Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.2013, Síða 42
S
káldsagan The Great Gatsby
eftir F. Scott Fitzgerald sló ekki
í gegn þegar hún kom fyrst út
árið 1925. Þegar höfundurinn
lést, árið 1940, voru aðeins 25 þús-
und eintök af bókinni seld. Í dag hef-
ur bókin selst í meira en 25 milljónum
eintaka; bókin er álitin eitt lykilverka
bandarísku skáldsögunnar og er lesin
í skólum víðsvegar um heim.
Stórleikari í aðalhlutverki
Kvikmyndaútgáfu Baz Luhrmann
hefur verið beðið með mikilli eftir-
væntingu. Ekki skemmir fyrir að að-
alleikari myndarinnar er Leonardo
DiCaprio. Hann er einn af betri leikur-
um sinnar kynslóðar – hefur leikið
í stórmyndum á borð við Titanic og
The Departed.
Nú liggja leiðir hans og leikstjórans
Baz Luhrmann aftur saman. Le-
onardo varð súperstjarna þegar hann
lék í hinni stórfenglegu Rómeó + Júlía
– í leikstjórn Baz Luhrmann. Þá var
Leonardo DiCaprio aðeins 21 árs.
Nú er leikarinn orðinn 38 ára, á sama
aldri og J. Gatsby sjálfur.
Heillandi söguefni
The Great Gatsby fjallar um merki-
lega tíma í bandarísku samfélagi –
þegar sala á ólöglegu áfengi bjó til
mafíur og milljónamæringa, djass-
tónlistin réð ríkjum og veisluhöld og
glamúr átti sér engin takmörk.
Það er því kannski ekki að undra
að söguefnið heilli Baz Luhrmann.
Myndir hans eru yfirleitt sjónræn
rússíbanareið, hann hefur sinn eigin
stíl og rödd, blandar saman tónlist,
tísku og tímabilum svo úr verður
veisla fyrir augað. Hans þekktu-
stu myndir, fyrir utan ástarsöguna
Rómeó + Júlíu, eru Moulin Rouge,
Australia og Strictly Ballroom.
The Great Gatsby er fyrsta mynd
Luhrmann sem hann tekur upp í þrí-
vídd.
Óendurgoldin ást
The Great Gatsby hefur fengið ágætis
gagnrýni. Leonardo DiCaprio þykir
vera réttur leikari á réttum stað. Toby
Maguire leikur sögumanninn Nick
Carraway, sem flytur til Long Island
þar sem hann kemst í kynni við Jay
Gatsby. Og Carey Mulligan leikur
Daisy – stúlkuna sem Gatsby dreymir
um en fær ekki. Hann hefur reist höll
og heldur veislur til að ganga í augun
á Daisy, sem sjálf er gift manni sem er
henni ótrúr.
Þetta er saga um auðugt fólk og
veruleikafirrt og örlög þeirra eru í takt
við lífið sem þau lifa.
Mikil eftirvænting
Ást, afbrýðisemi og grimm örlög og
einn besti leikari í heimi í þrívídd.
Það er ekki að undra að margir tali um
The Great Gatsby sem eina af mynd-
um ársins. Hvort hún standi undir
væntingum kemur í ljós um helgina
þegar myndin verður frumsýnd. n
simonb@dv.is
S
ýningin H, an Incident eftir
Kris Verdonck var frum-
sýnd á virtri listahátíð í
Brussel í gær. Sýningin er
byggð á smásögum eftir
rússneska skáldið Daniil Harms
og er lýst á vef hátíðarinnar sem
post-human óperu. Eða óperu fyrir
heim án mannkyns – enda eru sjálf-
spilandi hljóðfæri í aðalhlutverki.
Tónlistin í sýningunni er eftir
Jónas Sen og Valdimar Jóhanns-
son og Erna Ómarsdóttir stjórnar
og leiðir danskór sem syngur í sýn-
ingunni.
Meðlimir kórsins eru sjö –
leikkonurnar Brynhildur Guðjóns-
dóttir og Þórunn Arna Kristjáns-
dóttir og dansararnir Katrín
Gunnarsdóttir, Þyrí Huld Árna-
dóttir, Sigríður Soffía Níelsdóttir
og Erna Ómarsdóttir. Erna er eitt
þekktasta nafnið í íslenska dans-
heiminum og náin samstarfskona
Kris Verdonck, höfundar sýningar-
innar.
„Þau vildu íslenskan kór til að
syngja í sýningunni en á sviðinu
eru fjöldi sjálfspilandi hljóðfæra-
vélmenna,“ segir Þórunn Arna
Kristjánsdóttir stuttu fyrir frumsýn-
inguna sjálfa. Hún segir sýninguna
afar tæknilega. Sjálfspilandi hljóð-
færi séu í aðalhlutverki og mikið
mæði á tæknimönnum.
Fjöldi frægra listamanna sýnir
á hátíðinni. Til dæmis Heiner
Goebbels, sem þekktur er fyrir að
blanda saman tónlist og leikhúsi.
Og Milo Rau, sem er þekktur fyrir
framsækið heimildaleikhús.
En hvernig var valið í þennan ís-
lenska danskór?
„Aðalleikari sýningarinnar er
frægur belgískur leikari sem er tveir
metrar á hæð. Hugmyndin var því
víst að kórinn ætti að vera saman-
settur úr litlum íslenskum stúlk-
um. Helst að við værum undir 160
sentímetrum á hæð,“ segir Þórunn.
,,Sem gerir þetta auðvitað að mjög
skemmtilegum hóp. Svo kom Sigga
Soffía inn í kórinn. Hún er tals-
vert stærri en við hinar. Við erum
því eins og fimm dvergar með eina
Mjallhvíti í hópnum.“ n
42 Menning 17.–21. maí 2013 Helgarblað
Leikhús
Símon Birgisson
simonb@dv.is
Peningar, ást og afbrýðisemi í þrívídd
n Ein frægasta skáldsaga allra tíma á hvíta tjaldið
Smávaxinn íslenskur
danskór í Brussel
n Syngja undir stjórn Ernu Ómarsdóttur
Sjálfspilandi
hljóðfæri
Jónas Sen
og Valdimar
Jóhannsson
semja tónlistina.
Íslenski danskórinn Þórunn
Arna, Katrín Gunnars, Sigríður
Soffía, Þyrí Huld, Brynhildur Guð-
jónsdóttir og Erna Ómarsdóttir.
„Við erum því eins og
fimm dvergar með
eina Mjallhvíti í hópnum
Leonardo DiCaprio í hlutverki Jay
Gatsby Glaumgosi og milljarðamæringur
sem fær ekki stúlkuna sem hann elskar.
Ánægð með
stuttmyndahátíð
„Þetta gekk mjög vel og það var
afar góð stemming,“ segir Brynja
Dögg Friðriksdóttir en hún er í
forsvari fyrir stutt- og heimilda-
myndahátíðina Reykjavík Shorts
and Docs. Hátíðinni lauk í gær
og voru veitt verðlaun fyrir þær
myndir sem þóttu skara fram úr. A
World Not Ours eftir Mahdi Fleifel
var valin besta heimildamynd ný-
liða en hún fjallar um flóttamenn í
palestínskum flóttamannabúðum.
Besta íslenska stuttmyndin var
myndin No Homo eftir Guðna
Líndal Benediktsson sem fjallar
um viðbrögð stráks við þeim frétt-
um að vinur hans sé samkyn-
hneigður.
Dagskrá helguð
Herdísi
Leikkonan Herdís Þorvaldsdóttir
er í aðalhlutverki í Útvarps-
leikhúsinu nú um hvítasunnu-
helgina. Á sunnudaginn verð-
ur flutt sérstök dagskrá þar sem
spiluð verða hljóðbrot af ferli
Herdísar úr safni Ríkisútvarpsins.
Umsjónarmaður þáttarins er Við-
ar Eggertsson og hefst þátturinn
13.20. Þar á eftir, í sjónvarpinu,
verður flutt viðtal Evu Maríu
Jónsdóttur við Herdísi. Og á ann-
an í hvítasunnu verður heimilda-
myndin Fjallkonan hrópar á
vægð eftir Herdísi á RÚV klukkan
14.00. Herdís var ein af ástsæl-
ustu leikkonunum þjóðarinnar.
Hennar síðasta hlutverk var í leik-
ritinu Karma fyrir fugla. Herdís
lést í apríl. Hún var fædd árið
1923.
Jón Atli gefur
út bók
Rithöfundurinn Jón Atli Jónasson
hefur sent frá sér bókina Börnin í
Dimmuvík. Um er að ræða skáld-
sögu sem gerist árið 1930. Bókin
segir frá aldraðri konu sem heim-
sækir æskuslóðirnar til að vera
viðstödd jarðarför bróður síns.
Hún rifjar um leið upp voveiflega
atburði sem áttu sér stað árið 1930
þegar fjölskyldan lenti í miklum
harðindum og hungrið svarf að.
Jón Atli er eitt af okkar þekktari
leikskáldum en leikrit hans Djúp-
ið hefur verið sett upp bæði hér á
landi og í Þýskalandi.