Dagblaðið Vísir - DV - 18.01.2013, Side 18
H
alldór Viðar Sanne, sem
situr í gæsluvarðhaldi í
Danmörku grunaður um
að hafa svikið fé út úr fjölda
fólks, á að baki langa slóð
svika. Sumarið 2011 auglýsti hann
lífvarðarnámskeið sem halda átti í
Danmörku þar sem fólk fengi þjálf-
un til þess að gerast lífvörður. Nám-
skeiðið auglýsti hann undir nafninu
Þrír Danir og það átti að fara fram
19.–26. júní í Danmörku. Vitað er
til þess að nokkrir Íslendingar hafi
skráð sig á námskeiðið og borgað
námskeiðsgjaldið, 399 þúsund krón-
ur íslenskar, en námskeiðið var hins
vegar aldrei haldið.
Faðir íslensks manns sem skráði sig
og borgaði fyrir námskeiðið segir Hall-
dór Viðar hafa virkað sannfærandi og
hann hafi náð að hafa fé af fjölda fólks.
Líkt og sagt hefur verið frá þá situr
Halldór Viðar í gæsluvarðhaldi grun-
aður um að hafa svikið út 600 til 800
iPhone-síma í Danmörku. Einnig hef-
ur það fengist staðfest að nokkur mál
gegn Halldóri vegna meintra fjársvika
séu til rannsóknar hjá lögreglu hér á
landi.
DV sagði frá því á miðvikudag að
eftir Halldór lægi löng slóð svika hér-
lendis.
Leyniskyttufræði í Danmörku
Auglýsing fyrir námskeiðið var mjög
ítarleg og þar komu fram öll helstu
atriði um dagskrá námskeiðsins. Þar
stóð meðal annars að innifalið í nám-
skeiðinu væri flug og uppihald í sex
daga, akstur fram og til baka á flugvöll-
inn, gisting í sex nætur og þrjár mál-
tíðir á dag á meðan þjálfun stæði yfir.
Einnig kom fram að þátttakendur yrðu
að geta stundað þjálfun í skotheldum
vestum og unnið undir álagi. Meðal
þess sem nemendur námskeiðsins
áttu að læra var áhættumat og ráðgjöf
vegna verkefna fyrir einstaklinga og
fyrirtæki, leyniskyttufræði; staðsetn-
ing út frá atferli/hugsun leyniskyttu,
skipulag og verndun á vinnusvæði, ör-
yggi við heimsóknarstað og flutning
viðskiptavinar, tæknivinna á vettvangi,
læra að þekkja hvort verið væri að veita
eftirför, skönnun rýmis og farartækja,
þjálfun með sprengjuhundum ásamt
líkamsrækt og fleiru.
Sérstaklega var tekið fram að leið-
beinendur á námskeiðinu væru
allir atvinnumenn í námskeið-
um sem þessum og þeirra á með-
al væri Michael Pedersen, danskur
uppgjafahermaður, sem sagt var að
starfaði við lífvarðarkennslu og sem
lífvörður. Námskeiðið myndi opna
starfsmöguleika um allan heim og þeir
sem lykju námskeiðinu fengju vinnu
sem lífverðir eða öryggisráðgjafar
stæðust þeir námskeiðið.
Var alltaf að fresta
„Lýsingar hans hljómuðu vel og hann
var mjög sannfærandi. Sonur minn
gleypti alveg við þessu,“ segir faðir
manns sem ætlaði á lífvarðarnám-
skeið Halldórs Viðars en var blekkt-
ur. Faðirinn hringdi sjálfur í Halldór
Viðar til þess að fá nánari lýsingar á
námskeiðinu og sagðist hafa fallið
fyrir lygum Halldórs Viðars.
Maðurinn og eiginkona hans
borguðu námskeiðsgjaldið fyrir
son sinn, tæpar 400 þúsund krón-
ur og létu skipta því í tvær greiðsl-
ur á VISA-korti. „Ég talaði við hann
í síma og hann var mjög sannfær-
andi. Hann hvatti hann til að skrá
sig og sagði að það væri auðvelt að
fá vinnu í kjölfarið. Hann ætlaði að
redda þeim húsnæði, svo áttu þeir
að fara út á land og fara á nám-
skeiðið. Svona námskeið eru til í
Danmörku og eru ágæt. Hann talaði
eins og hann væri umboðsmaður
fyrir þessi námskeið. Við borguðum
en svo dróst allaf að námskeiðið yrði
haldið og hann frestaði því alltaf“
segir maðurinn.
Segir Halldór hafa hótað
barsmíðum
Maðurinn segist margoft hafa hringt í
Halldór og spurst fyrir um námskeiðið
en hann hafi sífellt verið með afsakan-
ir á reiðum höndum. Hann segir þau
hjónin hafa gengið hart á eftir Halldóri
að fá endurgreitt áður en þau lögðu
fram kæru. Hann var búsettur erlend-
is og því fóru samskiptin fram í gegn-
um síma og tölvupóst. Meðal annars
ræddu þau við konu Halldórs sem þau
segja að hafi tekið þátt í blekkingum
hans. „Hann laug sig út úr öllu. Hann
er mjög klár í að blekkja fólk og virðist
vera algjörlega siðlaus maður. Við viss-
um að fyrir lægju kærur á hendur hon-
um hérna og konan mín kærði hann.
Þá hringdi lögreglan og sagði að Hall-
dór hefði sagt konuna vera að ofsækja
hann og reyna rústa mannorði hans
hér á landi,“ segir hann.
Maðurinn segir að á endanum hafi
Halldór Viðar hótað konunni hans.
„Hann hótaði konunni minni að hann
myndi koma til Íslands og ganga í
skrokk á henni,“ segir hann og segir
það hafa verið vegna kærunnar sem
þau lögðu fram og að þau hafi geng-
ið hart á eftir honum að fá peninginn
endurgreiddan.
Fengu borgað til baka
Þegar komið var fram á enda sum-
ars og Halldór var enn að fresta nám-
skeiðinu og búa til afsakanir segir
maðurinn að þau hafi áttað sig á því
að hann væri að svindla á þeim og
lögðu þess vegna fram kæru á hend-
ur honum. Þá hafði sonur þeirra tví-
vegis tekið sér frí til þess að fara út
á námskeiðið en því var alltaf fre-
stað á síðustu stundu. „Það voru þó
nokkuð margir sem töpuðu á þessu
en ég náði peningnum okkar til
baka með því að kæra hann til lög-
reglu. Við lögðum fram öll gögn og
tölvupósta og höfðum samband við
Valitor og náðum greiðslunum til
baka með herkjum. Ég veit að margir
höfðu borgað með debet eða lagt
inn á hann og fengu ekki peninginn
til baka. Posinn sem hann notaði
var skráður á fyrirtæki sem mamma
hans var með. Það var íslenskur posi
og þess vegna var hægt að bakfæra
greiðsluna,“ segir maðurinn.
Þegar hjónin fengu svo greitt til
baka þá létu þau kæruna niður falla.
„Svo drógum við kæruna til baka því
við fengum endurgreitt frá VISA. Við
þurftum ekkert að fara lengra með
þetta, við vissum að það voru fleiri
kærur á hendur honum. Hann flúði
land út af þessum kærum,“ segir
hann. Að sögn mannsins var nám-
skeiðið aldrei haldið og því einung-
is um enn eitt svindl Halldórs Viðars
að ræða. n
18 Fréttir 18.–20. janúar 2013 Helgarblað
„Við borguðum en
svo dróst allaf að
námskeiðið yrði haldið og
hann frestaði því alltaf.
Viktoría Hermannsdóttir
blaðamaður skrifar viktoria@dv.is
Rukkaði en
hélt aldRei
námskeiðið
n Halldór Viðar sagður hafa hótað barsmíðum vegna ákæru
Umfjöllun 16. janúar sl.
Lífvarðarnámskeiðið Hér er auglýs-
ingin fyrir lífvarðarnámskeiðið sem Halldór
ætlaði að halda. Námskeiðsgjaldið var
tæpar 400 þúsund krónur sem einhverjir
borguðu en námskeiðið var aldrei haldið.
Eins og sést þá var auglýsingin sannfærandi.
Í haldi Halldór
er í haldi í Kaup-
mannahöfn
grunaður um tug-
milljóna fjársvik.
Hér á landi liggur
eftir hann löng
slóð svika.