Dagblaðið Vísir - DV - 07.06.2013, Side 38

Dagblaðið Vísir - DV - 07.06.2013, Side 38
38 Menning 7.–9. júní 2013 Helgarblað Djamm án dramatíkur É g vildi óska að ég gæti sagt um hvað bókin Ekki þessi týpa eft­ ir Björgu Magnúsdóttir er. En ég á í verulegum erfiðleikum með það. Ætli bókinni sé ekki best lýst sem samansafni af djammsögum úr lífi fjögurra bestu vinkvenna í Reykja­ vík, eltingaleik þeirra við karlmenn á djamminu og partístandi. En vandamál bókarinnar er þó ekki bara lengdin eða áþreifanleg­ ur skortur á dramatískri framvindu. Stærsta vandamálið liggur í per­ sónu sköpuninni. Erfitt er að finna til samkenndar með persónum bók­ arinnar. Stúlkurnar fjórar eru for­ dómafullar, yfirborðskenndar og sjálfhverfar. Og aukapersónurnar, sem maður sér með augum stúlkn­ anna, eru upp til hópa gallaverur, klæða sig illa og koma illa fram. Bókin er markaðssett sem skvísubók sem er nýlunda hér á landi fyrir utan kannski bækur Tobbu Marinós. Samanburðurinn við þætti eins og Sex and the City er óhjákvæmilegur. Galdurinn við Sex and the City fólst í persónusköpun­ inni. Undir breysku yfirborðinu áttu konurnar sínar viðkvæmu hliðar, allar áttu þær sér einhverja drauma og aukapersónurnar voru oft eftir­ minnilegar, kærastar þeirra stálu oft senunni – manni gat þótt vænt um galla þeirra. Í bók Bjargar eru því miður fáir sem maður getur látið sér þykja vænt um. Karlmennirnir skilja eftir kúk í klósetti og láta sig hverfa, pissa undir eða halda framhjá á Kaffibarn­ um. Konurnar fá ekki betri útreið, líf þeirra virðist snúast um að komast á djammið og sofa hjá, stúlkurnar fjórar eru jafn grimmar og fordóma­ fullar í lýsingum á hvor annarri eins og samstarfsfólki í vinnunni. Gefið er í skyn á kápu bókar­ innar að hluti af þeim sögum sem þarna séu sagðar eigi sér stoð í raunveruleikanum. Kannski er það einn af veikleikum bókarinnar. Oft eru djammsögur aðeins fyndnar þegar þær eru sagðar í hópi vina. Sögurnar í þessari bók vantar hins vegar dramatíska dýpt til að úr verði alvöru skáldsaga. Björg á greinilega ekki í vand­ ræðum með að skrifa texta, líkt og lengd bókarinnar gefur til kynna, Það glittir í alvöru sögumann und­ ir lok bókarinnar í stuttum endur­ minningarkafla um einelti. En það er of lítið og of seint. Björg þarf að hugsa söguefnið mun betur fyrir næstu tilraun og muna að ef höf­ undi þykir ekki vænt um sögu­ persónur sínar þykir lesendanum það ekki heldur. n Bókarýni Símon Birgisson simonb@dv.is Ekki þessi týpa Höfundur: Björg Magnúsdóttir Útgefandi: Forlagið 351 bls. Sýn tveggja kynslóða á íslenska landslagið n Tíminn í landslaginu opnar í Listasafni Árnesinga Á nýrri sýningu í Listasafni Árnesinga eru landslagsmál­ verk Ásgríms Jónssonar og Arngunnar Ýrar til sýnis. Þrátt fyrir að um öld skilji þessa tvo listamenn að, eiga verk þeirra margt sameiginlegt — bæði hafa þau sótt innblástur í íslenska landslagið, jafn­ vel sömu staðina. Ólíkir listamenn „Það er skemmtilegt að bera saman og sjá hvernig listamenn af ólíkum kynslóðum heillast af landslaginu, detta inn í hinn hæga tíma landsins og fjallanna. Sýningin er ekki síður um hvernig tíminn líður í listinni og forsendur breytast. Það er margt sam­ eiginlegt með verkum þeirra en líka margt sem skilur þau að, enda tilheyra þau mismunandi tíma og tíðaranda,“ segir Jón Proppé sýningarstjóri. Sýningin er önnur í röð þriggja sýninga sem tileinkaðar eru þeim tímamótum að fimmtíu ár eru síð­ an Bjarnveig Bjarnadóttir og syn­ ir hennar gáfu Árnesingum stóra málverkagjöf sem lagði grunninn að stofnun Listasafns Árnesinga. Alls gáfu þau sjötíu og þrjú verk á nokkurra ára tímabili og þar af eru nítján eftir Ásgrím Jónsson, en hann var fæddur og uppalinn í Suðurkoti í Rútsstaðahverfi í Flóanum og var náskyldur gefendunum. Mála sama landslagið Ásgrímur fæddist árið 1876 og lést árið 1958 og var sannkallaður brau­ tryðjandi í íslenskri myndlist. Hafði mótandi áhrif á þróun nútíma mynd­ listar og var einn fyrstu Íslendinga sem gerðu myndlistina að ævistarfi. Hann vildi hvergi annars staðar vera en á Íslandi, ferðaðist um landið og málaði undir berum himni. Arngunnur Ýr er fædd árið 1962, fjórum árum eftir andlát Ásgríms. Hún sótti sér menntun til Kaliforníu þar sem hún býr. Hún starfar þó einnig sem leiðsögumaður á Íslandi. Síðustu tuttugu ár hefur hún fikrað sig í átt að landslagsmálverkinu. Um­ breytingin í náttúrunni heillar hana og hún hefur fengið fjölda verðlauna og viðurkenninga fyrir verk sín. En fylgir ekki einnig áhætta að tefla verkum tveggja listamanna saman — að fólk fari að bera saman gæði þeirra? Jón Proppé: ,,Fólk hefur misjafn­ an smekk og hefur eflaust skiptar skoðanir um verkin. En bæði Arn­ gunnur og Ásgrímur eru vel mennt­ aðir listamenn sem hafa helgað sig listinni. Þau eru líka ólík. Meðan Ásgrímur vildi hvergi vera nema hér heima hefur Arngunnur dval­ ið mikið erlendis. Þar af leiðandi er sýn þeirra á landið mismunandi þó viðfangsefnið sé líkt. Að mínu mati er mjög frískandi að sjá þessi verk saman. Þau eru ólík en tala líka skemmtilega saman.“ Sýningin opnar á sunnudaginn klukkan tvö og safnið er opið alla daga frá 12–18. n „Það er skemmti- legt að bera saman og sjá hvernig listamenn af ólíkum kyn- slóðum heillast af lands- laginu. Hengill frá tveimur sjónarhornum Myndin til vinstri er eftir Ásgrím Jónsson en sú til hægri eftir Arngunni Ýr. Hann „Á föstudagskvöldið ætla ég að horfa á íslenska knattspyrnulandsliðið keppa við það slóvenska á Laugardalsvell­ inum. Á laugardaginn verður það líklega bröns á Bergsson. Um kvöldið ætla ég í menningarheim­ sókn til Hafnarfjarðar til að kynna mér drykkjumenn­ ingu heima­ manna. Á sunnu­ dag verður efnt til grillveislu á Þór­ oddsstöðum í fé­ lagskap góðra vina og á annan tug barna sem þeim fylgja. Á sunnudags­ kvöldið stefni ég svo á að sjá mynd sem gerð er eftir frægri bók Jack Kerouac, On the road, sem sýnd er í Bíó Paradís.“ Menningar helgin Hún „Ég ætla að sýna mig og sjá aðra á tveimur mörkuðum um helgina, annarsvegar skottsölu í Firði og hins vegar í Bíó Para- dís þar sem lofað er góðri skemmtun í bland við sölubása með hverskyns varningi, vínyl og þess háttar. Ætli ég eyði svo ekki bara restinni af helginni í að undirbúa Grímuna 2013, borða góðan mat með fjölskyldunni og leika við son minn. Gæti einnig verið að ég kíki í Hafnarborg á sýninguna um Hellisgerði sem mér skilst að geri garðinum góð skil. Björg Magnúsdóttir höfundur bókarinnar. Ásgerður Júlíusdóttir Kynningarfulltrúi Leiklistarsambandsins Andrés Jónsson Almannatengill Jón Proppé sýningarstjóri Segir verkin ólík en eiga marga snertifleti.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.