Dagblaðið Vísir - DV - 07.06.2013, Page 46

Dagblaðið Vísir - DV - 07.06.2013, Page 46
T akist íslenska landsliðinu í knatt spyrnu að leggja Slóvena að velli í undankeppni HM í knattspyrnu á Laugardals- velli í kvöld, föstudag, er liðið í dauðafæri á því að ná öðru af tveim- ur efstu sætunum í riðlinum. Efsta sætið tryggir þátttöku á HM í Brasilíu á næsta ári en hafni liðið í öðru sæti leikur liðið tvo umspilsleiki um laust sæti í lokakeppninni. Riðill Íslands er opinn upp á gátt og liðin virðast flest hver svipuð að styrkleika. Langt er síðan íslenska karlalands liðið hefur verið í svo góðri stöðu þegar svo langt er liðið á keppnina. Tiltrú á hugmyndafræðinni Willum Þór Þórsson, þjálfari í efstu deild til fjölmargra ára og nýkjörinn þingmaður Framsóknarflokksins, hef- ur fylgst vel með landsliðinu frá því Lars Lagerbäck og Heimir Hallgríms- son tóku við liðinu. Hann segir að það verði ekki af þjálfurunum tekið að þeim hafi tekist að búa til sterkt og vel skipulagt landslið. „Leikmennirn- ir vinna þétt í takt varnarlega og það er eitthvað sem hefur vantað. Lars er bú- inn að skapa þétt skipulag frá fremsta til aftasta manns.“ Hann bendir jafn- framt á að liðinu hafi tekist að sigra leiki jafnvel þó það hafi ekki spilað vel. Það séu nýmæli þegar landsliðið eigi í hlut. „Hann Lars hefur náð vel til leikmanna liðsins og byggt upp tiltrú liðsins á hug- myndafræðinni. Hún hefur náð í gegn,“ segir Willum. Hann bendir þó á að þó staðan í riðlinum sé óvenju vænleg sé stutt á milli hláturs og gráturs. Tveir útileik- ir hafi unnist með minnsta mun, þökk sé mörkum Gylfa Þórs Sigurðssonar úr aukaspyrnum. Ef þeir leikir hefðu ekki unnist væri staða Íslands í riðlinum allt önnur en hún er í dag. „En við gefum Lars hrósið,“ segir hann og bætir við. „Hann er búinn að koma liðinu í þessa stöðu og við höfum aldrei verið í jafn góðu færi á að komast í lokakeppni.“ Vantar beittari sóknarleik Spurður hvort hann geti gagnrýnt Lars fyrir eitthvað nefnir Willum helst að Lars hafi haldið sig nokkuð stíft við 4-4- 2 liðsuppstillinguna. Honum hafi frá upphafi ekki fundist kerfið henta þeim hópi leikmanna sem skipar liðið en bendir þó á, Lars til tekna, að hann hafi aðlagað leikkerfið sitt svolítið að leik- mönnunum, sérstaklega með því að draga annan framherjann svolítið aftar á völlinn. Sú staða henti þremur af lyk- ilmönnum liðsins best; Gylfa Þór, Eiði Smára og Alfreð. Willum segir að árangurinn sem íslenska liðið hafi náð undir stjórn Lars sé góður, eins og stigataflan gefi til kynna, en að liðið hafi ekki leikið þann sóknarleik sem það hafi burði til að gera. Honum finnist að lið með svo sterka sóknarmenn eigi að geta átt lengri og beittari sóknarlotur en liðið hafi sýnt. Erfitt sé þó að kvarta mikið þar sem árangurinn hingað til hafi ver- ið með ágætum. Þrír sem geta klárað leiki Gylfi Þór Sigurðsson er í leikbanni og tekur ekki þátt í leiknum í kvöld, rétt eins og Jóhann Berg Guðmunds- son. Gylfi Þór hefur skorað þrjú mörk liðsins af sex í keppninni, þar af tvö sigurmörk seint í leikjum. Willum seg- ir aðspurður að fjarvera hans gæti gert íslenska liðinu erfitt fyrir. „Það verð- ur einu vopninu færra. Það er rétt að hann er búinn að klára þessa leiki.“ Ekki sé þó öll nótt úti. Liðið eigi í það minnsta þrjá aðra leikmenn sem geti skorað mörk, nánast upp á sitt eins- dæmi. „Mig grunar að við eigum Eið Smára í betra formi núna en í síðasta leik. Kolbeinn Sigþórsson er kominn betur í gang og svo eigum Alfreð [Finn- bogason]. Við eigum þrjá leikmenn sem geta klárað svona leik. Ef skipulag- ið heldur eru þetta leikmenn sem geta gert gæfumuninn,“ segir Willum. Eiður Smári Guðjohnsen á að baki nokkuð gott tímabil í Belgíu. Hann hefur enn ekki byrjað sinn fyrsta leik í keppninni undir stjórn Lars en Willum á von á því, í fjarveru Gylfa, að það geti breyst núna. „Ég vona að Eiður byrji. Ég trúi því. Hann er einfaldlega of góður til að sitja á bekknum.“ Lykilleikur við Slóvena Willum segir að leikurinn við Slóvena sé lykilleikur fyrir íslenska liðið í riðlin- um. Ef sigur vinnist verði staða liðsins í riðlinum afar vænleg og að þá geti hjól- in farin að snúast. Sigur myndi gefa liðinu mikið sjálfstraust og skapa mik- inn áhuga á liðinu. Í raun yrði um að ræða lyftistöng fyrir landsliðið og fót- boltann á Íslandi í heild. Árangri sem þeim að ná toppsæti í riðlinum fylgdi tiltrú á verkefnið og þá væri allt hægt. Ef Ísland tæki toppsætið í kvöld myndi það auk þess senda hinum liðunum í riðlinum afar skýr skilaboð. Þess má geta að síðar í kvöld sækja Norðmenn Albani heim. Á morgun, laugardag, heimsækja Kýpverjar topplið Sviss. Í fjarveru Gylfa Þórs spáir Will- um því að Eiður muni leika fyrir aft- an Kolbein, sem verði fremsti maður liðsins á vellinum. Óhætt er að segja að spennandi verði að fylgjast með sam- vinnu þeirra tveggja, ef liðsuppstill- ingin verður með þeim hætti. Willum bendir þó á að Slóvenía sé hörku knattspyrnuþjóð. Liðið hafi ver- ið nýbúið að skipta um þjálfara þegar við mættum þeim síðast. Hann hefur það eftir Heimi aðstoðarþjálfara að yfir liðinu sé nú ferskara yfirbragð og meiri agi. Hann segir þó að Ísland eigi að geta nýtt sér það að Slóvenía sé í neðsta sæti riðilsins á meðan Ísland sé í öðru sæti. „Drifið á að vera meira hjá okkur. Þeir eru ekki í séns.“ Áhugalausir? Athygli vakti að Slóvenar komu ekki til landsins fyrr en í gær, degi fyrir leikdag. Willum segir, án þess að hann þekki ástæðurnar að baki því, gefi það vís- bendingar um að til standi að komast eins ódýrt frá verkefninu og kostur sé. Draumurinn um HM sé úti og því hafi sambandið ákveðið að draga úr kostn- aði við heimsóknina. Willum er afar spenntur fyrir leikn- um. „Það er ofsalega gaman að við skul- um vera búnir að spila okkur í þessa stöðu. Ég finn að það er mikill áhugi fyr- ir þessum leik og ég hlakka mikið til.“n 46 Sport 7.–9. júní 2013 Helgarblað Íslenska liðið Í dauðafæri n Sigur á Slóveníu í kvöld setur Ísland á topp riðilsins n Aldrei meiri möguleikar en núna Baldur Guðmundsson blaðamaður skrifar baldur@dv.is „Hann Lars hef- ur náð vel til leik- manna liðsins og byggt upp tiltrú liðsins á hug- myndafræðinni. Barist um boltann Birkir Bjarnason verður vafalítið í byrjunarliðinu gegn Slóveníu í kvöld. Staðan í riðlinum Lið Leikir Stig Markatala Sviss 5 11 +6 Ísland 5 9 +1 Albanía 5 9 +1 Noregur 5 7 0 Kýpur 5 4 -4 Slóvenía 5 3 -4 Líklegt byrjun- arlið Íslands 12 2 8 16 17 9 14 21 22 23 11 Hannes Birkir Már Birkir Ragnar Aron Einar Kolbeinn Kári Emil Eiður Smári Ari Freyr Alfreð Hafa gert vel Lars og Heimi hefur að mati Willums tekist vel upp það sem af er móti. Hann vill þó sjá betri sóknarleik. Hlakkar til leiksins Willum myndi setja Eið Smára í byrjunarliðið í kvöld. Fylgstu með þessum þremur Nýliðinn Kevin Kampl er leikmaður Salzburg í Aust- urríki og er nýlega kominn í landsliðið. Hann er áberandi vinnusamur á miðjunni og hefur gefið liðinu ferskan blæ. Markvörðurinn Þekkt- asti leikmaður Slóvena er markvörður Inter Milan, Samir Handanovic. Þar fer enginn aukvisi; reyndur markvörður í fremstu röð. Markaskorarinn Tim Matavz er skeinu- hættur. Hann er framherji PSV í Hollandi og hefur skorað tvö mörk Slóvena í keppninni af þremur. Þessir hafa spilað mest Leikmaður Mínútur Gylfi Þór Sigurðsson 450 Birkir Bjarnason 450 Hannes Halldórsson 450 Ragnar Sigurðsson 450 Emil Hallfreðsson 390 Aron Einar Gunnarsson 360 Rúrik Gíslason 301 Ari Freyr Skúlason 297 Alfreð Finnbogason 286 Mörk Íslands Gylfi Þór Sigurðsson 3 Kári Árnason 1 Alfreð Finnbogason 1 Birkir Bjarnason 1

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.