Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.2014, Blaðsíða 46
46 Menning Helgarblað 10.–13. janúar 2014
Tvær sýningar voru opnaðar í
gær, fimmtudag, í Ljósmyndasafni
Reykjavíkur. Annars vegar sýning
ljósmyndarans Vincents Malass-
is í Kubbinum og hins vegar sýn-
ing spænska ljósmyndarans Elo
Vázques í Skotinu.
Hversdagsljómi
Vincent Malassis býr í Frakklandi
og sýnir landslagsmyndir og por-
trett af íbúum þorps í skóglendi
Bretaníuhéraðs í Frakklandi.
Myndheimurinn er skemmtileg-
ur og sýnir fólk í hversdeginum.
Hulinn heimur
Elo opnar sýninguna Behind. „Öll
skiljum við hluti eftir og öll erum
við skilin eftir. Handan við hið
augljósa er hulinn heimur. Þessar
ljósmyndir bæði kveikja ljós og
stökkva á bak við hluti bæði í
tíma og rúmi,“ segir í tilkynningu
frá sýningarhöldurum.
Unnustinn myndefnið
Elo er unnusta Óttars Martins
Norðfjörð rithöfundar og búa þau
á Spáni með viðkomu á Íslandi
endrum og eins.
Óttar er reyndar myndefni Elo
en hún sýnir ljósmyndir af honum
fyrir aftan hluti. Gestum býðst
líka að taka mynd af sjálfum sér á
sýningunni fyrir aftan trjágrein og
verða þannig hluti af sýningunni.
Brúðkaup á Spáni í haust
Þetta er fimmta einkasýning
Elo en hún hefur haldið þrjár á
Spáni og tvær á Íslandi. Þá hafa
myndir eftir hana hafa verið birt-
ar í tímaritum og vefsíðum á
borð við ELLE, Apartamento og
Booooooom. Elo og Óttar hafa
verið saman í tæp 10 ár og ætla
að gifta sig í haust á Spáni.
Ljósmyndir
Elo og Malassis
Forvitnilegar
stórmyndir
O
furhetjurnar verða á sínum
stað eins og þær hafa verið
það sem af er öldinni og lítill
vafi á að margir bíða spennt-
ir eftir X-Men: Days of Future
Past. Myndin er byggð á einni þekkt-
ustu X-Men sögunni og segir frá því
þegar „gömlu“ X-mennirnir, undir
forystu Prófessor X, leiknum af Pat-
rick Stewart, mæta yngri útgáfum af
sjálfum sér undir forystu Prófessor
X, leiknum af James McAvoy. Saman
verða þeir svo að breyta framtíðinni
til að afstýra árás risavélmenna. Leik-
stjórinn Brian Singer, sem leikstýrði
tveim fyrstu (og bestu) myndunum
snýr aftur og lofar að þetta verði „Guð-
faðir II“ ofurhetjumyndanna.
Kyntröllið Michael Fassbender
leikur hinn unga Magneto, en hann
leikur jafnframt í mynd sem virðist
nánast sjálfgefinn
Óskarssigurvegari, 12 Years a
Slave, sem fjallar um frjálsan mann
sem er gerður að þræl í Suðurríkjun-
um. Eins og í Django Unchained eru
helstu kyntákn hvíta mannsins í stöðu
kúgaranna, þar var það Leonardo
DiCaprio en hér Brad Pitt, en búast
má við að leikslok verði eitthvað öðru-
vísi en hjá Tarantino.
Njósnarar og nasistar
2014 stefnir annars í að verða ár Fass-
benders sem hefur verið á góðri sigl-
ingu undanfarið og mun nú vafalaust
skipa sér í fremstu röð, því hann leik-
ur einnig í nýjustu mynd Ridley Scott,
The Councellor, á móti Penelope Cruz
og fleiri stórstjörnum. Scott er annars
nú að gera mynd með Christian Bale
sem Móses, en mynd Aranofsky með
Russel Crowe sem Nóa á Íslandi er
einnig væntanleg.
Það eru ekki aðeins ofurhetjur
sem snúa aftur, því nýjasta myndin
um njósnarann Jack Ryan, sem er
nokkurs konar svar Bandaríkjamanna
við James Bond, mun einnig birt-
ast, að sjálfsögðu í leikstjórn Bretans
Kenneth Branagh. Kafteinn Kirk sjálf-
ur, Chris Pine, leikur Ryan sem hér er
að byrja í njósnum en Kevin Costner
leikur lærimeistara hans. Önnur
njósnamynd er Child 44, með Gary
Oldman og Svíanum Noomi Rapace,
en hún gerist í Sovétríkjum Stalíns.
Fyrir aðdáendur seinni heims-
styrjaldarinnar er sitthvað við að vera.
George Clooney og Matt Damon
leita að listaverkum sem nasistar
stálu á síðustu dögum stríðsins í The
Monuments Men, á meðan Brad Pitt
stjórnar áhöfn skriðdreka á bak við
víglínur óvinarins í Fury. Clooney
leikur síðan á móti Hugh Laurie í vís-
indaskáldsögunni Tomorrowland,
en önnur vísindaskáldsaga er Jupiter
Ascending eftir Wachowski-bræður,
sem hóta því að bylta geiranum eins
og þeir gerðu síðast með Matrix.
Uppvakningar og kóngafólk
Ef til vill bíða einhverjir spenntir eftir
næstu Transformers-mynd, þar sem
risaeðluvélmennin koma loks við
sögu, en vafaatriði er hvort hasar-
inn verði jafn yfirgengilegur og leik-
stjórinn Michael Bay hefur ný-
lega verið á sviði. Ein mesta
hasarhetjan af þeim öllum,
Arnold Schwarzenegger, hefur
átt heldur dræma endurkomu á hvíta
tjaldið eftir að stjórnmálaferli hans
lauk, en nú kveður við nýjan tón. Í
myndinni Maggie þarf hann að tak-
ast á við unglingsdóttir sína, sem svo
óheppilega vill til að er að breytast
í uppvakning. Önnur táningsstúlka
sem býr sig undir að verða atkvæða-
mikil á árinu er Annie í endurgerð af
mynd sem sumir muna ef til vill eft-
ir úr Austurbæjarbíói. Á meðan mun
kollegi Arnie, Stallone, berjast við
Robert De Niro í hringnum í Grudge
Match.
Kóngafólkið lætur sitt ekki eftir
liggja, en Nicole Kidman mun leika
Grace prinsessu af Mónakó og við
sjáum til hvort sú mynd gangi betur
en Díana gerði. Frankenstein birtist í
tveim skömmtum. Annars vegar berst
hann við vampírur og annað illfygli í
I, Frankenstein, en mynd sem nefn-
ist einungis Frankenstein mun fjalla
um samband vísindamannsins og að-
stoðarmannsins Igor, sem leikinn er af
sjálfum Harry Potter, Daniel Radcliffe.
Handritið þykir gott, en myndin mun
víst ekki birtast fyrr en 2015.
Kvikmyndahátíðir árið um kring
Það verður þó ýmislegt annað um að
vera í bíóborginni í ár. RIFF verður
á sínum stað í haust en þangað til er
Bíó Paradís nánast ein samfelld kvik-
myndahátíð. Í bili standa yfir sýningar
á öllum þeim myndum sem koma
til álita sem besta erlenda myndin á
óskarnum, þar á meðal hin frábæra
Hross í oss eftir Benedikt Erlingsson.
Örmyndahátíð verður haldin í febrúar,
þýsk kvikmyndahátíð í mars og barna-
myndahátíð á svipuðum tíma. Í apríl
verður síðan Reykjavík Shorts and
docs, pólsk kvikmyndahátíð í fjórða
sinn, og helsta kvikmyndagerðarland
í heimi, Indland, verður líka heiðrað
með hátíð.
Bíóárið hefst að vanda með franskri
kvikmyndahátíð í Háskólabíó sem
hefst þann 17. janúar, en opnunar-
myndin að þessu sinni nefnist Eyja-
fjallajökull og fjallar um ástarsamband
sem upphefst meðan fólk bíður eftir
flugi sem aflýst hefur verið vegna eld-
gossins fræga. Maður þarf því ekki að
láta sér leiðast í ár, jafnvel þó ólíft verði
utandyra sökum veðurs. n
„Maður þarf
ekki að láta sér
leiðast í ár, jafnvel þó
ólíft verði utandyra
sökum veðurs.
Valur Gunnarsson
valurgunnars@gmail.com
Sumarið 2013 var Íslendingum erfitt. Ekki aðeins ríkti
eitthvert versta veður í manna minnum, heldur voru
sumarstórmyndirnar með afbrigðum slappar. Veðrið
versnaði eftir því sem leið á haustið en bíóið batnaði
á móti, og stórmyndir á borð við Gravity og Captain
Philipps bættu að einhverju leyti upp yfirstaðnar
hörmungar. En hvernig ætli árið 2014 verði?
Bíóspá ársins
Töfrahurðin
í Salnum
Vínartónlistin mun hljóma og
dansinn duna í Salnum í Kópa-
vogi um helgina á árlegum tón-
leikum, Töfrahurðinni. Tónleik-
arnir í ár verða með veglegu sniði,
en nú munu tónskáldin Jóhann-
es Strauss og Madame Pirruette
verða aðalstjörnur tónleikanna.
Vínarvalsarnir verða leiknir af
Skólahljómsveit Kópavogs undir
styrkri stjórn Össurar Geirsson-
ar ásamt fjölda gesta sirkuslista-
manna frá Sirkus Íslandi. Boðið
verður upp á danskennslu á
staðnum svo allir geti tekið þátt.
Hross í oss Kemur til álita
sem besta erlenda myndin
á Óskarsverðlaunum.
Nicole leikur Grace Kóngafólkið lætur sitt ekki eftir liggja, en Nicole Kidman mun leika Grace prinessu af Mónakó og við sjáum til hvort sú mynd gangi betur en Díana gerði.
Ár Fassbenders Michael Fassbinder mun
skipa sér í fremstu röð á árinu. Hann leikur í
nýrri mynd Ridley Scott, The Councellor, leikur
ungan Magneto í X-Men: Days of Future Past
og einnig í stórmyndinni 12 Years a Slave.
Seinni heimsstyrjöld
í brennidepli George
Clooney og Matt Damon
leita að listaverkum
sem nasistar stálu á
síðustu dögum stríðsins
í The Monuments Men, á
meðan Brad Pitt stjórnar
áhöfn skriðdreka á bak við
víglínur óvinarins í Fury.