Dagblaðið Vísir - DV - 17.05.2013, Qupperneq 58
58 Fólk 17.–21. maí 2013 Helgarblað
Stoltur af
konu Sinni„Mér finnst
Angie hafa
unnið hetjudáð
n Brad Pitt studdi Angelinu Jolie alla leið
S
tjörnuparið Brad Pitt og
Angelina Jolie eru afar
samrýnd og það kom
engum á óvart að hann
hefði stutt þétt við bak
hennar þegar hún gekkst undir
erfiða aðgerð fyrir stuttu síðan og
lét fjarlægja bæði brjóst sín vegna
hættu á brjóstakrabbameini.
„Mér finnst Angie hafa unnið
hetjudáð, eins og svo margir
aðrir sem standa frammi fyrir
ákvörðunum sem þessum,“ sagði
bljúgur Brad um konu sína. „Mig
langar til að þakka þeim sem
komu að aðgerðinni fyrir ná-
kvæmni og sýnda hlýju. Allt sem
mig langar er að eiga með henni
og börnunum langt og heilsu-
samlegt líf.“
Angie hefur sjálf hlaðið eigin-
mann sinn lofi fyrir stuðninginn.
„Brad var viðstaddur hverja ein-
ustu mínútu,“ skrifaði hún í pistli
um aðgerðina. „Okkur tókst að
finna spaugilegar hliðar og hlæja
saman, þrátt fyrir allt. Við viss-
um að þetta væri það eina rétta
fyrir fjölskylduna og að ákvörðun-
in myndi færa okkur nær hvert
öðru.“
Gæfuríkt samband Samband
Angelinu Jolie og Brad Pitt er mörgum
fyrirmynd. Brad er afar stoltur af konu
sinni sem lét fjarlægja bæði brjóst sín ný-
lega vegna hættu á brjóstakrabbameini.
Ófrísk aftur?
B
eyoncé þurfti að fresta tón-
leikum sínum í Antwerpen
á dögunum og var það sam-
kvæmt læknisráði. Í kjöl-
farið setti hún mynd af handskrif-
uðum skilaboðum til aðdáenda
sinna á Facebook-síðu sína þar
sem hún afsakaði þetta. „Ég hef
aldrei frestað tónleikum áður. Það
var mjög erfitt fyrir mig. Ég lofa
að ég mun bæta ykkur þetta upp,
mjög fljótlega. Mér þykir leitt ef ég
olli ykkur vonbrigðum. Takk fyrir
hugulsemina. Mér líður mun bet-
ur núna og er tilbúin til að halda
flotta tónleika fyrir ykkur. Sjáumst
í kvöld. Ástarkveðjur, Beyoncé.“
Þetta rennir jafnvel stoðum
undir þær sögusagnir að söng-
konan sé ófrísk að sínu öðru
barni en The New York Post
heldur því fram að blaðið hafi
áreiðan legar heimildir fyrir að
svo sé. Hún og Jay Z eiga fyrir
dótturina Ivy Carter sem fæddist í
byrjun árs 2012.
Án kærustunnar
á afmælisdaginn
Þ
að hefur gengið á ýmsu
í sambandi vampíranna
Kirsten Stewart og Roberts
Pattinson en nýlega greindi
DV frá því að svo liti út fyrir að þau
hefðu náð saman aftur. Þá sást til
þeirra á tónlistarhátíð og virtist
sem allt hefði fallið í ljúfa löð.
Eitthvað hriktir þó enn í
stoðunum en svo virðist sem
Pattinson hafi haldið upp á 27 ára
afmæli sitt án kærustunnar en
myndir náðust af Kirsten með vin-
konu sinni á afmælisdegi hans.
Var leikkonan afar vansæl að sjá á
myndunum sem Daily Mail birti.
Ekki var greint frá því
hvernig Pattinson hafi
eytt afmælisdegi
sínum.
n Stewart sást með vinkonu sinni
Parið fræga Skötuhjúin léku saman í
Twilight Saga-myndunum.
Sorgmædd að sjá Stewart á afmælisdegi Pattinson.
Glæsileg í bikiníi
F
yrrverandi eiginkona auð-
kýfingsins Donalds Trump,
Marla, er með glæsileg-
ustu konum eins og sést á
þessari mynd sem náðist af henni
á strönd í Miami fyrir skömmu.
Það dettur sjálfsagt fáum í hug
að þessi kona sé að verða fimm-
tug. Marla var önnur eiginkona
Trumps en þau giftust 1993 og
stóð hjónabandið í sex ár og
saman eignuðust þau eina dóttur.
Í dag er Marla einhleyp og býr í
New York. Að sögn kann hún því
vel og hafnar því að hún hafi hug á
að ganga í hjónband á nýjan leik.
Kroppur
Marla
Trump ber
aldurinn
einkar vel.
n Sagan segir að þau eigi von á öðru barni sínu
Beyoncé
og Jay Z
Talið er að
söngkonan
sé ófrísk.