Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.2013, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.2013, Blaðsíða 12
S umarið 2011 fóru um 120 þúsund ferðamenn um Landmannalaugar, en sum­ arið 2000 heimsóttu um 60 þúsund ferðamenn svæð­ ið. Ferðamannafjöldinn tvöfaldaðist því á áratug. Þá fara um 39 þúsund bílar fram og til baka um afleggjar­ ann að Landmannalaugum yfir sumartímann, eða tæplega 700 bílar á dag. Þetta kemur fram í skýrslu sem Anna Dóra Sæþórsdóttir og Þorkell Stefánsson unnu fyrir Umhverfis­ stofnun um þolmörk ferðamanna í friðlandi að Fjallabaki árið 2012. Ljóst er að margir vinsælir ferða­ mannastaðir hér á landi eru komn­ ir að þolmörkum hvað varðar fjölda ferðamanna og margt bendir til þess að Landmannalaugar séu einn þessara staða. Hvort svæðið hafi nú þegar orðið fyrir skemmdum af völdum ágangs ferðamanna eru þó ekki allir sammála um. Samkvæmt niðurstöðum rann­ sókna sem greint er frá í skýrslunni virðist vera farið að bera á ónægju meðal ferðamanna af upplifun sinni af Landmannalaugum. Ástæð­ ur óánægjunnar eru fyrst og fremst fjöldi ferðamanna, umfang ferða­ mennsku og að svæðið er farið að láta á sjá vegna ágangs ferðamanna. Nokkrir ferðamenn sem tóku þátt í rannsókninni sögðu að uppbygging ferðaþjónustu á svæðinu væri nú þegar orðin of mikil og aðrir óttuð­ ust að hún myndi aukast enn frekar á næstu árum. Nánast engu fé veitt til rannsókna „Það er oft talað um að það komi oft margt fólk í Landmannalaugar,“ segir Páll Ásgeir Ásgeirsson leið­ sögumaður. Sjálfur telur hann þó ekki víst að fjöldi þeirra ferða­ manna sem fara um svæðið sé svo mikill. Það sé þó eitthvað sem þurfi að rannsaka betur. Páll Ásgeir telur einmitt að skortur á rannsóknum á ferðamennsku hér á landi hái grein­ inni að mörgu leyti. „Ferðaþjónustan á Íslandi er þannig stödd að í hlutfalli við um­ fang greinarinnar er nánast engu fjármagni veitt til rannsókna. Ef horft er á samanlagða veltu landbúnaðar og sjávarútvegs þá er um það bil 1,3 prósentum af þeirri veltu varið til rannsókna sem styrkja greinina. Í ferðaþjónustunni hins vegar, sem veltir orðið meira en sjávarútvegur, er þetta hlutfall 0,13 prósent.“ Páll Ásgeir segir að nú, þegar ferðamönnum sé að fjölga jafn mik­ ið og raun ber vitni, sé mjög brýnt fyrir ferðaþjónustuna og íslenska náttúru að það séu gerðar mun víð­ tækari rannsóknir en gerðar hafa verið hingað til. Aðgerðir fyrr en síðar Hvað Landmannalaugar varðar telur hann það álitamál hvort fjöldi ferða­ manna þar sé orðinn of mikill. „Það er hins vegar brýnt að gera endur­ bætur á skipulagi Landmannalauga til að staðurinn geti tekið á móti þeim fjölda ferðamanna sem þangað kemur nú þegar. Það er mín skoðun að þessi ferðamannastraumur hafi ekki enn sem komið er valdið nein­ um skemmdum á staðnum.“ Páll Ás­ geir segir samt mikilvægt að gripið sé til aðgerða fyrr en síðar svo það gerist ekki. Hann segir framkvæmdir á svæðinu hafa setið á hakanum vegna skorts á skipulagi. Á meðan skipulagið skorti þá sé erfitt fyrir rekstraraðila á svæðinu að fara út í framkvæmdir til að bæta aðstöðu til að taka á móti ferðamönnum. „Á meðan það er ekki til skipulag þá ríkir óhjákvæmilega einskonar kyrr­ staða í Landmannalaugum.“ Til stendur að rýmka svæðið Að sögn Páls Ásgeirs eru sveitar­ félagin á Suðurlandi ásamt Skaftár­ hreppi að láta að vinna að heildar­ skipulagi á svæðinu um þessar mundir og vonast hann til þess að því ljúki fljótlega. „Þær hugmyndir sem ég veit að eru í farvatninu í þessari skipulagsvinnu lúta fyrst og fremst að því að rýmka til í Landmannalaugum. Færa tjaldstæðið svolítið til og afmarka betur bílastæði. Mér er ekki kunnugt um að það séu neinar hugmyndir í gangi um að draga úr fjölda ferða­ manna á svæðinu eða hefta för fólks með einhverjum hætti. Ef marka má niðurstöður skýrsl­ unnar sem Anna Dóra og Þorkell unnu þá er þó mikilvægt að vanda til verks við uppbyggingu í Landmannalaug­ um. Það sé betra að stíga varlega til jarðar í þeim efnum, enda sæki ferða­ menn í ósnortna náttúru Íslands.“ Ekki gætt að útliti við uppbyggingu Í skýrslunni er bent á að vegna þess mikla fjölda ferðamanna sem komi í Landamannalaugar hafi þurft að ráð­ ast í framkvæmdir á svæðinu en ekki hafi alltaf verið gætt að útliti staðarins. „Í gegnum tíðina hefur verið farið yfir þolmörk innviða og náttúru, en þá hef­ ur verið brugðist við og innviðir aukn­ ir og þolmörk staðarins verið hækk­ uð. Nú eru þar ósamstæð mannvirki, tjöld og bílastæði með bæði einkabíl­ um og rútum þannig að ásýnd staðar­ ins hefur breyst verulega,“ segir í loka­ orðum skýrslunnar. Afleiðingin er sú að svæðið höfðar ekki lengur til þeirra ferðamanna sem mestar kröfur gera til gæða umhverfisins. Slíkir ferðamenn heimsækja ekki Landamannalaugar lengur vegna umfangs ferðamennsk­ unnar á svæðinu og fara frekar eitt­ hvert annað. Í skýrslunni er bent á að þeir eigin­ leikar sem gefi svæðinu upplifunar­ gildi séu viðkvæm auðlind sem verði að fara varlega í að nýta mun frekar í ferðamennsku og útivist. „Á þessa auðlind hefur verið geng­ ið mjög hratt undanfarin sextíu til sjö­ tíu ár og svo mun væntanlega óhjá­ kvæmilega verða áfram um næstu framtíð. Mikilvægt er þó að hægja á og grípa inn í þróunina áður en auð­ lindin er gengin til þurrðar.“ n 12 Fréttir 17.–21. maí 2013 Helgarblað Friðrik enn týndur n Leitin stendur enn yfir í Suður-Ameríku Þ að er ekkert nýtt að frétta, það hefur ekkert til hans spurst og hann hefur ekki komið fram þrátt fyrir eft­ irgrennslan, segir Friðrik Smári Friðriksson yfirlögregluþjónn aðspurður hvort eitthvað nýtt væri að frétta af leitinni að Frið­ riki Kristjánssyni. Lögregla leitaði til Interpol í byrjun apríl til þess að biðja lögregluyfirvöld í Brasilíu og Paragvæ að leita Friðriks. Hann virðist hafa horfið sporlaust ytra. Enn hefur ekki verið auglýst eftir Friðriki með nafni. Að sögn Frið­ riks Smára er leitin í höndum þar­ lendra lögregluyfirvalda. „Leitin er bara á vegum lögreglunnar þarna úti í Paragvæ og lögreglan hér hefur enga lögsögu þar eða neitt þess háttar. Við erum búin að koma öll­ um upplýsingum út eins og hægt er og þannig stendur málið. Við erum í sambandi við þá þarna úti og yfir­ völd þar.“ Aðspurður hvort von sé á því að einhver frá íslenskum lög­ regluyfirvöldum haldi út, svarar Friðrik Smári: „Það hefur allavega ekki verið tekin ákvörðun um það ennþá.“ n viktoria@dv.is Leitað Friðriks er enn saknað. Kröfuharðir forðast Landmannalaugar n Ferðamenn óánægðir með umfang ferðaþjónustu n Skortir frekari rannsóknir Sófasett, svefnsófar, hornsófar ofl.ofl Opið laugardag 11 - 15 Teg. Grazia 3 – 1 – 1. Celtic svefnsófi Hornsófi með svefns. og rúmafatag. Tungu sófi m. svefn og rúmfatag. Hornsófi Carlos Stakir stólar Bror / Katrín Florida U sófi Sólrún Lilja Ragnarsdóttir blaðamaður skrifar solrun@dv.is „Á meðan það er ekki til skipulag þá ríkir óhjákvæmilega eins konar kyrrstaða í Land- mannalaugum. Þarf að auka rannsóknir Páll Ásgeir segir það álitamál hvort fjöldi ferðamanna í Landamannalaugum sé orðinn of mikill. Það þurfi hins vegar að rannsaka frekar. 120 þúsund ferðamenn á sumri Fjöldi ferðamanna í Landmannalaugum hefur tvöfald- ast frá árinu 2000. Tæplega 40 þúsund ferðamenn fara fram og til baka um afleggjarann að svæðinu yfir sumartímann.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.