Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.2013, Blaðsíða 40
É
g er alltaf að lofa mínu fólki
að ég sé hættur. Ætli þetta
sé ekki mín síðasta sýning,“
segir Magnús en hann hefur
unnið í þágu listagyðjunnar í
um sex áratugi. Verk Magnúsar eru
fjölbreytt. Hann starfar á mörkum
leikhúss, tónlistar og myndlistar og
hefur upplifað fleiri en eina byltingu
í íslenskri myndlist.
Óhefðbundin sýning
Á yfirlitssýningunni á Listahátíð er
einblínt á sviðsetta gjörninga Magn
úsar á árunum 1980–2013; fimm af
gjörningum Magnúsar verða endur
fluttir í nýrri mynd og nýtt verk frum
flutt.
„Þetta er því ekki hefðbundin yfir
litssýning,“ útskýrir Magnús. „Það á
að vinna verkin upp á nýtt. Eins og
gerist í leikhúsi. Menn nálgast leikrit
alltaf á nýjan hátt og hver uppsetn
ing er mismunandi eftir því hver er
við stjórnvölinn. Í mínum verkum
eru handritin mun opnari en venju
leg leikhúshandrit og því hægt að
fara með verkin í margar áttir.
Það er líka stórskemmtilegt að
ungir listamenn koma nú að því að
setja upp mína gjörninga. Ég hef
sjálfur framkvæmt þetta áður en
nú fara aðrir listamenn eftir mínu
handriti og gera þetta á sinn hátt. Ég
er spenntur að sjá afraksturinn.“
Sterk tengsl við leikhúsið
Tengsl Magnúsar við leikhúsið eru
sterk. Hann lærði að búa til leik
myndir í Englandi og starfaði innan
veggja leikhússins.
„Já, leikhúsið er mér mikilvægt.
Mér þykir mjög vænt um leikhús.
En ég er ekki alltaf ánægður með
hvernig unnið er í leikhúsinu. Þess
vegna sneri ég mér að gjörning
um. Það er í raun sami miðillinn þó
framkvæmdin sé öðruvísi. Tæknin er
svipuð, hvernig mannslíkaminn er
notaður, en nálgunin önnur.“
Upplifði byltingar í listum
Magnús upplifði mikla um
breytingartíma í íslensku listalífi.
Hann var ungur og leitandi lista
maður á Flúxustímanum – þegar
listamenn eins og John Cage, Joseph
Beuys og Dieter Roth breyttu hug
myndum manna um hvað væri list.
„Þessir listamenn voru mínir
kollegar – þó ég þekkti ekki nema fáa
af þeim persónulega. En mitt mót
unarferli átti sér stað á þessum tíma.
Upp úr 1960,“ segir Magnús. „Fyrst
fylgdist maður með breytingum úr
landslagslist yfir í flata list abstrakts
ins. Það var bylting. Svo á sér stað
önnur bylting í kringum 1960 sem
er gjarnan kennd við Flúxushóp
inn, þó ekki sé allt frá honum komið.
Og svo er byltingin í list sjöunda ára
tugarins þegar hugmyndalistin kem
ur fram – konseptlistin.“
En hvað finnst þér um listaumhverfið
í dag?
„Það eru margfalt fleiri menntaðir
listamenn. Það er ólíku saman að
jafna; allur þessi fjöldi sem geng
ið hefur í gegnum listaskóla er að
fást við list á einhvern hátt. Þetta er
gífurlegur fjöldi miðað við þær fáu
hræður sem voru að fást við þetta á
mínum ungdómsárum. Við höfum
kannski ekki horft á jafn róttækar
byltingar í listum á síðustu árum. En
listin er alltaf að breytast og þróast.
Mér finnst reyndar betra að tala um
breytingar í tengslum við listir. Ekki
þróun.“
Lúðrahljómur í skókassa
Heiti yfirlitssýningarinnar er
Lúðrablástur í skókassa. Það er til
vísun í verk eftir Magnús frá árinu
1976. Verkið samanstóð úr þremur
hlutum úr gifsi. Einn hlutur hékk í
loftinu en tveir lágu á borði. Titilinn
sótti hann í fræga sögu af barónin
um og lygalaupnum Münchausen.
„Münchausen var á veiðum og
ætlaði að blása í veiðihornið sitt en
það var svo mikið frost að hljóm
urinn fraus í horninu. Síðar um
40 17.–21. maí 2013 Helgarblað
m e n n i n g @ d v . i s | d v . i s / m e n n i n g
„Blóðug endurgerð“ „Frábær klækjavefur“
Evil Dead
Fede Alvarez
House of
Cards
Síðasta stuna listamanns
Viðtal
Símon Birgisson
simonb@dv.is
Myndlistarmaðurinn Magnús Pálsson er í aðal-
hlutverki á Listahátíð í Reykjavík sem hefst nú um
helgina. Á laugardaginn verður opnuð yfirlitssýning á
verkum hans sem ber heitið Lúðurhljómur í skókassa.
Magnús segir sýninguna þá síðustu á sínum ferli.
„En listin er
alltaf að
breytast og þróast
Gjörningar sem fluttir verða á
sýningunni:
18. maí
Sprengd hljóðhimna
vinstra megin (1991)
Stjórnandi: Þórunn S. Þorgrímsdóttir. Flytj-
endur: Arnar Jónsson, Edda Arnljótsdóttir,
Guðný Helgadóttir o.fl.
Stuna (2013)
Stjórnendur: Hörður Bragason og Pétur
Magnússon Flytjendur: Íslenski hljóðljóða-
kórinn
20. maí
Einsemd: Steypa
Stjórnandi: Ragnhildur Stefánsdóttir
Flytjendur: Þungarokkshljómsveitin MUCK
23. maí
Ævintýr (1997)
Stjórnandi: Atli Ingólfsson og Þráinn
Hjálmarsson
Flytjendur: Bergur Ingólfsson, Katla M.
Þorgeirsdóttir o.fl.
Þrígaldur þursavænn (2000)
Stjórnendur: Ingibjörg Magnadóttir og
Jóhanna Friðrika Sæmundsdóttir
Flytjendur: Nemendur í LHÍ
25. maí
Kross (1996)
Stjórnendur: Guðmundur Oddur Magnússon
og Daníel Björnsson
Flytjendur: Íslenski táknmálskórinn og
Kammerkór Suðurlands
Lúðurhljómur í skókassa
n 18. maí–1. september