Dagblaðið Vísir - DV - 18.01.2013, Blaðsíða 53
Fólk 53Helgarblað 18.–20. janúar 2013
Þ
egar ég var lítil þá var það
minnisstæðast að á afmælis
daginn minn var alltaf svo
mikill snjór og óveður og því
þurfti svo oft að fresta afmælinu
mínu,“ segir Heiðrún Sif Garðars
dóttir sem verður þrítug í dag,
föstudag. „Þetta árið er þó betri
færð, nánast sumarleg,“ segir hún
og því tekst henni vonandi að fagna
tímamótunum með vinum og fjöl
skyldu á laugardag, án þess að þau
verði veðurteppt. „Þetta verður
stór veisla, vinir og fjölskylda,“ seg
ir hún.
Á sjálfan afmælisdaginn ætlar
hún að að gleðjast með vinkonum
sínum á Hótel Rangá en þar ætla
þær virkilega að láta dekra við sig.
„Ég tek tvær vinkonur mínar með –
þetta verður skvísuferð. Við ætlum
að borða góðan mat og fara í heita
pottinn. Þetta verður kampavín
og kavíar,“ segir hún glettin og til
hlökkunin leynir sér ekki. Heiðrún
býr á Akranesi og stundar fjarnám
við Háskólann á Akureyri þar sem
hún nýtur þess að vera í kennara
námi. Hún segist einbeita sér að
kennslu fyrir yngstu börn grunn
skólanna en vegna námsins ferðast
hún reglulega norður og segir það
skemmtilega tilbreytingu.
G
uðrún Lára Sveinbjörns
dóttir, íþróttakennari í
Klettaskóla, verður þrítug
á föstudag og til þess að
fagna tímamótunum ætla hún og
vinkonur hennar að halda stór
veislu með Barbieþema. „Ég er
að lita hárið á mér ljóst fyrir veisl
una, þetta á að vera svona smá
djók,“ segir Guðrún í samtali við
DV. „Þetta er með einni vinkonu
minni, ein er að verða 29 ára og
ég verð þrítug.“ Afmælið verður
þó ekki haldið alveg á næstunni
og um helgina ætlar hún að fagna
með sínum nánustu.
Minnisstæðasti afmælisdag
ur Guðrúnar Láru er síðasti stór
afmælisdagurinn, en þegar hún
varð 25 ára fór hún ásamt móður
sinni til New York þar sem þær sáu
Mamma Miasöngleikinn á Broad
way.
Guðrún hefur undanfarið verið
í fæðingarorlofi og er núna að hefja
störf aftur í Klettaskóla sem hún
segir vera afar gefandi starf. „Þetta
er æðislegt starf. Ég hlakka til að
fara í vinnuna á hverjum degi,“
segir hún en áður en hún hóf form
lega störf þarna var hún mikið með
annan fótinn í Klettaskóla og vann
með þeim ýmis verkefni til að fá
sem mesta reynslu. „Ég vissi alveg
hvað mig langaði að gera,“ segir
hún og hlær.
Skvísuferð
Litar hárið ljóst
fyrir Barbie-afmæli
Heiðrún Sif ætlar að halda upp á afmælið með stæl
Guðrún Lára íþróttakennari elskar vinnuna sína
n Missirinn og blaðamannsstarfið
Sölvi minnist bróður síns
F
jölmiðlamaðurinn Sölvi
Tryggvason minnist bróður
síns, Högna Erps, sem lést
langt fyrir aldur fram, á Face
booksíðu sinni. „Högni Erpur bróð
ir minn hefði orðið fertugur í dag ef
hann hefði fengið lengra líf. Hann
fékk aðeins að lifa í tíu ár, en minn
ing hans lifir. Ég hef reynt eins og
ég get að láta örlög hans kenna mér
að taka engu sem sjálfsögðum hlut.
Þakklæti er stærsta gjöf sem til er. Í
henni felst munurinn á hamingju og
óhamingju. Ást og friður.“ Sölvi og
bróðir hans voru samfeðra og lést
Högni Erpur í hörmulegu slysi þegar
móðir hans sofnaði út frá logandi
kerti um jól. Sölvi var þá fjögurra
ára. Hann ræddi um missinn í
helgar viðtali í DV árið 2011 og sagð
ist aldrei hafa jafnað sig. Missirinn
hefði ýtt honum í starf blaðamanns.
„Í mínu tilfelli hefur þetta gert mig
að manni sem er sífellt að pæla og
hugsa um reynslu annarra og líðan.
Þessar pælingar hafa líklega ýtt mér
í blaðamannsstarfið.“
Þakklátur Sölvi hefur reynt að
láta örlög bróður síns kenna sér að
taka engu sem sjálfsögðum hlut.
Vissi hvað hún vildi
Guðrún Lára starfar í
Klettaskóla og segist
hlakka til að mæta til
vinnu á hverjum degi.
Mynd Guðrún Lára
M
ér brá smá fyrst þegar
ég sá þetta því það hafði
enginn haft samband við
mig, segir Þorbjörg Mar
inósdóttir, betur þekkt
sem Tobba Marinós, sem er til um
fjöllunar í fyrirlestri í Háskóla Ís
lands í dag, föstudag.
Tobba segist vera vön því að fá
yfir sig gagnrýni þar sem hjólað er
í hana en ekki verk hennar. Því var
hún með varann á sér varðandi
fyrir lesturinn og setti sig í sam
band við Öldu Björk Valdimars
dóttur sem heldur fyrirlesturinn og
fékk þá nánari upplýsingar um er
indið Ég er ekki þunn Tobba Mar
inós. Alda Björk reyndist vera að
vinna að doktorsverkefni sem fjallar
um Jane Austen í samtímanum og
kafli í verkefninu fjallar um skvísu
sögur. Tobba hefur sjálf skrifað tvær
slíkar auk sjálfshjálparbókarinnar
Dömusiða og þær eru því gott dæmi
um slíkar bækur í íslensku bókaflór
unni. Sú fjórða í þegar í smíðum
enda mikil eftirspurn eftir bókum
Tobbu. Í erindinu fer Alda meðal
annars yfir það hvernig Tobba hefur
verið gagnrýnd fyrir viðhorf sín, útlit
og póstfemínisma í íslenskri menn
ingu. Það er því í raun verið að fjalla
um gagnrýni á Tobbu en ekki Tobbu
sjálfa eins og svo oft áður. „Þetta eru
bara góðar og gildar pælingar og ég
hef því hugsað mér að mæta þarna
sjálf og mamma og amma líka. Ég
hugsa að það þori enginn að vera
með kjaft þegar þrír ættliðir mæta
þarna,“ segir Tobba og skellir upp úr.
„Fyrirlitningin er svo svakaleg“
Tobba segist vera tilbúin til þess
að taka uppbyggilegri gagnrýni en
henni blöskri þegar líkamsburðir
hennar og uppstillingar á bókakáp
um séu til umræðu í bókagagnrýni,
en ekki textinn sjálfur. „Það er alveg
steikt hvernig Páll Baldvin tók þetta
fyrir á sínum tíma,“ segir Tobba.
„Það hefði aldrei neinum öðrum
gagnrýnanda dottið í hug að eyða
hálfri gagnrýninni í umfjöllun um
það hvernig höfundurinn stendur á
einhverri mynd. Ég sé það ekki fyrir
mér að í bókagagnrýni um verk Stef
áns Mána þá væri það tekið fyrir í
smáatriðum hvernig hann bæri sig á
höfundarmynd kápunnar, hvað það
þýddi eða hvort hann væri að reyna
að virðast grennri eða vöðvastæltari.
Það var bara kvenfyrirlitning að lýsa
svona. Svo klykkti hann út með að
segja að það hlytu karlmenn að hafa
skrifað þessa bók,“ segir Tobba og
segir umfjöllun Öldu því afar áhuga
verða fyrir sig.
allir reknir á hol
„Fyrirlitningin er svo svakaleg.
Þetta er svo ómálefnalegt og kjána
legt því Páll er svo ágætur gagn
rýnandi,“ segir hún og segist sem
höfundur vilja uppbyggilega gagn
rýni. En Páll Baldvin var ekki einn
í sinni gagnrýni sem var yfirleitt
á Tobbu sjálfa og þá gjarnan sett
fram til þess að niðurlægja hana.
Þrátt fyrir þessa gagnrýni bendir
Tobba á að bækurnar hennar selj
ist afar vel. Hennar markmið er að
skemmta fólki og hún segir að það
veiti ekki af um þessar mundir að
vera skemmtilegur.
„Ég vildi óska þess að það væru
fleiri konur sem væru að skrifa og
láta frá sér efni en þegar þær sjá
svona gagnrýni þá hrökkva þær í
baklás. Ég hef rætt við margar kon
ur sem hafa spurt mig hvernig ég fór
að því að fá mínar bækur útgefnar
en þær eru dauðhræddar við gagn
rýnina. Þær eru bara skíthræddar.
Fólk þorir þessu ekki vegna þess að
við rekum alla á hol,“ segir hún.
Á sínum forsendum
„Ég er dauðfeginn að einhver sé
að taka upp þennan punkt, til dæm
is að það séu til fleiri angar af femín
isma en sá sem er helst ráðandi
í umræðunni. Að fólk megi vera
femínistar á sínum eigin forsendum
á meðan það er að berjast fyrir því
sem skiptir máli,“ segir Tobba.
astasigrun@dv.is
ný bók í vinnslu
Bækur Tobbu hafa
selst vel og er nú sú
fjórða í smíðum.
„Það Þorir enginn
að vera með kjaft“
n Tobba vissi ekki af umfjöllun um sjálfa sig í HÍ
É
g fæ mér kannski eina köku
með stelpunum,“ segir Helgi
Seljan fréttamaður sem verð
ur 34 ára í dag, föstudaginn
18. janúar. Hann segir að það verði
ekki mikið tilstand þessa helgina:
„Ég ætla nú eiginlega að fresta
þessu afmæli í svona viku eða svo,
ég verð í brasi við að standsetja
íbúðina mína og svona.“
Helgi Seljan – 34 ára á föstudag
Frestað í bili