Dagblaðið Vísir - DV - 18.01.2013, Síða 50
50 Fólk 18.–20. janúar 2013 Helgarblað
Á stefnumót
með Clinton
L
eonardo DiCaprio á stefnumót
með eldri manni, og giftum í
þokkabót. Nefnilega Bill Clinton!
Stefnumótið við Bill keypti
DiCaprio á uppboði Sean Penn til
styrktar bágstöddum á Haítí síðasta
laugardag. Leonardo bauð hundrað
þúsund dollara í stefnumótið en var
yfirboðinn. Hann safnaði því liði
og fékk fjóra aðra með sér en hann
og ónefnd kona buðu samtals tvö
hundruð þúsund dollara hvort, eða
25 milljónir króna. Mikið fé safnaðist
til góðgerðamála á söfnun Penn. Eða
2,25 milljónir dollara.
n Leonardo DiCaprio bauð í stefnumótið á uppboði
Tveir góðir saman
Það er ekki ódýrt,
stefnumót með Bill
Clinton, 25 milljónir
íslenskra króna borgar
DiCaprio.
Villtur, óþekkur
og sjóðheitur
Þ
ótt Harry prins sé ekki efstur
á lista yfir erfingja bresku
krúnunnar er hann efstur á
lista yfir heitustu piparsveina
ársins, að mati lesenda tímaritsins
Town & Country. Harry, sem er 28
ára, bar sigurorð af frægum karl-
mönnum á borð við George Cloo-
ney og fyrrverandi kærasta Taylor
Swift, Conor Kennedy.
Í umsögn um prinsinn kemur
fram að öll sú hneykslanlega hegð-
un sem hann hafi orðið ber að síð-
ustu árin sé allt partur af sjarma
hans. „Hann er villtur og óþekkur
þótt hann sé konungborinn. Hann
elskar fallegar konur, hangir með
þotuliðinu og drekkur allt of marga
drykki. Hann lifir í núinu og þess
vegna elskum við hann. Hann er
kannski ekki sá klárasti enda sleppti
hann háskólanámi til að fara beint í
herskóla en hann er svalari og meira
heillandi en eldri bróðir hans, eins
dásamlegur og Vilhjálmur er.“
n Harry prins er heitasti piparsveinn ársins
Rauðhaus
Prinsinn þykir mun
svalari en eldri
bróðirinn.
Villtur Prinsinn hefur hneykslað marga
upp á síðkastið en samkvæmt lesendum
tímaritsins Town & Country er það allt
hluti af sjarma hans.
L
eikarinn Victor Garber, sem
lék meðal annars Jack Bristow
í Alias og skipasmiðinn Thom-
as Andrews í Titanic, staðfesti
í vikunni það sem hann hélt að all-
ir vissu nú þegar. Victor er sem sagt
samkynhneigður. „Ég vil helst ekki
tala um það en það vita það allir,“
sagði Garber, sem er 63 ára, í viðtali
við E!-sjónvarpsstöðina.
Leikarinn, sem hefur verið til-
nefndur til Emmy-verðlauna, segist
aldrei hafa verið inni í skápnum.
„Ég og maki minn, Rainer Andrees-
en, höfum verið saman í tæp 13 ár.
Við búum í Greenwich Village og
elskum báðir New York,“ sagði leik-
arinn en Andreesen, sem er lista-
maður og fyrirsæta, mætti á Golden
Globe-verðlaunaafhendinguna
með Garber.
Garber leikur lítið hlutverk í
kvikmyndinni Argo, er vinur Bens
Affleck og Jennifer Garner og mont-
inn af þeirri vináttu, en Affleck leik-
stýrði Argo og Jennifer lék með Vict-
or í Alias. „Þetta er frábært. Að sjá
hann rísa sem einn af flottustu leik-
stjórunum. Og að fólk elski þessi
mynd skiptir öllu máli.“
n Victor Garber viðurkennir samkynhneigð
Á föstu í 13 ár
Victor Garber
Leikarinn segist
aldrei hafa verið
inni í skápnum.
Hann hafi bara ekki
viljað ræða þetta
hingað til.
S
ögusagnir um að Elton John
og David Furnish hafi eign-
ast annað barn hafa verið
staðfestar.
Yngri sonur þeirra
fæddist í Los Angeles þann 11. janú-
ar með aðstoð staðgöngumóður og
hefur hann fengið nafnið Elijah Jos-
hep Daniel Furnish-John. Fyrir eiga
þeir Zachary sem fæddist í desem-
ber 2005. „Við höfum báðir þráð að
eignast börn og nú eigum við tvo
syni. Við trúum þessu varla,“ segir
í tilkynningu frá John og Furnish
sem Hello! Magazine fékk. „Fæðing
annars sonar okkar fullkomnar fjöl-
skylduna. Það er erfitt að lýsa til-
finningum okkar núna. Við erum
himinlifandi, glaði og spenntir.“
Ekki hefur verið gefið upp hver
staðgöngumóðirin er og verður ekki
gert. „Elton og David þykir mjög
vænt um þessa konu, elska hana
eins og systur og munu standa í
þakkarskuld við hana það sem eftir
er,“ segir heimildarmaður The Sun
sem er náinn parinu. „Hún hefur að
sjálfsögðu fengið ríkulega umbun
en það verður ekki gefið upp hver
hún er.“
Hafa eignast annan son
n Himinlifandi með fjölskylduna
Elton John og
David Furnish
Parið með eldri son
sinn, Zachary.