Dagblaðið Vísir - DV - 18.01.2013, Page 52
52 Fólk 18.–20. janúar 2013 Helgarblað
Hvað er að
gerast?
18.–20. janúar
Föstudagur18
jan
Laugardagur19
jan
Sunnudagur20
jan
Sally Matthews í Hörpu
Breska sópransöngkonan Sally Matthews
flytur nokkrar af aríum Mozarts en hún
hefur vakið verðskuldaða athygli fyrir
túlkun sína á verkum hans. Hún er ein
eftirsóttasta söngkona sinnar kynslóðar
í Evrópu en öll helstu óperuhús álfunnar
eru á meðal fastra viðkomustaða hennar
og má þar nefna Vínaróperuna, Covent
Garden og Glydebourne-hátíðina. Stjórn-
andi er Eivind Aadland
Eldborg, Harpa 19.30
Lögin hans Óda
Flottur hópur hljóðfæraleikara og
söngvara með þau Óskar Pétursson og
Helenu Eyjólfs í fararbroddi taka fyrir öll
þekktustu lögin sem Óðinn Valdimarsson
flutti á sínum farsæla en stutta ferli.
Græni hatturinn 20.00
Tríó Glóðir og Sigríður
Thorlacius
Tríó Glóðir saman-
standa af Hafsteini
Þórólfssyni söngvara,
Jóni Gunnari
Biering Margeirssyni
gítarleikara og Ingólfi
Magnússyni bassaleikara.
Þeir hafa í sameiningu útsett dægur-
lagaperlur Oddgeirs Kristjánssonar úr
Eyjum og gáfu út á plötunni Bjartar vonir
í lok árs 2011. Gestasöngvari á plötunni
var Sigríður Thorlacius en þau koma nú
saman aftur og flytja lög Oddgeirs og
Jóns Múla.
Salurinn Kópavogi 20.00
Einu sinni var ég frægur
Sýningin gerist á Kanarí og fjallar um
ferð eldri borgara frá Akureyri til Kanarí
sem fer úr böndunum. Leikararnir nota
sögur úr eigin reynslu, Gestur Einar þolir
ekki Gogga úr Stellu í Orlofi, Alli Bergdal
þolir ekki Skralla trúð og Þráinn Karlsson
þolir ekki þegar fólk segir við hann; mikið
líturðu vel út! Við sýninguna fléttast
leikhústónlist úr þeim verkum sem hafa
staðið upp úr á 50 ára leiklistarferli.
Hlaðan (Litli Garður) 20.00
Skoppa og Skrítla
Í sýningunni er
fjallað um flest
það sem börn á
leikskóla aldri fást
við í sínu daglega
lífi, svo sem liti,
tölur, rím og allt
tengist það töfraheimi
leikhússins á einhvern hátt. Áhorfendur
eru virkjaðir með í söng og dansi og við að
leysa hinar ýmsu þrautir sem á vegi verða
í framvindu leiksins. Skoppa og Skrítla
nota líka tákn með tali svo að sem flest
börn fái notið sýningarinnar. Í verkinu
er leitast við að örva og fræða börnin á
skapandi hátt.
Borgarleikhúsið 13.00
Af sama kalíberi
og Airwaves
n Ein af stærstu tónlistarhátíðum heims haldin á Íslandi
Þ
að er mikill heiður að vera
boðið að spila á Sónar og
hvað þá að fá að halda há
tíðina. Það er gríðarlegur
mikill fengur í þessu,“ segir
Margeir Ingólfsson, einnig þekktur
sem Dj Margeir. Hann er einn af
þeim sem stendur fyrir tónlistarhá
tíðinni Sónar sem haldin verður hér
á landi um miðjan febrúar.
Framsækin tónlist
Sónar er ein af stærstu tónlistar
hátíðum heims og er þekkt merki.
Hátíðin var fyrst haldin fyrir 20 árum
í Barcelona og hefur verið árlegur
viðburður síðan. Hún hefur farið
fram á stöðum eins og Sao Paolo,
Höfðaborg, Tókýó og nú verður hún
haldin á Íslandi, fyrstu Evrópulanda
fyrir utan Spán. Margeir segir að þar
sé lögð mikið áhersla á listamenn
sem hafa einhverja tengingu við
elektróník. „Þeim finnst ekki leiðin
legt að bóka listamenn sem spila
framsækna tónlist en það vill þannig
til að það er mikil gróska í elektróník
í framsækinni tónlist í dag.“
Opnar dyr fyrir íslenskt
tónlistarfólk
Sónar er hátíð sem skipuleggjendur
annarra hátíða líta til þegar þeir
ákveða atriðin hjá sér. „Þetta hefur
því mikla þýðingu fyrir íslenskt tón
listarlíf. Við sjáum bara hvað Iceland
Airwaves hefur gert og Sónar er hátíð
af því kalíberi að hún mun örugglega
gera sitt líka. Bæði að auka áhuga á
íslenskum tónlistarmönnum og að
opna dyr fyrir þá út í heim.“
Gera leiðinlegan árstíma
skemmtilegan
Aðspurður um ástæðu þess að Són
ar verði haldin hér á landi segir Mar
geir að það hafi komið hvatning
frá Icelandair og opinberum aðil
um um að sækja um og búa þannig
til menningartengdan viðburð yfir
vetrartímann. „Við þurftum svo
lítið að berjast fyrir þessari dagsetn
ingu því þeim úti fannst þetta ekki
spennandi tími en við náðum þessu
í gegn. Það er ekkert að gerast hér á
þessum tíma og fáir ferðamenn. Af
hverju ekki að breyta leiðinlegasta
tíma ársins í þann skemmtilegasta?“
segir hann og bætir við að ef vel takist
til, eins og allt stefni í, þá verði hátíð
in haldin árlega hér á landi í 5 til 6 ár.
Nánast uppselt
Búist er við að um 2.500 manns sæki
hátíðina og nú þegar hafa 500 erlendir
hátíðargestir keypt miða. „Við vorum
með það markmið að fá 500 manns
til landsins og erum búin að ná því
mánuði áður en hátíðin hefst þannig
að þetta er frábært.“ Hann segir að ís
lensku miðarnir hafi einnig selst vel.
Rjóminn af íslenskum
listamönnum
Hátíðin verður haldin í Hörpu dagana
15. og 16. febrúar en það verða tæp
lega 50 listamenn sem koma fram.
Margeir tekur sem dæmi James Bla
ke, Squarepusher, Modeselektor og
Alva Noto & Ryuichi Sakamoto. „Svo
erum við með rjómann af íslenskum
listamönnum eins og GusGus, Ásgeir
Trausta, Retro Stefson, Ólaf Arnalds
og fleiri. Mugison kemur líka fram og
ætlar að spila á mistrumentið sitt en
það er heimagert hljóðfæri.“
Líf í öllu húsinu
Ólíkt Airwaves fer Sónar fram ein
göngu í Hörpu en sett verða upp tvö
aukasvið í tónlistarhúsinu og annað
þeirra verður á fyrstu hæðinni sem
vísar út á flóann. „Svo búum við til
lítinn næturklúbb í bílakjallaranum
sem mér finnst rosalega spennandi
því kjallarinn er hrár og skemmtileg
ur. Við vildum setja þetta þannig upp
að það væri líf í öllu húsinu. Harpan
verður iðandi af lífi,“ segir hann að
lokum. n gunnhildur@dv.is
Nokkrir erlendra listamanna
sem koma fram á Sónar
Alva Noto & Ryuichi Sakamoto
Samstarf hins þýska Alva Noto og japanska tónskáldsins Ryuichi Sakomoto náði
hámarki árið 2011 þegar þeir gáfu út plötuna “summvs” þar sem elektrónísk og akústísk
tónlist blandast saman. Sakamoto vann til Óskarverðlauna fyrir tónlist sína í myndinni
The Last Emperor. Þeir munu spila í Hörpu á Sónar og eru skipuleggjendur hátíðarinnar
stoltir af því að fá tvíkeykið til Íslands.
James Blake
Bretinn James Blake er einn af aðalnúm-
erunum í tónlistarsenunni í dag. Þetta er
önnur heimsókn hans til Íslands en hann
kom fram á Airwaves-hátíðinni árið 2010
sem plötusnúður. Í þetta skiptið mun hann
koma tvisvar fram, á föstudagskvöldinu
sem plötusnúður í bílakjallara Hörpu og á
laugardagskvöldinu með hljómsveit sinni.
Þar mun James Blake spila nokkur af sín-
um þekktari lögum eins og til dæmis, Limit
To Your Love og The Wilhelm Scream,
ásamt efni af væntanlegri plötu sem
beðið er með mikilli eftirvæntingu.
Modeselektor
Elektrónísk hljómsveit frá Berlín sem
samanstendur af Gernot Bronsert og
Sebastian Szary en sagt er að tónlist
þeirra sé undir áhrifum af IDM, glitch,
electro house og hip hop. Liðsmenn hafa
þó sjálfir sagt í viðtali að þeir vilji ekki
láta festa sig við ákveðinn tónlistarstíl
eða -stefnu. Modeselektor hefur meðal
annars remixað Björk og Radiohead.
Dj Margeir Einn af
höfuðpaurunum bak
við Sónar á Íslandi.
MyND eyþóR áRNASON