Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.2013, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.2013, Blaðsíða 2
2 Fréttir 17.–21. maí 2013 Helgarblað Rekstur nálgast jafnvægi n Ný stjórn tekur við DV ehf. Á aðalfundi DV sem haldinn var 8. maí tók Þorsteinn Guðnason rekstrarhag­ fræðingur sæti sem stjórnar­ formaður. Aðrir í stjórn eru Elín G. Ragnarsdóttir, Guðmundur Jón Sig­ urðsson, Ingibjörg Dögg Kjartans­ dóttir og Reynir Traustason. Konur hafa 40 prósenta vægi í aðalstjórn. Fráfarandi stjórn voru færðar þakkir fyrir störf sín. Ólafur M. Magnússon stjórnarformaður gaf ekki kost á sér til áframhaldandi setu. Ólafur hefur verið í lykilhlut­ verki við endurreisn félagsins og voru honum þökkuð góð og óeigin­ gjörn störf. Eftir taprekstur og erfiðleika undanfarinna ára er að komast á jafnvægi í rekstri félagsins. Sala fyrstu þrjá mánuði ársins 2013 jókst lítillega og var 102 milljónir króna samanborið við 99 milljónir árið 2012. Kostnaður var 99 millj­ ónir króna á móti 112 milljónum króna árið á undan. Rekstarhagn­ aður var því 1,8 milljónir króna en árið á undan var tapið 12,5 milljón­ ir króna. Aðgerðir á síðasta ári hafa skilað sér í miklum rekstrarbata Sala félagsins nam 429 milljón­ um króna á árinu 2012. Kostnaður lækkaði um 15 milljónir króna frá árinu á undan og var 470 milljón­ ir króna. Rekstartap ársins 2012 var 42 milljónir króna á móti 63 millj­ ónum króna árið 2011. Hlutafé DV ehf. hefur verið aukið um 50 millj­ ónir króna að undanförnu. Eigið fé í lok mars 2013 var 28 milljónir króna. Undanfarna mánuði hefur verið gripið til mikilla hagræðingar­ aðgerða og verður haldið áfram á þeirri braut til tryggja rekstur fé­ lagsins. Gert er ráð fyrir rekstrar­ hagnaði á árinu 2013. n MINI RAFMAGNSVESPA Bindir & stál ehf. Hvaleyrarbraut 39 220 Hafnarfjörður S. 864 9265 www.el-bike.is 88.800,- Verð: Finnlandsforseti í heimsókn Forseti Finnlands, Sauli Niinistö, verður hér í sinni fyrstu opinberu heimsókn dagana 28. til 29. maí næstkomandi. Með í för verður eiginkona forsetans og sendinefnd embættismanna og sérfræðinga í málefnum norðurslóða. Auk funda með forseta Íslands, forsætisráðherra og þingmönnum mun forseti Finnlands taka þátt í málþingi um framtíð norður­ slóða sem haldið verður í hátíðar­ sal Háskóla Íslands með þátttöku fulltrúa atvinnulífs, stjórnmála, vísinda og fræða. Þá mun forseti Finnlands kynna sér upplýsingatækni og nýsköpun í hátæknigreinum á sérstökum kynningarfundi sem haldinn verður í Háskólanum í Reykjavík og heimsækja jarðhita­ svæðið í Svartsengi og fræðast um hina fjölþættu nýtingu hreinnar orku sem þar fer fram. Vilja lengri frest Hópurinn Björgum Ingólfstorgi og Nasa (BIN) sem barist hefur gegn umhverfisáhrifum þess að byggt verði stórt hótel í miðbænum hef­ ur óskað eftir því að frestur til að skila athugasemdum við nýlega auglýst skipulag við Ingólfstorg, Austurvöll og Fógetagarð, verði framlengdur. Hann rennur að öllu óbreyttu út þann 23. maí næst­ komandi, en hópurinn segir mikil­ vægt að að grasrótarsamtök fái meira svigrúm til að láta rödd sína heyrast. Hópurinn bendir á að skipulag svæðisins sé mjög umdeilt og vill meina að umhverfisáhrif hótelsins verði mjög slæm. Meðal annars muni skuggavarp aukast á Austur­ velli og þá séu umferðarmál enn óleyst. Hópurinn segir gallana sýna fram á að í tillögunni sé ekki staðið nógu vel vörð um almanna­ hagsmuni, en 17 þúsund manns hafa mótmælt áformunum á síð­ unni ekkihotel.is. Erfið ár að baki Hlutafé félagsins hefur verið aukið um 50 milljónir króna. Þ að er skýrt að hingað má ekki koma inn fólk sem er komið til að eyðileggja,“ sagði Kristín Snæfells, forsvars­ maður samtakanna Vörn fyrir börn, þegar hópur mótmælenda kom inn á opið hús hjá samtökunum seinnipartinn á fimmtudag. Hópur­ inn var kominn til þess að mótmæla því að Kristín færi fyrir samtökun­ um en í hópnum voru meðal annars fyrrverandi tengdasonur Kristínar og barnsfaðir dóttur hennar ásamt fleira fólki. „Af hverju ert þú þá hér, sem eyðileggur allt?“ spurði þá einn í hópnum og beindi orðum sínum til Kristínar. Bað fólk um að fara Mótmælendur báru mótmælaspjöld sem á var dómur úr máli sem dóttir Kristínar höfðaði gegn barnsföður sínum, Trausta Eysteinssyni. Málið höfðaði hún fyrir hönd dóttur þeirra og var hann sakaður um að hafa beitt hana kynferðislegu ofbeldi. Trausti var sýknaður bæði í héraði og Hæsta­ rétti og hefur í dag fullt forræði yfir barninu. Kristín bað mótmælendur um að fara út með góðu en þeir létu ekki segjast og bentu á að þarna hefði opið hús verið auglýst. Ofbýður hvað hún kemst langt „Við erum fyrst og fremst að þessu vegna þess að þessi kona er ekki hæf til þess að reka þessi sam­ tök. Það er bara komið nóg. Það er búið að hella þessum hryllingi yfir fjölskylduna í þrjú ár,“ segir Emilía Jónsdóttir, frænka Trausta. Hún segir Kristínu hafa haldið fram í fjölmiðlum, eftir að Trausti var sýknaður, að hún þekkti vel áhrif kynferðisbrota á börn þar sem barnabarn hennar hefði orðið fyrir því. „Okkur ofbýður hvað hún kemst langt. Hún kemst með hverja greinina á fætur annarri í blöðin og er núna að sníkja pening af þjóð­ inni,“ segir hún en Kristín hefur ásamt fleiri meðlimum í samtökun­ um Vörn fyrir börn verið að safna fé fyrir samtökin. Lögregla vísaði mótmælendum út Kristín bað mótmælendurna um að fara og sagði þetta mál sem þau töluðu um ekki koma samtökunum við. „Þið getið ráðist á mig persónu­ lega vegna þessa máls en ekki ráð­ ast á þjónustumiðstöðina,“ sagði hún og bað mótmælendurna um að fara. Þeir fóru þó ekki og á end­ anum komu öryggisverðir og svo lögregla sem vísaði þeim út úr hús­ næðinu. Mótmælendur sögðust vilja vara fólk við að leggja málefninu lið. „Af hverju ætti hún að hafa eitt­ hvert vit á þessum málum frekar en sálfræðingar og aðrir sem vinna að þessum málum innan okkar kerfis?“ segir Emilía. „Fólk á ekki að geta komist upp með að haga sér svona. Það er búið að dæma í þessu máli en hún ætlar sér að gera allt til þess að snúa þessum hæstarétta­ dómi við og hefur meðal annars stofnað samtök í kringum það.“n Viktoría Hermannsdóttir blaðamaður skrifar viktoria@dv.is Komið nóg Mótmælendur, meðal annarra barnsfaðir dóttur Kristínar og nokkrir úr fjölskyldu Kristínar, segja vera nóg komið. „Ofbýður hvað hún kemst langt“ n Mótmæltu á opnu húsi hjá samtökunum Vörn fyrir börn„Af hverju ert þú þá hér, sem eyðilegg- ur allt? Tekist á Mótmælendur mættu á opið hús hjá sam- tökunum Vörn fyrir börn. Kristín sem er í forsvari fyrir samtökin bað þá um að fara út.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.