Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.2013, Blaðsíða 49
Lífsstíll 49Helgarblað 17.–21. maí 2013
myCOMPANY.IS
ÓDÝRARI
VEFSÍÐUR
MyCompany.is byggir á
Wordpress og er kerfið
hannað með því markmiði
að öll innsetning efnis,
mynda og skjala sé sem
auðveldust fyrir notendur
hans. Kennsla fyrir
kerfið er að finna inní
stjórnandaviðmótinu sjálfu
og eiga notendur þá ekki
að þurfa að leita sér mikillar
hjálpar við notkun kerfisins.
Við erum með lausnina fyrir þig...
Vantar þig ódýra vefsíðu?
Aðeins
36.000
auk vsk.
d
v
e
h
f.
/
d
a
v
íð
þ
ó
r
N
ýjasta viðbótin á alþjóða-
flugvellinum í Abú Dabí er
nokkuð frábrugðin því sem
flugvallagestir eiga að venj-
ast. Um er að ræða svokall-
að GoSleep-hylki þar sem þreyttum
ferðamönnum gefst tækifæri til þess
að loka sig af og leggja sig.
Búið er að setja upp tíu slík
hylki á flugvellinum en það kostar
um 1.599 krónur á klukkutímann
að leggja sig í hylkinu góða. Til að
byrja með verður einungis hægt að
sofa í hylkjunum en í þeim er stóll
sem hægt er að breyta í rúm. Inn-
an skamms verða sett upp 35 hylki
í viðbót og á að uppfæra þau svo
hægt verði að horfa á sjónvarp, fara
á netið og hlaða síma, tölvur eða
önnur raftæki. Ætla má að leigan á
hylkjunum hækki í kjölfarið.
Hylkin eru eflaust ekki fýsilegur
staður fyrir þá sem þjást af innilok-
unarkennd en fyrir fólk sem vinnur
við að ferðast getur eflaust verið um
kærkominn kost að ræða. Hvort sem
um er að ræða smá næði eða til þess
að ná stuttri kríu fyrir næsta flug.
Hylkin hafa verið markaðssett
sem þau fyrstu sinnar tegundar í
heiminum en það ku ekki vera satt.
Svipaðar hugmyndir hafa verið út-
færðar á öðrum flugvöllum en þá
er yfirleitt um svokölluð örherbergi
að ræða. Sem sagt smávaxin hótel-
herbergi sem svipa til þess að leggja
sig í fataskáp sem hefur verið lagð-
ur á hliðina. Það er spurning hvort
að GoSleep-hylkin verði komin á
Keflavíkurflugvöll innan skamms. n
Grilldrekinn
Grilldrekinn ætti að vera staðal-
búnaður hjá öllum kolagrillurum.
Drekinn sér til þess að kolin séu
heit og klár til notkunar á innan
við tíu mínútum með stöðug-
um blæstri lofts. Flestir velja gas-
grill fram yfir kolagrill þar sem
þau eru þægilegri í notkun. Að-
eins þarf að skrúfa frá gasinu
og kveikja á grillinu. Hins vegar
þekkja flestir það eftirsóknarverða
bragð sem fæst með því að grilla
á kolum. Grilldrekinn gæti því
gefið kolagrillurum byr undir báða
vængi.
GoSleep Hver
kannast ekki við
ferðaþreytu?
n Leggðu þig fyrir 1.500 krónur n GoSleep-hylkin í Abú Dabí
Svefnhylki á flugvellinum
Allt í veiðina
Flestir stangveiðimenn kann-
ast við vandan sem fylgir því að
velja hvað eigi að taka með á
veiðislóð. Kombo Fish Tool gæti
verið lausnin fyrir þá sem vilja
hafa hlutina einfalda en í einum
og sama gripnum er að finna flök-
unarhníf, brýni, rotara og skeið til
að hreinsa innan úr fisknum. Ef þú
ert hræddur um að missa græjuna
í vatnið þá flýtur hún og ætti því
að vera auðfinnanleg.