Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.2013, Qupperneq 44
44 Lífsstíll 17.–21. maí 2013 Helgarblað
Sófinn í eldhúsinu
D
íana Bjarnadóttir er út-
litsráðgjafi og stílisti. Hún
starfaði meðal annars
á Ítalíu og í London um
árabil þar sem hún var
stílisti stjarnanna, hjá Giorgio
Armani og Gucci. Árni Þór er mikill
hestamaður og stundar fjölskyldan
öll hestamennsku af mikilli ástríðu.
Sérpantaður frá Hollandi
Þau Árni og Díana bjuggu um
árabil í Hollandi, en Díana er upp-
alin á Selfossi. Fjölskyldan hefur
komið sér fyrir í huggulegri íbúð í
Norðlingaholti. Ljósmyndari DV
fékk að líta í heimsókn til fjöl-
skyldunnar og mynda þau á sínum
uppáhaldsstað – í sófanum sem
húsfreyjan hannaði og sérpantaði
frá Hollandi.
„Sófann keypti ég eftir mikla leit
að þeim eina rétta. Ég fann hann
loks í Hollandi þegar við bjuggum
þar, sófinn heillaði mig strax því
hann er mjög stór og þægilegur og
hann var seldur þannig að kaup-
andinn valdi sjálfur lögun sófans,
áklæði, fætur, stærð – það var nú
eitthvað fyrir mig og mína sköp-
unargleði að geta hannað minn
eigin sófa. Sófinn var síðan sendur
heim til okkar frá Ítalíu sex vikum
seinna. Sófinn er án efa bestu
kaupin til heimilisins.“
Trampólín og bílabraut
Sófinn er í eldhúsinu en Díönu
hafði lengi dreymt um eldhús sem
væri nógu stórt til að rúma sófa.
„Sófinn tengir saman eldhús, stofu
og garðinn okkar. Þar sem sófinn
er í hjarta heimilisins leikur Mikael
Þór sér mjög mikið í honum, þar
er púslað og farið í bílaleik, hann
notar sófann líka til æfinga fyrir
kollhnís, langstökk og trampólín á
meðan mamma og pabbi elda mat
enda sést úr sófanum í öll horn
heimilisins.“
Ekkert stress
þegar Mikael fæddist tók ég þá
ákvörðun að færa ekkert til og
mega börn leika sér nokkuð frjálst
á okkar heimili, koma við alla
hluti sem þau vilja skoða mér
þykir óþarfi að stressa mig yfir
hlutunum, þeir eru til notkunar.
Börn læra að meðhöndla hluti
sem þau koma við og eru til dæmis
sparistellin á heimilinu notuð
dagsdaglega.
Það er mjög gestkvæmt hjá
okkur og er því alveg frábært að
geta tengt eldhús og stofu saman
því það er setið bæði í sófanum og
við eldhúsborðið við spjall þegar
heimilisfólkið er að útbúa kaffi og
með því í eldhúsinu. Þar sem sóf-
inn er mjög kósí hefur komið fyrir
að gestir sofni í honum. Sófinn er
notaður sem gestarúm líka enda
þrusugott að sofa í honum.“
iris@dv.is
Uppáhaldsstaðurinn á heimilinu:
Uppáhaldsiðjan:
„Þar sem sófinn er í hjarta heimilis-
ins leikur Mikael Þór sér mjög mikið
í honum, þar er púslað og farið í
bílaleik, hann notar sófann líka til
æfinga fyrir kollhnís, langstökk og
trampólín á meðan mamma og
pabbi elda mat enda sést úr sóf-
anum í öll horn heimilisins.“
Árni Þór Snorrason
Díana Bjarnadóttir
Mikael Þór Árnason, þriggja ára