Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.2013, Qupperneq 4

Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.2013, Qupperneq 4
4 Fréttir 17.–21. maí 2013 Helgarblað Orri borgar sig n Kostnaður kerfisins er sagður vera innan eðlilegra marka F járhags- og mannauðskerfi rík- isins, öðru nafni Orri, mætir þörfum stjórnvalda og stjórn- sýslu og virkni þess uppfyllir kröfur ríkisins í meginatriðum. Þetta er niðurstaða óháðrar, erlendrar sér- fræðiúttektar á Orra. Úttektin var framkvæmd af sænska ráðgjafanum Knut Rexed. Í frétt á vef fjármála- ráðuneytisins segir að ekkert bendi til að betri útkoma hefði fengist fyrir ríkið með því að nýta aðra lausn en þá sem varð fyrir valinu fyrir tólf árum. Kostnaður kerfisins er sagður vera innan eðlilegra marka og ávinning- ur af kerfinu getur réttlætt kostnað- inn. Kerfið hafi skapað verulegt virði fyrir ríkið og stofnanir þess. Fjárhags- og mannauðskerfi ríkisins er bak- vinnslukerfi sem hefur verið í notk- un í rúman áratug. Árið 2001 var ákveðið að ganga til samninga við Skýrr hf. um kaup og innleiðingu á Oracle eBusiness Suite fyrir ríkissjóð og stofnanir í A hluta. Umfjöllun um Orra hófst síðast- liðið haust þegar Kastljós fjallaði um málið. Þar kom fram að farið væri á svig við viðurkenndar reiknings- skilavenjur og eldveggir milli stofn- ana séu lekir. Þótti innleiðing kerfis- ins vera dýr og hafa tekið langan tíma, auk þess sem skýrslu sem unnið var að um kerfið hafði seinkað mjög hjá ríkis endurskoðun. Fjármálaráðuneytið segir að mælt sé með því að kerfið verði notað áfram, en skerpt á stefnumið- aðri stjórnun, ábyrgð og eignarhaldi kerfishluta Orra. Farið verði reglu- bundið yfir notkun kerfisins og þró- unarmöguleika. Til lengri tíma þurfi einnig að vinna að stefnumótun um upplýsingavinnslu ríkisins. Jafnframt er lagt til að miðlæg þjónusta við ríkis- stofnanir verði efld. n astasigrun@dv.is L ögreglumanni á Fáskrúðs- firði var vikið frá störfum í fyrrahaust eftir að hann var kærður fyrir kynferðisbrot gegn 12 ára stúlku. Málið er til rannsóknar en ekki liggur fyrir hvort gefin verði út ákæra í málinu. Kærði neitar sök og segir að málið sé tilraun til að koma á sig höggi. Óánægður með viðbrögð lögreglu „Að mati Barnahúss og sálfræðinga var framburður dóttur minnar mjög trúverðugur,“ segir faðir barnsins sem er óánægður með viðbrögð lögreglunnar. „Það er dálítið furðu- legt hvernig fjöldi annarra mála hefur komið upp eftir þetta og feng- ið talsvert fljótari meðferð í kerfinu. Það er eins og þetta mál hafi setið á hakanum á meðan önnur hafa komist í gegn.“ Hann veltir því fyr- ir sér hvort verið sé að hlífa mann- inum sérstaklega vegna þess að hann hefur starfað fyrir lögregluna. „Þetta lyktar pólitískt illa og maður veit ekki alveg hvað er í gangi,“ seg- ir hann. „Enginn fótur fyrir þessu“ Þegar DV hafði samband við manninn sem sakaður er um brot- in vísaði hann ásökununum alfarið á bug. „Það er enginn fótur fyrir þessu. Þetta kemur frá föður þessarar stelpu sem er mjög illa við mig,“ sagði hann og fullyrti að verið væri að reyna að sverta mannorð hans. Hann full- yrðir að málið sé fjölskyldudeila en maðurinn tengdist móður stúlkunn- ar í gegnum vinskap. Sjálfur segir sá kærði að sér hafi verið sagt að rann- sókn málsins hafi tafist vegna þess fjölda mála sem er á borðinu hjá lög- reglu í þessum málaflokki. Ekki náðist í sýslumanninn í Eski- firði við vinnslu fréttarinnar. Thelma Clausen Þórðardóttir, yfirmaður stjórnsýslusviðs lögreglunnar, segir að kærur gegn lögreglumönnum sæti sömu meðferð og aðrar kærur. „Ríkis saksóknara er jafnframt gert viðvart og getur hann falið tilteknum lögreglustjóra að annast hana. Rann- sóknin fer svo fram undir yfirstjórn ríkissaksóknara,“ segir hún. Fordæmi fyrir vanrækslu Í fyrra var lögð fram fyrirspurn á Al- þingi um viðbrögð lögreglunnar við kynferðisbrotakærum undanfar- inna ára. Þegar litið er á svör lög- reglustjóra víða af landinu má sjá að venjulega tekur ferlið í þess konar málum skemmri tíma. Hafa ber þó í huga þá gríðarlegu fjölgun sem orðið hefur á slíkum kærum eftir að Kast- ljós fjallaði ítarlega um alvarleg kyn- ferðisbrot í byrjun árs. Fordæmi eru þó fyrir því að emb- ætti lögreglu vanræki mál sem bein- ast að lögreglumönnum. Í janúar síðastliðinn greindi Fréttatíminn frá því að maður, sem þrívegis hafði verið kærður fyrir barnaníð, hefði aldrei verið leystur undan vinnu- skyldu á meðan rannsókn málanna stóð yfir. n Lögregluþjónn kærður Myndin tengist efni frétt- arinnar ekki beint. Lögregluþjónn kærður fyrir kynferðisbrot n „Enginn fótur fyrir þessu,“ segir hinn grunaði n Kvartað undan seinagangi Jóhann Páll Jóhannsson blaðamaður skrifar johannp@dv.is „Það er eins og þetta mál hafi setið á hakanum á meðan önnur hafa komist í gegn. Kynferðisbrot Málið er til rannsóknar en ekki liggur fyrir hvort gefin verði út ákæra í því. Orri þótti dýr og óöruggur Kerfið var sagt gallað, óöruggt og dýrt, en er nú sagt hagkvæmt. Tveir nýir forsetar við HÍ Gengið var frá ráðningu tveggja nýrra sviðsforseta við Háskóla Íslands á fimmtudag. Dr. Jó- hanna Einarsdóttir, prófessor í menntunarfræði við Háskóla Ís- lands og forstöðumaður Rann- sóknastofu í menntunarfræðum ungra barna, hefur verið ráðin for- seti Menntavísindasviðs. Dr. Daði Már Kristófersson, dósent í hag- fræði og forstöðumaður þróunar- og samstarfsverkefna við Háskóla Íslands, var ráðinn í starf forseta Félagsvísindasviðs. Jóhanna Einarsdóttir lauk doktors prófi í menntunarfræðum ungra barna árið 2000 frá Háskól- anum í Illinois í Bandaríkjunum, M.Ed.-námi 1977 og BS-prófi 1976 frá sama skóla. Daði Már Kristófersson lauk doktorsprófi frá Norwegian Uni- versity of Life Sciences árið 2005, meistaraprófi í auðlindahagfræði frá Landbúnaðarháskóla Noregs árið 2000 og B.Sc.-prófi í landbún- aðarfræðum frá Landbúnaðar- háskóla Íslands árið 1997. Yfirmaður allra frétta hjá 365 Mikael Torfason er nú orðinn yfir- maður alls fréttaflutnings hjá fjöl- miðlasamsteypunni 365. Mikael var ráðinn ritstjóri Fréttablaðsins í byrjun mars og gegndi því starfi ásamt Ólafi Stephensen. Nú hafa allar fréttastofur 365; fréttastofur Fréttablaðsins, Vísis og Stöðvar 2, verið sameinaðar undir stjórn Mikaels. Ólafur Stephensen verð- ur aðstoðarritstjóri. Í fréttatilkynningu frá 365 segir að frétta- og vaktstjórar einstakra miðla muni áfram starfa. „Sam- einingin er rökrétt framhald á aukinni samvinnu ritstjórna 365 miðla undanfarin ár. Með því að stíga skrefið til fulls er dregið úr tvíverknaði og óhagræði og kraftar rúmlega 100 starfsmanna nýttir betur,“ segir í tilkynningu frá sam- steypunni.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.