Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.2013, Qupperneq 35
Eurovision 35Helgarblað 17.–21. maí 2013
Rokkar og
kennir börnum
E
in helsta og jafnframt fyrsta
Eurovision-hetja Íslendinga
mætti aftur til leiks árið
2007. Það var enginn annar
en sjálfur Eiríkur Hauksson sem
flutti ógleymanlega Gleðibank-
ann árið 1986 ásamt Helgu Möll-
er og Pálma Gunnarssyni. Eiríkur
flutti lagið Ég les í lófa þínum sem
náði þó ekki inn í aðalkeppnina.
Í dag býr Eiríkur hátt uppi
á hæð í Frederikstad, smábæ í
grennd við Ósló með útsýni yfir
allan bæinn og beint á móti hon-
um býr einmitt annar rokkari,
Åge Sten Nilsen í Wig Wam, sem
er mörgum Íslendingum kunnur.
Gamlir rokkarar mætast
„Hverfið er stundum í gamni
kallað Beverly Hills, og það
er skemmtileg tilviljun að við
Åge Sten höfum báðir keppt í
Eurovision. Við mætumst hérna
gömlu rokkararnir,“ segir Eiríkur.
Hann hefur búið í Noregi í 24
ár, glímt við krabbamein, skilnað
en náð bæði bata og æskuástinni
aftur til sín. Kannski við ættum
að senda Eirík aftur í Eurovision.
Hann kann að rata af botninum
og alla leið upp á topp.
„Ég flutti hingað eingöngu út
af tónlistinni, fékk tilboð um að
vera í metalbandi hérna og lét
slag standa,“ sagði Eiríkur nýlega
í viðtali við DV. Í Noregi hefur Ei-
ríkur kennt börnum og ungling-
um sem aðrir hafa gefist upp á
og notar sínar eigin aðferðir til að
ná til þeirra. Í þeim efnum seg-
ir hann gilda að láta ungmenn-
in finna fyrir því að þau eigi sér
bandamann.
Nóg að gera í tónlistinni
„Það er nokkuð sem er mjög
mikil vægt. Þetta eru krakkar sem
bæði skólar og heimili hafa gef-
ist upp á,“ segir Eiríkur sem hefur
nóg við að vera í tónlistinni í Nor-
egi. Hann túrar með Ken Hensley
(fyrrverandi meðlimi Uriah
Heep) en saman eru þeir í norsku
sveitinni Live Fire. Hann er líka
einn aðalsöngvari sveitarinn-
ar Magic Pie, og í þeirri sveit er
hann líka gítarleikari.
n Býr í norska Beverly Hills n Hefur glímt við krabbamein
n Segir Ingibjörg Stefánsdóttir
Valentine Lost Eiki
átti að taka Eurovision
á rauða hárinu og rokk-
inu en náði ekki í gegn.
Býr í norska Beverly Hills Eiríkur býr
í grennd við frægar Eurovision-kempur í
Frederikstad í Noregi.
S
elma hefur verið
áberandi í íslensku
tónlistarlífi frá því
keppnin fór fram,
auk þess sem hún hefur
getið sér gott orð sem
leikkona og leikstjóri. Það
dró þó til tíðinda hjá henni
nýlega. „Ég var atvinnulaus og
allt í rugli,“ sagði Selma í viðtali
við Nýtt Líf fyrir ári. Þar greindi
hún frá skilnaði við fyrrverandi
eiginmann sinn, Rúnar Frey Gísla-
son leikara. Selma var í
leikstjórnarnámi í Bristol
þegar ákvörðun um
skilnað var tekin. „Ég
var nýbyrjuð í skólanum
þegar líf mitt tók skyndi-
lega u-beygju og ég gat
ekki haldið áfram í nám-
inu,“ segir Selma í viðtalinu
en hún fluttist heim til barna sinna
á miðju leikári. „En neyðin kennir
naktri konu að spinna,“ sagði
Selma og skellti í eina plötu.
Hársbreidd frá
því að sigra
Sakna tónlistarinnar
I
ngibjörg Stefáns-
dóttir flutti lagið
Þá veistu svar-
ið á Írlandi og
varð í 13. sæti.
„Þetta var
æðisleg reynsla en
það hrúguðust ekki
að mér atvinnutilboðin
eftir keppnina,“ segir Ingibjörg.
Eftir keppnina var hún í hljóm-
sveit en hélt svo fljótlega til
Bandaríkjanna í leiklistar- og
dansnám.
„Ég var talsvert að syngja
eftir að ég kom út og eftir að ég
kom heim úr námi tók ég þátt
í nokkrum söngleikjum,“ segir
hún. Ingibjörg kynntist jóga í
Bandaríkjunum og heillaðist
af því. Hún hefur hin síðari ár
kennt jóga og á og rekur stöðina
Yoga Shala. „Ég er búin að vera
í tónlistarnámi og sem mikið
af tónlist. Nú er ég með tvö lítil
börn og það þriðja rétt ókomið í
heiminn. Ef það er eitthvað sem
ég sakna í lífinu þá er það tónlist
og söngur og það er alltaf verið
að hvetja mig til að gera meira á
því sviði,“ segir hún.
Eurovision-drottning Íslands
Þ
ótt Hera Björk hafi verið stórglæsilegt á sviðinu í
Þýskalandi og frammistaða hennar hafi verið til
fyrir myndar náði hún ekki nema 19. sæti. Þrátt fyrir
þetta eignaðist hún fjölda aðdáenda um allan heim
og voru stofnaðar aðdáendasíður henni til heiðurs.
Hún var búsett í Danmörku um tíma og tók þátt í
undankeppninni þar árið 2009 með laginu Someday sem
vakti mikla athygli.
Í mars gerði hún sér svo lítið fyrir og sigraði í stórri
lagakeppni í Chile sem er sjónvarpað um allan hinn
spænskumælandi heim. Lagið heitir Because You Can
en Hera Björk samdi það ásamt lagahöfundinum Örlygi
Smára og tveimur dönskum höfundum. Verðlaunin voru
ekki af verri endanum en Hera fékk rúmar fjórar milljónir
íslenskra króna fyrir sigurinn.
Hera Björk hefur komið fram á hinum ýmsu tónleik-
um, svo sem Frostrósum, en auk þess rekur hún verslun á
Laugarveginum sem heitir Púkó og smart.
n Með fjölda trompa á hendi
Je Ne Sais Quoi
Hera eignaðist fjölda
aðdáenda víða um
heim eftir þátttöku
sína í keppninni.