Dagblaðið Vísir - DV - 07.06.2013, Qupperneq 52
52 Fólk 7.–9. júní 2013 Helgarblað
Á von á sér í lok árs
Þriðja barn Kate Winslet væntanlegt
L
eikkonan Kate Winslet á von
á barni með eiginmanni sín-
um Ned Rocknroll. Þetta
staðfestir talsmaður leikkon-
unnar og segir að Kate og Ned séu
afar hamingjusöm. Barnið er það
þriðja í röðinni hjá Kate en fyrir á
hún Mia og Joe. Þetta verður fyrsta
barn þeirra Kate og Ned saman.
„Barnið er væntanlegt í lok árs og
þau eru alsæl,“ segir talsmaðurinn
í samtali við MailOnline.
Leikkonan hefur sagt að hún
vilji ala börnin sín upp þannig
að þau beri virðingu fyrir öðr-
um þrátt fyrir að vera börn frægr-
ar leikkonu. „Ég vil að þau upplifi
venjulega barnæsku og séu þakk-
lát og sýni öðrum virðingu. Ég vil
að þeim finnist merkilegt að fljúga
á fyrsta farrými.“ n
Victoria mætti með
14 ára herra
n Victoria Beckham mætti á
„Glamour Women of The Year“
hátíðina ásamt elsta syni sínum,
Brooklyn, 14 ára. Victoria tók á
móti verðlaunum fyrir „konu síð-
asta áratugar“ og notaði tækifærið
til þess að hæla syni sínum. „Takk
fyrir að vera herrann minn hér í
kvöld Brooklyn. Þú ert myndarleg-
asti maðurinn á svæðinu.“ sagði
stolt móðir um frumburð sinn. Hún
þakkaði einnig foreldrum sínum
og eiginmanni fyrir stuðninginn og
lauk ræðunni með því að lofa konur
með orðunum „Girl Power“.
Kim loksins skilin
n Kim Kardashian hefur feng-
ið lögskilnað frá fyrrum eigin-
manni sínum, Kris Humphries.
Kannski ekki seinna
vænna þar sem
hún á von á
stúlkubarni í
júlí með sínum
heittelskaða,
Kanye West. Kim
tók á móti löggilt-
um skilnaðarpappírum í dómhús-
inu í Los Angeles, mánudaginn 3.
júní og tvítaði um þennan merka
áfanga og birti myndir af pappír-
unum fyrir heiminn til að sjá.
Stelpuslagur í beinni
n LeAnn Rimes kom fram hjá Jay
Leno á dögunum og frumflutti lag
sitt „Spitfire“. Lagið er talið vera um
Brandi Glanville, en
hún er fyrrver-
andi eiginkona
Eddie Cibrian,
sem er núver-
andi eiginmaður
LeAnn. Þær stöll-
ur hafa eldað grátt silf-
ur saman um dagana, en LeAnn
og Eddie byrjuðu að hittast þegar
hann var giftur Brandi. „I only got
one burning desire to let the whole
town know that you‘re a dirty little
liar,“ sem gæti hljómað svona í
mjög frjálslegri þýðingu: „Ég hef
brennandi áhuga á að láta alla vita
hversu rotin og lygin þú ert.“
Stjörnu
fréttir
Íris Björk
Jónsdóttir
Sorg í sviðsljósinu
Paris Jackson reyndi að svipta sig lífi
P
aris Jackson, fimmtán ára
dóttir poppstjörnunnar
Michaels Jackson, var flutt á
sjúkrahús í Los Angeles í gær-
morgun eftir sjálfsvígstilraun.
Á vefsíðu TMZ segir að Paris hafi tekið
íbúfentöflur og skorið sig með stórum
búrhníf. Á vefsíðunni er einnig greint
frá því að Paris hafi hringt í neyðarlínu
vegna sjálfsvíga og skrifað kveðjubréf.
Lögfræðingur Katherine Jackson,
ömmu Paris, sagði ástand hennar eft-
ir atvikum gott og hún nyti aðhlynn-
ingar á sjúkrahúsi.
Hin óstýriláta systir Michaels
Jackson, La Toya, bað fjölmiðla um
grið á meðan fjölskyldan leysti vand-
ann í sameiningu. Bróðir Paris, Prince
Michael, hefur afboðað sig á þýskri
sjónvarpsstöð og flaug samstundis
heim til þess að vera við hlið systur
sinnar.
Dapurleg skilaboð á Twitter
Paris er nokkuð virk á Twitter og
bentu síðustu skilaboðin til þess að
hún væri ansi döpur: „Í gær virtust
vandamálin langt að baki en nú virð-
ist sem þau séu komin til að vera,“
skrifaði hún. En um fjögur ár eru liðin
síðan faðir hennar, Michael, lést úr of
stórum skammti lyfja.
Hún var ólíkt hressari í myndbandi
sem hún setti á Youtube í lok maí-
mánaðar. Þar sýnir Paris aðdáendum
sínum hvernig hún farðar sig. „Hæ,
andlit sem sést aldrei opinberlega án
farða, segir hún í byrjun myndbands-
ins áður en hún byrjar förðunina. Á
meðan hún farðar sig rabbar hún um
hitt og þetta, segir frá því að hún hafi
horft á kvikmyndina Tangled þrisvar í
viku á síðasta ári og að sem barn hafi
hún viljað giftast kúreka. Þá grett-
ir hún sig og geiflar, tekur loftgítar og
segist hálfbrjáluð og þurfa hjálp.
Erfitt líf og flókin fjölskylda
Það hefur án efa verið erfitt að alast
upp í miðju sviðsljóssins. Líf Michaels
Jackson var skrautlegt og var hann
vinsælt efni slúðurblaða meðal
annars vegna umtalsverðra lýtaað-
gerða og ákæru um kynferðisofbeldi
gegn ungum dreng sem var sett fram
árið 1993 en Jackson var sýknaður
árið 2005.
Michael Jackson kvæntist Lisu
Marie Presley, dóttur Elvis Presley
árið 1994 en þau skildu eftir tæp tvö
ár. Hann kvæntist svo Debbie Rowe,
hjúkrunarkonu sem hann kynntist er
hann fór í lýtaaðgerð árið 1997. Þau
eignuðust tvö börn, Prince Michael
og hana Paris sem heitir fullu nafni
Paris Michael Katherine. Þau skildu
árið 1999 og er Debbie í engu sam-
bandi við börn sín, eins furðulegt
og það nú er. Jackson var með for-
ræði yfir börnunum tveimur auk þess
þriðja, Prince Michael II, sem Jackson
eignaðist með óþekktri konu.
Heimilisofbeldi og peninga-
gráðug ættmenni
Eftir dauða Jacksons hefur gengið á
ýmsu í fjölskyldunni. Atburðir á síð-
asta ári vöktu með fólki ugg en þá var
lögregla kölluð að heimilinu vegna
heimilisofbeldis og þá hvarf amma
barnanna, en hún hefur forræði yfir
þeim, um nokkurra daga skeið. Þá
daga auglýsti Paris eftir henni á Twitt-
er-síðu sinni og hafði af henni miklar
áhyggjur. Aldrei hefur verið greint ná-
kvæmlega frá því hvað gengur á í lífi
fjölskyldunnar en vísbendingar hafa
borist um að aðrir ættingjar gangi
hart að ömmu Paris og vilji fá frá
henni peninga.
Hvað sem það er sem þjakar
börn Jacksons eftir dauða hans
er ljóst að þrátt fyrir auð og frægð
getur sorgin verið nístandi í sviðs-
ljósinu. n
Kate Winslet Alsæl með ófrískuna
Sir David Attenborough
fluttur á spítala
N
áttúrufræðingurinn góð-
kunni, Sir David Atten-
borough, var fluttur á
spítala á þriðjudag þar
sem hann undirgekkst bráðaað-
gerð á hjarta. Aðgerðin var fram-
kvæmd að áeggjan hjartasér-
fræðings Attenborough, sem taldi
aðgerðina ekki geta beðið, en
til stendur að koma fyrir gervi-
gangráði. Hinn 87 ára gamli dýra-
sérfræðingur neyddist því til að
hætta við Ástralíuför sína á síðustu
stundu en læknar segja aðgerðina
hafa heppnast vel og að Atten-
borough muni að öllum líkindum
ná fullum bata. n
Elskaður og dáður Sir David Atten-
borough hefur unnið mikið frumkvöðlastarf
á sviði dýrafræða.
Fjölskyldan
Kate, Ned og
börnin tvö.
Undirgekkst bráðaaðgerð á hjarta
Jackson börnin Hér er Paris fyrir miðju
með systkinum sínum áður en hún breytti
um útlit. Bræður hennar heita Prince Micha-
el og Prince Michael II, kallaður Blanket.
Ákall um hjálp Paris er virk á Twitter og
síðustu skilaboð hennar áður en hún reyndi
að svipta sig lífi voru dapurleg. Hún breytti
útliti sínu nýlega á dramatískan hátt, en það
er eitt hættumerki um að eitthvað bjáti á.