Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.2013, Blaðsíða 50

Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.2013, Blaðsíða 50
R afael Benítez hefur á ferli sín­ um náð góðum árangri en verður þrátt fyrir það seint sagður vinsæll knattspyrnu­ stjóri. Tveir Spánarmeist­ aratitlar, tveir Evrópubikarar og sigur í Meistaradeildinni eru meðal annars á afrekaskránni. Staðreyndin er sú að Benítez hefur skilað titli hjá öllum þeim félögum sem hann hefur þjálfað frá því að hann fékk tækifæri á stóra sviðinu með Valencia 2001. Stór hluti stuðningsmanna Chelsea hefur verið á móti stjóranum frá því að hann var ráðinn til að bjarga Chelsea eftir að Roberto Di Matteo var látinn taka pokann í nóvember síðast liðnum. Matteo var rekinn eftir slakt gengi í deildinni og í riðlakeppni Meistaradeildarinnar en hann stýrði liðinu einmitt til sigurs í keppninni vorið áður. Óverðskuldað að mati margra en Benitez var ráðinn enda ekki margir stjórar með hans reynslu á lausu á miðju tímabili. Framan af vetri var ekki útlit fyrir farsælan endi hjá Chelsea en Benítez skilaði þó Evrópu­ bikar og meistaradeildarsæti en bar­ áttan um sætin fjögur hefur aldri verið harðari. Ungur þjálfari hjá Real Leikmannsferill Benítez flaug aldrei hátt þó svo að hann hafi verið á mála hjá Real Madrid um tíma. Meiðsli settu meðal annars strik í reikninginn en 26 ára var Benítez orðinn partur af þjálf­ arateymi Real. Fljótlega fór hann að þjálfa vara­ og unglingalið Real með góðum árangri en hann var einnig að­ stoðarþjálfari Vicente del Bosque um tíma árið 1994 hjá aðalliðinu. Eftir að hafa þjálfað neðri deildarlið á Spáni fékk Benítez tækifærið hjá Val­ encia árið 2001. Hann launaði traustið með Spánarmeistaratitli á sínu fyrsta tímabili. Benítez varð aftur Spánar­ meistari með Valencia tímabilið 2003– 2004 auk þess sem liðið vann Evrópu­ bikarinn það tímabil. Þótti þetta mikið afrek enda höfðu Real og Barcelona verið áskrifendur að titlinum. Sögulegur sigur Eftir að hafa lent upp á kant við eigend­ ur Valencia vegna leikmannakaupa var Benítez ráðinn til Liverpool árið 2004. Þó vinsældir Benítez hafi verið töluverðar um þetta leyti átti hann eftir að feta í fótspor forvera síns hjá Liver­ pool, Gerards Houllier, þegar kom að óvinsældum. Benítez byrjaði vel hjá Liverpool og vann meistaradeild Evrópu þegar liðið lagði AC Milan í einum eftirminnileg­ asta úrslitaleik sögunnar. Þá kom hann liðinu einnig í úrslit Deildarbikarsins þar sem Chelsea bar sigur úr býtum. Árið eftir varð Liverpool bikarmeistari auk þess sem liðið komst í úrslit Meist­ aradeildarinnar tímabilið 2006–2007. Benítez tókst þó ekki að gera atlögu að Englandsmeistaratitlinum fyrr en tímabilið 2008–2009 en þá lenti liðið í 2. sæti á eftir Manchester United. Óvinsældir Benítez fóru vaxandi og stöðugar deilur hans við eigendur Liverpool voru fyrirferðarmiklar í ensku pressunni. Tímabilið á eftir var svo það slakasta hjá Liverpool í 22 ár og eftir það gerði Benítez samkomulag um að láta af störfum. Liverpool hefur nánast verið í frjálsu falli síðan. Stutt dvöl á Ítalíu Eftir að hafa látið af störfum hjá Liver­ pool sumarið 2010 tók hann við sem þjálfari hjá Internazionale af Jose Mo­ urinho. En hann hætti með liðið til að taka við Real Madrid. Liðið var þá ítalskur meistari og bikarmeistari auk þess sem það vann Meistaradeildina. Inter vann ítalska ofurbikarinn og varð heimsmeistari félagsliða undir hans stjórn en gengið í deildinni og Meist­ aradeildinni var slakt. Inter tapaði fyrir Tottenham Hotspur á eftirminni­ legan hátt þar sem Garreth Bale steig fram á sjónarsviðið sem einn af bestu leikmönnum heims með ótrúlegri frammistöðu. Benítez var rekinn í des­ ember 2010. „Lausráðinn knattspyrnustjóri“ Benítez var atvinnulaus þangað til hann var ráðinn til Chelsea í nóvember í fyrra eftir að Di Matteo var rekinn. Þó Benítez hafi verið óvin­ sæll undir það síðasta hjá Liverpool og hjá Inter jafnaðist það þó ekki á við móttökurnar sem hann fékk frá stuðningsmönnum Chelsea. Eftir ró­ lega byrjun hjá Chelsea varð óánægja stuðningsmanna sífellt meiri og stjórn liðsins gaf Benítez titilinn „ lausráðinn knattspyrnustjóri“. Þegar upp var stað­ ið varð liðið Evrópubikarmeistari og tryggði sér auk þess sæti í meistara­ deildinni. Betri árangur en hjá öll­ um stórliðunum í enska boltanum að Manchester United undanskildu. Orðaður við City Það er hins vegar ljóst að Benítez mun ekki stýra Chelsea áfram þrátt fyrir árangurinn. Hann hefur strax verið orðaður við Manchester City eftir að Roberto Mancini var rekinn á dögunum. Spurning hvort Benítez nái að vinna stuðningsmenn liðsins á sitt band eða að vinsældir hans haldi áfram að dala. n 50 Sport 17.–21. maí 2013 Helgarblað Óvinsæll þrátt fyrir árangur n Kveður með bikar og meistaradeildarsæti n Manchester City næsti áfangastaður? Ásgeir Jónsson blaðamaður skrifar asgeir@dv.is „Betri árangur en hjá öllum stór- liðunum í enska bolt- anum að Manchester United undanskildu. Helstu titlar Benítez: n Spánarmeistari með Valencia 2001–2002 n Spánarmeistari með Valencia 2003–2004 n Evrópubikarmeist. með Valencia 2003–04 n Meistarad. Evrópu með Liverpool 2004–05 n FA bikarmeistari með Liverpool 2005–2006 n Ofurbikar Evrópu með Liverpool 2005 n Samfélagsskjöldurinn með Liverpool 2006 n Ofurbikar Ítalíu með Inter 2010 n Heimsmeistari félagsliða með Inter 2010 n Evrópubikarmeistari með Chelsea 2013 Rafeal Benítez Hefur verið umdeildur undanfarin ár. Sigursæll Benítez hefur unnið margra stóra titla. Eftirminnilegasti sigurinn Endurkoma Liverpool gegn AC Milan gleymist seint.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.