Dagblaðið Vísir - DV - 18.01.2013, Qupperneq 17
Fór úr matreiðslu í
milljarða viðskipti
16 Nærmynd
KAUPTU FJÓRAR
& FÁÐU SEX FERNUR
NÝTT! NÚ FÆST HLEÐSLA LÍKA
MEÐ SÚKKULAÐIBRAGÐI.
HOLL OG UPPBYGGILEG NÆRING EFTIR GÓÐA ÆFINGU.
HENTAR VEL FÓLKI MEÐ MJÓLKURÓÞOL.
Fleiri flytja til Íslands en frá
n Brottfluttir umfram aðflutta frá hruninu árið 2008 eru þó 8.600
V
iðsnúningur varð á fjórða
ársfjórðungi nýliðins árs
varðandi brottflutning frá Ís-
landi. Það sem vekur mesta
athygli er að í fyrsta skipti frá hruni
er fjöldi þeirra sem flytjast til lands-
ins nú mun meiri en þeirra sem
flytja frá landinu. Greining Íslands-
banka fjallar um þetta á vef sínum
og telur að þetta sé meðal merkja
um bata íslenska hagkerfisins.
Í umfjöllun Greiningar kemur
fram að á fjórða ársfjórðungi síð-
asta árs hafi 630 fleiri flutt til Ís-
lands en frá landinu. Aðeins einu
sinni áður hefur þetta gerst frá
hruni en það var á fyrsta fjórð-
ungi síðasta árs og þá var fjöldi að-
fluttra umfram brottflutta aðeins
10. Á síðasta ári fluttu 250 fleiri frá
landinu en til þess og er það mun
minni fjöldi en verið hefur undan-
farin ár en árið 2011 voru brott-
fluttir umfram aðflutta 1.404. „Hér
hefur líklega talsvert að segja að
efnahagsþróun hefur verið hagfelld
undanfarin misseri og bati hefur
orðið á vinnumarkaði með fjölgun
starfa og fækkun atvinnulausra. At-
vinnuleysi á síðasta ári var að jafn-
aði 6,0% miðað við 7,0% árið 2011.
Þá hefur kaupmáttur launa og ráð-
stöfunartekna verið vaxandi,“ segir
í umfjölluninni.
Frá því að bankahrunið varð á
haustmánuðum 2008 hefur brott-
flutningur verið viðameiri en flutn-
ingur til landsins. Brottflutningur
náði hámarki árið 2009 þegar 4.835
fleiri fluttu frá landinu en til þess.
Þessi þróun virðist hafa snúist við
samhliða batanum í efnahagskerf-
inu. Á síðustu fjórum árum, eða
frá hruni, hafa 8.623 fleiri flutt frá
landinu en til þess. n
Efnahagsbati Greining Íslandsbanka tel-
ur að breytingin á undanförnum misserum
sé batanum í íslenska hagkerfinu að þakka.
vegna láns sem Byr veitti Exeter eftir
bankahrunið. Hluti af láninu fór í að
kaupa stofnfjárbréf sem höfðu ver-
ið í eigu Jóns Þorsteins sjálfs sem MP
Banki hafði lánað fyrir. Með láninu til
Exeter losnaði Jón Þorsteinn við bréf-
in og jafnframt undan persónuleg-
um ábyrgðum vegna lánsins frá MP
Banka. Viðmælandi sem DV ræddi
við sagði að líklega hefði Jón Þor-
steinn treyst öðrum sem tóku þátt
í Exeter-málinu, mönnum eins og
Ragnari og Styrmi Þór Bragasyni, þá-
verandi framkvæmdastjóra MP Banka.
Ef þeir sögðu að þetta væri í lagi treysti
Jón Þorsteinn þeim einfaldlega. Líkt
og áður kom fram er Jón Þorsteinn
menntaður matreiðslumaður og
hefur því ekki viðskipta- eða lögfræði-
menntun líkt og margir sem starfa í
viðskiptalífinu. Hann hafi því oft þurft
að treysta áliti sérfræðinga á málum
sem hann þekkti ekki vel sjálfur.
Hið sama eigi við um mál sem náði
hámæli nú í haust þegar DV sagði
frá því að Jón Þorsteinn hefði flutt
hundruð milljóna króna úr landi í
erlendum gjaldeyri þvert gegn lögum
um gjaldeyrishöft. Samkvæmt frétt DV
var þetta gert í gegnum breska félag-
ið CCP Systems Ltd. en einn af þeim
sem tengdist því félagi var Guðmund-
ur Örn Jóhannsson, fyrrverandi fram-
kvæmdastjóri Landsbjargar. Hann
hætti hjá Landsbjörg eftir fréttir um
aðkomu hans að gjaldeyrisviðskipt-
um. Segir viðmælandi DV að það sé
táknrænt fyrir Jón Þorstein að fara í
viðskipti með manni eins og Guð-
mundi Erni án þess að hafa mikla
þekkingu á flóknum gjaldeyrisvið-
skiptum.
Fréttir DV um gjaldeyrisviðskiptin
virðast hins vegar hafa farið fyrir
brjóstið á Jóni Þorsteini sem ákvað að
stefna starfsmönnum blaðsins. Vísaði
hann meðal annars til þess í yfirlýs-
ingu að umfjöllunin hefði valdið fjöl-
skyldu sinni sálarkvölum. Þá hefði
umfjöllun DV einnig orðið til þess að
dóttir hans hafi brotnað niður í skóla
sínum.
Þess skal þó getið að Jón Þorsteinn
hefur verið mikið í fjölmiðlum eftir
bankahrunið og þá aðallega í tengsl-
um við Exeter-málið. Virðist sem það
hafi haft minni áhrif á fjölskyldu Jón
Þorsteins en einnig var hér fyrr í um-
fjöllun rifjað upp að þrjár dætur hans
fengu svokölluð „barnalán“ hjá Glitni
sem flestir fjölmiðlar á Íslandi gerðu
góð skil. Það að Jón Þorsteinn skyldi
í þessu tilfelli minnast á vanlíðan fjöl-
skyldunnar kom því mörgum á óvart.
Má þar nefna að Jónas Kristjánsson,
fyrrverandi ritstjóri DV, skrifaði um
kæruna á bloggi sínu og furðaði sig
á því að Jón Þorsteinn skyldi grípa
til þess ráðs að vísa til líðanar barna
sinna í yfirlýsingu – þau brot sem
hann framdi sem stjórnarformaður
í Byr hafi líklega valdið þeim meira
tjóni. n
n Jón Þorsteinn Jónsson einn af erfingjum Nóatúns og fyrrverandi stjórnarformaður Byrs
Fréttir 17Helgarblað 18.–20. janúar 2013
„Hann hafi því oft
þurft að treysta
áliti sérfræðinga á mál-
um sem hann þekkti ekki
vel sjálfur.