Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.2013, Side 32
32 Eurovision 17.–21. maí 2013 Helgarblað
en fullkomnunarsinni
Þ
að er ekki hægt annað en að
vera ánægður með þetta –
þetta er bara frábært,“ sagði
Eyþór Ingi þegar DV náði
tali af honum þegar í ljós
var komið að Ísland komst áfram
og tryggði sér þátttökurétt á loka
kvöldinu í Eurovision. „Tilfinning var
mjög góð – það er rosalega gaman
að fá annað tækifæri til þess að gera
þetta.“
Aðspurður um hvort hann hafi
búist við því að komast áfram á úr
slitakvöldið segir Eyþór: „Nei – í
rauninni ekki – ég hugsaði ekkert um
það. Það var ekki fyrr en það var ver
ið að lesa upp spjöldin að ég hugs
aði: „Já, alveg rétt – það er komið að
þessu.“
„Ég varð svona hálfmeyr,“ segir
Eyþór um upplifun sína á sviðinu:
„Ég hugsaði um fólkið mitt í salnum
– fjölskylduna mína heima, börnin
mín, en annars var ég mjög slakur.“
Nú taka við frekari æfingar og hljóð
prófanir fyrir lokakvöldið á laugar
daginn.
Einlægur og listhneigður
„Hann er góðhjartaður. Hann er
húmoristi með yndislega nærveru.
Það er sama hvað gengur á, hann er
alltaf með báða fætur á jörðinni. Hann
er ótrúlega rólegur og yfirvegaður,“
segir Soffía Ósk Guðmundsdóttir um
unnusta sinn Eyþór Inga.
„Hann er ofboðslega einlægur og
ljúfur, hann Eyþór Ingi,“ segir Guð
björg Stefánsdóttir móðir hans. „Hann
á það til að vera utan við sig, hann er
mikill sveimhugi þessi elska enda á
hann við athyglisbrest að stríða.“
Eyþór Ingi er fæddur árið 1989 og
uppalinn á Dalvík. Að sögn var hann
gott og meðfærilegt barn. Listrænir
hæfileikar hans komu snemma í ljós,
hann var farinn að leika og syngja
þegar hann var eins og hálfs árs eða
um leið og hann varð talandi. „Ég var
viss um það þegar hann var lítill strák
ur að hann myndi annaðhvort helga
sig leiklist eða tónlist. Ég hélt lengi að
leiklistin yrði ofan á því ég gerði mér
ekki grein fyrir því hvað hann hafði
ofsalega sönghæfileika fyrr en hann
lék Jesú í Jesus Christ Superstar, þá var
hann 17 ára,“ segir Guðbjörg.
Þrátt fyrir að Eyþór Ingi sé ungur
að árum hefur hann komið víða
við. Hann byrjaði að leika með leik
félaginu á Dalvík þegar hann var ung
lingur og hann tók þátt í söngleiknum
Oliver Twist hjá Leikfélagi Akureyrar.
Eins og áður segir fór hann með hlut
verk Jesú í Jesus Christ Superstar, tók
þátt söngvakeppni framhaldskólanna
árið 2007 og fór með sigur af hólmi. Ári
síðar sigraði hann í sjónvarpsþættin
um Bandið hans Bubba á stöð 2. Fyrir
tveimur árum tók hann þátt í uppfær
slu Leikfélags Akureyrar á Rocky Hor
ror og var það sama ár tilnefndur til
Grímuverðlauna. Ári síðar söng hann
í Hárinu í uppfærslu Silfurtunglsins
og í fyrravetur fór hann með hlutverk
í Vesalingunum sem Þjóðleikhúsið
setti upp. Þá hefur hann sungið með
ýmsum hljómsveitum. Það er því ekki
hægt að segja annað en að Eyþór Ingi
hafi átt mikilli velgengni að fagna á
ferlinum. „Hann er mikill fagmaður
sem vill alltaf gera betur. Hann spyr
alltaf hvernig hann hafi staðið sig og
hvort það sé hægt að gera betur,“ segir
Júlíus Júlíusson sem vann með Eyþóri
Inga hjá leikfélaginu á Dalvík. Þeir
sem DV ræddi við ber öllum saman
um að Eyþór Ingi sökkvi sér ofan í það
sem hann er að gera á hverjum tíma
og reyni stöðugt að bæta sig. Þannig
hafi hann verið frá því hann var krakki
á Dalvík sem lék sér að því að herma
eftir Ladda. Það gerði hann af svo mik
illi snilld að hann sigraði í eftirhermu
keppninni Laddanum á Rás 2 fyrir
nokkrum árum.
Álíka skrýtnir
Guðbjörg móðir hans segir að hann
hafi farið að læra á harmónikku þegar
hann var sjö ára. Sem krakki hafi hann
samið lög á nikkuna. En það var ekki
bara tónlistin og leiklistin sem heill
uðu. „Hann var alltaf að skapa, hann
var ekki bara í tónlist og leiklist hann
teiknaði mikið, bjó til leirkarla og
leirkarlamyndir,“ segir hún.
„Við erum búnir að þekkjast frá
því við vorum smástrákar. Þegar við
byrjuðum í grunnskóla komumst við
að því að við vorum álíka skrýtnir og
höfðum svipuð áhugamál sem voru
að skapa eitthvað. Við lékum og vorum
alltaf að búa eitthvað til. Við spiluðum
líka fótbolta og æfðum á tímabili með
liðinu á Dalvík. Eyþór átti aldrei heima
í boltanum svo hann hætti. Hans
hæfileikar lágu annars staðar,“ segir
Guðmundur Ingi Halldórsson, æsku
vinur Eyþórs, og bætir við að eitt hafi
einkennt Eyþór Inga sem barn og geri
ef til vill enn í dag: „Hann dró alltaf gott
fólk til sín og sá til þess að enginn yrði
út undan. Ég var skapmikill sem krakki
og átti erfitt með að viðurkenna mistök
mín. Hann var einn af fáum sem gátu
fengið mig til að hugsa mig um og biðj
ast afsökunar. Hann hafði og hefur enn
þann dag í dag sterka réttlætiskennd.“
Góður vinur og matargat
Þegar vinir Eyþórs Inga eru spurðir að
því hvern mann hann hafi að geyma
þá stendur ekki á svörunum. „Hann
er fyrst og fremst góður drengur og
afar hæfileikaríkur,“ segir Júlíus Júlíus
son. Guðmundur Ingi tekur í svipað
an streng. „Hann er góður maður, ein
lægur, traustur vinur sem gerir allt vel.
Okkar vinátta er hógvær en afskap
lega sterk. Við getum verið innhverf
ir saman. Þurfum ekki alltaf að vera
að tala saman þegar við erum saman.
Það er það sem gerir vinabönd að
sterkum vinaböndum,“ segir hann.
Annað sem vinir og fjölskylda
segja um Eyþór Inga er að honum
þyki gott að borða. „Honum finnst
gott að láta dekra við sig. Eyþór Ingi
kemur oft norður og pabbi hans er
listakokkur og er duglegur að elda
ofan í hann. Eyþóri Inga finnst al
veg nauðsynlegt að fá grillaða hnísu
í hvert skipti sem hann kemur norð
ur. Það finnst honum alveg svakalega
gott,“ segir Guðbjörg.
„Hann mætti nú alveg vera aðeins
duglegri við heimilisstörfin en hann
gerir vel það sem hann gerir. Hann
er með matarást. Hann segir sjálfur
að hann hafi ekki erft kokkshæfileika
föður síns, bara ástríðuna við að
borða,“ segir Soffía.
„Hann er matargat. Það er nú yfir
leitt ég sem sé um að elda og bjóða
í mat. Þegar við vorum krakkar var
hann flinkur að rista brauð. Það
var alltaf nóg af ristuðu brauði og
bönunum heima hjá honum,“ segir
Guðmundur Ingi.
n Þriggja barna faðir frá Dalvík n Komst upp úr forkeppni Eurovision
Hefur ekki mikinn áhuga á Eurovision
É
g fékk engin bein tækifæri eftir
að ég tók þátt í keppninni, en
þetta fór í reynslubankann sem
maður þarf að taka út úr öðru
hverju. Ég hef ekki mikinn áhuga á
þessari keppni en hún er ágætis af
þreying fyrir þá sem hafa áhuga á
henni,“segir Daníel Ágúst Haralds
son söngvari. Hann er söngvari í
hljómsveitinni Ný danskri sem allir
landsmenn þekkja en síðustu ár
hefur hann einnig gert góða hluti
með GusGus sem er
orðin fræg út fyrir
landsteinana. Auk
þess hefur hann
verið í samstarfi
við Krumma en þeir
skipa dúettinn Esju.
Árið 2005 gaf Daníel Ágúst
út sólóplötuna One Little Indian.
Nú er Daníel að semja nýtt efni
með GusGus sem landsmenn
mega vænta. „Við erum að vinna í
nýju efni með GusGus og þá er á
döfinni í haust að syngja með Ný
danskri á tónleikum í Eldborg.“
n Gerði garðinn frægan með GusGus
„Hann teiknaði
mikið, bjó til
leirkarla og leirkarla-
myndir.
Nærgætinn ljúflingur
Kristjana Guðbrandsdóttir
kristjana@dv.is
Nærmynd
L
agið Nína á sérstak
an stað í hjörtum
Íslendinga þótt
það hafi ekki
náð langt í keppn
inni. Stebbi og Eyfi
hafa unnið mikið
saman síðan þeir
fóru út með Nínu.
Þeir hafa haldið
fjölda tónleika saman
og gáfu út plötuna Nokkrar
notalegar ábreiður árið 2006
og Fleiri notalegar ábreiður árið
2011.
Farsælir
listamenn
n Nína vinsælt lag
Kominn í úrslit
Eurovision-farinn Eyþór
Ingi Gunnlaugsson á
sviðinu í Malmö. mynd rEutErs
Gerir vel „Hann er mikill fagmaður sem vill allta
f gera
betur. Hann spyr alltaf hvernig hann hafi st
aðið sig og
hvort það sé hægt að gera betur,“ segir vinu
r hans.