Dagblaðið Vísir - DV - 18.01.2013, Side 54
54 Fólk 18.–20. janúar 2013 Helgarblað
B
ókaútgefandinn Jóhann Páll Valdimars
son er á ferðalagi í Dúbaí með eigin
konu sinni, Guðrúnu Sigfúsdóttur,
þar sem þau fagna brúðkaups
afmæli sínu. Hann lítur ofgnóttina stór
um augum og í stórri verslunarmiðstöð
þar í borg hugsaði hann til Melrakkasléttu
þar sem fjölskyldan dvelur oft á sumrin.
„Hef aldrei séð aðra eins ofgnótt eins og í
Dubai. Ekki seinna vænna að huga
að verslunarmiðstöðinni á
Melrakkasléttu.“
N
ý kvikmynd Marteins
Þórssonar um áfeng
isþyrsta þingmann
inn, Leif Sigurðarson,
verður frumsýnd í
kvöld, föstudaginn 18. janúar.
Myndin er sögð fjalla um fall
manns en um leið fall þjóðar
með tilvísun í hroka, stærilæti
og meðvirkni þeirra sem fylgj
ast með af hliðarlínunni.
Leiðast predikanir
Sjálfur er Marteinn alkó
hólisti og hefur lengi langað
til þess að gera kvikmynd um
alkóhólisma. „En skemmti
lega mynd! Ekki skandi
navískt og leiðinlegt sósíal
drama, ég vildi bjóða í partí,“
segir Marteinn í spjalli við blaða
mann og segist leiðast fanatík og
predikanir. „Mér leiðast predik
anir, mér leiðist fólk sem hættir að
reykja og drekka og finnur sér far
veg fyrir fíknina í fanatík. Margir
hætta að drekka á hnefanum,
halda síðan áfram í fíknihegðun og
það kemur alls kyns bull frá þeim.
Tilgangurinn fyrir mér þegar ég
hætti að drekka var að finna jafn
vægi.“
Býður Íslendingum í partí
Hann segist tala mjög frjálslega
um alkóhólisma og finna fyrir því
að sjúkdómurinn er tabú í samfé
laginu. „Ég tala mjög frjálslega um
alkóhólisma. Flestir eru opnir fyrir
því að ræða um alkóhólisma, nema
þeir sem eru sjálfir veikir og nokkr
ir fjölskyldumeðlimir. En margir
átta sig ekki á því hversu mjög
alkóhólismi litar íslenskt samfé
lag. Það er þess vegna sem ég býð
fólki í partí að skoða þetta íslenska
fyllerí og hvað gerist þegar maður
í valdastöðu er veikur, hvaða áhrif
það getur haft á heila þjóð. Svo
ekki sé talað um meðvirknina sem
fylgir og niðurbrotið á siðferðinu.“
Handrit á mettíma
Marteinn byggir mynd sína upp
eins og spennumynd. „Maður vill
fá fólk í bíó,“ segir hann og hlær.
„Í myndinni eru fjölmörg atriði
sem eru úr raunveruleikanum.
Mínum og annarra. Hugmyndin
að myndinni kviknaði þegar ég
leikstýrði myndinni Roklandi. Þá
komu að máli við mig Elma Lísa
Gunnarsdóttir og Ólafur Darri og
stungu upp á því við mig að gera
kvikmynd um alkóhólisma. Við
gerðum saman stuttmyndina Pró
mill. Þetta verkefni hefur því verið
að gerjast nokkuð lengi og það var
met hvað handritið varð fljótt til.
Ég byrjaði að skrifa í nóvember
mánuði og fyrsta handrit var klárt
stuttu fyrir jól. Þá tók við Guð
mundur Óskarsson sem fullkláraði
handritið.“
Árni Johnson gekk inn í tökur
Með aðalhlutverk fara Ólafur Darri
sem leikur Leif og María Birta
Bjarnadóttir, sem leikur ástkonu
hans, Æsu. Elma Lísa Gunnars
dóttir, Nanna Kristín Magnús
dóttir, sem leikur eiginkonu Leifs,
Þorsteinn Bachmann sem er í hlut
verki forsætisráðherra og Helgi
Björnsson sem fer með hlutverk
eins konar útrásarvíkings. Af öðr
um leikurum má nefna mynd
listarmanninn Snorra Ásmunds
son og Moniku Ewu Orlowsku en
nokkrir þingmenn reyna einnig
fyrir sér í leiklistinni, þeir Róbert
Marshall, Þráinn Bertelsson, Guð
mundur Steingrímsson og Árni
Johnsen.
Marteinn segir frá því að það
hafi nú verið óvart að það kom til
að Árni Johnsen leikur í myndinni.
„Hann Árni þekkir Darra að
eins. Í tökum á Djúpinu fékk hann
að gista heima hjá Árna. Við vorum
að skjóta atriði með þeim Þráni
Bertels, Guðmundi Steingríms
og Róberti Marshall og Darra
þegar Árni gekk inn í mynd. Hann
gengur hreinlega inn í atriðið og
heilsar Darra með virktum. Kvik
myndatökuvélarnar rúlla og við
héldum áfram að skjóta. Árni gerði
sér enga grein fyrir því að hann
væri í mynd. Við hringdum svo
seinna og báðum hann um að fá
að nota þetta atriði og hann varð
við því. Þetta var mikil heppni,“
segir Marteinn og hlær. n
n Þrjú ár síðan leikstjórinn hætti að drekka
„…margir
átta sig
ekki á því hversu
mjög alkóhólismi
litar íslenskt sam-
félag
Árni Johnsen
lék óvart í Xl
Raunverulegt atriði Hér sést Árni Johnsen heilsa Darra með virktum. Hann gekk inn í miðja töku án þess að átta sig á því.
Hættur í þrjú ár „Mér leiðist fólk
sem hættir að reykja og drekka
og finnur sér farveg fyrir fíknina í
fanatík,“ segir Marteinn sem sneri
sjálfur við blaðinu fyrir þremur árum. Ofgnótt í Dúbaí
Veikindin
tóku sig upp
V
eikindi Jóhannesar Jónssonar hafa
tekið sig upp á ný. Hann hefur látið
af störfum sem framkvæmdastjóri fé
lagins ÍslandVerslun hf. sem rekur
verslanir Iceland og tekur við sem stjórnar
formaður og ætlar að verja tíma sínum og
kröftum í að takast á við veikindin.
J
á, það er einfaldlega brjálað
að gera fyrir innflutnings
hátíðina sem verður haldin
dagana 21. janúar til 31. jan
úar, segir Björg Magnúsdóttir sem
stendur í ströngu vegna opnunar
á nýjum Stúdentakjallara.
Björg er dagskrárstjóri
Stúdentakjallarans og gaf
forsmekkinn af því sem koma
skal á fimmtudagskvöld í sér
stöku opnunarhófi. Hún segir
dagskrána munu taka mið af fjöl
breyttu lífi háskólanema.
„Hér er stór hópur háskóla
nema sem á börn og því verður
hér oft fjölskylduvæn dagskrá yfir
daginn – fyrir börn og unglinga
– en á kvöldin er auðvitað mikið
fjör,“ segir Björg frá. Meðal þess
sem er á dagskrá á næstunni er
rokkabillíkvöld, pub quiz, spila
kvöld og grínkvöld.
Í Stúdentakjallaranum er
einnig boðið upp á mat og
verðinu er haldið í algjöru lág
marki. „Markhópurinn okkar er
fátækir námsmenn: þetta er ekki
batterí sem á að koma út með
hagnaði,“ segir Björg.
n Björg Magnúsdóttir stendur í ströngu
sendi 92 tölvupósta
Á einum degi