breyta lögunum
svo að hjón geti búið saman á hjúkr-
unarheimilum ef annað þeirra þarf
að vera vistað þar vegna heilsutaps.
Fer ekki fyrr hún er sofnuð
„Það er sárt að geta ekki alltaf verið
með henni. Maður veit aldrei hvenær
þörfin verður brýnust. Það getur
alltaf eitthvað komið fyrir fólk þannig
að maður þurfi að vera viðstaddur.
Maður þarf alltaf að vera viðbúinn
hverju sem er. Og það er aldrei
nauðsynlegra en einmitt í svona að-
stæðum,“ segir Páll.
Hjónin Páll og Hulda hafa fylgst
að í gegnum lífið í 63 ár. Þau fagna
bæði níræðisafmæli sínu í sumar
en aðeins tveir mánuðir skilja milli
þeirra, eru fædd í júní og ágúst árið
1923. Sem sálufélagar í lífsins ólgusjó
hafa þau alið upp þrjú börn saman
og eiga nú fjölda afkomenda; átta
barnabörn og níu barnabarnabörn.
Fyrir rúmlega einu og hálfu ári þurfti
Hulda að flytja á hjúkrunarheimili
vegna veikinda sinna. Eins og áður
sagði má Páll ekki búa með henni þar
og því þurfa þau að sofa hvort á sín-
um staðnum eftir að hafa vanist því
til 60 ára að vera saman. Páll kemur
á hverjum morgni klukkan níu til
Huldu og fer ekki fyrr en hún er sofn-
uð á kvöldin. „Ég er hérna þegar hún
sofnar en hún vaknar ein. Það er
auðvitað leiðinlegt að vakna á sitt-
hvorum staðnum,“ segir Páll þegar
blaðamaður og ljósmyndari kíktu í
heimsókn til þeirra hjóna á Hrafn-
istu. Hulda var í sjúkraþjálfun þegar
okkur bar að garði en Páll fylgdi
okkur inn í herbergi hennar þar sem
þau hjónin eyða dögunum saman.
Myndir af afkomendum þeirra
hjóna prýða veggi herbergisins. Páll
býr annars staðar þó að hann sé hér
yfir daginn með eiginkonu sinni.
Tómlegt án Huldu
„Ég bý um fimm kílómetra í burtu.
Ég keyri fram og til baka kvölds og
morgna,“ segir Páll. Hann býr enn í
húsi þeirra hjóna í smáíbúðahverfinu
í Reykjavík en þangað fluttu þau með
börnin sín í kringum 1970 og hafa því
búið þar í yfir 40 ár. Páli finnst tóm-
legt að vera þar án Huldu sinnar og
myndi helst vilja fá að búa með henni
á Hrafnistu þar sem hún gæti fengið
þá umönnun sem hún þarf þó hann
þurfi ekki á henni að halda. Hulda
byrjaði að veikjast fyrir um 10–15
árum en fyrst um sinn gat hann hugs-
að um hana. Fyrir um rúmlega einu
og hálfu ári var hún orðin það veik að
hún gat ekki lengur búið heima. Páll
segist hafa grunsemdir um að veik-
indin stafi af liðaskiptum sem Hulda
fór í fyrir mörgum árum en einnig
spili öldrun inn í. Hann lýsir veik-
indunum sem máttleysi og ákveðnu
minnistapi. „En engar þjáningar, það
munar um það,“ segir hann.
Spáir á hverjum degi
Páll vaknar snemma á morgnana og
býr til veðurspá áður en hann heldur
af stað til Huldu. „Ég fer á fætur klukk-
an sex og byrja alltaf að spá. Klukkan
sjö fara að koma gögn sem ég nota til
að búa til spá,“ segir Páll sem setur
spána inn á Facebook-síðu sína eða
Fasbókina, eins og hann kallar hana,
en þar er hann virkur og vinir hans
á síðunni fá langtímaspá á hverjum
degi. „Ég spái alltaf 10 daga fram í
tímann,“ segir hann brosandi en það
er lengri spá en flestar veðurstofurn-
ar gefa út. Um klukkan átta fer hann
að gera sig tilbúinn fyrir daginn. „Ég
kem svo hérna um níu og er fram á
kvöld. Hún fer oft snemma að sofa,
kannski um 8–9 leytið, svo ég er oft til
9.“ Hann segir misjafnt hvað þau geri
yfir daginn, Hulda fer í sjúkraþjálfun
tvisvar í viku og hann hefur tölvuna
sér til dundurs. Mestu skiptir að þau
eru saman.
Þegar þar er komið í samtalinu
kemur sjúkraþjálfi með Huldu inn
í herbergið. Hún er búin í sjúkra-
þjálfuninni og Páll tekur brosandi
á móti henni og kynnir blaðamann
og ljósmyndara. Hún segist gjarnan
vilja hafa Pál hjá sér á næturnar en
það verði að fara eftir reglunum.
„Sonur okkar prjónaði þetta á hana,“
segir Páll og bendir á stúkur með
fallegu prjónamynstri sem Hulda
er með á báðum úlnliðum. Sonur-
inn hæfileikaríki er Bergþór Páls-
son söngvari. „Það sækir meiri kuldi
á fólk þegar það situr svona mikið
kyrrt,“ segir Páll.
Ekki ýkja algengt
Páll hélt erindi á ráðstefnu Sjó-
mannadagsráðs sem haldin var í
haust en þar ræddi hann um þá
stöðu sem hjónin eru í og vakti er-
indið athygli. „Þeir báðu mig að segja
nokkur orð um þetta og þá var ég
að halda þessu fram hvað það væri
nauðsynlegt að hjón fengju að vera
saman. Það fékk góðar undirtektir en
alls ekki frá stofnunum því þær telja
sig bara ekki mega leyfa þetta.“ Páll
segist hafa fengið heilmikil viðbrögð
eftir að hann sagði sögu þeirra í Kast-
ljósinu. „Aðallega á Fasbókinni. Það
voru margir sem skrifuðu mér þar,“
segir hann og segist hafa heyrt af
fólki í sömu stöðu og þau hjónin séu
í. „En það er kannski ekki mjög al-
gengt því að það er oft þannig að það
eru bæði hjónin sem þurfa pláss og
þá leysist þetta að vissu leyti af sjálfu
sér. Svo er mjög algengt að fólk er
orðið það gamalt þegar það er í þessu
hér að það er oft búið að missa maka
sinn. Það eru eiginlega flestir hér
þannig sýnist mér. Þannig að þetta er
kannski ekki svo ýkja algengt. Að að-
stæður séu eins og hjá okkur hjónun-
um,“ segir Páll.
Vongóður
DV hafði samband við Guðbjart
Hannesson velferðarráðherra vegna
málsins og viðbrögð hans voru þau
að hann væri að skoða málið. Páll
er ánægður að heyra að málið sé til
skoðunar og vonast til að það leiði
til þess að það verði leyst úr því. „Ég
held að það sé möguleiki á því. Upp-
haflega þegar þessi deild var hér þá
var þetta þannig að það voru her-
bergi sem lágu saman og það var
hægt að opna á milli. En svo komu
þessar reglur vistheimilanefndar
fyrir 2–3 árum og síðan þá hefur
þetta ekki verið hægt. Ég trúi nú ekki
öðru en að það gangi fyrst að þetta
var þannig,“ segir Páll vongóður um
að stjórnvöld breyti núverandi lög-
um og geri þannig hjónum, í þeirri
stöðu sem þau Hulda eru í, að búa
saman síðustu æviárin. n
n Páll og Hulda fá ekki að búa saman síðustu æviárin n Vonast eftir lagabreytingum
„Sárt að geta ekki
alltaf verið með henni“
„Það er auðvitað
leiðinlegt að vakna
á sitthvorum staðnum.
Viktoría Hermannsdóttir
blaðamaður skrifar viktoria@dv.is
Vilja vera saman Páll og
Hulda þrá að fá að búa saman
síðustu æviárin. Þau hafa verið
gift í 62 ár en þurfa nú að búa
hvort á sínum staðnum.
mynd SigTryggur ari