Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.2013, Page 23
„Þetta skip var
hérna í
Argentínu …
eins og 5 stjörnu hótel
um borð, en mjög gallað
skip. Að kaupa skip með
10 þúsund hestöfl sem
brennir rúmlega 20 þúsund
lítrum af olíu á dag og er
ekki með mjölverksmiðju
eru bara verstu kaup sem
hægt er að gera …“
Ingvar Þór Jóhannesson
ræddi galla Skálabergs RE 7,
sem er nýjasta skip útgerðar-
innar Brims.
„Þessi gegndar-
lausa aðdáun
á því að horfa
á yfirborgaða
drengi hlaupa um tún og
sparka í uppblásna belju
er hlutur sem ég hef aldrei
fyllilega fattað. Það er al-
veg í lagi að fylgjast með,
en þegar menn fara frekar
að grenja þegar liðinu
þeirra gengur illa, frekar en
í jarðarför móður sinnar,
þá er eitthvað verulega
mikið að. Þessi pistill eftir
Kollu er það eina sem mér
hefur þótt koma fyndið frá
henni. Það er nefnilega svo
svakalega mikið til í þessu.“
Erlingur Pálmason brást
við ummælum Kolbrúnar
Bergþórsdóttur, sem skrifaði
umdeildan pistil um fótboltaaðdáend-
ur. Hún sagðist hafa ætlað að stríða
með ummælunum.
Með nákvæm-
lega sömu
rökum þá
mætti krefjast endur-
greiðslu tekjuskatts og
fasteignaskatts.Er ekki
best að nota orð Brynjars:
Frekja?“
Sigurður Jónas Eggertsson
brást við kröfu Guðrúnar
Lárusdóttur um að ríkið
endurgreiddi henni 35 milljónir sem hún
hefur greitt í auðlegðarskatt. Sagði hún
það brjóta gegn eignaréttarákvæði
stjórnarskrárinnar.
Ég hef oft líkt reiðhjól-
um við gönguskó
Með ólíkindum að
afnema veiðigjald
Fjölnir Björgvinsson gaf ráð til að lengja endingartíma reiðhjóla. – DVSteingrímur J. Sigfússon ósáttur við ákvörðun Sigmundar og Bjarna. – DV
Það er hættulegt að hugsa
1 „Ég grét allan tímann og var feginn er verkinu lauk“ Pétur
Örn Guðmundsson, einn höfundur
framlags íslenska Eurovision-lagsins,
fékk sér húðflúr í Malmö.
2 Segja að frammistaða Eyþórs Inga hafi verið „stórkostleg“
Eyþór Ingi Gunnlaugsson heillaði Euro-
vison-áhugafólk á vefsíðunni Wiwiblogs.
3 Hrífst líka af konum Avatar-stjarnan Zoe Saldana ætlar að vanda
betur valið á næsta maka.
4 Móðir fatlaðs barns biður höf-unda skaupsins um að vanda
sig Móðir drengs með Downs-heil-
kenni er orðin þreytt á því að útskýra
fyrir syni sínum af hverju fullorðið fólk
gerir grín að fötluðum.
5 Guðrún í Stálskipum krefst þess að ríkið endurgreiði
auðlegðarskattinn
Framkvæmdastjóri Stálskipa telur
skattlagningu brjóta í bága við eigna-
réttarákvæði stjórnarskrárinnar.
6 „Ég vissi bara ekki að aðdá-endur Manchester United
væru sértrúarsöfnuður“
Kolbrún Bergþórsdóttir gerði allt
vitlaust með pistli um knattspyrnu-
stjóra félagsins.
Mest lesið á DV.is Þáttur um netverja
U
mræður um viðbrögð net-
verja við ummælum ungrar
stúlku um opnunartíma versl-
ana ÁTVR voru í þættinum Ís-
land í dag á Stöð 2 þann 14. maí s.l.
Umræðurnar urðu til þess að ég gaf
mér tíma til þess sem ég hef ekki áður
gert – vegna mikils áhugaleysis á íbú-
um netheima – að skoða nokkrar fær-
slur í dag og í gær. Í grein, sem ég birti
í Vísi 15. maí s.l., ræddi ég m.a. um
að svo virtist vera sem fólk ekki skildi
lengur orðið „heildarhagsmunir“ en
skildi þeim mun betur „eiginhags-
muni“. Viðbrögð netverja voru m.a. þau
að segja mér „að halda kjafti“. (Furðu-
legt að margir netverja virðast bara
kunna grófustu orð í íslensku svo sem
„að halda kjafti“, og ávarpa með orð-
um eins og „drullu“, „skit“, „kvikindi“,
„skepna“, „glæpahyski“ og þess háttar
og eru auk þess varla skrifandi á móð-
urmálið). Nú er það svo, að málfrelsi
er tryggt í stjórnar skrá flestra ríkja og
er það gert út frá heildarhagsmunum
þegna og samfélags. Auðvitað geta þeir
ekki skilið heildarhagsmuni sem segja
þeim „að halda kjafti“, sem ekki eru
þeim sammála – og hvorki kunna að tjá
sig öðru vísi en að segja slíku fólki „að
halda kjafti“ eða skortir til þess getu að
segja neitt annað nema hvort tveggja
sé. Hins vegar skortir þá ekki skilning á
eiginhagsmunum. Einmitt þess vegna
segja þeir öllum þeim „að halda kjafti“
sem ekki eru þeim sammála. Svona
er sjálfhverfan í reynd! Ekkert skiptir
máli nema „mín skoðun“. „Haldi aðrir
kjafti“! Svona eru eiginhags munirnir í
verki!
Að hella úr koppnum
Orðafátæktin og orðsóðaskapurinn er
alls ekki einkenni allra netverja – en
margra. Ekki síst þeirra skriftglöðustu.
Um svona orðbragð sagði hún amma
mín, að fólk, sem það iðkaði í mæltu
máli, þyrfti að þvo sér vel um munn-
inn vegna andremmunnar. Hér fyrr á
öldum var það sagður siður í sveitinni
að fara út með koppinn sinn á morgn-
ana og hella úr honum í fjóshauginn.
Á lesendur netheima virkar orðsóða-
skapur fólks, sem þar lætur mest til sín
taka, líkt og það þurfi af einhverjum
ástæðum að viðhalda þessum forna sið
og hella reglulega úr sálarkoppum sín-
um í fjóshauginn. Ganga þá sletturnar
í allar áttir – jafnt yfir réttláta sem rang-
láta líkt og rigning af himnum ofan.
Tröllin í fjöllunum
Í fyrrnefndum þætti Íslandi í dag á
Stöð 2 var rætt við sálfræðing, Hauk
Sigurðsson, um þennan ófögnuð
á netinu. Hann nefndi framferðið
„tröllsku“ og sagði að margt benti
til að þeim, sem „tröllsku“ iðkuðu,
liði illa, væru uppfullir af vanmáttar-
kennd og hefðu lítið sjálfstraust. Nú
er oft svo, að þeir, sem iðka „tröllsku“
á netinu gera það undir fullu nafni
og með mynd. Fer ekki hjá því þegar
maður les „tröllskuna“ að maður horfi
með nokkurri meðaumkun á mynd
höfundar og velti fyrir sér hvort höf-
undi líði illa, hvort hann sé mjög
þjáður af minnimáttarkennd eða hafi
kannske svona afskaplega lítið sjálfs-
álit. Alltént er eitthvað að. Eitthvað,
sem sjálfsagt er erfitt að laga. Mjög
erfitt! Reynum því að sýna þessu fólki
vorkunnsemi og samúð – þó það eigi
slíkt ekki beinlínis skilið. En blessað
fólkið ræður bara ekki við þetta. Því er
ekki sjálfrátt.
S
umu fólki er ráðlagt að hugsa
sem minnst. Þeir eru nefni-
lega til sem fá verk fyrir hjartað
ef þeir hugsa svo mikið seim
eina heila hugsun á dag. Og ef
hugsunin er af heiðarlegum hvötum,
eru miklar líkur á alvarlegum fylgi-
kvillum.
Áður en ég fer frekar útí fræðilegu
hliðina, verð ég að rifja upp atburð
sem átti sér stað á eyrinni hér í eina tíð.
En sem unglingar, fengum við strák-
arnir stundum vinnu við upp skipun
á eyrinni hérna í Reykjavík. Þarna
kynntumst við körlum sem margir
hverjir voru hinir mestu furðufuglar.
Tveir í þeim herbúðum voru áberandi;
annar hár og myndarlegur, hinn smá-
vaxinn, þybbinn og leit út einsog það
vantaði í hann slatta af skrúfum. Þeir
voru báðir illa ættaðir og var það al-
talað á eyrinni, að feður þeirra hefðu
komist í álnir með bíræfni; þeir voru
það sem hér skal kallað „lögþjófar“.
Þeim hafði tekist að vera í starfi hjá rík-
inu og höfðu síðan selt sér sjálfum það
sem þeir áttu að varðveita í þágu lands
og þjóðar. En þetta er nú önnur saga.
Það sem var merkilegt við þá félaga,
slánann og fitubolluna, var að þeir
höfðu þann háttinn á, að fara í mat og
kaffi á undan okkur hinum og allajafna
stóðu þeir síðastir upp frá borðum.
Þeir tefldu skák í öllum hléum. Það var
svo eitt sinn þegar þeir tefldu, að sá
þybbni virtist vera að hugsa, þá spurði
sláninn: -Hvað tefur þig, ljúfurinn?
Hinn svaraði og sagði: -Ég er að hugsa.
Og þá sagði sláninn nokkuð sem ég get
ekki gleymt. Hann starði í augu hinn-
ar krúttlegu fitubollu og sagði: -Hvers
vegna í andskotanum er maður alltaf
að hugsa … ef maður getur komist hjá
því …?
Þetta nefni ég hér í framhjáhlaupi
og vík því næst aftur að fræðilega
þættinum. Rannsóknir hafa nefni-
lega sýnt, að t.d. stjórnmálamenn geta
komist hjá því að efna kosningaloforð
ef þeir hugsa ekki svo mikið sem eina
heila hugsun. Ef þeir fá upplýsingar
um stöðu mála eftir að þeir hafa gefið
loforðin, eru þeir svo vel staddir að
þeir geta sleppt því að hugsa. Svo er
einnig til sú leið að reyna að koma í
veg fyrir að annað fólk hugsi. Þá lofar
maður að lækka skatta og fella niður
skuldir og ef enginn hugsar um þau
mál, kemur í ljós að enginn þarf að
gera neitt. Í hugsunarleysi geta menn
svo eytt öllum stundum í það að tala
illa um andstæðinga sína og hallmæla
þeim fyrir að hafa hugsað of margt.
Ég viðurkenni fúslega, að ég hef
hugsað eitt og annað eftir síðustu
kosningar. Þannig er staðan, að ég
hef talað við mjög marga Íslendinga,
enginn þeirra viðurkennir að hafa
kosið Framsóknarflokkinn. Menn
segjast ekki geta hugsað þá hugsun til
enda að hér fái helmingaskiptaveldið
enn og aftur að eyðileggja allt. En þrátt
fyrir að enginn hafi kosið flokkinn, er
hann samt að ná hér öllum völdum. Er
þetta ekki merkilegt …?
Nú skulum við leyfa okkur þann
munað að hugsa eina heiðarlega hugs-
un til enda: Getur verið að fólk hafi í
hugsunarleysi rölt á kjörstað og jafnvel
farið í sleik við vöndinn sem nánast
hýddi úr þjóðinni líftóruna í hinu róm-
aða góðæri? Og er þá hugsanlegt að
hér hafi ekki nokkur maður hugsað svo
mikið sem eina heila hugsun síðast-
liðin fjegur ár?
Þó að íslensk þjóðin enn
þjökuð hérna striti
þá hugsa okkar æðstu menn
aldrei neitt af viti.
Tollurinn mættur Tollverðir ganga um borð í Skálaberg RE 7, nýjasta togara útgerðarinnar Brims, sem kom til landsins á miðvikudag. Þeir voru dágóða stund um borð en
ólíklegt verður að teljast að þeir hafi fundið þar eitthvað misjafnt. Mynd SIgTryggur ArIMyndin
Skáldið skrifar
Kristján Hreinsson
Umræða 23Helgarblað 17.–21. maí 2013
Aðsent
Sighvatur
Björgvinsson
„Orðafátæktin og
orðsóðaskapurinn
er alls ekki einkenni allra
netverja – en margra.
Menn bíta á jaxlinn
og halda ró sinni
Sigurður Ægisson segir fólk á Siglufirði orðið þreytt á vetrinum. – DV
Vinsæl
ummæli
við fréttir DV.is í vikunni
10
6
11