Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.2013, Blaðsíða 36

Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.2013, Blaðsíða 36
36 Eurovision 17.–21. maí 2013 Helgarblað Spilaði yfir sig E inar Ágúst og Telma (eða August & Telma) var íslensk hljómsveit sem var stofn- uð árið 2000 í tengslum við Söngvakeppni evrópskra sjón- varpsstöðva. Hljómsveitin keppti fyrir hönd Íslands, með lagið Tell me sama ár og lenti í 12. sæti með 45 stig. Einar Ágúst segir í samtali við DV að upplifunin af Eurovision hafi verið skemmtileg en að sama skapi erfið. „Þetta er svakaleg vinna og álag, þá sér í lagi fyrir aðalsöngvarann eða söngvarana eins og í okkar tilviki þarna árið 2000. Umgjörðin og allt í kringum þetta „bíó“ sem Eurovision er er svo gríðarlegt og faglegt að mað- ur hafði aldrei séð annað eins og það var að mörgu að huga. Hvern- ig halda skyldi á míkrófóninum miðað við myndavélarnar, hvert skyldi líta í hverju orði og þar fram eftir götunum. Í raun þurfti mað- ur að læra að syngja lagið upp á nýtt þegar spor, sviðsframkoma og hreyfingar voru komnar á hreint. En Selma Björns undirbjó mig og Telmu og þess vegna var maður vel undirbúinn. Varðandi væntingar þjóðarinn- ar þá var nú ágætis meðbyr með manni þarna, í Skítamóral og allt á fullu svingi og Íslendingar eru svo ágætir með sínu fólki að mað- ur hafði nú engar áhyggjur af við- brögðum heima fyrir, ekki nema af því jú ef að allt færi á versta veg kannski. En ég náði öllum mín- um markmiðum með þessari ferð þarna út til Stokkhólms, markaðs- lega séð og annað. Eftir keppnina tók svo við áframhaldandi útvarpsmennska og rosalegt spilerí með hljóm- sveitinni, sem hafði nú verið þokkalegt áður þannig að það var hvergi slakað á og nóg að gera – sem fylgir þessu auðvitað. Í dag er ég að vinna á útvarps- stöðinni K100.5 og uni mér of- boðslega vel hér hjá Skjánum. Út- varpið á vel við mig en ég hef lítið verið í músík síðustu þrjú árin eða svo. Held ég hafi „spilað yfir mig“ á árunum 2006–2010, fékk svona eiginlega nóg af helgar- og nætur- bröltinu sem fylgir músíkinni oft og tíðum. En ég er einmitt akkúrat núna um þessar mundir að munda gítarinn aftur og fara af stað í mús- íkina á ný. Er á leiðinni í hljóðver og að byrja að spila aftur. Lagið í ár er afskaplega melódískt og fallegt. En maður verður var við að „skoðanir eru eins og rassgat, allir með svoleið- is“ því það brenna allir samskipta- miðlar af skoðunum á þessu sem er bara eitthvað sem fylgir þessu.“ n Einar Ágúst er á leiðinni í hljóðver og er að byrja að spila aftur Tveir Eurovision-kappar Einar Ágúst með Eyþóri Inga í hljóðveri Kanans þar sem Einar Ágúst starfar í dag. Telma Tell me Þau Einar Ágúst og Telma voru með grípandi smell sem náði þó ekki lengra en í 12. sæti. Væntingar til þeirra voru miklar. Söng djass í Bandaríkjunum A nna Mjöll flutti til Bandaríkjanna og hefur starfað þar að tónlist. Síð- ustu ár hefur hún getið sér gott orð sem djass- söngkona vestra. Hún var tíður gestur á síðum slúðurblaðanna þegar hún giftist níræðum milljónamær- ingi, Carl Worthington, árið 2011. Þau skyldu nokkrum mánuðum eftir brúðkaup- ið og hófust þá málaferli. Anna Mjöll var síðast í fjöl- miðlum í vetur þegar hún gekk að eiga tónlistarmann- inn Luca Ellis. Þau héldu í kjölfarið tónleika saman í Reykja- vík. Eurovision- sérfræðingar E urobandið var stofnað í mars 2006 af Friðriki Ómari og Regínu Ósk en þau tóku bæði þátt í Söngvakeppni Sjónvarpsins sama ár. Regína lenti þá í öðru sæti með lagið Þér við hlið en Friðrik Ómar í þriðja sæti með lagið Það sem verður. Frið- rik Ómar tók einnig þátt í Söngva- keppni Sjónvarpsins árið 2007 með lagið Eldur en þá lenti hann í öðru sæti. Síðan þá hafa þau bæði verið mikið viðloðandi tónlistina og má segja að þau séu orðin fastagestir í forkeppninni hér heima. Auk þess sem þau hafa í þó nokkur skipti farið út sem bakraddasöngvar- ar. Undanfarið hafa þau ferðast um landið með sýninguna Saga Eurovision en með þeim á sviðinu er Selma Björnsdóttir. Þar er farið yfir söguna og vinsælustu og eftir- minnilegustu Eurovision-lögin tekin. Friðrik Ómar hefur tekið þátt í fimm vinsælum tónlistarsýning- um á Broadway, unnið með mörg- um af færustu hljóðfæraleikur- um og söngvurum þjóðarinnar og verið í forsvari fyrir nokkrar hljóm- sveitir. Regína Ósk hefur starfað sem söngkona í mörg ár, gefið út þrjár sólóplötur og kennir í Söngskóla Maríu Bjarkar. n Ferðast um landið með Saga Eurovision S igurjón Brink var sem kunn- ugt er aðeins 36 ára þegar hann varð bráðkvaddur á heimili sínu þann 17. janúar 2011. Fyrir andlát sitt hafði Sjonni, eins og hann var kallaður, ákveðið að taka þátt í undankeppni Söngva- keppni Sjónvarpsins. Þórunn Erna Clausen, eiginkona Sjonna, tók þá ákvörðun að minning hans yrði best heiðruð með því að draga framlag þeirra til keppninnar ekki til baka. Fram stigu syrgjandi vinir hans, Matthías Matthíasson, Hreimur Örn Heimisson, Pálmi Sigurhjartarson, Benedikt Brynleifsson, Gunnar Óla- son og Vignir Snær Vigfússon og mynduðu sveitina Vinir Sjonna. Það var ekki mikið mál að stofna sveitina enda var Sjonni vinmargur, hvers manns hugljúfi og elskaður af öllum þeim sem hann þekktu. Lagið Aftur heim komst örugglega áfram og sigr- aði að lokum í undankeppninni. Ljóst var að lag þessa ástsæla tónlist- armanns var á leiðinni til Düssel- dorf í flutningi vina hans þar sem minningu Sjonna Brink yrði haldið á lofti. Það gerðu þeir og síðan þá hafa þeir reglulega hist með vinum og ættingjum Sjonna og spilað tónlist í minningu hans. Minningu Sjonna er því enn haldið á lofti af vinum hans. Minning vinar heiðruð n Vinir Sjonna hittast enn og spila í minningu góðs vinar Coming Home Syrgjandi vinir stigu á svið í Eurovision. Fastagestir í keppninni Bæði Regína og Friðrik Ómar hafa tekið fjölmörgum sinnum þátt í forkeppninni hér heima.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.