Dagblaðið Vísir - DV - 18.01.2013, Page 45
Sport 45Helgarblað 18.–20. janúar 2013
ÞESSU MÁTTU
EKKI MISSA AF
n Nágrannaslagur Chelsea og Arsenal n Magnaður árangur United á heimavelli Tottenham
„Þótt að
Arsenal geti
spilað góðan
fótbolta þá vantar
þennan herslumun
K
nattspyrnuunnendur ættu
að geta fundið eitthvað við
sitt hæfi um helgina en þá
fara fram hörkuleikir í ensku
úrvalsdeildinni. Stórleik-
ir helgarinnar fara fram á sunnu-
dag þegar Chelsea tekur á móti
Arsenal og Tottenham tekur á móti
Manchester United. Athyglisverð-
ir leikir fara einnig fram á laugardag
þegar lið í botnbaráttu mætast inn-
byrðis. Newcastle, sem gengið hefur
herfilega, mætir Reading og Wigan
mætir Sunderland. Manchester City,
sem unnið hefur 31 af 35 síðustu
heimaleikjum sínum, ætti að eiga
nokkuð þægilegt verkefni fyrir hönd-
um þegar liðið tekur á móti Fulham.
Sömu sögu má segja um Liverpool
sem tekur á móti Norwich en Liver-
pool vann síðasta leik þessara liða
5–2 í lok september.
Bæði lið þurfa sigur
Nágrannaslagur Chelsea og Arsenal
ætti að geta orðið hörkuleikur.
Chelsea er í þriðja sæti deildar-
innar með 42 stig á meðan Arsenal
er í því sjötta með 34 stig. Arsenal
þarf nauðsynlega á sigri að halda
til að halda lífi í baráttunni um sæti
í Meistaradeild Evrópu en Chelsea
þarf einnig að vinna til að halda lífi
í titilbaráttu sinni. Liðin mættust síð-
ast í lok september á Emirates og
þá fór Chelsea með sigur af hólmi,
2–1. Síðast þegar þessi lið mættust á
heimavelli Chelsea í deildinni vann
Arsenal magnaðan 5–3 sigur þar sem
Robin van Persie skoraði þrennu.
Magnaður árangur United
Tottenham hefur spilað vel undan-
farnar vikur og aðeins tapað einum af
síðustu tíu leikjum sínum í deildinni.
Á sama tíma hefur Manchester
United verið á mikilli siglingu og
unnið 9 af síðustu 10 leikjum sínum.
United hefur gengið ótrúlega vel á
White Hart Lane, heimavelli Totten-
ham, á undanförnum árum. Ef skoð-
aðir eru 10 síðustu leikir liðanna í
deildinni á þessum velli má sjá að
United hefur unnið sjö en þrír hafa
endað með jafntefli. Síðasti deildar-
sigur Tottenham á United á heima-
velli kom þann 19. maí 2001 þegar
Tottenham vann 3–1 með mörkum
frá Willem Korsten (2) og Les Ferdin-
and. Þess ber þó að geta að síðast
þegar þessi lið mættust í deildinni,
á Old Trafford í september, vann
Tottenham góðan 3–2 sigur. n
Laugardagur
Liverpool – Norwich
„Þetta fer 5–0 fyrir Liverpool. Rodgers
klikkar ekki á að hafa Daniel Sturridge frá
byrjun og strákurinn setur þrennu.“
Manchester City – Fulham
„Þetta verður öruggur heimasigur. Meist-
ararnir mega ekki við því að misstíga sig og
þeir klára þetta 3–0.“
Newcastle United – Reading
„Newcastle-liðið hefur verið slakt á þessu
tímabili en þeir landa sigri á móti Reading.
Þetta fer 2–1.“
Swansea – Stoke
„Þetta er heimasigur, 2–1. Swansea er
skemmtilegt lið á móti hundleiðinlegu
Stoke-liði. Þetta verður sigur fótboltans
og Michu stelur sviðsljósinu.“
West Ham – QPR
„Þetta er strembinn leikur. Ég ætla samt
að segja að QPR vinni 2–1 og Redknapp
nái að bjarga liðinu frá falli. Þetta verður
kærkominn útisigur.“
Wigan – Sunderland
„Ég hallast að því að Sunderland vinni
þetta 2–1 eftir að hafa dottið úr bikarnum í
vikunni. Ég held að Wigan fari niður í vor.“
WBA – Aston Villa
„Athyglisverður nágrannaslagur. WBA
hefur verið að gefa eftir en Villa með allt
lóðrétt niður um sig. Ég held að WBA taki
þetta 3–1.“
Sunnudagur
Chelsea – Arsenal
„Ég held að Chelsea vinni þennan leik 2–1.
Þó að Arsenal geti spilað góðan fótbolta
þá vantar þennan herslumun. Ég held að
hann komi ekki á meðan Wenger er við
stjórnvölinn.“
Tottenham – Manchester
United
„United hefur gengið vel á þessum velli á
undanförnum árum. Það er erfitt að segja
það en United er einfaldlega með lang-
besta liðið og ég held að þeir fari illa með
Tottenham í þessum leik. Þetta fer 4–1 og
Persie setur að minnsta kosti tvö mörk.“
Mánudagur
Southampton – Everton
„Ég held að Everton sé þetta mánudagslið
og ég held að það komi sér í gegnum þennan
leik með herkjum. Þeir vinna þetta 1–0 og
Baines skorar sigurmarkið úr aukaspyrnu.“
Sturridge með þrennu
Kristinn Kjærnested, formaður knattspyrnudeildar KR og stuðningsmaður Liverpool, er
spámaður helgarinnar. Kristinn spáir því að sínir menn í Liverpool vinni auðveldan sigur á
Norwich, Manchester United vinni öruggan sigur á Tottenham og Chelsea leggi Arsenal
að velli. Það er vonandi að Kristni gangi betur en spámanni síðustu helgar, Adolf Inga
Erlingssyni, sem fékk einungis tvo leiki rétta af tíu.
Vissir þú …
… að Sunderland hefur leikið flesta leiki
allra liða í úrvalsdeildinni án þess að fá
vítaspyrnu. Þeir eru orðnir 33.
… að varnarmenn Norwich
hafa skorað 33% marka
liðsins í úrvalsdeildinni í vetur.
… að Ashley Williams,
varnarmaður Swansea,
hefur varið 33 skot í
deildinni vetur. Enginn
varnarmaður hendir sér
fyrir fleiri skot.
… að fimm leikmenn Chelsea hafa tekið
vítaspyrnur fyrir liðið í deildinni í vetur.
… að 16 leikmenn hafa
skorað fyrir Manche-
ster United í deildinni í
vetur. Ekkert lið á jafn
marga markaskorara.
… að Steven Gerrard
hjá Liverpool er eini
leikmaðurinn í deildinni
sem hefur spilað allan
tímann í öllum leikjum
síns liðs.
… að 34 stig Arsenal úr 21 leik í deildinni
eru fæst stig liðsins síðan Arsene Wen-
ger tók við stjórn þess.
… að Manchester-liðin hafa bæði klúðr-
að 5 vítaspyrnum, samtals 10. Öll hin 18
lið deildarinnar hafa samanlagt klúðrað
11 spyrnum.
… að Arsenal hefur aðeins unnið 1 leik
af 16 í úrvalsdeildinni þegar Mike Dean
hefur dæmt. HEIMILD: OPTA
Einar Þór Sigurðsson
blaðamaður skrifar einar@dv.is
Staðan í ensku
úrvalsdeildinni
1 Man.Utd. 22 18 1 3 56:29 55
2 Man.City 22 14 6 2 43:19 48
3 Chelsea 21 12 5 4 43:19 41
4 Tottenham 22 12 4 6 39:27 40
5 Everton 22 9 10 3 35:26 37
6 Arsenal 21 9 7 5 40:24 34
7 WBA 22 10 3 9 31:30 33
8 Liverpool 22 8 7 7 35:28 31
9 Swansea 22 7 9 6 31:26 30
10 Stoke 22 6 11 5 21:24 29
11 West Ham 21 7 5 9 24:27 26
12 Norwich 22 6 8 8 24:34 26
13 Fulham 22 6 7 9 33:38 25
14 Sunderland 22 6 7 9 24:29 25
15 Southampton 21 5 6 10 28:38 21
16 Newcastle 22 5 6 11 27:39 21
17 Wigan 22 5 4 13 23:40 19
18 Aston Villa 22 4 7 11 17:42 19
19 Reading 22 3 7 12 26:42 16
20 QPR 22 2 8 12 17:36 14
Barátta Það er jafnan hart tekist á þegar
Arsenal og Chelsea mætast. Hér lætur
Kieran Gibbs Juan Mata finna fyrir því í
leik liðanna í lok september en þá vann
Chelsea góðan útisigur, 2–1. MYND REUTERS