Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.2013, Síða 19
Léttir að Losna við brjóstin
Fréttir 19Helgarblað 17.–21. maí 2013
n Lét taka bæði brjóstin n Systirin fékk brjóstakrabba n Krabbamein fannst þegar brjóstin voru tekin
fer bara eftir hverri og einni konu.
En léttirinn sem fylgdi því þegar
aðgerðin var búin var ólýsan
legur. Það var gott að vera búin
með þetta. Ekki síst af því að ég
var komin með frumubreytingar
og krabbamein á byrjunarstigi og
fékk strax staðfestingu á að þetta
var alveg rétt ákvörðun.“ n
Á
árunum 2008 til 2011 fóru
tvær til þrjár konur á ári í
brjóstnámsaðgerðir í fyrir
byggjandi skyni hér á landi.
Á síðustu mánuðum hefur
hins vegar verið gerð ein slík aðgerð
á mánuði, að sögn Kristjáns Skúla
Ásgeirssonar, brjóstaskurðlæknis á
Landspítalanum. „Það hefur orðið
gríðarlega mikil aukning og það
verður mikil aukning á næstu árum,“
segir Kristján.
Konur sem fara í slíkar aðgerðir
hafa annaðhvort greinst með stökk
breytta genið BRCA 1 eða BRCA
2. Um 80 prósenta líkur eru á
því að konur sem bera genið fái
brjóstakrabbamein einhvern tíma á
lífsleiðinni.
„Langflestar konur hér á landi eru
með BRCA 2, en ekki BRCA 1 eins og
Angelina Jolie. Sjúkdómsmynstur
þeirra kvenna sem fá brjóstakrabba
mein af BRCA 2 er öðruvísi en af
BRCA 1.“ Krabbamein af völdum
BRCA er oftar læknanlegt en hitt,
að sögn Kristjáns. „Það er ekki eins
illvígur sjúkdómur.“
Flestar byrja í eftirliti
Á Landspítalanum er starfrækt mót
taka í erfðaráðgjöf þar sem áhætta
kvenna, sem eiga sér fjölskyldusögu
um brjóstakrabbamein, er metin.
Eftir að konur hafa farið í gegnum
rannsóknir í erfðaráðgjöfinni koma
konur í móttöku á göngudeild skurð
lækninga. Þar er þeim boðið upp
á tvær leiðir, annars vegar brjóst
námsaðgerð og hins vegar eftirlit.
„Þá fara konur í segulómskoðun eða
röntgenmyndatöku á sex mánaða
fresti. Svo hitta þær okkur og við gef
um þeim aftur þessa valkosti ef þær
hafa áður ákveðið að fara í eftirlit.“
Kristján segir flestar konur kjósa
að byrja í eftirliti en eftir því sem árin
líði þá kjósi margar að fara í aðgerð
að lokum.
Þeim konum sem fara í brjóst
námsaðgerð er gefinn kostur á því að
fara í uppbyggingu á brjóstum í kjöl
farið og segir Kristján flestar kjósa að
fara þá leið, nema eitthvað annað í
heilsufari þeirra komi í veg fyrir það.
Stórar og miklar aðgerðir
Mikill undirbúningur og fræðsla á
sér stað áður kona fer í brjóstnáms
aðgerð enda um stóra ákvörðun að
ræða.
„Þetta eru oft stórar, miklar
og langar aðgerðir og oft eru
eggjaleiðarar og eggjastokkar fjar
lægðir í sömu aðgerð hjá þessum
konum. Þetta er gríðarlega mikið
inngrip í þeirra hormónakerfi að
miklu leyti,“ útskýrir Kristján.
Brjóstnámsaðgerðir ásamt brott
námi á eggjastokkum og eggjaleiður
um geta tekið allt að átta klukku
tímum og konur eru oft í margar
vikur eða mánuði að jafna sig. Að
spurður hvort aðgerðunum fylgi ein
hver áhætta, segir Kristján að að
gerðum fylgi vissulega alltaf áhætta.
Það geti alltaf komið upp sýkingar og
blæðingar. Í brjóstauppbyggingu er
aðskotahlutum í formi brjóstapúða
komið fyrir inni í líkama kvenna, en
þegar það er gert er alltaf viss áhætta
á fylgikvillum.
Líkamsmynd og lífsgæði fara
saman
„Hvað varðar eggjastokka og
eggjaleiðara, þá erum við oft að setja
þessar konur í snemmkomin tíðar
hvörf. Þannig þetta hefur mikil áhrif
á hormónastarfsemina. Svo hefur
þetta oft áhrif á líkamsmynd þeirra
og stundum lífsgæði,“ segir Krist
ján. Hann bendir jafnframt á að
brjóstauppbygging hafi vissulega
það hlutverk að viðhalda líkams
mynd kvennanna og þeim lífsgæð
um sem tengjast því að hafa brjóst.
„Það eru gríðarlega mikil tengsl á
milli líkamsmyndar kvenna og lífs
gæða. Það er það sem við reynum að
gera, bjóða þeim upp á halda þessari
líkamsmynd. En uppbyggð brjóst
eru vissulega aldrei eins og eðlileg
brjóst.“
Léttir þegar ákvörðun er komin
Aðspurður hvort konur þurfi á sál
fræðimeðferð að halda eftir slík
ar aðgerðir, segir Kristján það afar
sjaldgæft. Hann segir mikinn stuðn
ing veittan á móttöku og göngudeild
skurðlækna. Konur koma í mörg við
töl áður en ákvörðunin er tekin og
sérhæfðir hjúkrunarfræðingar taka
þátt í viðtölum. Þá er konunum boð
ið að ræða við aðrar konur sem hafa
farið í slíkar aðgerðir. Ferilinn er oft
langur og í sumum tilfellum koma
konur í viðtöl í nokkur ár áður en að
gerð er framkvæmd.
„Við gerum aldrei þessar aðgerðir
nema konur séu búnar að kynna sér
kosti og galla þeirra gríðarlega vel.
Átta sig á því hvert umfang aðgerðar
innar er og hvaða afleiðingar þetta
kann að hafa á líkamsmynd þeirra.“
Hann segir konum það yfirleitt létt
ir þegar þegar þær eru búnar að taka
ákvörðun um að fara í aðgerð. „Hjall
inn er yfirleitt að taka ákvörðun um
að fara þessa leið.“
Læknanlegt í 80 prósent
tilfella
Kristján segir þessar aðgerðir vissu
lega árangursríkar í þeim tilgangi að
minnka áhættuna á að fá sjúkdóm
inn en það megi þó ekki gleyma í
umræðunni að brjóstakrabbamein
sé í flestum tilfellum læknanlegt. „Ef
þú tekur allar konur, þá læknast um
80 prósent þeirra sem greinast með
brjóstakrabbamein. Það eru margir
aðrir sjúkdómar sem eru miklu
skelfilegri. En þetta er sjúkdómur
sem konur hræðast rosalega mikið
og það er þess vegna sem þessi um
ræða er komin af stað. Það er mikil
hræðsla en það verður líka að setja
þetta í ákveðið samhengi.“
Aðspurður hvort honum finnist
að konur eigi rétt á að fá að vita ef
þær eru í áhættuhópi, segist Kristján
lítið vilja blanda sér í þá umræðu.
„Þetta er gríðarleg flókið mál og ég
held að réttur þeirra til að fá ekki
þessar upplýsingar sé jafn sterkur og
að fá þær.“
Kári Stefánsson hefur bent á að
það sé réttur einstaklinga að fá þess
ar upplýsingar svo þeir geti tekið
ákvörðun út frá þeim. „En við finn
um það á erfðaráðgjöfinni hér að
þetta misjafnt. Það geta til dæmis
komið hingað systur, önnur er með
BRCA og það eru 50 prósenta líkur
á því að hin systirin sé með það líka,
en hún vill ekki fá að vita það. Það á
ekki að þröngva þessum upplýsing
um inn á þær,“ segir Kristján. n
Sólrún Lilja Ragnarsdóttir
blaðamaður skrifar solrun@dv.is
Brjóstnámsaðgerðum fjölgar
n Ein aðgerð á mánuði n Konur fara oft í viðtöl áður en þær taka ákvörðun„Ef þú tekur
allar konur, þá
læknast um 80 prósent
þeirra sem greinast með
brjóstakrabbamein. Það
eru margir aðrir sjúkdómar
sem eru miklu skelfilegri.
80 prósenta líkur á brjóstakrabba Um
80 prósenta líkur eru á því konur sem greinast
með hið stökkbreytta gen fái brjóstakrabbamein
einhvern tíma á lífsleiðinni.
Flestar byrja í eftirliti
Kristján segir að flestar
konur sem greinast með
stökkbreytt gen byrji á
því að vera undir eftirliti
í einhvern tíma. Eftir því
sem árin líða kjósa margar
þeirra að fara í aðgerð.