Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.2014, Blaðsíða 8
Helgarblað 10.–13. janúar 20148 Fréttir
lágmarkslaunum
n Tugþúsundir vantar upp á n Starfsmaður hjúkrunarheimilis flýr borgina vegna leiguverðs
H
undrað og fjörutíu þúsund
krónur vantar upp á
að einstaklingur á lág
markslaunum, sem býr í
60 fermetra íbúð vestan
Kringlumýrarbrautar, geti lifað sam
kvæmt dæmigerðu neysluviðmiði
Velferðar ráðuneytisins.
Samkvæmt nýundirrituðum
kjarasamningum hækka laun Ís
lendinga um 2,8 prósent nú í byrjun
árs, en laun í lægstu launaflokkun
um munu hækka um allt að 5 pró
sentum. Þetta þýðir að launataxtar
undir 230 þúsundum króna hækka
um 9.750 krónur á mánuði. Lægstu
laun fyrir 40 stunda vinnuviku 18
ára og eldri sem starfað hafa fjóra
mánuði samfleytt hjá sama fyrirtæki
hækka því upp í 213.750 krónur á
mánuði. Frá þessu dragast þá skatt
ar, en samkvæmt vefreiknivél ríkis
skattstjóra verða launin mest um
184.519 krónur eftir skatt.
Lágmarkslaunin nægja ekki til
að lifa eftir neysluviðmiði umboðs
manns skuldara, sem er þó ekki
hugsað sem heimilisbókhald sem
hægt sé að búa við til frambúðar.
Ríflega 40 þúsund krónur vantar þar
upp á.
Nægir vart fyrir mat
„Ég rétt skríð upp í 200 þúsund
krónur, kannski 205 þúsund –
stundum minna,“ segir kona sem
starfar á hjúkrunarheimili á höfuð
borgarsvæðinu í samtali við blaða
mann DV. Konan, sem vill ekki
koma fram undir nafni, er ófaglærð
og í 90 prósenta starfi en með þó
nokkra reynslu. Hún segist einung
is hafa 10 til 15 þúsund krónur til
að lifa á eftir að hafa borgað leigu
og reikninga síðasta mánaðar. Hún
býr ein og leigir íbúð fyrir 130 þús
und krónur á mánuði, fyrir utan hita
og rafmagn. Afgangspeningurinn
myndi vart nægja fyrir mat ef hún
hefði ekki möguleika á heitri máltíð
í vinnunni.
Skortur á ódýrum leiguíbúðum
Umræða undanfarinna vikna hef
ur dregið upp á yfirborðið alvar
legan skort á litlum, ódýrum
leiguíbúðum, en vísitala leiguverðs
á höfuðborgarsvæðinu hækkaði um
10 stig á síðasta ári. Samkvæmt upp
lýsingum Þjóðskrár frá því í nóvem
ber nær meðalfermetraverð þriggja
herbergja leiguíbúða í mismunandi
hverfum höfuðborgarsvæðisins
frá 1.558 til 1.945 króna á mánuði.
Ef einstaklingur leigir litla þriggja
herbergja, 60 fermetra íbúð vestan
Kringlumýrarbrautar á meðal
verði greiðir hann 94.800 krónur
á mánuði, að frádregnum fullum
húsaleigubótum.
„Ekki hægt að lifa á
þessum launum“
Ef einstaklingur sem er á lágmarks
launum leigir slíka íbúð á hann
einungis tæpar 90 þúsund krónur
afgangs til að greiða fyrir mat, sam
göngur, lækniskostnað, föt, síma og
net, tómstundir, og alla aðra þjón
ustu í mánuðinum. Aðspurður,
á Beinni línu á DV.is á mánudag,
hvort hann gæti hugsað sér að lifa á
lágmarkslaunum, sagði Vilhjálmur
Birgisson, formaður Verkalýðsfé
lags Akraness: „Nei, og ég fullyrði
að það er ekki hægt að lifa á þess
um launum. […] Gleymum heldur
ekki að dæmigert neysluviðmið fyrir
einstakling samkvæmt velferðar
ráðuneytinu er 229.000 krónur og er
húsnæðiskostnaður ekki inni í því.
Á þessu sést að það er ekki hægt að
lifa á þessum launum.“
Hófsemi og meinlæti duga ekki til
Sú fjárhæð er einnig langt frá því að
nægja fyrir framfærslu barnlauss
einstaklings samkvæmt framfærslu
viðmiði umboðsmanns skuldara,
sem gerir ráð fyrir að hann þurfi
tæpar 133 þúsund krónur á mánuði
í framfærslu. Þetta viðmið er þó
tæpum hundrað þúsund krónum
lægra en dæmigerð neysla ein
stæðings á mánuði. Af þessu má
ráða að útborguð lágmarkslaun,
184.519 krónur, nægja engan veg
inn til að framfleyta einstaklingi
sem leigir dæmigerða íbúð vestan
Kringlumýrarbrautar. Mikið vantar
upp á eins og sést á meðfylgjandi
skýringarmynd.
Viðmiðið er ekki hugsað sem
heimilisbókhald til frambúðar. „Það
er gert ráð fyrir að þú búir við tak
markaðri fjárhag í 1 eða 3 ár á með
an það er verið að greiða upp skuld
ir,“ sagði Svanborg Sigmarsdóttir,
upplýsingafulltrúi umboðsmanns
skuldara. Ekki er gert ráð fyrir ferða
lögum, neyslu áfengis eða tóbaks,
endurnýjun á raf og heimilistækj
um eða ökutækjum svo dæmi séu
nefnd.
Jafnvel ef fólk sættir sig við slík
an takmarkaðan fjárhag tímabund
ið og flytur sig í 15 fermetra her
bergi í atvinnuhúsnæði, sem kostar
55 þúsund krónur á mánuði, er ljóst
að það nær ekki að framfleyta sér
á lágmarkslaunum. Fólk getur því
varla lagt fyrir, eða sparað til að geta
síðar brugðist við ófyrirséðum en
óhjákvæmilegum kostnaði, svo sem
veikindum.
„Ég get ekki einu sinni
leyft mér að fara á kaffihús“
Konunni sem DV ræddi við líkar
starf sitt á hjúkrunarheimilinu vel,
finnst það gefandi, og kveðst vilja
búa áfram í Reykjavík en sér ekki
hvernig það sé hægt á þeim launum
sem henni er úthlutað. Þær 10 til 15
þúsund krónur sem hún á eftir í lok
mánaðarins nægja ekki einu sinni
fyrir þriggja mánaða korti í strætó,
hún segist rétt ná að skrapa saman
fyrir mánaðarkorti og því aldrei geta
sparað við sig í samgöngum. Á því
eina og hálfa ári sem konan hefur
búið í höfuðborginni hefur hún
einu sinni leyft sér að fara í bíó og
einu sinni út að borða. „Ég get ekki
einu sinni leyft mér að fara á kaffi
hús.“ Slíkt ástand er mjög lýjandi
til lengdar. Maður verður einhvern
tímann að leyfa sér eitthvað.“
Konan segir mjög marga sam
starfsmenn hennar vera í svipaðri
stöðu. Sjálf hefur hún afráðið að
flytja úr höfuðborginni, enda hefur
hún reiknað út að eftir flutning
ana muni hún eiga 40 til 45 þúsund
krónur á mánuði til að lifa af. „Það
er ekki mikið,“ bætir konan þó við.
„Þétting örvæntingar“
Séra Sigurður Árni Þórðarson,
prestur í Neskirkju, segist í samtali
við DV upplifa sífellt meiri angist
meðal fólks sem kemur og ræðir við
hann. Hann telur að æ fleiri launa
menn í fullri vinnu eigi erfitt með
að ná endum saman. Þrátt fyrir að
minna sé um launalítið fólk í vestur
bæ Reykjavíkur, þar sem hann þjón
ar, en annars staðar á höfuðborgar
svæðinu, meðal annars vegna hærra
leiguverðs, segist hann finna fyrir
ákveðinni „þéttingu örvæntingar“ í
samfélaginu. n
Gengur ekki upp
Tekjur: 206 þús.
Útgjöld: 250 þús.
Framfærsluviðmið
velferðarráðuneytisins
Heildarútgjöld án
húsnæðis: 229.713 kr.
Húsnæði: 116.800 kr.*
Samtals: 346.513 kr.
Húsnæði
116.800 kr.*
*60 fermetra íbúð á meðalverði vestan Kringlumýrarbrautar. Athugið að hiti og rafmagn er ekki inn í þessari tölu.
Matur/hreinlæti
43.025 kr.
Samgöngur
44.611 kr.
Dæmigerð útgjöld:
347 þús.
Útborguð
lágmarkslaun
184.519 kr.
Húsaleigubætur 22.000 kr.
Súlurnar sýna svart á hvítu að
lágmarkslaun duga engan veginn
til að framfleyta einstaklingi á
höfuð borgarsvæðinu. Viðmiðið,
rauða súlan, byggir á lágmarks
neysluviðmiði einstaklings sam-
kvæmt umboðsmanni skuldara.
Föt/skór 8.977 kr.
Læknar/lyf 8.838 kr.
Tómstundir 11.707 kr.
Samskipti 11.473 kr.
Kristján Guðjónsson
kristjan@dv.is
Önnur
þjónusta
4.081 kr.
Skortur á ódýrum leiguíbúðum Vísitala leiguverðs hækkaði um 10 stig á síðasta ári.
MyNd SiGtryGGur Ari
„Ég get ekki
einu sinni
leyft mér að fara
á kaffihús
Á Beinni línu „Ég fullyrði að það er ekki
hægt,“ sagði Vilhjálmur spurður hvort hann
treysti sér til að lifa á lágmarkslaunum.
Ekki hægt að lifa á