Dagblaðið Vísir - DV - 18.01.2013, Síða 15
É
g er að reyna að selja túristun
um þá hugmynd að koma
hingað því hér er ekkert í ná
grenninu. Hér er ró og friður en
svo kemur einhver risastór geð
veikur hundur geltandi og eyðilegg
ur það,“ segir Veigar Freyr Jökulsson,
hótelstjóri á Hótel Brú í Hvalfjarðar
sveit, sem hefur nú í tæpt ár reynt að
fá nágranna sinn til að hafa hemil á
labradorhundinum Rex sem hrellir
hótelgesti ítrekað með háværu gelti.
Sagt að skjóta hundinn
Fyrsta skref Veigars var að tala
við eiganda Rex, Ingimar Þorsteins
son, og biðja hann um að hafa hem
il á dýrinu. Ingimar brást hins vegar
ekki vel við bóninni og svaraði hon
um með skætingi, að sögn Veigars.
Bar Ingimar það meðal annars fyrir
sig að engin skilti væru á svæðinu
sem segðu að lausaganga hunda
væri bönnuð. Veigar brá þá á það
ráð að setja upp fjölda skilta í kring
um hótelið, en allt kom fyrir ekki.
Hann er nú orðinn langþreyttur á
tíðum heimsóknum hundsins.
„Hundurinn kemur reglulega
hingað, geltir í átt að húsinu, hræðir
fólk hrellir og það eru allir úrræða
lausir. Lögreglan, hundaeftirlitið,
sveitarstjórnin, þeir benda hver á
annan. Hundaeftirlitsmaðurinn
hefur bæði gefið í skyn og sagt með
beinum orðum að ég þurfi bara að fá
mér byssu og skjóta hundinn til að
leysa vandann. Mér finnst það hins
vegar svolítið villta vestursleg pæl
ing,“ segir Veigar sem hyggst ekki
grípa til slíkra örþrifaráða.
„Erlendir ferðamenn
flokkast ekki sem búfé“
„Af því þetta svæði telst til dreifbýlis
þá fellur þetta undir sama hatt og
bóndabæir. Ef hundurinn kæmi
hérna og legðist á fé þá hefði ég lög
in mín megin ef ég drægi upp hagl
arann og skyti hann. En þar sem er
lendir ferðamenn flokkast ekki sem
búfé þá gengur það ekki. Það væri
líklega ekki skemmtileg upplifun
ferðamanna af Íslandi ef það væri
einhver hótelstjóri með haglara á
bakinu að plaffa niður hunda fyrir
framan þá.“
Þar sem lausaganga hunda er
ekki bönnuð í dreifbýli hefur lög
regla engin úrræði önnur en að hafa
samband við eigandann og biðja
hann um að hafa hemil á hundinum
svo hann raski ekki ró nágrannanna.
Eigandinn býðst til
að sækja hundinn
„Ég hringi alltaf reglulega í lög
regluna og læt færa það til bókar að
ég hafi orðið fyrir ónæði af hund
inum. Þeir skrá þetta niður og svo
hringja þeir stundum í hann.“
Lögreglan í Borgarnesi staðfestir
í samtali við DV að kvartanir hafi
borist vegna hundsins. Einu úr
ræðin sem þeir hafa eru að reyna
að höfða til þess að nágrannar sýni
hver öðrum tillitssemi.
Viðbrögð Ingimars eru ávallt þau
sömu þegar kvartanir berast vegna
hundsins. Hann vill að Veigar hringi
í sig þegar Rex kemur að hótelinu
og hann muni þá sækja hundinn.
Veigar segir hins vegar að þá sé
skaðinn skeður og því gagnist það
úrræði lítið.
„Réttur hans til að láta hundinn
ganga lausan og hrella gesti er allur
meðan réttur minn til að fá frið fyrir
honum er enginn,“ segir Veigar sem
hyggst þrýsta enn frekar á sveitar
félagið að koma með lausn á vanda
málinu. Enda sé þarna ekki um eig
inlegt dreifbýli eða bændasamfélag
að ræða þar sem fjöldi sumar og
heilsárshúsa sé á svæðinu.
Segir hundinn alltaf bundinn
Í samtali við DV fullyrðir Ingimar að
Rex sé ávallt bundinn en það komi
hins vegar fyrir að hann sleppi. „Ég
hef alveg hemil á hundinum en það
kemur fyrir að hann sleppur. Þá á
Veigar bara að hringja í mig og ég
næ strax í hundinn, en hann gerir
það ekki.“ Ingimar segist alltaf fara
strax að leita að Rex þegar hann sér
að hann hefur sloppið. Hann finni
hundinn þó aldrei uppi við Hótel
Brú.
Að sögn Ingimars er hundurinn
mjög félagslyndur. „Hann er voða
lega blíður við alla, en einhverra
hluta vegna er honum persónulega
illa við Veigar. Ég veit ekki af hverju
það er. Hann er mjög barngóður
og félagslyndur við fólk sem hann
þekkir.“ Ingimar viðurkennir að Rex
gelti oft að ókunnugum en um leið
og kallað er á hann með nafni, hætt
ir hann því.
Ekki gott fyrir móralinn að
skjóta hunda
Þorvaldur Magnússon, hunda
eftirlitsmaður hjá sveitarfélaginu
Hvalfjarðarsveit, segir það algengt til
sveita að hundar flakki á milli bæja
enda séu engin lög eða reglur sem
banni það. Hann sem hundaeftirlits
maður hafi því ekkert vald til að taka
hunda og sekta eigendur þeirra,
nema í þéttbýlishverfum. Það sé því
mjög erfitt að eiga við vandamál líkt
og það sem Veigar glími við. Að
spurður hvort hann mæli með því að
fólki taki upp byssu og skjóti hunda
ef þeir valda ónæði, svarar Þorvald
ur: „Nei, ég mæli nú ekki með því,
það er ekki gott fyrir móralinn. En
ég veit að menn hafa gert þetta ef
hundar eru að hlaupa í fé á öðrum
bæjum.“ n
Fréttir 15Helgarblað 18.–20. janúar 2013
hundur hrellir
gesti hótelsins„Hér er ró og frið-
ur en svo kemur
einhver risastór geðveikur
hundur geltandi og eyði-
leggur það.
n Hótelstjóra ráðlagt að skjóta hund nágrannans n Eigandinn segir hundinn blíðan
Sólrún Lilja Ragnarsdóttir
blaðamaður skrifar solrun@dv.is
Þreyttur á hundinum Veigar segir hundinn hafa hrellt hótelgesti hans í heilt ár. Hann er orðinn langþreyttur á ónæðinu.
Ró og friður Hótelstjórinn segir erfitt að selja gestum ró og frið á Hótel Brú á meðan
geltandi hundur hræðir fólk.
Labradorhundur Hundaeftirlitsmaður-
inn segir að það væri ekki gott fyrir móralinn
að skjóta Rex. Tekið skal fram að myndin er
ekki af Rex og tengist því fréttinni ekki með
beinum hætti.