Dagblaðið Vísir - DV - 07.06.2013, Blaðsíða 10
Báðu aldrei
um ívilnanir
R
agnheiður Elín Árnadótt-
ir, iðnaðar- og viðskipta-
ráðherra, hefur sett af stað
vinnu í ráðuneytinu sem
miðar að því að kanna
hvort unnt sé að bjóða svipaðar
ívilnanir fyrir álver í Helguvík og
samþykktar hafa verið fyrir kísil-
ver á Bakka í Norðurþingi. Ljóst er
að fyrirtækið PCC, sem mun reisa
og reka kísilverið á Bakka, tók
skýrt fram allt frá upphafi að ekki
yrði af framkvæmdunum nema
ívilnanir fengjust.
Hið sama gildir ekki um Norð-
urál. Að sögn Sólveigar Kr. Berg-
mann, upplýsingafulltrúa fyrir-
tækis ins, hafa engar ívilnanir
komið til tals og liggur fjárfest-
ingarsamningur þegar fyrir. „Ekki
hefur verið rætt um neinar efnis-
legar breytingar á honum,“ segir
hún.
Norðurál hefur lengi beðið
á hliðarlínunni og sótt hart að
stjórnvöldum að greiða fyrir fram-
gangi álversins. Því er afar ólíklegt
að téðar ívilnanir breyti nokkru
um hvort framkvæmdirnar verði
að veruleika. Undirbúningur hef-
ur staðið yfir í tæpan áratug og
var fyrsta skóflustungan í Helgu-
vík tekin árið 2008. Þá hefur ver-
ið reist grind fyrir álverið en fram-
kvæmdir liggja niðri vegna þess
að ekki hafa náðst samningar við
orkufyrirtæki um raforkukaup.
Ævintýralegir afslættir
Beinn og óbeinn stuðningur ríkis-
sjóðs við framkvæmdir vegna kísil-
vers á Bakka í Norðurþingi nem-
ur um fimm milljörðum íslenskra
króna. Þá eru meðtaldar skatta-
ívilnanir og kostnaður við hafnar-
framkvæmdir, vegtengingu, undir-
bún ing lóðar og þjálfun starfsfólks.
Fær fyrirtækið tíma bundnar íviln-
anir umfram þær sem heimilt er
að veita samkvæmt núgildandi lög-
um um nýfjárfestingar. Fyrirtæk-
ið verður undanþegið almennu
tryggingargjaldi og stimpilgjöldum
og fær 50 prósenta afslátt af fast-
eignagjöldum. Jafnframt þarf PCC
aðeins að greiða 15 prósenta tekju-
skatt þótt fyrirtækjaskattur hér á
landi nemi 20 prósentum. Þessi
skattaafsláttur er veittur þrátt fyrir
að Ísland búi við einn lægsta tekju-
skatt á fyrirtæki í heiminum, en til
samanburðar má nefna að fyrir-
tækjaskattur í Bandaríkjunum er
tvöfalt hærri.
Í umsögn Fjárlagaskrifstofu
fjármála- og efnahagsráðuneyt-
isins um frumvarpið eru skatta-
ívilnanirnar gagnrýndar harðlega,
meðal annars með þeim rökum að
þær skapi fordæmi fyrir önnur og
stærri fjárfestingarverkefni. Guð-
mundur Hörður Guðmundsson,
formaður Landverndar, varaði við
þessu í viðtali við DV í mars og
virðist hafa verið sannspár.
Í þágu kjördæmisins
Eftir að Ragnheiður Elín Árna-
dóttir tók við lyklunum að iðnað-
ar- og viðskiptaráðuneytinu var
slegið upp veislu að heimili henn-
ar í Reykjanesbæ til að fagna því
að nú hefði í fyrsta sinn ráðherra-
stóll fallið Keflvíkingi í skaut. Örfá-
um dögum síðar lýsti Ragnheiður
því yfir að hún vildi flýta álvers-
framkvæmdum í sveitarfélaginu
sínu. Árni Sigfússon, flokksbróð-
ir Ragnheiðar, hefur gegnt starfi
bæjarstjóra Reykjanesbæjar í um
það bil ellefu ár en á því tímabili
hafa skuldir bæjarins sjöfald-
ast. Fullyrti Árni nýlega í viðtali
við DV að með álveri í Helguvík
mætti bæði sporna gegn atvinnu-
leysi í Reykjanesbæ og bæta fjár-
hagsstöðu sveitarfélagsins.
Sem atvinnuvegaráðherra átti
Steingrímur J. Sigfússon frum-
kvæði að lagafrumvarpinu um kís-
ilverið sem reist verður á Bakka, í
hans eigin kjördæmi. Þegar greidd
voru atkvæði um frumvarpið
vakti Pétur H. Blöndal, þingmað-
ur Sjálfstæðisflokksins, athygli á
þessu. „Það eru undanþágur fyr-
ir viss fyrirtæki í vissu kjördæmi
og þess vegna get ég ekki greitt
atkvæði með frumvarpinu,“ sagði
hann og bætti við: „Ég get hvorki
verið með því né á móti og mun
sitja hjá. Ég minni á í hvaða kjör-
dæmi þetta er og hver er ráðherra
úr því kjördæmi.“
Grundvallarmunur
Ragnheiður og Steingrímur eiga
það sameiginlegt að hafa hvatt til
stórframkvæmda sem gætu gagn-
ast þeirra eigin kjördæmum en
kostað ríkissjóð milljarða króna.
Hins vegar er mikill stigsmunur
á framkvæmdunum. Kísilverið á
Bakka krefst aðeins 52 megavatta
af orku og á að skapa um 200 störf.
Orkuþörfin fyrir álver í Helgu-
vík er hins vegar miklu meiri
og nemur um 435 megavöttum.
Samkvæmt vef Norðuráls er gert
ráð fyrir að á rekstrartíma verði
til um 600 ný störf í álverinu auk
1.400 afleiddra starfa. Skemmst er
að minnast þess þegar til stóð að
reisa álver á Bakka, en ljóst er að
kísilverið kemur til með að skapa
þrisvar sinnum fleiri störf á hvert
megavatt en álver hefði gert.
Afturvirkar ívilnanir
Í nýlegu viðtali við Spegilinn full-
yrti Steingrímur að álver í Helgu-
vík og kísilver á Bakka væru
ekki sambærilegar framkvæmd-
ir. Bakki væri nýtt iðnaðarsvæði
fjarri miðstöð viðskipta og þess
vegna hefði þar verið gengið
lengra í fjárfestingum innviða en
annars staðar. Rétt eins og upp-
lýsingafulltrúi Norðuráls benti
Steingrímur á að stjórnvöld gerðu
fjárfestingarsamning við Norðurál
fyrir um fjórum árum. Hvers kyns
ívilnanir í boði ríkisins þyrftu í
raun að vera afturvirkar í ljósi
þess að framkvæmdirnar í Helgu-
vík eru þegar hafnar. Telur Stein-
grímur að slík ríkisaðstoð yrði
aldrei samþykkt af eftirlitsstofn-
un EFTA.
Ekki náðist í Ragnheiði Elínu
við vinnslu fréttarinnar. n
10 Fréttir 7. júní–9. júní 2013 Helgarblað
Alræmt fyrirtæki fengi ívilnanir
n Glencore Xstrata traðkar á íbúum þriðja heimsins
N
orðurál, fyrirtækið sem vill
reisa og reka álver í Helgu-
vík, er alfarið í eigu félags-
ins Century Aluminum sem
er með höfuðstöðvar í Kaliforníu.
Aðaleigandi Century Aluminum er
svissneski hrávörurisinn Glencore
Xstrata. Hann er með yfirburðastöðu
á heimsmörkuðum, einkum hvað
varðar framleiðslu og sölu á málm-
um. Glencore er umdeilt fyrirtæki
með svarta fortíð.
Það var stofnað fyrir um það bil 40
árum af Bandaríkjamanninum Mark
Rich sem dæmdur var fyrir ýmis fjár-
svik á níunda áratugnum en náðað-
ur í forsetatíð Bill Clintons. Þótt Rich
hafi selt sinn hlut í fyrirtækinu er
hann enn sagður hafa veruleg áhrif
innan þess. Glencore rekur námur og
á hlut í námafyrirtækjum víða í þriðja
heiminum og er alræmt fyrir slæman
aðbúnað og vinnuþrælkun. Dæmi
um þetta er náman El Cerrejon Nor-
te í Kólumbíu sem blaðakonan Ralph
Surette hefur lýst sem „hryllingssögu
um nauðungarflutninga innfæddra,
mannréttindabrot, umhverfisspjöll
og ýmiss konar misrétti.“ Athygli vek-
ur að ásamt Glencore á fyrirtækið
BHP Billiton stóran hlut í námunni.
Talsverð tengsl eru milli fyrirtækj-
anna tveggja, en allt ál sem fram-
leitt er í verksmiðju Norðuráls á
Grundartanga er selt BHP Biliton og
Glencore.
Glencore er aðaleigandi fyrirtæk-
isins Katanga Mining, námafyrirtæk-
is í Afríku sem samtökin Brot für Alle
og Swiss Catholic Lenten Fund hafa
sakað um ýmis konar mannréttinda-
brot, barnaþrælkun og skattsvik.
Katanga-fyrirtækið er svo óvinsælt í
Kongó að stofnað hefur verið til sér-
stakrar herferðar gegn fyrirtækinu.
Þá hefur dagblaðið Daily Mail fjallað
ítarlega um umsvif Glencore í Afríku,
svo sem arðrán, umhverfisspjöll og
vafasamar aðferðir við skil á skatt-
framtölum.
Í ítarlegri umfjöllun Al Jazeera um
Glencore er fyrirtækið fordæmt fyrir
að beita áhrifum sínum til að hækka
matvælaverð í heiminum. Þannig
eru eigendur þess sagðir græða á
eymd þeirra jarðarbúa sem minnst
mega sín.
Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðn-
að ar- og viðskiptaráðherra, vill að rík-
ið veiti sérstakar ívilnanir vegna ál-
versins í Helguvík. Þegar RÚV spurði
hana í viðtali hvers konar ívilnan-
ir yrðu veittar Norðuráli sagði hún:
„Það eru skattaleg atriði, það eru inn-
viðarframkvæmdir, það eru fram-
kvæmdir við hafnir og annað.“ Í ljósi
þess að Norðurál heyrir undir eitt
stærsta fyrirtæki í heimi má velta því
fyrir sér hvort það þurfi raunveru-
lega á skattaívilnunum og öðru slíku
að halda. Að sama skapi vakna ýms-
ar siðferðilegar spurningar þegar
áformin eru sett í alþjóðlegt sam-
hengi. n
johannp@dv.is
Vill ívilna álrisa Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, lætur
kanna hvort bjóða megi álveri í Helguvík svipaðar ívilnanir og veittar voru kísilveri á Bakka.
n Ráðherra vill samt að ríkið hjálpi Norðuráli
Jóhann Páll Jóhannsson
blaðamaður skrifar johannp@dv.is
„Ég minni á í hvaða
kjördæmi þetta er
og hver er ráðherra úr því
kjördæmi.
Ekki sambærilegt Steingrímur telur
að ívilnanirnar sem Ragnheiður sækist
eftir séu fráleitar og jafnvel ólöglegar.
Mótmælt í Bólivíu Fyrirtækið Glencore rekur námur víða í þriðja heiminum og hefur
verið margsakað um slæman aðbúnað og mannréttindabrot. Fyrirtækið er stærsti eigandi
Century Aluminum sem Norðurál heyrir alfarið undir.