Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.2013, Page 28

Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.2013, Page 28
28 Fólk 17.–21. maí 2013 Helgarblað Keyrði sig í Kaf S íðasti vetrardagur vildi verða merkilegur. Í morgunsárið hafði snjóað þar til jörð varð alhvít. En um hádegi hafði vor náð vopnum og bræddi sig gegnum lögin og sólargeislarnir teygðu sig langir og láréttir eftir borginni og bræddu klakann. Val­ gerður Matthíasdóttir er hins vegar ósnert af þessum gjörningi milli vors og sumars. Í sólargulum leðurjakka og glöð í sinni hefur hún að geyma sumar (og aukaherðapúða í tösku) fyrir alla kalda og eymdarlega daga ársins. Hún hefur þegar komið sér ágæt­ lega fyrir á 101 hóteli í miðborginni þegar blaðamann ber að garði og fengið sér sæti við hvítar stórglæsi­ legar og háreistar liljur í vasa. Hún veit að ljósmyndari er væntanlegur innan tíðar og er því vel undirbúin og tekur myndir með lítilli myndavél af þeim bakgrunni sem hún óskar sér í myndatökunni. „Svona er ég bara,“ segir hún og hlær. „Ég þarf alltaf að skipta mér af.“ Þjóðfélagsvitundin með móðurmjólkinni Valgerði, eða Völu Matt, þekkja allir landsmenn. Blaðamann langar að vita hvað á daga hennar hefur drifið og hvers vegna hún ákvað að taka þátt í kosningaslagnum en Vala gaf kost á sér með Lýðræðisvaktinni. Hún rekur stjórnmálaáhugann til foreldra sinna sem voru bæði virk í stjórnmálum. „Ég er alin upp í kennarafjöl­ skyldu þar sem foreldrar mínir voru bæði mikið hugsjónafólk og virk í stjórnmálum. Móðir mín, Elín G. Ólafsdóttir, var meðal annars ein af stofnendum Kvennalistans á sínum tíma og sat í borgarstjórn fyrir hönd Kvennalistans, einnig var hún mjög virk í kjarabaráttu innan BSRB og faðir minn var mjög virkur inn­ an Kennarasambandsins, þannig að það var alltaf mikil pólitísk þjóð­ félagsumræða á mínu heimili. Og mamma er ennþá eldheit baráttu­ kona. Við systkinin vorum alin upp við mikla réttlætiskennd og um­ ræður um hvað betur mætti fara til jöfnuðar og réttlætis í þjóðfélaginu. Þessa þjóðfélagsvitund fengum við systkinin með móðurmjólkinni sem síðan fylgdi okkur út í lífið.“ Öskureið Vala gekk til liðs við Lýðræðisvakt­ ina vegna þess að hún vildi tala fyrir breytingum og hvetja þjóðina til að sækja réttlæti. Að gera kröfu um að auðlindirnar verði í þjóðareign. Hún segist geta orðið öskureið þegar hún hugsar til þess óréttlætis sem þjóðin hefur þurft að sæta. „Í dag er það þessi áhersla á rétt­ læti og krafa um kjarabætur fyrir hin almennu heimili í landinu og bar­ átta fyrir nýrri endurbættri stjórnar­ skrá sem mér finnst mikilvægust. Og þar er eitt af mikilvægustu réttlætis­ málunum krafan um að auðlindir þjóðarinnar séu ekki áfram í hönd­ um örfárra heldur verði í þjóðareign og við það vænkist hagur almenn­ ings. Mér finnst þetta liggja svo í augum uppi sem sjálfsögð réttlætis­ krafa. Bara það að örfáir einstak­ lingar skuli eiga fiskikvótann okkar og hann gangi svo að erfðum í þeirra fjölskyldum til næstu kynslóða er náttúrlega svo fáráðlegt að engu tali tekur. Ég get orðið öskureið þegar ég hugsa til þess að við skulum hafa látið þetta yfir okkur ganga í svona langan tíma og ekki haft rænu á að leiðrétta þetta. En auðvitað vilja tals­ menn fjórflokkanna ekki breytingar og nú er útlit fyrir að þjóðin ætli að láta þetta aftur yfir sig ganga. Mér finnst það mjög sorglegt.“ Borgarbörn í sveit á sumrin Vala er alin upp í stórum systkina­ hópi, og þótt hún væri borgarbarn mótaði hún sterk tengsl við náttúr­ una í æsku. „Við vorum sex systkinin og því oft mikið fjör á heimilinu. Ég er elst og því fann ég fljótt til ábyrgðar eins og elstu systkini oftast gera. Það óneitan lega mótaði mig snemma. Við bjuggum alltaf á veturna í Reykjavík en svo voru foreldrar mín­ ir mjög sniðug að búa sér til ævin­ týri og skemmtilegheit á sumrin úti á landi með allan krakkaskarann. Við vorum til dæmis í Kjósinni nokk­ ur sumur þar sem pabbi vann sem veiðivörður í Laxá í Kjós og bjuggum við þá á sveitabænum Laxárnesi. Svo dvöldum við heil sex sumur í Þjórs­ árdal þar sem pabbi og mamma sáu um litla verslun og bensínsölu fyr­ ir Landleiðir og bjuggum við þá í yndislegu litlu sumarhúsi við Sandá. Þar var ekkert rafmagn og því yndis­ leg olíulampastemming. Þetta var al­ gjört ævintýri fyrir borgar börn eins og okkur. Það mótaði okkur öll að fá að vera svona mikið í villtri íslenskri náttúru og kynnast lífinu á bónda­ bæjunum í þessum fallegu sveitum.“ Töfrar hlátursins Glaðværðin og hláturinn hefur fylgt Völu úr æsku. Hún er þekkt fyrir létta lund sína og vill líkja áhrifamætti hlát­ urs við töfra. „Ég man að ég var ekki orðin mjög gömul þegar ég uppgötvaði mátt glað­ værðar og hláturs. Það eru einhverjir töfrar sem myndast þegar fólk fer að hlæja. Ég man mjög vel þegar ég fann fyrir því í fyrsta sinn, það er að segja þegar ég kom öðrum til að hlæja. Pabbi var alltaf mjög rólegur og skap­ góður maður en um leið mjög hnytt­ inn og skemmtilegur og ég held að ég hafi lært af honum mjög snemma hve mikilvægt það er að finna gleðina í hversdagsleikanum. Finna leiðir til að sjá spaugilegar hliðar lífsins jafnvel þegar síst skyldi. Þessi eiginleiki að sjá hlutina með húmor er ekki alltaf sjálfgefinn. Ég held að maður verði að vinna í því og þroska það með sér og það gagn­ ast auðvitað ekki alltaf. En það er oft sem það hreinlega bjargar manni í erfiðum aðstæðum. Svo eru auðvitað til rannsóknir sem sýna fram á það að líkamsstarfsemin hreinlega breyt­ ist við hlátur. Við hlátur myndast svokölluð endorfín, eða náttúruleg morfín líkamans. Og dæmi eru um að menn hafi hreinlega læknað sjúk­ dóma með þessum efnaskiptum sem verða við hlátur og er þar líklega einna þekktastur bandaríski prófessorinn Norman Cousins sem skrifaði met­ sölubókina Anatomy of an Illness þar sem hann fjallar um sína reynslu af því. Mér finnst þetta mjög áhugavert.“ Bindindisheit á unglingsárum Það kemur líklega fáum á óvart að Vala gerði ekki byltingakennda upp­ reisn á unglingsárum. Hún strengdi bindindisheit ung að árum sem hún hefur haldið síðan. „Unglingsárin hjá mér voru frekar tíðindalítil. Ég var samviskusamur nemandi, enda varla annað í boði þar sem foreldrar mínir kenndu við skól­ ann sem ég gekk í. En ég var strax þá byrjuð að fara mínar eigin leiðir. Ég til dæmis ákvað að ég skyldi hvorki fikta við reykingar eða prufa að drekka áfengi þó margir væru í þess konar Valgerður Matthíasdóttir hefur átt lengra líf í íslenskum fjölmiðlaheimi en flestir aðrir. Þar starfaði hún af brennandi ástríðu og lagði allt undir. Stund- um svo mikið að hún keyrði sig í kaf. Blaðamaður settist niður með Valgerði á 101 hóteli í Reykjavík á síðasta vetrardegi ársins, snæddi með henni fokdýra súkkulaðiköku og ræddi við hana um vinnuálagið, töfra hlátursins, ævintýrin með Jóni Óttari, stjórn- málin og síþreytuna sem hún glímir við í dag. fikti á þeim tíma og ég hef haldið því alla tíð síðan. Ég tók alltaf þátt í öllum skólaleikritum og kórum og fannst það skemmtilegast. Ég var líka mikill lestrarhestur og fannst alltaf best þegar rigndi úti eða veðrið var vont því þá gat ég gleypt í mig allar þær þúsundir bóka sem foreldrar mínir áttu og pabbi hafði smíðað hillur fyr­ ir upp um alla veggi. Þetta var minn heimur. Mér hefur því alltaf fundist myrkrið á veturna þægilegt og rign­ ingin góð. Það gefur mér einhvern innri frið sem ég finn ekki eins vel í sól og mikilli birtu.“ Elti ástina til Danmerkur Þegar Vala var yngri lét hún sig dreyma um að starfa í töfraheimi leikhússins. Ástin leiddi hana þó á aðrar slóðir. Til Danmerkur þar sem hún kynntist arkitektúr. „Ég var strax sem unglingur heilluð af töfraheimi leikhússins og kvikmyndum. Og svo teiknaði ég mikið og málaði myndir, þannig að ég sá mig alltaf fyrir mér í heimi menningar og lista. Mamma er mjög listræn og málaði bæði olíu­ myndir og vatnslitamyndir og er mjög skapandi og frjó manneskja og pabbi var þessi klassíska bók­ menntatýpa, prófessorinn sem aldrei var öðruvísi en með pípu og bók í hönd. Þarna lágu mín áhuga­ mál. Ég átti mér lengi vel draum um að fara í nám sem tengdist leikhúsinu, annaðhvort leiklistar­ nám eða leikmyndahönnun. Ég fór í menntaskólann við Hamrahlíð og á síðasta ári mínu þar varð ég ástfangin af barnsföður mínum Ólafi Árnasyni sem var þá nýbyrj­ aður í arkitektanámi í Danmörku. Ég flutti því út til hans til Danmerk­ ur og þar kynntist ég arkitektanám­ inu í gegnum hann. Þannig varð það mjög afdrifaríkt fyrir mig að kynnast honum á þessum tíma.“ Hressóævintýrið Völu líkaði námið vel en á meðan hún var enn í námi skildi hún við eiginmann sinn. Hún kláraði sex ára mastersnám í arkitektaskólanum í Kristjana Guðbrandsdóttir kristjana@dv.is Viðtal „Einu sinni var ég flutt upp á spítala í sjúkrabíl í nýrnakasti nær dauða en lífi. En ég lét það ekki stoppa mig, heldur boðaði bara fundi með Jóni Óttari og stjórninni upp á spítala.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.