Dagblaðið Vísir - DV - 07.06.2013, Side 18
18 Fréttir 7.–9. júní 2013 Helgarblað
Þ
annig var að á haustmánuð-
um 2010 fannst okkur hjón-
unum að mælirinn væri full-
ur, hvað varðaði óhóflegar
vaxtagreiðslur og afborgan-
ir af lánum okkar hjá Arion banka,“
segir Páll Böðvar Valgeirsson. Þau
voru með verðtryggð húsnæðislán hjá
bankanum, sem hann telur jafn ólög-
leg og gengistryggðu lánin. „Þetta eru
okurlán sem hvergi þekkjast. Þessi lán
hækka bara eitthvað út í loftið og þú
veist ekkert hvað þú kemur til með að
borga eftir 40 ár.“ Hjónin settu sig bæði
í samband við bankann og Umboðs-
mann skuldara til að greiða úr sínum
málum, en það eina sem þeim bauðst,
var að fara í svokallaða sértæka
skuldaaðlögun. Páll segir að það hefði
hins vegar þýtt skuldafangelsi það
sem þau ættu eftir ólifað. Þau ákváðu
því að taka áskorun Hagsmunasam-
taka heimilanna um greiðsluverkfall
og hættu að borga af lánunum.
Húsnæði Páls á Selfossi var selt
Arion banka á tíu milljónir króna á
uppboði þann 23. apríl síðastliðinn.
Sjálfur telur Páll að eignin myndi fara
á tæpar 30 milljónir króna á almenn-
um markaði.
Bjarni Harðar gerði athugasemd
Uppboðið vakti mikla athygli á sín-
um tíma, en það var tekið upp og
myndbandið sett á Youtube. Fjöl-
margir voru viðstaddir þegar sýslu-
maður bauð eignina upp, einstak-
lingar frá Hagsmunasamtökum
heimilanna, Samstöðu, Rafstöðvar-
bræðrum og Heimavarnarliðinu. Þá
var Bjarni Harðarson, fyrrverandi
þingmaður, einnig á staðnum. Hann
hafði sig frammi og gerði „stórfellda
athugasemd við leiðbeiningaskyldu
stjórnvalds,“ eins og hann orðaði
það. Myndbandið var meðal annars
birt á DV.is.
Uppboðið var „skrípaleikrit“
Páll hefur nú, ásamt Brynjar Ragnars-
syni, kært aðgerðina og aðra áþekka
sem sýslumaðurinn í Hafnarfirði
framkvæmdi. Kæran hljóðar upp á ell-
efu hegningarlagabrot, auka annarra
lögbrota og fara þeir fram á opinbera
rannsókn á fullnustugjörðum sýslu-
mannsembættanna. Í kærunni segir
að grunur leiki á að fulltrúar embætt-
isins og opinberir starfsmenn á veg-
um tiltekinna sveitarfélaga, hafi brotið
af sér í starfi.
Þeir segjast hafa farið ítarlega yfir
málin, leitað álits lögmanna og sér-
fræðinga á ýmsum sviðum að og
niðurstöðurnar séu sláandi.
„Það er athugunarefni hvern-
ig sýslumönnum er hleypt eins vörg-
um á fólk út um allt land á meðan
ekki er búið að dæma í þessum verð-
tryggingarmálum. Það er algjörlega
óásættanlegt. En fólkið í landinu er
að vakna til vitundar um að það getur
stoppað þetta, eða hægt á þessu, með
því að fara fram á það á einhverju stigi
máls að því verði vísað til héraðsdóms.
Það sveik í raun og veru sýslumaður-
inn mig um,“ segir Páll sem kallar upp-
boðið „skrípaleikrit“.
Vildi stefna bankanum
Líkt og sjá má á myndbandsupptök-
unni af uppboðinu þá virðist það
tvisvar gerast að Ólafur Helgi Kjart-
ansson, sýslumaður á Selfossi, ætli að
fresta uppboðinu, fyrst til níu sama
kvöld og svo um sex vikur.
Þegar Ólafur talaði um frestinn í
fyrra skiptið höfðu nokkrir viðstadd-
ir reynt að leggja orð í belg og kröfð-
ust þess að Páll fengi að lesa sjálfur
upp andmæli sín en ekki bara leggja
þau fram skriflega. Það virtist fara
í taugarnar á sýslumanninum sem
sagði að fyrra bragði: „Þá frestum við
þessu uppboði til klukkan níu í kvöld.“
Sagðist Ólafur hafa talið að þeir menn
sem þarna væru vissu um hvað málið
snérist og ítrekaði svo: „Það er ekkert
mál að fresta þessu uppboði til klukk-
an níu í kvöld.“
Á þeim tímapunkti taldi Páll sig
hafa fengið nokkurra klukkustunda
frest til þess að stefna Arion banka. En
slík stefna hefði að öllum líkindum gef-
ið honum enn meiri tíma. Þrátt fyrir að
hafa varla sleppt orðinu um að hann
ætlaði að fresta uppboðinu til kvölds
hélt Ólafur áfram með aðgerðina.
„Ég er að veita þér frest, já“
Kona viðstödd spurði þá hvort upp-
boðinu hefði ekki verið frestað til níu
um kvöldið og hvort það væri þá ekki
hægt að stefna bankanum í dag. Þá
svaraði Ólafur: „Afstaða bankans ligg-
ur fyrir og því er engin ástæða til að
fresta þessu.“ En fulltrúi frá bankan-
um hafði óskað eftir því að uppboðið
héldi áfram.
Eftir að fulltrúinn hafði boðið tíu
milljónir króna í eignina fóru raddir
viðstaddra um frest að verða hávær-
ari. Þá virðist Ólafi skyndilega snúast
hugur, tekur upp gögn og talar um sex
vikna frest. Páll spyr hvort Ólafur sé
að veita honum frest og hann svarar:
„Ég er að veita þér frest, já.“ Í kjölfarið
klöppuðu viðstaddir fyrir sýslumann-
inum og frestinum sem þeir töldu að
Páll hefði fengið. Páll var að vonum
sáttur og bauð Ólafi í kaffi og flatkökur
sem hann afþakkaði þó.
Allir héldu að uppboðinu
hefði verið frestað
Í kjölfarið hélt hann hins vegar áfram
með uppboðið, öllum að óvörum.
Spurður út í frestinn sem hann var að
veita sagði hann það misskilning að
hann hefði verið að fresta uppboð-
inu. „Fresturinn var samþykkisfrestur,
takist að leysa málið á þessum tíma.
Uppboðið fer fram, en nauðungarsölu
lýkur ef ekki tekst að leysa málið,“ út-
skýrði sýslumaður fyrir viðstöddum.
Þá var Bjarna Harðarsyni nóg boð-
ið og gerði athugasemd við leiðbein-
ingaskyldu stjórnvaldsins. „Þú lætur
gerðarþolanda vera grandalausan um
það að hann misskilur allt það sem þú
ert að segja,“ sagði Bjarni. Hann benti
sýslumanni jafnframt á að gerðarþol-
andi og aðrir viðstaddir væru ekki lög-
lærðir og því væri ekki hægt að ætlast
til að þeir þekktu lagabókstafinn út
í gegn. „Við skildum það öll sem svo
að uppboðið yrði ekki haldið,“ bætti
Bjarni við.
Páll tekur undir orð Bjarna í sam-
tali við DV og vissi því ekki hvaðan á
sig stóð veðrið þegar húsið var slegið
Arion banka fyrir 10 milljónir króna.
„Svívirða hvernig maður
var niðurlægður“
Þegar nauðungarsöluferlið fór í gang
vissi Páll í raun ekki hvernig það
gengi fyrir sig og skorti upplýsingar
um hvernig best væri að bera sig að.
Hann gerði því ýmis mistök sem hann
myndi ekki gera í dag.
Páll viðurkennir að hann hafi flask-
að á því að mæta þegar málið var tek-
ið fyrir hjá sýslumanninum. „Ég er bú-
inn að læra eitt og annað í þessu ferli.
Fólk skyldi alltaf mæta í fyrirtöku, í
fyrsta uppboð, mótmæla og láta í sér
heyra. Krefjast þess að málið fari fyrir
héraðsdóm.“
Þrátt fyrir að Páll virðist bera sig
vel á upptökunni af uppboðinu, þá
var það honum mjög erfitt, enda ver-
ið að bjóða upp heimili fjölskyldunn-
ar til margra ára og æskuheimili barna
hans.
„Þetta var svívirða, hvernig mað-
ur var niðurlægður, þó maður reyndi
að bera sig vel. Ég sveif í gegnum þetta
og mundi ekkert eftir þessu, eins ein-
kennilega og það hljómar. Ef ekki
hefði verið þarna frábærlega gott fólk,
25 til 30 manns, þá hefði ég gjörsam-
lega verið hakkaður í spað. En þarna
fékk ég þann stuðning sem ég þurfti,
stuðning til að standa í lappirnar og
standa uppi í hárinu á þessu and-
styggðarvaldi.“
Vill ekki að lánin hverfi
Það var ekki að ástæðulausu sem Páll
ákvað að taka áskorun um greiðslu-
verkfall. „Maður var búinn að basla við
að halda áfram endalaust. Svo er saga
á bak við hvert heimili, þau eru mis-
þung. Ég var kominn í þá stöðu að ég
hugsaði, á ég ekki bara að láta bank-
ann gossa? Láta hann ekki vera í fyrsta
sæti og sjá frekar um að borga nauð-
þurftir áður en ég greiði bankanum.“
Páll lítur ekki svo á að hann hafi
misst húsið sitt, enda býr hann enn-
þá í því. „Ég er ekkert búinn að tapa
því, ég er að berjast fyrir því að þessi
nauðungarsala verði dregin til baka
og fer með þetta mál alla leið. Arion
banki á húsið að nafninu til, en ég bý í
húsinu mínu.“
Hann vill að það komi skýrt fram
að hann er ekki krefjast þess að lánin
hans verði felld niður. „Að sjálfsögðu
borgar maður rétta skuld, en ekkert
meira en það og allt sem er umfram
lögmæt mörk ber að fella niður.
„Þú talar ekki við neinn einstakling
sem er í sömu stöðu og ég er í, sem
ætlast til þess að lánin þeirra hverfi.
Það þekki ég og veit. Fólk er einungis
að óska eftir því sé sýnt eitthvað rétt-
læti í þessum málum,“ segir Páll að
lokum.
Yfir 130 nauðungarsölur
í Árnessýslu á árinu
Í samtali við Sunnlenska frétta-
blaðið í byrjun maí sagði Ólaf-
ur sýslumaður að ástandið væri
óvenju slæmt um þessar mundir,
hvað nauðungarsölur varðar. En
þeim fjölgaði mikið á vormánuð-
um. Hann sagði endanlegar sölur
vera orðnar 130 á árinu í Árnes-
sýslu. Er það mjög mikið miðað við
að þær hafa verið um 200 á ári síð-
astliðin ár. Ólafur sagði þróunina
einna helst skýrast af uppsöfnun á
frestuðum málum. Uppboðsbeið-
endur hafa í flestum tilfellum verið
fjármálastofnanir. n
Sólrún Lilja Ragnarsdóttir
blaðamaður skrifar solrun@dv.is
n Kæra sýslumenn í Hafnarfirði og á Selfossi n Heimili fjölskyldunnar boðið upp
Uppboðið var
„skrípaleikrit“
Talaði um frest Á myndbandsupp-
tökunni heyrist það skýrt að Ólafur Helgi
Kjartansson, sýslumaður á Selfossi, talar
tvisvar um að fresta uppboðinu.
„Það er ekkert
mál að fresta
þessu uppboði til
klukkan níu í kvöld.
Ólafur Helgi Kjartansson
„Ef ekki hefði verið
þarna gott fólk, 25
til 30 manns, þá hefði ég
gjörsamlega verið hakk-
aður í spað.“
(Páll Böðvar Valgeirsson)
„Þú talar ekki við
neinn einstakling
sem er í sömu stöðu og
ég er í sem ætlast til þess
að lánin þeirra hverfi.
Páll Böðvar Valgeirsson